diff --git "a/pages/a56ed5af-6381-4415-bab7-79f21c209429.html" "b/pages/a56ed5af-6381-4415-bab7-79f21c209429.html" new file mode 100644--- /dev/null +++ "b/pages/a56ed5af-6381-4415-bab7-79f21c209429.html" @@ -0,0 +1,1868 @@ + + + + + + Spjallrómur + + + + + + + + + + + + + + +
+ + + + + +
+
+ + +
+ + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + +
1Hver á að byrja? +
2Það kemur spurning hérna: Hver er uppáhalds sundlaugin þín? +
3Ó, já, uppáhalds sundlaugin, +
4ætli það sé ekki bara, Akureyrarsundlaug? +
5Mér fannst svo gaman þar. +
6Varstu oftar þegar þú varst krakki, eða? Já, þannig. +
7Nei nei, bara þegar ég var að +
8heimsækja Akureyri bara í gegnum tíðina og svona. Já, já. +
9Hefurðu farið oft? +
10Ég hef oft farið til Akureyrar og stundum í sundlaugina. +
11Já, ég man ekkert eftir þessari sundlaug. Ó. +
12Nei, þú hefur sjálfsagt ekkert verið, þetta hefur verið bara fyrir þína tíð sko. +
13Þú verður að athuga það að ég var orðin svolítið gömul þegar ég átti þig. +
14Já, satt. Ég myndi segja að mín væri bara Grafarvogssundlaug. +
15Hún er líka góð. +
16Mér finnst rennibrautin svo skemmtileg. +
17Svo fór ég líka í Kópavogssundlaug með, með barnabarnið, +
18elsta barnabarnið og hérna, +
19já, og ég hef farið svolítið oft með hann þangað af því að +
20honum finnst svo gaman að fara með ömmu þangað og renna í rennibrautinni og hann lét mig renna líka og svona. Ég var næstum því bara búin að reka hausinn í á leiðinni niður. +
21Oh my. Stressandi +
22Það var svolítið scary. Já, +
23ömmu líf. Bíddu, Kópavogi, er það ekki þarna? +
24já, svolítið stressandi ömmulíf. +
25Þar sem að pabbi þinn var að byggja. +
26Já, er ekki ótrúlega stór rennibraut þar, eða hátt upp? +
27Jú sko, hann fór í þessa sem er lokuð. Ég fór í hina sem er opin af því að mér finnst svo vont að fara í svona, eða sko hún var hálfopin þessi sem ég fór í en hann fór í lokaða. +
28Já. +
29Ég fór ekki í það sem betur fer. +
30Og hvað, bara flaugstu næstum því úr sundlauginni? +
31Nei, sko þegar þú veist, þegar maður, af því ég sko +
32sat svona hálfvegis uppi til þess að fara ekki of hratt að +
33þá hausinn næstum því lentur í þarna efri +
34Já. +
35kantinum á þessu röri sem ég var inni í. +
36Mér fannst ég svolítið í hættu stödd sko. Já, jú, þetta er svona rör, inni á milli er það, já það var að vísu svona úr plasti en, en það, það var ekki, hefði ekki verið gott að reka sig í það sko. +
37Já, er ekki eitthvað járn sem kemur upp inni á milli? +
38Já, maður þarf eiginlega að liggja alveg aftur en þá fer maður, +
39Þá fer ég allt, allt of hratt. Já, +
40þá fer maður ótrúlega hratt. +
41Oh, týpískt. Ég, +
42ég held ég hafi farið þangað þegar ég var lítil en ég man ekkert eftir því, ég man hvernig hún lítur út að utan, sundlaugin. +
43já, ókei, +
44En ég man ekkert meira. Já, eða kannski er ég óvart að tala um hana, það gæti verið. +
45en manstu eftir sundlauginni í Kópavogi þar sem er rétt hjá hérna +
46vini þínum? +
47Já, það var, það, sú sundlaug er ný en þessi sem ég er að meina er gamla sundlaugin sko. Hún er eldgömul. +
48Hvað er hún gömul? +
49Hún hefur bara verið gerð upp sko, gerð svo skemmtileg. +
50Hún er alveg frá því að Kópavogur byggðist sko, í gamla daga. Örugglega. +
51Hvenær var það? Nítján hundruð tuttugu og eitthvað? Nei, allavega +
52Ég veit ekki hvenær Kópavogur er byggður. Já, einmitt, það gæti verið tuttugu og eitthvað sko, fyrir hundrað árum. +
53gamli Kópavogur er mjög gamall. +
54Vá. +
55Hún er náttúrulega ný þannig, hún er alltaf gert, gerð upp og svoleiðis. Það er ekki það. +
56Það var rosalega góð sundlaug. En þessi +
57sem hin sem þú varst að tala um þarna hinum megin í Kópavoginum, það er Salasundlaug, Salalaug held ég. Já, alveg í nýja hverfinu bara á milli systur þinnar og vinar þíns +
58Hinum megin í Kópavoginum. Ó. +
59Já. +
60í Salahverfinu sko. +
61Salahverfi, ég man sko engin nöfn. +
62Það er á milli, manstu ekki eftir Nettóbúðinni sem var lítil búð þarna rétt hjá þar sem við vorum stundum að fara þegar við vorum heima hjá honum. Ofboðslega lítil Nettóbúð. +
63Jú, var svona varla kósý. +
64Mjög nett. +
65Algjörlega og hún, sundlaugin er við hliðina á þessum búðum eða þessari húsi. +
66Já, já, +
67ég man smá eftir henni en ég held ég hafi ekki farið í hina sundlaugina. +
68Nei, held ekki sko, ekki með mér allavegana. Árbær, já Árbær. Það var nú alveg, í gamla daga, alveg bara, +
69Ég man ég fór nokkrum sinnum með Hilmi í Árbæjarsundlaug. Reyndar ekki oft. +
70rosalega vorum við oft þar. +
71Ég man svo vel eftir innilauginni út af því það eru svo kósý plöntur, það er svo mikið af plöntum inni. [UNK]. +
72Ég man ekki eftir því, ég man bara eftir inni í Grafarvogslauginni, innilaugin þar. +
73Já, já, þar eru svona flísar í loftinu og búið að búa til svona myndir úr þeim. [UNK]. +
74Já, og svo er eitthvað svona gúmmídót sem maður getur hent sér af svona einhverjar fígúrur. Leikið, alveg rétt. +
75Já, skólasundið var eiginlega bara alltaf þar. +
76Já, inni. +
77Já, ég held það. +
78Ég man eftir því einu sinni fór ég að fylgjast með skólasundinu og þá varstu úti. Þá var ég bara í heita pottinum, með eitthvað svona eitthvað. +
79Já ókei, það er blandað bara. +
80Sérð þú spurninguna sem kemur upp? Það stendur myndir þú +
81 Nei, ég myndi sko ekki þora því. +
82kaupa sjálfkeyrandi bíl? +
83Ef hann myndi bila sko, hvað þá? +
84Keyra bara út af. [UNK]. +
85Ég myndi ekki þora því. +
86Vissirðu að nýju Teslurnar geta keyrt sjálfar? +
87Nei, ég hugsa ekki. Eða jú, var ekki, var ekki einhver búinn að segja mér það? +
88En ég hef allavegana heyrt að það er bara autopilot takki. Þá bara +
89keyrir bíllinn fyrir þig, ég myndi ekki treysta því. +
90Ég myndi vera hrædd um það myndi bara klikka sko, +
91Já, og líka ef einhver hleypur inn á veginn eða eitthvað og ég sé það frá ákveðinni fjarlægð, ég sé þau koma að veginum og þá get ég byrjað að hægja á mér en bíllinn myndi kannski ekki fatta það. Hann myndi bara fatta það þegar þau eru komin nálægt, eða ég veit það ekki. +
92Þetta hlýtur að vera ótrúlega vel hannað, fyrst það er +
93en samt, það er svona atriði eins og til dæmis +
94ef þú sérð einhvern keyra +
95svona eins og hann sé drukkinn, nálægt þér +
96í umferðinni þá myndirðu svona, þá myndi ég allavegana reyna að forðast að vera nálægt honum. En það er ekkert víst að þessi sjálfstjórn myndi fatta það. +
97Ekki. +
98Eða þá ef að lítið barn væri að koma hlaupandi eftir bolta. +
99Já, [UNK]. +
100Þú veist. +
101Og tekur eftir og fattar hvað er í gangi sko. +
102Já, eins og maður sér kannski einhverja krakka vera að leika nálægt veginum og hægir á sér bara just in case þannig að +
103Já. Já, eitthvað +
104ef einhver hleypur inn á veginn. +
105svoleiðis. Já, ég vil frekar stjórna mínum bíl sjálf, þakka þér kærlega fyrir. +
106Bíllinn þinn er svo þægilegur, þó að hann sé beinskiptur þá þarna er svo þægilegt að keyra hann. +
107Það er alveg satt. +
108Hann er svo mjúkur. Mér finnst hann eiginlega bara skipta um gír fyrir mann. +
109Eitthvað annað en minn bíll, +
110algjör ristavél. +
111Já, +
112Svo stífur gírinn. +
113já, er ekki hægt að setja olíu, liðka það eitthvað til? +
114Jú, örugglega eitthvað en hann er bara, hvernig hann er byggður er, +
115enginn lúxus. +
116Hann er bara frekar stífur yfir höfuð. +
117Já. Oh boy, allt annað sko. +
118Ef ég keyri nýja bíla þá finn ég hvað þeir eru mjúkir. +
119Já, þegar kemur að öllu. +
120Eins gott að þú ert ekki að vinna við útkeyrslur í þessum bíl. +
121Hræðilegt. Algjörlega. +
122Heyrðu, það minnir mig á það, ég þarf að fara með minn bíl í skoðun. +
123Einhvern tímann. Ég veit það ekki alveg. +
124Hvenær? Er það ekki ágúst? +
125Nei, september já já. Er það ekki seinasta talan sem að skiptir máli? +
126September, ókei. Endar hann á níu? +
127Já, já, þá er það september. Þá þarf ég ekki að hafa áhyggjur. +
128Nógan tíma. +
129Kannski fínt að bara vera bara búin að því. +
130Ég held ég geri þetta bara í júlí, áður en ég fer, annaðhvort áður eða eftir að ég fer til Spánar. +
131Ó. +
132Ertu þá ekki búin í öllum bólusetningunum? +
133Jú, seinni bólusetningin, við erum að vonast til þess að mega, tek hana þegar við erum búin að vera átta vikur +
134bólusett og þá eru akkúrat tvær vikur þangað til förum í ferðina þannig við ættum að geta fengið svona skjal inni á Heilsuveru og prentað út. +
135Vottorð um að við séum búin að fá báðar bólusetningarnar og haft það bara með okkur þegar við förum út og sýna á ensku náttúrulega eða spænsku, ég veit ekki alveg. +
136Já. +
137Það verður að hafa svona vottorð. +
138En veist þú hvenær þú færð þína bólusetningu? +
139Ég var eitthvað að heyra það að +
140konur fæddar níutíu og sjö, að þær fái bólusetningu, eitthvað átjánda júní, þá vikuna. +
141Það er bara í, eftir tvær vikur. +
142Já, það er ótrúlega stutt þangað til. Mér finnst það skrýtið út af því ég er svo ung. +
143Ég hélt að það væri. +
144Er verið að taka bara þú veist random aldurshópa núna til þess að dreifa meira úr bólusetningunni? +
145Getur það verið já, +
146já, af því að sko Díana er nýbúin að fá, hún er sjötíu og þrjú módel. +
147Já, +
148Það munar svolítið. Já einmitt. +
149Tuttugu og eitthvað árum sko. +
150Já, þetta er ábyggilega eitthvað svona. +
151Verið að dreifa eitthvað sitt á hvað, ég veit það ekki annars. +
152Já þessu. +
153já, sérstaklega út af það var sagt konur fæddar þetta ár. +
154Já, já, já, já, þú meinar, ekki karlmenn. +
155Eitthvað spes að þú veist taka fram konur. +
156Já, eða ég las það allavega, kannski las ég það vitlaust. Mbl. Bara á netinu. +
157En hvar lastu þetta? +
158Já, bara Morgunblaðinu. +
159Þú ert svo klár. +
160Hvernig er hægt að vera svona klár? Já, til að byrja með þá getur getur maður. [UNK]. +
161Já, ég ætla að fara að bera á mig svona brúnkukrem til að fá aðeins brúnku á mig áður en ég fer til Spánar. +
162Já, ætlarðu ekki að fá brúnku á Spáni? +
163Jú, ég vona það, en ég er að meina sko af því að það er svo leiðinlegt að vera alveg glær, +
164ofboðslega snjóhvítur. +
165Já, þú reyndar ert með smá lit í húðinni náttúrulega. +
166Eitthvað annað en ég. +
167Ég er svolítið rauð. +
168Eins og rauður karfi. Það sé ástand. +
169[UNK]. Nærð þú alveg að fá einhverja brúnku þegar þú ferð í sólbað? +
170Já, það er hérna, það kemur smá en ég er voða lengi að fá brúnku á lappir og svoleiðis. Þess vegna, +
171Já, lappirnar alltaf ótrúlega lengi að koma. +
172Þær eru bara, þær vilja ekki skipta um lit. +
173Skrítið hvað það er mismunandi eftir líkamspart, hversu vel húðin tekur við lit. +
174Já. +
175Maginn á mér tekur strax við lit. +
176Er það? Heppinn. +
177Já. Spes. [UNK]. Alltaf að vera í magabol. +
178Minn er bara snjóhvítur. Já, þegar þú talar um maga, ég var að segja Þorgeiri frá því að ég er með smá, eða svolítið feitan maga sko núna. +
179Sýna, segja Þorgeiri. Já, þetta er svolítið hættuleg fita sem er með hérna akkúrat framan á maganum. Það er fita sem getur valdið krabbameini. +
180Já þarna, erfiða fitan sem er neðst á maganum. [UNK] +
181Já, hún er hættuleg, sko. Þess vegna var ég að segja við hann ég þarf eiginlega að losa mig við hana sko. +
182Ef ég gæti það. +
183Allavegana hreyfa mig meira, nú var verið að setja mig í skammarkrókinn í leikfiminni. Ég var ekkert of sein eða ég gerði ekkert af mér. +
184Ha, varstu sett í skammarkrók? +
185Já, í leikfimi þá er það svoleiðis að ef maður mætir ekki í tímann sem maður var búinn að panta eða mætir of seint, þá er maður settur í +
186skammarkrók í viku þannig að maður getur ekki pantað sér tíma í heila viku. Ég kvartaði og sagði, ég, ég kom í tímann og maður lætur vita af sér í afgreiðslunni frammi og það var ungur maður sem skrifaði, sagði, já þetta er í lagi. +
187Ég sagði hvað ég hét, hvert ég var að fara. +
188Samt var ég sett í sama skammarkrók. +
189Þá er nú eins gott að ég bara noti vikuna til að reyna að hreyfa mig á annan hátt, fara út í labbitúra. Já, þetta er svona í World Class. +
190 Spes. +
191Er erfitt að afbóka? +
192En sko, +
193hvað segirðu? +
194Er erfitt að afbóka tíma eða? Ha, af hverju [UNK]? +
195Nei, nei, maður gerir það bara í tölvunni. +
196Það er ekkert erfitt, en það er bara málið er að ef maður mætir ekki í tíma og afbókar ekki þá fer maður skammarkrókinn en ég mætti í tímann sko, og hann merkti við. +
197Ég kvartaði en samt eru þeir ekki að laga það. +
198Mér finnst það svolítið lousy. +
199Þeirra mistök, sko, að ég þurfi að, jæja, +
200en ég er ekki að kvarta af því að ég þarf hvort eð er +
201að hugsa um aðra. Það er svo mikið að gera í bókhaldinu og starfinu og svona. Fer bara í labbitúr. +
202Já. Ég er með spurningu. +
203Hver er uppáhalds bíómyndin þín? +
204Bíómyndir, það er Blondie þarna númer eitt, Legally Blonde. +
205Legally Blonde. Hún er líka á topp þrjú hjá mér sko. +
206En hver er númer eitt hjá þér? +
207Ég er með nokkrar uppáhalds. Mér finnst mjög erfitt að setja eina, +
208Já, það er voða erfitt. +
209sko topp þrjú eða fjögur, það er +
210Monsters University +
211Ó. +
212og Legally Blonde +
213og Pride and Prejudice og líka Coco, sem er Pixar mynd. +
214Það eru líka æðislega bíómyndir. +
215Hvað segirðu? Ha? Nei. +
216Það eru, það eru alveg fleiri, ég bara man ekki akkúrat núna. +
217Eru ekki örugglega komnar tíu mínútur? +
218Jú, þetta á að vera í kringum hálftíma. +
219Eigum við að röfla í hálftíma? +
220Jæja, þá er best að við röflum eitthvað meira, alveg. +
221Við erum búnar með meira en helming. +
222Meira en korter sko. +
223Gæti trúað því. +
224Hérna, mér finnst svo gaman af þessum myndum sem að, eru hérna, +
225hvað heitir þetta? Ha? +
226Myndirnar sem þú tókst. +
227Já, myndir sem [UNK]. Það er blóm af, það er mynd af blómi sem ég gaf Díönu og það þrífst svo vel í glugganum hjá henni. Það bara blómstrar og blómstrar. +
228Já, ég er með hana hérna í símanum og, og blómið er þú veist, það er eitthvað +
229Var hún að senda þér mynd? +
230svo fallegt og þú veist það er bara eitthvað svo +
231heilbrigt og mér finnst svo gaman að horfa á það. [UNK]. +
232Hvaða blóm? +
233Hvað tegundin heitir eða? +
234Nei, ég man ekki hvað tegundin heitir. Þetta er bara pottablóm, +
235og það er bara svo fallegt, finnst mér. +
236Er hún með svona græna putta? +
237Það hlýtur að vera en sko, glugginn hennar snýr út í norður þannig að maður myndi halda að það væri ekki nóg. En það er alveg nóg birta bersýnilega. +
238Er það ekki suðurglugginn sem var oftast með mesta sól? [UNK]. +
239Jú, en +
240það er eiginlega of mikið fyrir venjuleg blóm, +
241Já, það er. Já. +
242kaktusar kannski eru í lagi þar. Það er rosalega mikið hiti og sól í, af því að þarna +
243bara steikjandi sko. +
244Já, brennur bara laufblöðin. +
245Já, allt of mikil sól. +
246Eru ekki einhverjar plöntur sem fíla það í botn samt? +
247Hvað segirðu? +
248Eru ekki enhverjar plöntur sem fíla það alveg í botn? [UNK]. +
249Jú, það eru hérna kaktusar, manstu ekki [UNK], voru með kaktusa í stóra glugganum. Já, eða hún erfði þá eftir pabba eða hún hafði nú eiginlega ræktað þá flesta, held ég, +
250og þeir lifðu góðu lífi þarna, alveg bara plumuðu sig alveg eins og þeir væru í Mexíkó eða eitthvað. +
251Já, ég man eftir þessum kaktusum. Ég hélt að afi ætti þá. Ég hélt að afi átti þá. +
252Já [UNK], var að sko +
253rækta þá en +
254Ó. Ég hélt að þetta var bara skraut. +
255núna heyri ég að afinn er kominn heim. +
256[UNK]. Með voffa. [UNK]. +
257Hundurinn eltir. +
258Ég ætla að fara að fá mér eitthvað að borða og svo ætla ég að fara í bókhaldið. +
259Hvað ert þú oftast lengi með svona bókhald? +
260Já, sko, undirbúningsvinnan sem ég er í, það er að raða pappírunum í +
261möppuna. +
262Ég var alveg í einn og hálfan tíma í gær og ég á eftir að vera í hálftíma, það eru svona tveir tímar í allt og svo að, að hérna +
263pikka þetta inn í tölvuna, það tekur líka tvo tíma. +
264Já, þarf maður þá að raða upp eftir dagsetningu fyrst? +
265Já, það er alveg helmingurinn af vinnunni. Já, já, +
266Er þetta allt bara eiginlega í rugli þegar þú byrjar að raða þessu upp? +
267bara eitthvað alls konar drasl, ég er að taka upp alls konar pósta þarna og sumt af því er ekkert sem á að fara í bókhaldið. Maður lifandi bara. +
268Nóg að gera. Það er önnur +
269Það er svolítið svoleiðis. Hvað? +
270spurning komin upp. Hvar sérð þú þig eftir fimm ár? +
271Í nýjum heimi +
272eða á Spáni [UNK] þá er það +
273Í sólinni. +
274Spánn. +
275Með barnabörnin í kringum mig. +
276Já, þau eigið eftir að njóta sín mikið, eða ég held það. +
277Já, ég hugsa það, það verður gaman að fara í heimsókn þangað. +
278Er ekki svæðið sem að íbúðin er á, er þetta ekki svona strandarsvæði? +
279Nei, það er bara sundlaug, það er ekki strönd. [UNK], +
280Maður er svona tuttugu mínútur að labba niður á strönd. +
281En ef maður er á svona hlaupahjóli eins og við ætlum að kaupa, +
282já, já, bara svona rafmagns sem að eru uppi á gangstéttum sko. +
283Eins og er niðri í bæ. +
284Af því við kannski ef við þekkjum ekki umferðina og það nógu vel líka. Þá er maður ábyggilega stutt, enga stund sko. Já, já. En hérna. +
285Það er ótrúlega sniðugt. +
286Drífa sig á ströndina. +
287Af því að það er svo heitt. Manni verður alveg, maður er gersamlega held ég ef það er +
288heitt sko að labba í sól, það er bara ekkert grín. +
289Já. +
290Eða taka bílaleigubíl, það er líka hægt. Já. +
291En það, þá já þarf +
292alltaf að vera einhver driver sko. +
293Eru leigubílar dýrir á Spáni? +
294Ég veit það ekki, +
295ég hef enga reynslu af því. Já, er það? Já. Nei? +
296Ég man að í Bretlandi er svo ódýrt að taka taxa. +
297Og, náttúrulega, mig minnir að það sé alveg ódýrara að taka strætó. +
298En það var ekkert það dýrt að taka leigubíl. +
299Eitthvað annað en hérna. +
300Já. Já, já, mikið af fólki. +
301Aðeins dýrara. +
302Þegar ég var í .arna Edinborg, +
303og það er svo mikið af fólki sem býr þar og Glasgow. Það er bara allar gangstéttir eru troðfullar af fólki, +
304maður er bara. +
305Mér fannst það svo yfirþyrmandi eitthvað, það var allt of mikið fyrir mig. +
306Já, þetta var eitthvað svo óþægilegt að vera að versla allan daginn í einhverri mannþröng. +
307Þá er nú betra að vera á netinu og panta bara þar. Já, þær geta verið mjög skemmtilegar, ég er sammála þér, ég fór inn í eina svoleiðis í Barselóna. +
308Eða finna einhver svona kósý bæ eða eitthvað. Fara í einhverjar pinkulitlar, einkareknar búðir. +
309Það var svona fatabúð og konan sem afgreiddi var svona fatahönnuður en hún seldi líka sínar vörur líka [UNK]. Keypti þetta þú veist fjólubláa, nei þarna, +
310mussuna sem er með fiðrildinu framan á, þú sagðir að ég væri eins og indversk. +
311Já. Það er ótrúlega skemmtilegt. +
312Keypti hann. Já, það er svo skemmtileg búð. +
313Já, er það eitthvað sem hún hannaði bara? +
314Og líka keypti líka frá öðrum, það var svo lítið að gera, það var eiginlega bara ég, kannski einn eða tveir aðrir þarna inni í búðinni. +
315Var það í einhverju svona litlu svæði? +
316Það var bara inni í Barselóna, einhverju miðsvæði. Við hliðina á einhverri kirkju, þau vildu endilega skoða kirkjuna, Matti og, +
317eða hinir sem voru með mér segi ég. +
318Ég nennti því ekki. Bara að utan smá. +
319Þá bara sá ég þessa búð og fór þarna inn. Og keypti, +
320ég held ég hafi keypt svolítið af svona mussum, mig minnir það. Já. +
321Heitir þetta mussur? +
322Fyndið nafn. +
323Fyndið að það er ekki notað í dag heyri ég. +
324Ég held að bara þetta snið af klæðnað er ekkert mikið til í dag, +
325allavegana ekki hjá yngri kynslóðinni. +
326Mussur eru ekki í tísku. [UNK]. Múmú? Já, mussur eru ekki kjólar, það er kannski bara við buxur sko en, en þær, þær voru allavegana þannig að ég var alltaf í mussu þegar ég var unglingur, þarna frá tólf ára upp í fjórtán já. Ég var bara alltaf í sömu mussunni alveg. +
327Heitir muumuu á ensku. +
328Muumu. Já, það er svona stórt, stór víður kjóll með einhverjum myndum. +
329Grænni úr einhverju svona +
330austurlensku efni. Voða flott. Ég held að mamma hafi saumað hana fyrir mig. +
331 [UNK]. +
332Mamma, hún var klár að sauma já. +
333Mig langar svo að kunna að sauma en ég er með enga náttúrulega hæfileika á því sviði. +
334Þú bara kannt þetta víst. +
335Sko. Ég prófaði að læra það og ég bara var ekki að ná þessu. +
336Heilinn minn vill ekki virka á þessa vegu. +
337En já, mér finnst ekkert mál að teikna og mála og +
338eitthvað í þá áttina. Ég gæti hannað föt. Ég gæti teiknað fötin en svona [UNK]. +
339Já, +
340láta einhvern annan [UNK]. +
341Að svona reikna út sniðin og hvernig á að sauma kjól. +
342Já, það. Það er hérna að reikna sko það er, þá ertu klæðskeri. Ég geri það ekki, ég hérna bara tek sniðin og sauma eftir þeim. +
343Já. +
344En að búa til snið, +
345Það er hægt að náttúrulega kaupa [UNK]. +
346það er önnur ella sko. Ég kann, +
347ég held ég kunni það nú voða illa. [UNK]. +
348Er ekki hægt að kaupa bækur sem eru með sniðum í? +
349Jú, jú, það er það sem maður kaupir sko. Úti í bókabúð +
350Já, kaupirðu það bara úti í föndurbúð eða? +
351geturðu keypt svona eða einhverjum búðum, [UNK], það er hægt að kaupa, bókabúðum líklega, svona blöð sem heitir Burda og svoleiðis +
352Já, +
353og þar er svona hægt að lesa. +
354Þá er hægt að sauma, þá eru myndir af fötum sem hægt er að sauma, svo er bara, svo er inni í blaðinu sniðið. Maður þarf samt að taka það upp á, á +
355svona pappír eins og maður notar. Já. +
356bökunarpappír. +
357Taka í gegn sko. Fyrst bökunarpappírinn ofan á, +
358tekur í gegn +
359og klippir það út bökunarpappírinn og setur það á efnið og festir, gerir eftir því á efnið. +
360Já. Heyrðu, er ekki bara kominn hálftími? +
361Það er eitthvað smá eftir. +
362Borða eitthvað, orðin svo svöng. [UNK]. +
363Það er ekki mikið eftir. +
364Tölum þá um hvað þú ætlar að borða. +
365Já, ég er að hugsa um að fá mér sko ristað brauð +
366og ég ætla bara að hafa, +
367Já, ætlarðu bara að fá þér snarl? +
368já eitthvað svoleiðis. Hvaða dingl var þetta? +
369Já, +
370Ég rakst í glasið. +
371ég verð að sýna þér myndina af blóma, blóminu sem ég gaf henni Díönu. Það er mjög fallegt. +
372Monsteran mín +
373sem að er niðri í stofu, hún er bara alveg dauð. +
374Hún er bókstaflega dottinn úr pottinum. +
375Hver er það? Monstera? +
376Já, hún er dottin út pottinum. +
377Þannig að, þarna, það er bara hola ofan í moldinni, það er eins og hún hafi bara hoppað upp úr. +
378Nei, niðri í stofu. +
379Inni á hvaða stofu? +
380Já, niðri í stofu, já, ég tók eftir því að það var bara farið blómið. +
381Hún bara hljóp úr pottinum. +
382Ætli það hafi ekki verið þegar pabbi þinn var að +
383vesenast með þetta tæki þarna. +
384Gott að það virkar fyrir hann. Ég er voða fegin og líka fegin að hann sé með stóra ferðatösku og geti tekið með til Spánar, hann verður tíu daga þar eða eitthvað svoleiðis. +
385Ó je, [UNK]. +
386Já. Nei, [UNK] þegar hann sefur sko. +
387Það væri ógeðslega fyndið ef þú værir í sólbaði með eitthvað tæki alveg. +
388Nei, thank you very much. +
389Hvað er eiginlega heitt á Spáni? Já. Mér finnst svo fyndið hvað það þarf að vera með loftkælingar í heitum löndum, en hérna heima þá erum við með ofna til þess að hita húsið. +
390Ég þori ekki að hugsa um það. +
391Það er ábyggilega alveg ógeðslega, ógeðslega heitt. Kæli, inni eða svona loftkæling inni í íbúðinni. +
392Já,Matthías segir að þessi loftkæling virki þannig að á veturna er hægt að nota hita, láta hann hita. +
393Já. Já, hægt að nota á báða vegu? +
394Þannig að það er ágætt. Þá bara, +
395Mér [UNK]. +
396þá gerirðu það. +
397Ég man úti í útlöndum þegar ég var í einhverri verslunarferð, þá var svo ótrúlega heitt úti +
398og alltaf þegar maður fór inn í einhverja búð þá var ótrúlega kalt inni í búðinni, það var svo þægilegt. +
399Já, +
400Andstætt vandamál miðað við það sem ég upplifi oft hérna. Svona á veturna. +
401já, +
402og líka þegar maður er að ná svona [UNK], og fer inn í svona mold, þá getur bara verið kalt þar inni. Maður þarf virkilega, bara +
403verða ekki kvefaður. +
404Já. Ég man þegar öll fjölskyldan fór til Flórída og það var svo svakalega köld loftræsting á einhverjum veitingastað sem var bara að blása beint á okkur að helmingurinn af hópnum fékk kvef og vorum bara kvefuð alla ferðina. Út af loftræstingu. +
405Ekki hægt. Nei, þetta er nú ekki hægt sko. Fáránlegt. +
406Þau voru bara að drepast úr kulda á veitingastaðnum. +
407Það er svo margt spes við Bandaríkin, eða mér fannst það allavegana þegar ég fór. +
408Já, já, það er svolítið margt spes. +
409Það sem mér fannst mest spes var hvað loftkælingin var extreme. Svona of mikil. +
410Ég man að einu sinni þegar við Matti vorum á Portúgal, +
411þá var svo rosalega heitt og við löbbuðum inn í eina búð bara til þess að kæla okkur. +
412Já, heyrðu þetta var svona, +
413selja svona teppi á rúm, keyptum rúmteppi þar sem ég notaði í mörg ár. +
414Þannig að þeir sem eru með þessar kælingar þeir fá kúnna inn sko. [UNK]. +
415Það var svona mynd í glugganum, það er rosa kalt inni hjá okkur. +
416Já, mér fannst líka svo spes við Bandaríkin svona tax. +
417Ef maður var að kaupa eitthvað þá þurfti maður alltaf að borga aukalega skatt. +
418Það var ekki reiknað með í verðinu strax. +
419Nei, mér fannst það svo pirrandi út af því að ég var búin að reikna verðið út áður en ég fór á kassann og svo þurfti ég að borga meira þegar ég var komin að kassanum og ég átti ekki nóg. Bara, hvernig á ég að reikna svona hratt prósentureikning? +
420Það finnst mér líka rosa pirrandi. +
421Alveg ógeðslega pirrandi. [UNK]. +
422Mér fannst það fyndnast þegar ég fór í dollar store og þú veist, þá er hver einasti hlutur þarna inni kostar einn dollara, +
423og við tókum nokkra hluti og reiknuðum hvað það væri mikið, þú veist. Segjum að þetta hafi verið fimm hlutir. Þannig að þetta átti að vera fimm dollarar, svo fórum við á kassann og þá var það sex og hálfur eða eitthvað, út af þessum skatt. Þannig að dollar tree er bara lygi. +
424Já, það er bara ekki satt þá. +
425Já. Mér fannst þetta svo fáránlegt, að geta ekki borgað með bara einum dollara ef þú ert í dollar store, þú þarft að borga aukalegt. +
426Það er bara algjör synd. +
427Skrítið, borgar fólk ekki skatt þarna? +
428Jæja, er ekki kominn hálftími? +
429Það eru tvær mínútur eftir. +
430Þú færð ristað brauð eftir smá. Jú. +
431Ég fer bara og læt +
432krem á andlitið á meðan, +
433á meðan ég tala við þig, er það ekki allt í lagi? +
434Jú, jú. +
435Sleikja á sér loppuna. +
436Já. Hann er alltaf að snyrta sig. +
437[UNK] svo mikið krútt, hann er svo mikið kúrukisi. +
438Ó, já, kúra og kela svona, en svo kemur hann inn með fugla í kjaftinum, þá er ég nú ekki eins hrifin af honum. +
439Oj. [UNK]. +
440Vondur kisi segi ég þá og Matthías skrifaði svona, wanted, dead or alive. +
441Hann notaði svo fyndna mynd af kisa líka. Kisi var eins og einhver panther á myndinni, hann var ógeðslega illilegur á svipinn. Ég var bara oh my. +
442Alveg eins og hann væri að fara að veiða. +
443Hver voru verðlaunin? Fimm þúsund dollarar. +
444Fimm þúsund dollarar. +
445Dead or alive. Þetta er, og svo bjuggu þeir til, +
446úr pappakössum bjuggu þeir til jail, það er að segja fangelsi fyrir svona kisur. +
447Ég vildi ekki leyfa þeim að setja kisuna inn af því að +
448Sheriff office. +
449kisan veit náttúrulega ekki. Hún er bara að fara eftir eðlinu. +
450Dýrin. +
451Jú, núna er tímínn kominn. Takk sömuleiðis, takk fyrir, takk fyrir. +
452Takk fyrir spjallið. Á ég þá að slökkva á símanum eða hvað? +
453Já. ég slekk á upptökunni. Bæ. +
454Já, heyrðu, þú gerir það, takk fyrir. +
+
+ + +
Go back
+ + + + + +