diff --git "a/pages/8af8f246-7ce5-4c45-b7c7-52aa0ede1c08.html" "b/pages/8af8f246-7ce5-4c45-b7c7-52aa0ede1c08.html" new file mode 100644--- /dev/null +++ "b/pages/8af8f246-7ce5-4c45-b7c7-52aa0ede1c08.html" @@ -0,0 +1,2064 @@ + + + + + + Spjallrómur + + + + + + + + + + + + + + +
+ + + + + +
+
+ + +
+ + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + +
1Heyrðu, hvað segir þú gott? +
2frítimiJæja. Ég segi bara fína, ég hef ekki hitt þig áður. Ertu nýr í, +
3Já, +
4ég hérna var að byrja í meistaranáminu í gervigreind og máltækni +
5ókei. +
6og fyrir það +
7þá er ég búinn með master í rekstrarverkfræði [UNK], +
8Sagðirðu rekstrarhagfræði? +
9verkfræði, verkfræði, +
10Verðurðu þá hérna heima eða? +
11já, ég lærði þarna uppi í HR. +
12Ókei. +
13og hérna kláraði, útskrifaðist þar fyrir ári síðan, sem sagt sumarið tvö þúsund og tuttugu. +
14Og hérna var búinn að vera að vinna eitt ár áður sko sem verkfræðingur, eiginlega, +
15og svo vann ég eitt ár í viðbót +
16og fékk bara leið +
17og langaði til þess að fara aftur í nám og hér er ég. +
18Ókei og af hverju? Af hverju varð máltæknin fyrir valinu? +
19Ég hérna +
20var þá búinn að vera að vinna við svona gagnagreiningar og tók þarna +
21machine learning kúrsinn hjá Jóni þegar ég var í verkfræðinni +
22Já, +
23og þar svolítið svona opnaðist bara svolítill nýr heimur af tækifærum þar sem ég bara +
24vissi ekki að væri til og hafði fyrir ekkert það mikla reynslu af forritun +
25nei, einmitt. +
26og svo byrjaði ég að hérna, [UNK] +
27Þú kannt samt væntanlega á R og matlab og eitthvað svoleiðis, er það ekki? +
28já, já ég þekki það sko, þekki það +
29en hérna, lærði töluvert meira á þetta í gegnum þennan kúrs +
30og svo, +
31Er það ekki python kúrs? +
32jú, Python, jú nákvæmlega, nákvæmlega, nákvæmlega, og svona er +
33Python er mitt svona go to tungumál +
34Já, ég hef voða lítið notað það annað fyrir utan bara bash skelina og eitthvað síðan ég hérna fór sjálfur í nám. +
35og +
36já, en þú, hvað ert þú búinn að vera lengi í þessu og hvað dró þig í þetta? +
37Ég, ég +
38hérna byrjaði í hugbúnaðarverkfræði, byrjaði reyndar í stærðfræði, fór síðan í yfir í hugbúnaðarverkfræði og síðan hérna +
39langaði mig alltaf að gera eitthvað +
40svona meira tengt tungumálum af því ég hef alltaf haft dálítið +
41mikinn áhuga á tungumálum almennt, +
42já, já ókei, já ókei, já, já, já +
43þannig að ég tók eitt ár bara í málvísindum í HÍ og var á sama tíma, á sama tíma sótti ég um +
44mastersnám úti í Edinborg í máltækni +
45og fór þangað tvö þúsund og átján +
46og þetta er eins árs skráða þannig að ég kom aftur tvö þúsund og nítján haustið og já, fór bara beint að vinna í þessari máltækniáætlun í rauninni. +
47Byrjaði hjá Árnastofnun og svo er ég núna búinn að vera í HR í tæplega ár. +
48Já. +
49nú ertu aðeins að detta út hjá mér. +
50Heyrirðu ekki í mér núna? +
51Jú, þarna kom það, kom það aftur. +
52Hvernig finnst þér, já? +
53Skal taka, taka mækinn þannig að hann sé nær. Heyrirðu betur í mér núna? +
54Já, bara svona forvitnisspurning, hérna, +
55Já, +
56hvernig finnst þér, eins og þú veist að hafa lært úti og ert að nota íslenskumáltækni, +
57máltækni á íslensku +
58hvernig, svona +
59já, +
60hvernig yfirfærist það yfir? Já, já, jájá, einmitt, já, einmitt, einmitt, einmitt, já +
61það er náttúrlega +
62af því að námið var á ensku. +
63Enskan er hérna +
64í fyrsta lagi sko laus við alls konar flækingar sem eru í íslenskunni og í öðru lagi þá er, þá miðast einhvern veginn öll svona grunntækni og allt sem allir nota, það miðast dálítið við ensku þannig að það er smá challenge að til dæmis ég er að vinna í talgervilsröddum og +
65það er einhvern veginn, allir innviðirnir sem eru byggðir inn í +
66þú veist öll kerfin sem að er búið að gera. Þeir miðast allir við ensku. Þannig að ef maður ætlar að láta þú veist nota annað annað hérna, +
67þú veist annað sett af fónemum eða eða díla við +
68stafi sem eru ekki í ascii skilurðu? Eða getur verið það beisik, +
69þá getur það verið dálítið mikið maus en það hefur samt bara þú veist. Við erum náttúrlega, í þessari áætlun erum við að byggja upp þessa innviði fyrir íslensku máltæknina. +
70Þannig að það náttúrulega er bara hluti af verkefninu. +
71Og í rauninni stærsti hlutinn. +
72en bara svona fyrir, þú veist, þig, +
73þú veist, að hafa lært, eins og ég segi, á, allt á ensku og allt væntanlega ekkert íslenskt málkerfi í því eða hvernig íslenskan virkar per se +
74og já, já já já, auðvitað, auðvitað já já, já, einmitt +
75Já, náttúrlega þetta ár sem ég tók í málvísindum, það hjálpar með það og og hérna +
76já, +
77svo er maður sko, +
78þetta er merkilega +
79þú veist lítið. Maður er merkilega lítið að vinna í actual málvísindum, finnst mér. +
80Alla vega það sem ég er að gera. Jú, við erum að vinna með framburð og orðabækur og eitthvað svoleiðis. En svo er þetta bara +
81módel sem maður þjálfar, sem eru í rauninni ekkert þannig háð ensku nema í einhverjum svona tæknilegum útfærslum. +
82einmitt, áhugavert. +
83Já. +
84Ég er reyndar að taka +
85námskeið í HÍ í íslenskum málkerfum +
86Já, hver er að kenna? +
87og, Marko, +
88eða heitir hann ekki Marko? Myrko, Myrko, já já. +
89Mirko? +
90Já, ég var einmitt með honum í einum kúrsi fyrir nokkrum árum. +
91Við erum bara tvö í kúrsinum sko, þannig að, +
92Hann er flottur gaur. +
93eða tvö sem mætum, erum þrjú sem erum skráð, +
94þannig það er mjög áhugavert að vera í svona litlum hóp. +
95Einmitt. Já, þetta verður allt miklu persónulegra, er það ekki? +
96En líka mjög skemmtilegt. +
97Jú, þetta er í rauninni bara spjall sko. +
98Aðeins annað en í verkfræðinni? +
99allt annað sko, allt annað +
100þó að í verkfræðinni masternum þá vorum við samt ekkert svo mörg sko en, +
101Nei. +
102en ég hef ekkert kynnst neinum. +
103Orðið nógu sérhæft. +
104Já, já, alveg þannig sko. +
105En vorum samt alveg þrjátíu, fjörutíu manns kannski skráðir í kúrsa +
106en á móti erum við hins vegar +
107þrjú og svo erum við átta í öðrum kúrs +
108Já, +
109þú veist og þrettán, þetta er +
110miklu, miklu minna sko. +
111þetta er náttúrlega það sérhæft, eitthvað svona hérna +
112inngangur að í rauninni málvísindum fyrir íslensku fyrir verkfræðisinnaða. +
113Já. +
114Nákvæmlega, nákvæmlega, nákvæmlega. +
115Það pool af mögulegum nemendum er kannski ekkert mjög stórt. +
116Þannig að sem að, það einmitt það dró mig svolítið í þetta. Hvað það +
117eru fáir sem eru að gera þetta og eru að gera eitthvað svona öðruvísi. +
118Ég fann það svolítið þegar ég kláraði verkfræðina +
119að, hvað þetta var ekki í rauninni nógu mikil sérfræði, þú veist sérfræðikunnátta, sem ég hafði klárað þarna +
120það voru svona aðeins of margir í þú veist að berjast um sömu stöðuna, +
121Já, þig langaði í aðeins meira niche dæmi? +
122já, líka aðeins svona skemmtilegra og hérna +
123Já. +
124eitthvað öðruvísi. +
125Það er svona svolítið það sem dró mig í þetta. +
126Langar þig að vera vinna hérna heima í að koma einhverju af stað eða langar þig að komast eitthvert út eða hvað er? +
127Long term pælingin? Eða ertu kannski ekki þar? +
128Ég er ekki alveg komin þangað sko en +
129þegar að ég hugsa út í það að þá held ég að það sé, þú veist frekar að gera garðinn frægan hérna heima +
130Já. +
131heldur en að fara út sko, maður veit aldrei, aldrei að segja aldrei. +
132Þetta er náttúrulega Amazon og Google og Microsoft og öll þessi stóru fyrirtæki eru öll með hérna +
133með sína +
134máltæknideild. +
135Og mér skiljist að það sé erfitt að finna fólk í þessar deildir sko þótt að þetta sé +
136hjá þessum stóru fyrirtækjum. +
137Já, algjörlega. Það er, þetta er náttúrulega bara það, +
138það sérhæft. +
139Við erum í miðju spjalli, +
140ekki trufla. +
141Einmitt, ég var einmitt að tala við sem sagt konu +
142frá Bandaríkjunum. +
143Sem að er, stýrir svona tæknideild hjá Nike, +
144Já. +
145Hjá Nike? +
146já Nike, Nike, já, íþróttavörufyrirtækinu, og hún var að segja mér að hún hafði verið að ráða inn +
147Íþróttavörufyrirtækinu? +
148Ókei. +
149tvo einstaklinga +
150menntaðir í gervigreind, reyndar ekki máltækni. +
151Hún sagði mér að það hafi verið mjög erfitt að finna aðila sem að kunna þetta. +
152Það eru margir sem þykjast kunna þetta, +
153Já, ókei. +
154Já. +
155en mjög fáir sem að kunna þetta. +
156Einmitt. +
157Kannski eins og ég segi bara einhverjir sem hafa lært tölvunarfræði og tekið einhver bara crash kúrsa í gervigreind +
158og segjast, segjast síðan kunna þetta sko. +
159Já, og segja að síðan já, +
160einmitt þetta er svona já. +
161Það eru nokkur stig af því að kunna hluti og til þess að vinna við, +
162Einmitt. Nákvæmlega. +
163til þess að vinna við það þá þarf maður kannski að vera kominn á aðeins hærra stig en að hafa tekið einn inngangskúrs. +
164Einmitt, einmitt, ég ætla reyndar ekkert að fela það. En ég gerði þetta, +
165hef verið að taka svona inngangskúrsa á bara netinu en +
166var nú aldrei að segjast, segjast vera með sérfræðiþekkingu í þessu, +
167það var svona svolítið sem að, já. +
168Nei, ég meina, +
169það er flott að taka inngangskúrsa og það er fyrsta skrefið. En svo eru bara nokkur skref í viðbót. +
170Einmitt, einmitt nákvæmlega og það var svona líka alveg svolítið sem að opnaði fyrir mig meiri áhuga á þessu og þessir inngangskúrsar sem ég tók. +
171Og þú veist, ég fann það að mig langaði til að vita meira og þótt þetta hafi alveg verið stór ákvörðun að leggja verkfræðina á að setja verkfræðina upp í hillu og fara nýja leið +
172og að segja upp vinnunni bara og hérna +
173og fara í þetta sko. +
174Já. +
175Það er náttúrlega alltaf smá stökk að hætta í vinnunni eða svona þegar maður er orðinn svona ráðsettur og síðan eitthvað svona: heyrðu, nei, ég ætla aðeins að aðeins að skipta um gír. +
176Ég þurfti alveg að eiga samtal við kærustuna mína um þetta, en hún styður mig í þessu. +
177Já, já, það væri frekar leiðinlegt ef hún gerði það ekki. +
178Í þessari vegferð. +
179En ég held að séu helling af tækifærum í þessu og +
180meira spennandi tækifæri allavega fyrir mitt, mitt svið. +
181Algjörlega. +
182Já, já kærasta mín er líka á leiðinni aftur í nám þannig að, +
183það er að taka annan master og alles þannig að. +
184Hvað, hvað er hún að gera? Og hvað er hún að fara að gera? +
185Hún vinnur núna að kenna íslensku sem annað mál í grunnskóla +
186en hana langar að fara í, í talmeinafræði. +
187Talmeinafræði? Ókei. Frábært. +
188Hún lærði mjög svipað sko, +
189við vorum á sama tíma úti í náminu og hún lærði svona. +
190Hún lærði það sem heitir developmental linguistics, sem er málþroskafræði, +
191sem er +
192svipað og talmeinafræði í rauninni. Þau læra um tal og málmein og alls konar. En það er ekki þessi klíníska gráða sem er +
193kennd á Íslandi og hérna maður þarf að vera samþykktur af talmeinafræðingasamtökunum og eitthvað til að fá að vinna við það. +
194Þetta er svona, +
195já, þarf að taka þriggja ára nám í viðbót til þess að fá það. +
196En hvað? +
197En hvað fleira? Hvað fleira svona +
198hefur þú að segja um þig? +
199Hvað fleira getur, getur þú sagt mér? +
200Já, +
201Hvað fleira gerir þú? +
202ég er mikill kórsöngvari, ég er í sex sönghópum. +
203Já, ókei vá. +
204Já, var í söngnámi áður en ég fór út í nám og svona. +
205Sem sagt áður en ég fór út í master . +
206Ókei, ég bara vildi að ég kynni að syngja. +
207Já, það er bara fara í söngtíma, fara í kór og +
208Heldur þú að, geta allir lært að syngja? +
209kýla á það. +
210Ég er ekki viss um það. En það geta allir, það geta allir orðið betri. +
211Sumir sko. +
212Ég er alveg hræðilega +
213þarna falskur. +
214Mig grunar að þetta sé eitthvað svona þannig að ef maður fær ekki nógu mikið tónlistar ílag, þegar maður er á einhverjum x aldri, ef maður er kannski þú veist fimm til tólf ára eða eitthvað, þá bara vanti einhvern svona einhverja fúnksjón. Til þess að hérna +
215já, +
216meðtaka þetta. Ég var í drengjakór þegar ég var lítill þannig að ég hef alltaf átt bara frekar auðvelt með að +
217að halda lagi og svona. +
218Maður, maður einhvern veginn, fær tilfinningu fyrir þessu og svo eru einhverjir sem hafa ekki þessa tilfinningu +
219og ég bara veit ekki hvernig það er með að ef maður er orðinn fullorðinn og er enn þá einhvern veginn svona laglaus hvort maður geti unnið sig fram úr því af því að það er náttúrulega þannig með tungumál að það verður það verður faktískt erfiðara þegar maður er orðinn fullorðinn að læra ný tungumál. +
220Mig grunar að þetta sé svona, +
221þetta eru líka svipaðir, svipuð fúnksjón, einhvern veginn. +
222Ég get ímyndað mér það. [UNK] +
223Þannig að það er eiginlega mestur frítími minn sem fer í að syngja. +
224Ég er meira að segja að syngja á tónleikum í kvöld annað kvöldið í röð. +
225Nú? Hvaða tónleikum? +
226Í Hörpu, Eldborg. +
227Nú? +
228Hvaða tónleikar eru þetta? Með Sinfó, já. +
229Syngja með Sinfó. +
230Mig langaði einmitt alltaf að fara á þá tónleika. +
231Já, það er kannski ekki of seint að ná í miða, ég veit það ekki. +
232Ég er með nokkur verkefni sem ég þarf að skila í kvöld sko, þannig að ég, +
233Jæja, ókei. +
234þannig að ég, +
235Á föstudagskvöldi? Er það ekki fulldónalegt? +
236jú, það eru meira að segja tvö verkefni, þetta eru svona +
237dæmatímaverkefni bara, vikuleg dæmaskil bara. +
238Hvað, er ekki hægt að biðja um þau á hádegi á mánudegi eða eitthvað? Hvaða stælar eru þetta að fá þig á föstudagskvöldi? +
239Nákvæmlega, þvílíkur dónaskapur bara. +
240Maður, ef ég væri að kenna þennan kúrs þá myndi ég ekki, ég væri alla vega aldrei að fara að nota helgina í að fara yfir verkefni. +
241Breytir engu hvort það er á mánudagsmorgni eða föstudagskvöldi. +
242Það er svo sem alveg fínt að fá að deadline-ið á föstudegi, þá svona +
243rífur maður sig í gang og klárar þetta á föstudegi, þá hefur maður helgina fyrir sig sko. +
244Já kannski, kannski er þetta í rauninni. Kannski er einhver greiði gerður með þessu. +
245Já einmitt, einmitt. +
246Ég er ekkert mjög æstur að fara aftur í í háskólann, ég +
247hérna. Já, +
248ég kominn með nóg af því í bili. +
249Ég hélt ég væri kominn með það sjálfur sko. +
250Já, þetta er rosa fínt sko, mér finnst +
251Já, +
252en er þetta síðan bara fínt? +
253þetta vera miklu meira svona +
254vinnustemning í þessu heldur en í verkfræðinni sko. +
255Og ég hugsaði alveg að bæta við mig þú veist einu og hálfu ári og taka tölvunarfræðina. +
256Já, er þetta eins árs +
257gráða sem þú ert í? Nei, að taka. +
258Þetta er tveggja ára, tvö ár en út af því að ég var búinn með svo mikið úr verkfræðinni, +
259ég gat fengið svo mikið metið upp í tölvunarfræðina. +
260Já, ég skil þig. +
261Í rauninni allt valið í tölvunarfræði gat ég fengið metið. +
262Og svo einhverjir grunnkúrsar sem ég var búinn með. +
263Já, ég var í svipuðum pakka þegar ég skipti úr stærðfræði yfir í, yfir í hugbúnaðarverkfræði, það var, +
264maður fékk eiginlega allt metið. Svo náði ég að fá einn japönskukúrs metinn, ég er dálítið ánægður með það. Þetta var í HÍ. +
265Áhugavert. Fyndið. Það er ótrúlega fyndið. +
266Tók einn tíu eininga japönskukúrs og fékk hann bara metinn sem hluta af hugbúnaðarverkfræðigráðu. +
267Ég þurfti ekki einu sinni að rökstyðja það, þau bara +
268samþykktu það strax. +
269Það er mjög áhugavert og sko ég veit að ég get fengið alveg þrjátíu einingar metnar frá verkfræðinni í þessu námi sko. +
270En ég er ekki alveg búinn að ákveða mig hvort ég ætli að gera það eða ekki. +
271Já. +
272Nei, nógu mikið af áhugaverðum kúrsum sem þú vilt ekki? +
273Einmitt, einmitt. +
274Og ég náttúrulega er að fara yfir dót ef mig langar +
275til þess að læra á þetta. +
276Þannig að það er svo eins og ég segi svo mikið af áhugaverðum kúrsum sem mig langar til þess að taka, þannig að, +
277en það er gott að, gott að vita af því. +
278Já, einmitt ef þú, ef þú færð allt í einu skólaliða. +
279Þannig að það væri faktískt séð eiginlega bara ein önn eftir hjá mér sko og svo bara ritgerðin. +
280Já vá, +
281Þannig að +
282hérna, ég myndi missa af alveg heilli önn. +
283já, +
284En ég ætla örugglega ekki að gera það. +
285Ég kannski tek eitthvað upp í að hérna, +
286ef ég finn ekkert áhugavert. +
287já, nei, í minni upplifun sko, +
288af því að ég tók þetta, þetta er eins árs gráða sem ég tók sem sagt tvær annir og ritgerð +
289og mér fannst það bara of stuttur tími til þess að einhvern veginn meðtaka þetta allt, sérstaklega sko ritgerðin af því að ritgerðin var, maður hafði ekki heila önn fyrir hana heldur hafði maður bara sko tvo mánuði +
290til þess að vinna heilt meistaraverkefni. Reyndar ritgerðin þarna úti, þau vilja hafa þær mjög stuttar, þær eru eiginlega bara eins og svona eins og svona +
291fræðigrein í tímarit. +
292Já já ókei, það er ekki lengra. +
293Kannski fimmtán, tuttugu, í mesta lagi þrjátíu blaðsíður, +
294Annað en hérna heima. Þar sem er alltaf beðið um þú veist áttatíu síður í mastersritgerð, +
295fimmtíu síður í bachelor. +
296Vá, merkilegt samt sko, er það samt ekki bara að koma efninu vel frá sér á þrjátíu blaðsíðum? +
297Jú, og það er eitt sem að hérna, +
298sá sem stýrir deildinni talaði mikið um sko, að að það væri svo, væru svo margir sem að +
299skrifuðu bara lélegan texta. +
300Af því að ef maður er að fara að skrifa fræðigreinar þá er eitt af því mikilvægasta sem maður þarf að kunna að skrifa knappan texta af því maður alltaf með einhver pláss mörk þú veist, svona hérna +
301conference paper eru stundum með fjögurra blaðsíðna takmörk eða eitthvað. +
302Einmitt. +
303Og ef þú ætlar að lýsa aðeins bakgrunninum líka og heilli tilraun og niðurstöðunum og kannski hérna einhverjum nýjum arkitektúr sem þú ert að búa til. Þá, +
304þá þarftu skrifa ansi knappt, +
305og vera frekar hérna +
306kjarnyrtur. +
307Einmitt. +
308Nákvæmlega. +
309Þannig það var mikið lagt upp úr því að, og líka í öllum svona ritgerðum fyrir kúrsa og eitthvað bara, þú veist ef það er hérna, +
310ef það er of mikið orðagjálfur og of langar setningar og þú segir eitthvað í löngu máli sem væri hægt að segja á miklu styttri máta, þá er bara grimmt dregið niður fyrir það. +
311Já, +
312það er áhugavert og alveg sniðugt að gera það. +
313Það er, þarna, +
314auðvelt að líka missa taktinn í +
315svona fræðigreinum +
316og mikilvægt að ná að skrifa þetta niður á heildstæðan og bara svona góðan máta. +
317Já, mér hefur fundist lenskan hérna heima á Íslandi, vera dálítið, ég náttúrlega. Ég þekki dálítið mikið af hugvísindafólki og mér finnst lenskan í því vera dálítið að fólk er að skrifa langan texta til að skrifa langan texta eða þú veist. +
318Já, einmitt, +
319Það að fara kannski eitthvað rosa djúpt ofan í einhver svona bakgrunnsatriði sem að væri bara hægt að þú veist segja, það væri hægt að segja í ritgerðinni bara: +
320Lestu þessa heimild og það stendur allt sem þú þarft að vita þar. +
321Endurtaka einhvern eitthvert efni sem er kannski ekkert mikið verið að bæta við. +
322Það er gott að +
323geta losnað út úr því og skrifa bara það sem þar sem maður er að bæta við. +
324Gerðirðu eitthvað skemmtilegt í sumar? +
325nei, ekkert þannig sko, ég hérna, +
326áður en ég byrjaði í náminu þá, +
327eða það var sem sagt í sumar +
328dreifingarstjóri hjá Emmessís. +
329Já, varst bara í sumarstarfi að harka? +
330Já, það er í rauninni já í rauninni sko. +
331Og hérna já, +
332Dreifingarstjóri hjá Emmess ís? +
333 þar stýrði ég bæði vöruhúsinu og allri dreifingunni, +
334Ókei. +
335já, ísnum. +
336[UNK] +
337það er bara langmest að gera á sumrin þannig að +
338ég fékk ekkert frí. +
339Og hérna, en ég byggði mér sólpall +
340Einmitt. +
341og það var svona sennilega það stærsta sem ég gerði í sumar. +
342Með eigin höndum eða? +
343Ég fékk aðstoð. Fékk aðstoð. En ég var með í því. +
344Fékkstu einhverja smiði í það? +
345Já, myndaðir hersluvélina. +
346Ég er seint talinn handlægur. +
347En hérna, fékk þarna aðstoð frá manni mömmu minnar, +
348Nei, +
349hann er svona gamall smiður. +
350einmitt, +
351Þannig að hann hjálpaði mér með þetta. +
352þannig að hann hefur leiðbeint þér. +
353Já, en þetta var bara lítill pallur. +
354Það var gaman að þessu. +
355Þannig að þú býrð í íbúð með garð? +
356Já bý, er með garð, +
357bý í Hveragerði +
358keyptum okkur íbúð þarna þar sem Eden var. +
359Og þá eru, +
360Megi minning hennar lifa. +
361blessuð sé minning hennar, +
362og það er reyndar, veit ekki hvort þú hafir séð þessar íbúðir sem eru þarna en þetta eru bara svona litlar íbúðir, eins og við búum í tvíbýli. Ein íbúð fyrir ofan okkur. +
363Já. +
364Þannig að við fengum svona smá garð. Það er sameiginlegur garður en við erum með smá, við byggðum pall á okkar hluta. +
365Ekki er þetta þarna, húsin sem eru svona eins og einhver svona brauðbox eða eitthvað þannig? +
366Nei. Það var svona minn skilningur að það væru bara eldri borgarar sem væru þar. En þetta er greinilega eitthvað annað. +
367Þetta er annað. Það hins vegar eru ekki bara eldri borgarar í brauðhúsa, +
368þarna brauðpokahúsunum sko. +
369Það er önnur hús sem eru bara fyrir eldri borgara. +
370Nei, ég veit það bara af því að af því að hérna +
371afi og amma kærustunnar minnar búa í þeim húsum +
372Þannig að það, +
373og allir nágrannar og allir vinir þeirra þar eru eldri borgarar. +
374við skoðuðum samt þessar íbúðir líka +
375en ákváðum að fara frekar þarna í bara í Edenbyggðina +
376og erum bara ótrúlega hamingjusöm þar. +
377Keyrirðu þá í skólann á hverjum degi eða? +
378Já, ég reyni það nú. +
379Ég fer vissulega ekki á hverjum degi, ég er með litla skrifstofu heima sem ég get notað. +
380Einmitt. +
381Mér finnst nú samt sem áður betra að fara í skólann og fara úr skólanum. +
382Annars er svolítið eins og maður sé alltaf í skólanum. +
383Já, einmitt, hafa einhver svona skil á milli. +
384Það hjálpar mjög mikið að vera +
385með skrifstofu þarna sem ég get notað og svo að geta keyrt í bæinn. +
386Kærastan mín hún er hjúkrunarfræðingur á Landspítalanum þannig að þegar hún er að vinna á morgunvöktum þá fer ég með henni í bæinn. +
387Já. +
388Annars þá er ég, vera bara heima, spara bensínið líka. +
389Akkúrat, maður verður að hugsa um umhverfið. +
390Einmitt, nákvæmlega. Verður maður ekki að gera það líka? +
391Já, ég meina ég bý í Vesturbænum og ég fer ekki á hverjum degi. +
392Ég er með allt of nice heimaskrifstofu. +
393Einmitt, einmitt, einmitt +
394Skil það, við bjuggum nú í bænum hérna áður en við fluttum þangað og ég, +
395þegar ég lít til baka, þá hérna +
396skil ég ekki af hverju ég hjólaði ekki meira á milli. +
397Nei, ég fer alltaf á svona rafmagnshlaupahjóli. +
398Þau voru nú ekki, einmitt, +
399já, rafskutlur, já mér finnst það, það er skemmtilegt. +
400Rafskutlu eins og ég vil kalla þær, ég vill ekki kalla þær rafskútur. +
401Skúta er bara annað farartæki. +
402Einmitt, einmitt, það er bara bátur. +
403Já. +
404Og hvað gerum við þegar skúturnar verða rafvæddar? Hvað eigum við þá að kalla þær? +
405Nákvæmlega, +
406það vantar orð sko. +
407Já, +
408Þú notar það mikið? +
409Já, ég ég keypti mér í fyrra, fyrrasumar, keypti bara mína eigin skutlu. +
410Já. +
411Snilld. Ég hef einmitt hugsað að kaupa mér svona bara fyrir, til þess að vera með +
412innanbæjar þarna í Hveragerði. +
413Þetta er svo nice svona þegar maður er að fara bara kannski einn, einn til tvo kannski þrjá kílómetra. +
414Það þú veist þannig að. Manni myndi líða illa að vera eitthvað svona að keyra, +
415það er allt of stutt til að keyra og ég meina svo þarf maður að leita að stæði og það tekur lengri tíma og. +
416Þessar skutlur eru, einmitt, þessar skutlur eru +
417Það er samt aðeins of langt til að labba. +
418náttúrulega algjör snilld og þær koma einmitt til Hveragerðis í sumar þannig að, +
419Já, hopp og allt það? +
420þannig að ég svona tek þær stundum ef að +
421ef ég er að fara í eitthvað partí. +
422Já, en hvað, hvað kostar þetta? Er þetta ekki svona? Er þetta ekki svona fimmhundruðkall skiptið? +
423Mér sýnist þetta vera +
424svolítið eins og þú veist leigubílataxtinn er, þú veist, þá borgar meira því styttra sem þú ferð. +
425Já út af, út af +
426Já, einmitt, það er eitthvað startgjald og svo þú ert búinn að vera aðeins í smá tíma þá held ég að gjaldið fari niður. +
427startgjaldinu +
428Ég hérna tók hopp um daginn frá háskólanum +
429niður í Smáralind og hérna, +
430ókei. Það hefur kostað sitt. +
431það að kostaði nú samt bara þúsund kall sko þannig að, +
432þá datt mér í svona hug að þetta væri, +
433Ókei. +
434að tímagjaldið eða kílómetragjaldið myndi fara niður +
435því lengra sem þú ferð. +
436Já. +
437Einmitt, líka ef maður er á fullum hraða allan tímann. Þá nær maður, +
438af því að þeir rukka held ég fyrir mínútuna. +
439En það er náttúrlega, +
440það var einn vinur minn sem kom með ágætis punkt sko af því að hann notar svona +
441rafskutlur rosa mikið og alveg bara elskar þær, en hann segir: það er ekki séns að hann sé að kaupa sér svona sjálfur af því að +
442mikilvægasti fídusinn er ef þú ferð á þessu og +
443svo skilurðu þetta eftir og þarft ekki að pæla í því. +
444Það er reyndar mjög góður punktur sko. +
445Af því eins og þegar +
446ég fer á mínu hlaupahjóli í skólann en er í vinnu þá þarf ég alltaf að taka það með mér upp. +
447Já, einmitt. +
448Þú veist og bera það inn og þetta er alveg tuttugu kíló. +
449Það er reyndar mjög góður punktur sem ég hafði ekki hugsað út í sko, +
450að það er alltaf stór partur af þessu er að geta skilið þetta eftir. +
451Já, þú veist ég myndi aldrei fara, fara á þessu inn á einhvern skemmtistað á djammið eða eitthvað því að þá þyrfti ég að vera að passa upp á þetta allan tímann. +
452Nákvæmlega, nákvæmlega. +
453Þetta er, +
454já, það eru kostir við að hafa þetta svona. +
455Hvað skal segja? Miðstýrt? +
456Er það ekki svona það sem er að +
457Deilihagkerfið, +
458koma svo sterkt inn núna þessi árin? +
459Deilihagkerfið. +
460deilihagkerfið, jú. Og það er náttúrlega betra, þá +
461þarf að kaupa færri hluti. +
462Nákvæmlega. +
463Framleiða færri hluti. +
464Það er það sem þetta snýst um. +
465En hvað svona er fram undan hjá þér? +
466Hjá mér? +
467Já, ég á eftir að sjá hvort ég verð ráðinn næsta árið, ég á eftir að fá samning frá fyrsta október. Þannig að, +
468Ókei. +
469já, framtíðin er mjög opin. +
470Er ekki mál, máltækni áætlunin. Hún er að renna út núna, er það ekki? +
471Það er eitt ár í viðbót. Ókei. +
472Nei, það er eitt ár í viðbót. +
473Það er eitt ár í viðbót og síðan hérna, +
474síðan er þetta bara búið. +
475Málið er að þetta er eitthvað mjög skrýtið með hvernig fjármagninu er úthlutað, því er greinilega úthlutað bara með mjög stuttum fyrirvara. +
476Þú veist á grundvelli hérna +
477afkasta og árangurs seinasta árs og bla, bla, bla eitthvað. +
478En já. +
479Ég samt býst við því að fá að vera hérna áfram og. +
480Er samt ekki alveg líklegt að það verði hent aðeins meiri fjármagni í þetta? +
481Eftir að máltækniáætlunin rennur út. +
482Jú, ég held að þetta muni bara á næstu árum, af því það er líka það er annar sjóður, það er náttúrulega tækniþróunarsjóður og síðan er markáætlun um tungu og tækni. +
483Sem eru aðrir sjóðir en máltækniáætlunarsjóðurinn og ég held að þeir muni kannski fá aðeins aukið fjármagn, +
484vera kannski aðeins meira í úthlutunum af því að það hafi verið kvartað dálítið. Þeir sem eru í, sem sagt ekki stofnanir +
485þú veist litlu sprotafyrirtækin. Þau hafa verið að kvarta dálítið yfir því að hagnýtingarverkefnin þeirra séu ekki að fá nógu mikla styrki. +
486Það er kannski að fara að koma sterkara inn núna á næstunni? +
487Já, ég held að það sé pælingin sko og þess vegna er verið að, +
488þess vegna og örugglega af öðrum ástæðum líka að vera að að aðeins skera niður í þessa innviðaáætlun sem er svona questionable ákvörðun en já, +
489hugmyndin er að þá sé rýmkað meira fyrir hagnýtingum. +
490Bara nokkuð góðir, ég held það líka. +
491Ég held þetta sé bara komið gott. +
492Hún er yfir hálftímann og það er allt sem var beðið um. +
493Heyrðu, þetta var bara gaman að spjalla við þig, gaman að kynnast þér. +
494Vonandi fæ ég að sjá þig einhvern tímann hérna í skólanum. +
495Algerlega ertu hérna uppi á? Ertu með skrifborð þarna uppi +
496á LVL svæðinu? +
497Já, já, ég þarna er í horninu við hliðina á XXX. +
498Yes, heyrðu. +
499Ókei, ég sé þig kannski bara í næstu viku eða eitthvað. +
500Bara sömuleiðis, þú stoppar væntanlega, er það ekki? +
501Takk fyrir spjallið. +
502Heyrðu, góða helgi. Bæjó. +
503Jú, algjörlega. Góða helgi. +
+
+ + +
Go back
+ + + + + +