diff --git "a/pages/826b4d3d-0df9-428a-b821-928f5a9a8d92.html" "b/pages/826b4d3d-0df9-428a-b821-928f5a9a8d92.html" new file mode 100644--- /dev/null +++ "b/pages/826b4d3d-0df9-428a-b821-928f5a9a8d92.html" @@ -0,0 +1,1940 @@ + + + + + + Spjallrómur + + + + + + + + + + + + + + +
+ + + + + +
+
+ + +
+ + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + +
1Já, sjálfkeyrandi bílar. +
2Já, færð þú aðra setningu en ég? +
3Já, það gæti verið, já. +
4Já, það er sniðugt, hvað fékkst þú? +
5Hvort við myndum kaupa sjálfkeyrandi bíl? +
6Ójá, get ekki beðið eftir að þurfa ekki að keyra lengur. +
7Já, ókei, +
8Neipp, það er eitt af því leiðinlegasta sem ég geri. +
9ja, hérna. +
10Ja, þetta sé leiðinlegt að keyra en mér finnst það reyndar svolítið skemmtilegt. En ég er samt með kannski einhverjar á, sko, efasemdir um ágæti þessara bíla +
11svona við aðstæður sem að maður, þeir kannski ráða ekki við. +
12Jú algjörlega, það er hérna, það getur það og svo er alls konar, +
13Gæti, gæti endað illa. +
14alls konar vandamál sem koma upp eftir því hvaða, hvaða +
15ákvörðun, þótt þeir séu með fullkomnar ákvarðanir. En hvaða ákvarðanir eiga þeir að taka er oft spurning líka, sko. +
16Já, +
17það er reyndar eitt sem ég hef sérstakar áhyggjur af, að það eru svona, má eiginlega segja, +
18samskipti bílanna við aðra vegfarendur, af því að, hérna, það +
19er, sko, ég veit ekki hvort þú tekur eftir því en ef þú ert til dæmis að bara fara yfir götu +
20að þá svona ósjálfrátt þá horfum við oft á bílstjórann. +
21Já. +
22Við, við horfum á manneskjuna við stýrið +
23til þess að sjá hvort hún hafi nú ekki örugglega tekið eftir okkur, þegar við stöndum svona við vegarbrúnina. Og svo kemur bíllinn náttúrlega æðandi og þá tökum við ákvörðun sem gangandi vegfarendur eða einhverjir eða hjólandi hvort að við treystum þessum bíl til að stoppa +
24Akkúrat, akkúrat það sem ég get, já. +
25Nei, akkúrat. +
26eða sjáum að það er þarna verið að bregðast við okkar, svona, +
27já, bara við okkur +
28og ef við sjáum ekki nein viðbrögð þá náttúrulega þorum við kannski ekki að gera neitt. +
29En ef við sjáum viðbrögð, þá eru svona dálítið fram og til baka svolítið á milli þín og bílstjórans. Já, ókei, ég ætla að hægja á mér, +
30ég er að fara að hleypa þér núna. +
31Ég fylgist með þér alla leiðina yfir. En þessir +
32sjálfkeyrandi bílar, ef þeir eru ekki með +
33andlit, þá veit ég ekki hvar þessi samskipti eiga eftir að taka, eiga sér stað. +
34Já akkúrat, það, náttúrlega bílarnir, munu sjálfir tala saman með +
35er það ekki fimm gé sem átti að breyta því öllu. +
36Nákvæmlega. +
37En það var ekkert talað um þetta, sko, það er. +
38Já. +
39Já, ókei. +
40Já. +
41En fólkið, fólkið, sem er að bíða eftir svona einhverjum merkjum, +
42og ég tók rosalega eftir þessu á Indlandi þar sem að náttúrlega er +
43svakaleg umferð. +
44Og það er svolítið svona, sko svona í fyrstu sýn þá virkar það svolítið svona mikið sem +
45kaos, bara alger óreiða, allir að ryðjast og allt, allir að troðast en svona, svo tekur maður smám saman eftir því að þetta +
46gengur upp +
47hjá þeim af því að það eru svo rosalega mikil samskipti á milli allra sem eru að keyra +
48og alla sem eru að stýra. Að það er stöðugt verið að +
49horfa hvor á annan sko, reyna að finna svona ókei sko þú veist. Ég hleypi þér núna hérna, +
50þú ferð hérna á undan, ég kem hérna á eftir og það er, náttúrulega, verið að flauta og tala og hrópa og allt þetta. En þetta miðar allt að því að þetta er svona samstarfsverkefni og ég get ímyndað mér, sko, ef það eru ekki nein svona samskipti kannski á milli einstaklinga og þarna er náttúrlega líka rosalega mikið af gangandi fólki +
51og fólki á hjólum og. +
52Já, mér skilst að gangandi, ég hef ekki verið þarna, en þeir bara eigi að labba +
53á, hérna, jöfnum hraða og treysta því að bílstjórarnir, bara, séu að fylgjast með og hérna +
54keyra í kringum þá. +
55Já, maður vonar það. En það getur líka verið svolítið svakalegt á sumum stöðum. +
56Já, það er örugglega mjög hérna, scary í byrjun, sko. +
57Já. +
58Já. +
59Já, þessi samskipti sem ég, og ég held að þetta gæti verið áhugavert viðfangsefni að, +
60að skoða samskipti við sjálfvirka, sjálfvirk ökutæki, +
61og svona umhverfið, ég held að. Jafnvel bara það að setja mjög stór augu framan á bílinn, +
62sem að sýna okkur hvar bíl, bíllinn er að greina upplýsingar, hvert fókusinn á tölvusjóninni er hverju sinni og +
63að hún sýni að hún hafi nóg, hún hafi merkt okkur sem gangandi vegfarenda með því að lyfta brúnum kannski og brosa, þú veist, +
64þegar hún sér okkur. +
65Já, eða bara hafa gangbrautarljós alls staðar, ef það væri það. +
66Já, já, bara stoppa, doppa umferðina. +
67Já, nei, já, það er spurning sko. +
68Jájájájá. +
69Já. +
70Ég hélt alltaf að þetta yrði svona miklu staðlaðra, kannski ekki alveg lestarteinar, en hérna, +
71það þyrfti bara að gera göturnar upp á nýtt, en það er. +
72Náttúrlega það, sú breyting hefði, þarf að vera miklu, sko, +
73bara svona allt í einu. En leiðin sem að þetta er að fara eða virðist vera +
74að fara núna, sko. +
75Þannig að þá þyrfti, þú veist, eiginlega að taka hina bara úr umferð nánast á sama tíma og hinir væru að koma. +
76Það náttúrlega gengur ekki alveg. +
77Já, það er rétt, þetta, það væri eitthvert tímabil þar sem að þessu ægir öllu saman. +
78Já, það eru líka öll þessi +
79önnur farartæki, mismunandi farartæki +
80sem að, þú veist, ég meina, ég veit ekki, +
81það verður sennilega ekki +
82sjálfkeyrandi, kannski, +
83allar mögulegar tegundir af svona vinnu, vinnuvélum og +
84vinnubílum. +
85Sjálfkeyrandi, hérna, hlaupahjól. +
86Já, svo þau líka. +
87Það er nú kannski óþarfi. +
88Ég veit það ekki. +
89Ertu með einhverjar spurningar? +
90Já, spurningar, já. +
91Ja, hérna, þú ert með, fékkst eitthvað annað? +
92Ég fékk, hérna. +
93Já, hver er uppáhalds bíómyndin þín? Nei, já, +
94þetta breytist. +
95Já, já, það má alveg ræða um það líka, sko. +
96Viltu kannski byrja? +
97Já, +
98já, bíómynd þar er reyndar erfitt að, erfitt að, +
99ákveða bara eina, sko. +
100Lord of the Rings eða Hringadróttinssaga er náttúrlega hátt á listanum, +
101Jájá, þú hefur enst alveg alla lengdina á +
102eins og hjá mörgum. +
103Já, alveg. +
104og bara ekki, ekkert, ekkert svona, engin ládeyða? +
105Nei, og meira að segja bara, erfitt að velja hver er best, sko. Nei, fyrsta er kannski, kannski best eins og, en hinar alveg. +
106Jájá, og hvað með þá Hobbit? +
107En þar klikkuðu þeir algjörlega nefnilega. +
108Já, ókei, þú náttúrlega, já einmitt. +
109Jájá. +
110Mér finnst bókin, Hobbitabókin er sú besta, finnst mér, +
111í þessari seríu. +
112En myndirnar eru alveg, alveg, +
113hræðilegar. Að maður átti von á náttúrlega svo miklu og einhverju svipuðu en svo var þetta bara orðið allt annar pakki. +
114Já, það er nefnilega það. +
115Ég man nú ekkert rosalega mikið eftir, mér finnst ég alveg örugglega hafa skemmt mér ágætlega samt. +
116Jú, jú, akkúrat þær væru svona þannig, sko. +
117En já, einmitt. +
118Já. +
119Jájájájá. +
120En svo það vantaði bara alla svona, +
121af því þeir skiptu náttúrlega einni bók þarna í þrjár myndir. Þannig að, +
122það vantaði risið á fallið og svona venjulega sögu arc +
123í, hérna, í í myndirnar. +
124Síðasta myndin byrjaði á því að, hérna, +
125drekinn dó, sem er þú veist eitt af því, aðalhlutunum sem gerist. +
126Já, akkúrat já, síðasta var nú eitthvað, eitthvað undarleg. +
127Já, þannig að hún byrjaði á einhverjum algerum hápunkti og svo var bara allt, hérna, niður á við eftir það. +
128Já, akkúrat. +
129Já, það er nefnilega það já, af hverju, ég var nefnilega eiginlega bara búinn að gleyma þessu nefnilega. +
130En ég alveg hérna, horfði á allar þrjár Hringadróttinssögu myndirnar á hverjum einustu jólum í mörg ár, sko. +
131Já, hvað segirðu? +
132Vá, það er ekkert smá. +
133Svo þegar lengri útgáfurnar komu þá, reyndar náði, +
134maður ekki kannski öllum, sko, allavega ekki á sama degi. +
135Nei, einmitt. +
136En svona fantasíumyndir, eldri. Það er náttúrlega það, +
137það var einhver svona, voru þarna einhverjar gamlar klassískar myndir +
138sem að voru kannski svona, já, tveim áratugum fyrr á ferðinni. +
139Varst, hefur þú eitthvað verið að, horfir þú eitthvað á það, eða? +
140Það er kannski, þú veist, það er svolítið erfitt kannski að bera það saman? Nei. +
141Nei, þekki það allavega ekki eins vel. +
142Já, þær eldast ekki vel. +
143Nei, ég veit ekki, já, hérna, +
144Star Wars náttúrlega það var, það var alveg +
145tíu til fimmtán árum á undan, er það ekki? +
146Jájá, +
147Og, Indiana Jones þær eru náttúrlega líka góðar, sko, eða skemmtilegar. +
148ég var hugsa um eins og hérna +
149Willow var á sínum tíma rosalega stór svona fantasíumynd. +
150Þekki hana ekki. +
151Já, nei. +
152Þannig að og það, ég man sko þetta, en mér fannst á þeim tíma að, þú veist, það var svolítið talað um hana svolítið eins og er talað síðan um Lord of the Rings, þegar þær koma út. +
153Það var bara svona, allir yrðu að sjá þetta stórvirki en kannski eldist hún ekkert rosalega vel. +
154Eins og fyrsta Star Trek, eða fyrstu Star Trek [UNK] seríurnar kannski? +
155Ja, meina fyrstu, já meinarðu bara fyrsta serían? +
156Já. +
157Hún er reyndar rosalega skemmtileg að mörgu leyti +
158og svona skemmtilegar pælingar, sko. +
159Að, akkúrat, það er reyndar málið, ég horfði á hérna T N T fyrst, +
160af því að þar var grafíkin eða sem sagt svona, +
161myndin orðin betri bara, +
162en svo þegar ég var búinn með það þá fór ég í fyrstu og, hérna, búningarnir og allt svona var náttúrlega bara hræðilegt miðað við standardinn sem við erum með í dag. +
163En, sagan og þættirnir sjálfir voru nefnilega mjög, mjög, skemmtilegir, sko. +
164Já. Já, nú er þetta allt á Netflix núna, eiginlega allt. +
165Já, já. +
166Já, einmitt, já ég, ég alveg að segja að sko, eða þetta er sama hjá mér af því að ég sá ekki þessa fyrstu þætti nema ég var, ég reyndar byrjaði á, á Voyager. +
167Já, það var byrjað að sýna reyndar þarna Deep Space Nine eitthvað en ég einhvern veginn fattaði ekki alveg hvað þetta var þegar að það byrjaði. +
168En síðan þegar ég var, var í Bandaríkjunum að þá var á SciFi Channel, að þá var Voyager akkúrat að byrja og við, þá horfði maður bara á allt Voyager. +
169Síðan svona seinna hefur maður aðeins kíkt á eitthvað á Next Generation en síðan, hérna, +
170eiginkona mín, eiginkona mín var mjög áhugasöm um um fyrstu seríuna. Þá byrjar maður að horfa á það líka. +
171Það, já, það fannst mér bara, það kom svolítið á óvart, í rauninni. +
172Já, bíddu nú við, en er ekki Star Trek er samt að detta út þar. +
173Nú er það? Æi, æi, ég er ekki búinn með helminginn af því. +
174Já, það er að fara að hverfa, sko. +
175Þannig að ef maður nær ekki alveg að horfa, já, einmitt maður bara, grípa tækifærið. +
176Já, og nýja Star Trek-ið, ég byrjaði eitthvað á því það var, það fór svo það, var svipað og Hobbitinn, það er eiginlega það sama, það fór meira í svona spennu og drama og hérna, +
177þannig dót heldur en gömlu þættirnir voru í og minna af, minna af, svona heimspekilegar pælingar, +
178Já, já, en ertu þá að tala um Discovery? +
179sem var það skemmtilegasta við Star, Star Trek fannst mér. +
180Já, akkúrat. +
181Já, það var svona, okkur fannst það svona alveg +
182alveg ágætt, sko. Það var, það voru náttúrlega ansi djúpar pælingar í Discovery með allt þetta svona, +
183þetta er svona, +
184ja eiginlega bara rosa stórar spurningar um lífið og tilveruna og svona +
185áhrif af, hvernig maður hefur áhrif á framvindu heimsins. +
186Það var svolítið skemmtilegt en, það var, jú, jú það var náttúrlega helling af einhverju action líka. +
187Já, jú, reyndar þegar þú segir það, en. +
188Já, það náttúrlega það var svona hnitmiðað í hinum þáttunum, að var allt svona, hver þáttur með sína sögu, en hérna. +
189Já, það er það, einmitt, jú, það er rétt, þegar þetta er komið svona að +
190draga úr, eða svona lengja einhvern veginn +
191Já, og til, og bæta aksjóninu þá inn á milli, sko, óþarfi að, óþarfi að flækja þetta eitthvað. +
192í þessu öllu saman, já, það er rétt. +
193Já, já. +
194Nei, akkúrat. +
195Já, það er ekki nein, maður kemst, það er ekki svona, það er ekki svona röð af einhverjum svona litlum dæmisögum. +
196Þannig var það líka með Picard og þá +
197var það líka svolítið þannig að maður þurfti eiginlega einhvern veginn að bara að horfa á allt saman og horfa á +
198þetta allt saman í einhverjum svona, til þess að, einhvern veginn, átta sig á því hvað þetta var eiginlega um, að fjalla um. +
199En, já hérna myndir svona já, ég, maður. +
200Já, átt þú einhver uppáhalds? +
201Ja, það var allavegana, svona, til mjög lengri tíma þá allavegana +
202talaði ég allavegana um að, að +
203Brazil væri mín uppáhaldsmynd allra tíma. +
204Þú kannast eitthvað við hana? Brazil. +
205Brazil? Nei, nei já, nei, ég þekki hann ekki. +
206Þetta er ekki um Brasilíu. +
207Heldur er slatti tími síðan ég sá þetta síðast. +
208En þetta er svona dystópía +
209og ég er nokkuð viss um að þetta var Terry Gilliam, +
210og, en þetta var svona, +
211ádeila á, á til dæmis skrifræðið +
212á mjög skemmtilegan hátt, og það voru svona atvik í þessari mynd sem bara þú veist eru alveg brennd í minnið +
213eins og þú veist svona, +
214eins og á einhverjum tímakafla var einhver að ganga bara um götuna og, og það var svona +
215fjúkandi pappír úti um allt. +
216Það var svona eitthvað að hvessa, og eitthvað svona, og +
217pappírinn var alltaf einhvern veginn að lenda á manneskjunni og svona hún var eitthvað að hrista pappírinn af sér og, +
218þá bara kom meiri pappír fljúgandi í vindinum og, og lenti á manneskjunni. Og hún var eitthvað að reyna að hrista af sér og gekk eitthvað illa og svo kom alltaf meiri og meiri pappír og, og að lokum að þá var persónan orðin þakin pappír og, og var eitthvað svona að, að veifa höndunum og svo smám saman bara fauk síðan allur pappírinn út í veður og vind og +
219ekkert, ekki sást tangur né tetur af manneskjunni. +
220Þetta var svona eitthvað, mjög, mjög +
221öflugt hérna bara já, fólk að drukkna í pappír og líf bara hreinlega hverfa +
222í einhverja svoleiðis súpu og. Og svo er þarna einn sem var að starfa hjá bákninu og fékk +
223skrifstofu +
224og hérna, fór inn og settist við skrifborðið og +
225fannst nú reyndar eitthvað skrifborðið svona heldur lítið og, og, +
226og mjótt eitthvað og var svona að reyna að lagfæra, +
227eða svona hagræða skrifborðinu aðeins og sá að það væri hægt að, hægt að toga það svolítið úr, út úr veggnum til að, til að +
228fá aðeins meira pláss. +
229Svo hann gerði það og var rosalega ánægður, sko, nú er ég kominn með aðeins meira pláss og en þá allt í einu dróst skrifborðið aftur inn í vegginn. +
230Já. +
231Svo bara heyrðu hvað er? Og togaði aftur út og svo kom í ljós að það var önnur skrifstofa hinum megin sem deildi skrifborðinu. +
232Þar er einhver annar að toga á móti bara, heyrðu hvað? Skrifborðið mitt, þetta +
233Þannig að það var annar þar eða? +
234Já. +
235var pakkað svo rosalega þétt. +
236Það var alls konar svona, en þetta, en þetta var alveg, var alveg rosalegt sko. +
237Þetta var fyndið en alltaf á sama tíma alveg gríðarlega +
238dökk ádeila á, á allt, allt svona og svona +
239manneskjan skiptir rosalega litlu máli í einhverju, einhverri stórri maskínu. +
240Já. Það hljómar áhugavert. +
241Já ætli það ekki, síðan náttúrlega hefur verið eitthvað ýmislegt síðan sko, svo sem þetta er náttúrlega orðin eitthvað +
242frekar gömul mynd, man ekki einu sinni alveg hvenær hún kom út. +
243Já, ég var að skoða einhverjar myndir á meðan þú varst að tala um þetta, það var nítján hundruð áttatíu og fimm, já, +
244Já, kom Brazil út þá, já svei mér þá. +
245samkvæmt Google. +
246Já. +
247En ég held að hún hljóti að endast vel. +
248Ég, það eru reyndar örugglega komin tíu ár síðan ég sá hana síðast. +
249Spurning hvernig, hérna, svona, +
250visual effektin eru, eru í henni, enn þá eða hvort að það, það. +
251Já, ég nefnilega man, +
252Já. +
253Jú, passaði. +
254þetta var svo rosalega bara over the top sko allt saman, bara svona +
255sviðsmyndir sko, bara smíðaðar sviðsmyndir. Ég man ekki eftir rosalega miklu af einhverjum tæknibrellum, en þetta var bara svona, +
256þetta eru svona fáránleg smíði á öllu, og, og. +
257Er þetta ekki Terry Gilliam? +
258Þannig að þú veist, allt sem hann gerir náttúrlega er bara í einhverju svona +
259rosalega miklu svona, svona +
260leik, leikhúsdrama, í rauninni og, og, og +
261það er rosalega mikið. svona fýsískt í þessu. +
262Já, já, þá náttúrlega það er, getur verið ágætt þá. Eins og Star Wars er +
263enn þá mjög töff finnst mér þar voru þeir svo mikið með módel og +
264Já. +
265þannig dót, þannig brellur, frekar en að hérna, +
266og gerði það rosalega vel, sko. +
267Já. +
268Það er magnað. +
269Já. +
270Já, algjörlega. +
271Þannig fékk maður í rauninni fyrst áhuga á svona brellum fyrir alvöru, maður sá. +
272Ég man bara, ég man bara eftir sko Star Wars, hérna +
273þá er það New Hope bara, kom út þá, +
274þá bara ætlaði maður ekki að trúa þessu, að þetta væri hægt og fljótlega held ég bara eftir, ætli það hafi, kannski var það Empire Strikes Back, sennilega, sennilega þegar hún kom út, þá, þá var +
275líka búin til mynd sérstaklega um brellurnar, og það var hægt að leigja þessa mynd, um brellurnar, það var hægt að leigja hana úti í vídeóleigu og, og maður leigði hana aftur og aftur, þessa brellumynd. Bara þú veist maður vildi sýna vinum sínum þetta og allt sjáið bara hvernig þetta er gert er, þetta er ótrúlegt. +
276Öll þessi litlu pínulitlu líkön af öllum, hérna, +
277flaugunum og stöðvunum. +
278Þá einhvern veginn. +
279Það var eiginlega bara þarna sem maður eiginlega ákvað að maður skyldi fara í eitthvað svona, bara búa til, fara +
280að sannfæra fólk um að eitthvað sé fyrir alvöru. +
281Sé bara einhver gervigreind eða sýndarumhverfi eða hvað sem það er. +
282Áttu einhverja uppáhalds, sundlaug? +
283Ekkert, sko, rosalega mikið verið á ferðinni í sundlaugum. +
284Það er náttúrlega. +
285Ja, það má kannski segja, hérna, Ártúnsholtið. +
286Við fórum náttúrulega mikið með krakkana okkar þangað, það var gaman að vera með krakka þar. +
287Árbæjarlaugin þá? +
288Það er já, það er Árbæjarlaug, já, einmitt Árbæ fyrirgefðu, já. +
289En já. Það er svona sem, sem laug sem að, sem maður kannski sækist í þá væri það, væri það hún kannski. En síðan er náttúrlega bara hverfislaugin er hérna Vesturbæjarlaugin og það er náttúrulega, er með bara, það er svona meiri +
290Já. +
291nostalgía kannski í kringum það, að fara þangað. +
292Jájá. +
293Já, það er, er svipað hjá mér, +
294annars fer ég bara í það sem er hentugast eiginlega, ég hef ekki +
295engan, enga sérstaka laug sem ég fer eða svona, þarf að fara í eða vil heldur fara í, það er bara hvað er þægilegt. +
296Já. +
297Ég get kannski bara spurt einhverra spurninga utan þessara spurninga. Hefurðu búið annars staðar í heiminum? +
298Já. +
299Já, ég bjó í Svíþjóð, þegar ég var í meistaranámi, +
300undan því var ég í Frakklandi reyndar bara eitt ár, já, í París. +
301Í Frakklandi? +
302Jájájájá. +
303Vá hvað er, hvað lengi varstu þar? +
304Pabbi minn var að kenna í Sorbonne háskólanum. +
305Jájájá. +
306Bara eitt ár. +
307Þegar ég var fimmtán ára. +
308Já, í bara þá í svona +
309eiginlega grunnskóla, eða þú veist +
310gagnfræðaskóla eða menntaskóla? +
311Jájá. +
312Jájájájá. +
313Já, það heitir lycée þar, sem er svona eiginlega. +
314Já, eiginlega fyrsta stigið af menntaskóla, í rauninni eftir því sem ég best veit. +
315Ég get eiginlega ímyndað mér að þetta hafi verið svolítið svona áhrifarík upplifun, eða svona. +
316Já, hvernig var eiginlega, hvernig var sú reynsla? +
317Já, algjörlega það var, hérna, svona mjög sérstakt, ég náttúrlega skildi ekki neitt, og hérna. +
318Nei, nákvæmlega. +
319Jájájájá. +
320Ekki mikill tungumálamaður, sko, þannig að ég var mjög lengi að læra, eða lærði mjög hægt frönskuna, +
321lærði hana aldrei almennilega, bróðir minn hins vegar, tveimur árum yngri, +
322hann var orðinn mjög góður þegar, hérna, við fluttum til baka. +
323Þannig að þetta var mjög áhugavert allt. +
324Var þetta einhvers staðar svona fyrir miðju í borginni eða +
325sagðirðu ekki Sorbonne? +
326Þá er hún þarna í miðjunni en, en nema það séu þá einhverjir aðrir campus-ar? +
327Jú, já, það. +
328Jájá. +
329Já, það er, það eru alveg nokkrir kampusar, ég man ekki nákvæmlega hvar, +
330við vorum í fimmta hverfi lengi og áttunda hverfi bjuggum við líka. +
331Jájájájá. +
332Já. +
333En alveg hérna sem sagt í í París sjálfri, voru. +
334Og svo, já þegar ég var í Svíþjóð, þá hérna, fór ég í skiptinám til Kóreu og var þar í eina önn. Það var mjög gaman. +
335Vá! +
336Já, það hlýtur að vera, já það hefur verið algjört, +
337þar aftur kannski tungumálið komið inn í sem ákveðin áskorun. +
338Já. +
339Já. +
340Já, akkúrat, hérna, krakkarnir í skólanum töluðu náttúrlega margir ensku en alls ekki allir, sko. Sumir, hérna, +
341ekkert mjög góðir í henni og fólk bara svona almenningur var, hérna, +
342kunni mjög lítið í ensku, sérstaklega eldra fólkið, náttúrlega. +
343Og svo náttúrlega eru þeir með annað, annað letur, +
344en, hérna, maður er svo sem ekki lengi að læra það. +
345Bara skoða það, +
346hérna því það er mjög, það er nokkuð einfalt, það er ekki eins og kínverska og japanska, hérna. +
347Jájá. +
348Jájájájá. +
349Heldur er þetta bara einhver svona, man ekki, milli tuttugu og þrjátíu tákn og svo er þrem til fjórum eða tveim til fjórum blandað saman til að mynda sem sagt atkvæði. +
350Þannig að það, það er mjög töff hvernig þeir gera það, það var meira að segja. +
351Hvað kom til að þú ákvaðst að fara þangað? +
352Ó, vá! +
353Jájá. +
354Já. +
355Eiginlega hérna bæði, +
356en sko, fyrst áhuginn kviknaði í rauninni fyrst gegnum Star Craft tölvuleikinn. +
357Af því að þar var hann spilaður og keppt í honum, það var alveg í +
358stórum mótum og svona, hérna, +
359tölvuleikjasportið +
360má segja að það hafi, hérna, byrjað í Kóreu eða orðið alla vega, þar varð það fyrst svona stórt. +
361Þannig að það, þar kviknaði áhuginn og svo er þetta, bara mjög, hérna +
362áhugaverður staður og já, mig langaði að prófa að fara eitthvert, +
363Já, vá! +
364búinn að ferðast um Evrópu mjög mikið, +
365en hérna, hafði aldrei áður farið svona langt í burtu [UNK]. +
366Þannig að það var líka. +
367Nei, einmitt. +
368Hvar og, +
369hvar, hvar var, hvað hérna +
370StarCraft, hvar og hvenær kynntistu StarCraft? +
371Í menntaskólanum hér heima, þá vorum við í honum í hádegishléunum. +
372Jájájá, +
373þá fyrsta leiknum? +
374Já, eða Brood War, sem er þarna, já, hérna, aukapakki fyrir [UNK]. +
375Já, akkúrat. +
376Það varð náttúrlega svona official, hérna, keppnispakkinn eiginlega. +
377Já, akkúrat. +
378Já. +
379Nei, aldrei, nei. +
380Já, ég nefnilega ég man vel eftir því þegar hann kom út, sko. +
381Og ég hafði ekkert, sko, ekkert verið að fylgjast með greinilega, en það var samnemandi minn eða, já, sem bara gaf mér StarCraft, +
382hérna sem hann hafði keypt handa mér sko, því að hann vildi spila á móti mér. +
383Þannig að ég átti þennan kassa og setti hann í gang og bara já, þetta er svolítið kúl. +
384Það var svona eiginlega, akkúrat þegar þetta var svona, þú veist þá var í rauninni, þá var +
385hafði maður enga hugmynd um það hvað þetta yrði stórt, hvað þetta yrði alveg svakalega stórt, sko. +
386Svo hérna, það er náttúrlega annar leikur reyndar, en stærsta tölvuleikjamót í heimi +
387að koma, koma hingað til Íslands. Það er mjög spennandi. +
388Já, það er líka mjög magnað, en þú veist. +
389Já, ég bara, en er, var, og var það ekkert, +
390var það ekkert svona, +
391erfitt í rauninni kannski að sjá fyrir sér að það myndi koma fólk hingað? +
392Svona í ástandinu og öllu? +
393Jú, mér fannst þetta mjög, þegar ég heyrði þetta fyrst þá trúði ég því varla, sko, af því þetta er svo risastórt mót, sko. +
394Einmitt. +
395Jájájájá. +
396En já, það er kannski, þeir voru með mót um daginn, svona eitthvað, hérna, +
397sem var hér og það hefur bara gengið greinilega, nógu vel eða kannski betur en þeir héldu. +
398En já, en þú, hefur þú búið einhvers staðar? +
399Já, ég hef búið, já það, ég var, bjó í ellefu ár í Bandaríkjunum. Þannig að það já þannig. +
400Kom fram áðan, Bandaríkjunum, eitthvað, ekki? +
401Já. +
402Ég man, sko, þegar að það var orðið, sko, þá +
403einn þriðji á ævinni eða eitthvað svoleiðis, sko. +
404En það, það hefur minnkað síðan, þetta er ekki jafn stórt hlutfall núna. +
405En þegar ég var búinn að vera í Bandaríkjunum, þá hafði þetta, þá hafði ég eytt í rauninni, einum þriðja af ævinni þar. +
406Já, akkúrat. +
407Það var í rauninni, hvað segirðu? +
408Varstu í, varstu í skóla þangað og varst lengur eða hvernig? +
409Já, ég fór í, ég fór í meistaranám +
410þegar ég var búinn með með B S hérna á Íslandi. +
411Eftir B S-inn tók ég eitt ár, bara í að vinna. +
412Og fór síðan í meistaranám út og svo þegar meistaranámið var búið þá var svona ákveðin pressa á mann bara að halda áfram. +
413Þannig að þá hélt því áfram á sama stað í doktorsnám. +
414Það tók sex ár doktorsnámið í viðbót við meistaranámið. +
415Já, akkúrat. +
416Þá voru komin átta ár bara í, í sömu skrifstofu, +
417Já, ókei. +
418Vá. +
419Nú, já er það? +
420Já, akkúrat. +
421ég flutti aldrei úr skrifstofunni minni. +
422Á meðan allir voru að flytja í kringum mig, þetta var voðalega fyndið. Mér fannst eins og öll byggingin væri einhvern veginn þarna að hreyfast í hring en ég var einhvern veginn bara fastur þarna í gluggalausri skrifstofu í miðri byggingu. En eftir það fór ég síðan til, hérna +
423Kaliforníu, eða sem sagt þetta var í Boston en síðan fór ég í vinnu í Kaliforníu í Los Angeles í þrjú ár. +
424Þannið að ég svona, prófaði báðar strendur, þetta er nú svolítið eins og sitt hvort landið. +
425Er það ekki? Jú, ég hérna, ég hef aldrei verið á Vesturströndinni þannig að hérna. +
426Já, einmitt. +
427Og mér fannst það, sko, til að byrja með kannski ekkert +
428rosalega spennandi að fara til Los Angeles en +
429eftir að hafa verið í smá tíma að þá einhvern veginn byrjaði maður bara alveg að fíla þennan stað, sko, eða svona. +
430þegar maður fer að fatta í rauninni hvað staðurinn býður upp á og svona sjá alla litlu, öll litlu samfélögin +
431sem að þrífast innan borgarinnar. +
432Nei, maður fann ekkert +
433þannig fyrir eða ég man ekkert sérstaklega eftir hitanum, þetta er svolítið leiðinlegt veður að vera alltaf bara í, í sól. +
434En, en við bjuggum á ströndinni og þá kom svona köld þoka inn af sjónum. +
435Og, það byrjuðu oft dagarnir þannig að maður var bara í í blindþoku og svona bara í svona svölum andvara, einhvern veginn að það var bara mjög fínt. +
436En svona ef maður fór kannski aðeins inn í landið. Bara þess vegna bara tvö, þrjú hverfi að þá var maður kominn bara alltaf í þessa sömu sól. +
437Þannig að það skipti svolitlu máli, held ég, að vera þarna +
438og svo var náttúrlega var fannst mér líka annað alveg kom rosalega á óvart að maður sá, að maður sá alveg náttúruna, þú veist. +
439Við vorum í L A nánast miðri þarna og en samt út um stofugluggann sá maður bara upp í fjöll hinum megin við borgina. +
440Og þar snjóaði á veturna, þannig að maður horfði bara upp í, í snjóinn sko. +
441Sem mér fannst alveg magnað, það var náttúrlega ekkert snjór í borginni. +
442En, en maður bara einhvern veginn bjóst ekki við þessu, að maður hefði þetta útsýni þarna. Síðan þurfti maður náttúrlega bara að keyra í kannski klukkutíma eða eitthvað, þá ertu bara kominn upp í fjöll. +
443Já, er hérna, nú er náttúrlega ekki eins þéttbyggt þarna megin og eins og í New York, er það? Eða hvernig? Eru samfélögin þá? +
444Nei, þetta, algörlega, þetta dreifist rosalega stórt svæði, mikið flæmi. +
445Og náttúrlega gengur allt út á að koma sér upp að hraðbraut, og svo skjótast eftir henni á milli hverfa. +
446Þannig að þetta er alveg stöðugt, maður náttúrlega bara er alltaf á bíl, sko, keyra. Það þýðir ekkert að vera að nota almenningssamgöngur. +
447Þær koma þér yfirleitt ekki hratt á staðina eða milli staða. Það er ekkert, ekkert lestarkerfi til að tala um. +
448Já, nei, akkúrat, eru varla til eða hvað? +
449Þannig að, já, þetta er rosalega dreift en, en þessar hraðbrautir eru alveg svakalegar og hérna. +
450Þær gera manni kleift að komast út úr borginni, líka mjög hratt. +
451Ég var að segja að það var kannski klukkutími upp í fjöllin þarna í grenndinni. Og svo var það tveir klukkutímar, ef þú keyrir tvo klukkutíma þá ertu kominn bara út í miðja eyðimörk. +
452Þá sér maður hvergi, sko, byggt ból. +
453Já, akkúrat já. +
454Já, það er eiginlega magnað að það hafi +
455Já, og það er alltaf verið að benda á það, að þú veist. Það er ekkert náttúruleg vatnsuppspretta þarna. +
456myndast svona stór borg þarna, sko. +
457Já. +
458Já. +
459Þannig að það er bara alltaf verið að vökva, alltaf, og það bara kemur einhver svaka skammtur af vatni að norðan sem að heldur þessu gangandi. +
460Þetta voru einu, já, þannig að Bandaríkin eru eina landið sem ég hef beinlínis búið í. Síðan hef ég bara ferðast og heimsótt aðra staði. +
461Svo já hvenær, af hverju ákvaðstu að flytja aftur til Íslands? +
462Já. +
463Það var nú, ja, í rauninni var það fyrst og fremst vegna þess að ég hafði eiginlega alltaf lofað fjölskyldu minni, að ég myndi nú einhvern tímann koma til baka. +
464Og ég átti hérna, þú veist, afa og ömmu og þau voru alltaf að spyrja, þú veist, ertu ekki að fara að koma og svo voru þau orðin rosalega, svona, náttúrlega farin að eldast ansi mikið og maður einhvern veginn +
465sá fram á að það, að það væri, að maður myndi aldrei fyrirgefa sér að ef maður væri bara ekki á landinu svona síðustu árin þeirra. +
466Þannið að bara gagngert flutti maður heim til þess að, að eyða tíma með eldri kynslóðinni. +
467Já, akkúrat. +
468Já, já, flott. +
469Og það tókst. Ég er rosalega ánægður með það að hafa fengið þann tíma, sko. +
470Já, það eru komnar þrjátíu og tvær mínútur. +
471Já, ég held að við séum komnir með. Jepp. Ég ýti á stopp. +
472Ert þú þá að fara að senda þetta inn? +
+
+ + +
Go back
+ + + + + +