diff --git "a/pages/bbc3f248-382f-4aea-bc4c-6fe330ced92b.html" "b/pages/bbc3f248-382f-4aea-bc4c-6fe330ced92b.html" new file mode 100644--- /dev/null +++ "b/pages/bbc3f248-382f-4aea-bc4c-6fe330ced92b.html" @@ -0,0 +1,1904 @@ + + + + + + Spjallrómur + + + + + + + + + + + + + + +
+ + + + + +
+
+ + +
+ + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + +
1Ókei +
2hérna +
3ég hlakka rosa mikið til að fá þig aftur til landsins. Það verður gaman að sjá þig. +
4Já, ég hlakka mjög mikið til líka, það verður gott að hitta ykkur karlana. +
5Hvað hérna, hvað verður þú lengi í sóttkví? +
6Fimm daga til fimmtudagsins fimmtánda. +
7Ókei, áttu, þú sagðir mér þú ættir von á því að fá kannski seint að heyra. +
8Þegar ég var á landinu um jólin, +
9þá fór ég í seinna próf fimm dögum seinna og ég fékk svar úr því held ég klukkan tíu um kvöldið, +
10þannig að ég er ekkert vongóður um að ég losni á fimmtudaginn. Frekar þá að ég verði laus á föstudaginn. +
11Ókei +
12Ókei +
13Ókei +
14En þið eruð hvað, að fara að vera uppi í sveit? +
15Já, fáum lánað húsnæði hjá ættingja. +
16Já ókei, nice. +
17Já ókei. Hvað hérna, hvað er á döfinni þegar þú kemur? +
18Þú náttúrulega ætlar að kíkja í afmæli hjá félaga okkar er það ekki á föstudeginum? +
19Jú, ef allt gengur eftir þá kíkjum við þangað +
20Ókei. +
21og +
22það er svona ennþá óákveðið hvernig skipulagið verður á okkur, ég er bara fyrst að hugsa að við myndum verða fimm daga í sveitinni og svo fimm daga í bænum. +
23En ef við erum að fara að kíkja í bæinn út af þessu afmæli þá er spurning hvort við tökum bæinn fyrst og svo sveitina. +
24Og +
25Einmitt. Ertu þá að meina eftir sóttkvíina? +
26Já, ókei. +
27já, +
28og svo erum við, við ætlum að fara vestur að heimsækja ættmenni þar líka. Það verður einn til tveir dagur. +
29Ókei, geggjað! +
30Og svo er ég búinn að staðfesta +
31við minnsta kosti þrjá vini að við ætlum að kíkja í heimsókn eða mat og svona og þá kynni ég +
32nýja kvonfangið fyrir vinunum í fyrsta skiptið. +
33Já, geggjað. Er hún ekki spennt fyrir að koma? +
34Hún er mjög spennt, hún er líka svolítið stressuð. +
35Hvað er hún, hverju er hún stressuð fyrir? +
36Þetta byrjaði sem eitthvað grín að ef þið mynduð ekki samþykkja hana þá myndi ég líklegast bara henda henni út, sko. +
37Já, já. +
38Sem var náttúrulega bara meint þannig að ef þið væruð með einhver komment þá myndi ég auðvitað taka tillit til þess og reyna að meta það ef þið sæjuð eitthvað sem ég sæi ekki. +
39Ég er með eina athugasemd fyrir þig. +
40En já, +
41Bara þú veist, ef þú ert, ef þú ert hamingjusamur með henni +
42að þá, þá erum við bara nokkuð sáttir sko. Við viljum bara sjá þig ánægðan með þetta sko. +
43já, ég held að það sem hún hugsi er að, ef einhver kemur ekki vel við hana, þá verði það eitthvað vesen. +
44Ég hef enga trú á því og það er ekki kvarði sem ég met, +
45Já. +
46þú veist, hversu vel þetta gengur. +
47Einmitt, nei ég meina þú veist +
48og, og í sjálfu sér er það líka alveg í lagi sko, ég hugsa að þú veist, ég er ekki allra, þú veist mín kona er, er ekki allra. +
49Það verður aldrei þannig að, að þín kona sé allra. Kannski verður hún allra í okkar svona nánasta vinahópi en hún er +
50eðli málsins samkvæmt ekkert allra. Og það er bara eins og það er. +
51Já ég myndi ekki hafa [HIK: mik] miklar áhyggjur af því. +
52Nei, það er ekki, +
53ekki eitthvað sem ég er að stressa mig á, alls ekki. Já. +
54Hérna +
55með Fimmvörðuháls. +
56Þið eruð þá að fara kannski að taka seinni fimm dagana í þá törn. +
57Það er alveg, ég meina, það er alveg smá séns þarna er það ekki í vikunni eftir helgina? +
58Er það ekki? +
59Ég hugsa það núna já, fyrst ég er að hugsa að skipta þessum áætlunum, +
60þá verði það kannski frekar vikuna nítjánda til tuttugasta og fjórða. Að það verði hægt að fara þá. +
61Ókei, þú veist það væri náttúrulega bara algjörlega brilljant en annars líka +
62ef að, ef að við getum ekki meldað okkur saman í einhverja slíka ferð +
63að þá náttúrlega kannski leikum við bara eftir eyranu og sjáum hvernig veðrið verður. +
64Já. +
65En þú veist, þá væri alveg gaman að, ég veit ekki, kíkja í sund eða kíkja á upp á Esjuna eða, eða +
66gera eitthvað, skilurðu? +
67Þó svo að við hittumst vissulega í þessu afmæli +
68það væri gaman að hittast líka eitthvað. +
69Ég verð mjög til í það. Þess vegna er ég mjög spenntur fyrir að ef við náum Fimmvörðuhálsi saman, ég myndi njóta þess mjög mikið. +
70Já, það væri geðveikt! Sérstaklega ef að við fáum eitthvað gott veður, það yrði ógeðslega gaman. +
71Já, +
72við erum líka búin að vera að undirbúa, við erum búin að vera að taka göngur hérna upp í tuttugu og fimm kílómetra til þess að undirbúa okkur. +
73Ókei, ókei. Vá, bíddu, bíddu nei ha? +
74Upp í tuttugu og fimm kílómetra? Eruði uppi á Mars eða? +
75Nei, lengd, tuttugu og fimm kílómetra. Við erum ekki búin að ganga neitt upp í móti. +
76Ókei, ókei en það er samt, það er samt +
77djöfulsins ganga, tuttugu og fimm kílómetrar. +
78Já, ég er mjög ánægður með það. Það er góður gönguhópur hérna. +
79[UNK] hvað eruð þið bara, þú veist, +
80nú skil ég ekki, labbið þið bara tuttugu og fimm kílómetra í einum vettvangi? +
81Já, eða ein góð ganga sem er þá kannski sex tímar eða eitthvað svo. Kringum stöðuvatn sem er hérna fyrir utan bæinn eða litla tinda sem bæjarfélagið er búið að gera út á að sé hægt að ganga á. Já. +
82Vá, ókei [UNK]. +
83Vá, það er alveg. Það er alveg +
84mjög [HIK: lang], löng ganga sko. +
85Jesús. +
86Já, ókei. Ég er ekki alveg viss um að ég nenni að labba með ykkur tuttugu og fimm kílómetra en ég skal, ég skal labba með ykkur tólf kílómetra. +
87Svo náttúrulega líka sko +
88aldrei að vita nema gosið fari aftur að, að spýta í lófana og, og, og fari að hérna gjósa að einhverju viti. Ég veit nú ekki hvort það sé enn þá að gjósa. +
89Já, það var einmitt hugsunin, eitthvað kvöldið, ég hugsa að það sé skemmtilegra að fara um kvöld að skoða þetta. +
90Já, sko það náttúrulega +
91það er varla hægt að tala um, um kvöld orðið lengur sko. +
92[UNK] það er svo bjart sko. +
93En hérna, en það, það er alveg þess virði og sérstaklega, sérstaklega ef að þú +
94nærð að sjá eitthvað sko. Þannig að við, það er líka eitthvað sem við þurftum líka kannski að leika, +
95leika bara eftir, eftir tóninum sko. +
96Já, við fórum einmitt um daginn, +
97ég, +
98og XXX og forritunarfélagi minn, okkar og, og, og konan hans hans ásamt systur, systur hans. +
99Nú er ég að reyna að nefna ekki nein nöfn sko, þetta er náttúrulega háleynilegt sko. +
100Og þá náðum við alveg helluðu, +
101helluðum ljósaskiptum, eða hvað sem það kallast á, á íslensku þegar sólin er svona alveg við það að setjast. +
102Ja, það er geðveikt. +
103Og hérna, hún +
104var eiginlega bara svona í jafnri hæð við sko +
105við eldgosið og við hérna strókinn sem kom upp úr því. Það var svolítið fallegt og skemmtilegt. Það var ógeðslega, ógeðslega gaman að fara. +
106Það er geðveikt, ég væri mjög mikið til í að ná einhverju þannig. +
107Já. +
108En ókei, hérna, sko hérna er spurt sko: +
109hvert myndir þú fara ef þú gætir farið hvert sem er? +
110Einhvers sta'ar annars staðar en hér þar sem ég er akkúrat núna, ég, +
111sólin er að gera út af við svefninn minn og það er búið að vera þrjátíu gráður og raki í síðustu fimm daga, ég er búinn að sofa að meðaltali fimm tíma um nóttina síðustu fjóra daga. +
112Vá, damn. +
113Og hvað hérna, +
114þú færð væntanlega enga sko, þú færð, færð +
115enga lausn frá því hérna á Íslandi sko. +
116Ekki við ljósinu en hitastigið verður betra. Viðráðanlegra. +
117Út í hött. +
118Já, já er alveg [UNK] það eru alveg þrjátíu gráður hjá þér? Það er frekar mikið sko. +
119Vá, Jesús. +
120Það er maður á deildinni minni sem er frá Rúanda +
121Já +
122og hann er að kvarta yfir því að það sé of heitt hérna. +
123Einmitt. Jesús. +
124Og hvernig er kærastan að takast á við þetta? Er hún alveg líka bara lömuð yfir þessu eða? +
125Hún, hún, hún kvartaði í allan vetur yfir hvað það er kalt og mikill snjór þarna inn og +
126nú þorir hún ekki að láta upp úr sér að það sé of heitt. Þannig að, +
127Eðlilega ekki. Já. +
128hún er líka í Suður-Svíþjóð núna +
129með öðrum vinnufélögum í ferðalagi, þannig að það er +
130aðeins skárra veður hjá henni. +
131Ókei, hvað er hún að gera? Er hún í siglingum eða er hún borgarferð, borgarferð eða eitthvað? +
132Borgarferð +
133og ströndin og +
134ég veit ekki hvað þetta heitir á Íslensku. Glassblowing. +
135Glergerð. +
136Já, já, já, já. +
137Ætli það sé ekki bara glerblástur eða? +
138Já, glerblástur. +
139Já, ókei. Og hvað, þetta er væntanlega ekki, bíddu, Suður-Svíþjóð, þetta er þá ekki, +
140hvorki Gautaborg né Stokkhólmur. +
141Nei, þetta er akkúrat mitt á milli. +
142Skánn. +
143Já, ókei, ókei. +
144En bíddu, er strönd þar? +
145Er þetta við ströndina bara syðst eða? +
146Já. +
147Nei, ég lýg, ókei, þetta er fyrir vestan. Þetta er rétt hjá Kalmar. +
148Já, já, já. +
149Þetta er sunnar heldur en Stokkhólmur, töluvert. Já. +
150Bíddu ókei, þannig þú ert actually að segja að það er staður sem heitir Kalmar? +
151Getur það virkilega verið staðurinn sem Kalmarsbandalagið eða sambandið var kennt við? +
152Ég held að það sé bara nákvæmlega sá staður. Fallbyssu. +
153Vá! +
154Bíddu, nú, nú man ég ekki. +
155[HIK: mi] mig minnir sko að við höfum lært það í sögunni í emm err að Eystrasaltið hafi verið sko +
156lokað af Dönum og Svíum með sko, hérna, +
157kanónum hvað heitir aftur, hvað er cannon á íslensku? +
158Fallbyssum. Lærðir þú þetta í emm err? +
159Ég man að við lærðum um Kalmarbandalagið, það var fyrsta sameining Svíþjóðar, Noregs og Danmerkur. +
160Já. +
161Einmitt, einmitt. +
162Og það hrundi svo í sundur, held ég, eftir fyrsta kónginn. Þetta er rétt svo það sem ég man. +
163Já, já, já, já. Já. +
164Djöfull, djöfull kann ég enga sögu sko. +
165Já, ókei. +
166En ég ætlaði líka að segja þér að ástæðan fyrir því að ég er að stressa mig núna. +
167Já, ég, ég ætlaði reyndar að spyrja þig +
168líka. Hvað? Hvað er í gangi? +
169Heyrðu, ég átti bókað í dag klukkan sex í PCR-próf því að þú þarft neikvætt PCR-próf áður en þú kemur til landsins. +
170Já. +
171Einmitt. +
172Það er albókað með þriggja tíma fyrirvara af því að hjúkrunarfræðingurinn sem átti að taka sýnin mætti bara ekki í vinnu eða eitthvað +
173Ókei, áhugavert. +
174og út af því að ég bý í svo miklu krummaskuði, þá er ekki hægt að fá +
175Ókei. +
176neitt próf hérna sem gefur niðurstöður á innan við þrjátíu og sex tímum. +
177Þú veist, það er það besta sem ég get fengið, niðurstöður á þrjátíu og sex tímum, +
178þannig að ég er að reyna að bóka eitthvað svona snöggpróf á flugvellinum í Stokkhólmi +
179sem kostar tvöfalt meira og ég náði samt ekki að bóka það tveimur tímum fyrir flug af því að það var allt bókað, þannig að +
180ég sendi þeim bara tölvupóst um hvernig staðan er á mér +
181og ef það er ekki hægt ætla að leysa það, þá þarf ég að taka lest á morgun og vera mættur snemma upp á flugvöll til þess að geta tekið þetta próf. +
182Bíddu, hvenær ertu að fljúga hingað? +
183Laugardaginn. +
184What? Ókei, þannig að þú ert alveg á bara síðasta séns að fá þetta? +
185Já. +
186Ókei! Og hvað, er kærastan búin að fara í próf eða? +
187Já, hún tók ferð til Kalmarborgar og lét prófa sig í dag. +
188Ég skil ókei. +
189En ég meina, ertu ekki þá bara að fara að fara á morgun bara eitthvað, þú veist? +
190Og láta taka prófið? Eða? +
191Ég er búinn að hringja á alla staði en þeir, út af því að það er ekki prófað sýnin hér, þau eru send til Stokkhólms og prufuð þar, þannig að þeir segja: við getum komið með svarið eftir þrjátíu og sex klukkustundir +
192Sem er of seint. +
193og ef ég fer, sem er of seint. +
194Ókei, en þú getur ekki beðið á flugvellinum í Reykjavík eða í Keflavík +
195eftir niðurstöðunni? +
196Það, af því sem ég les á heimasíðunni, þá +
197þarf prófið að vera tilbúið fyrir brottför frá Stokkhólmi. +
198What? Ókei, og hvað, ég meina, þú veist, +
199hversu +
200ég [HIK: ski] nú bara er ég að reyna að átta mig á því hversu líklegt það er að þú lendir í alvörunni í veseni. +
201Þannig að þetta, +
202vesenið virðist vera það að ég þurfi að taka lest á morgun í staðinn fyrir að fljúga á laugardaginn til Stokkhólms. +
203Ókei, en þá, en það ætti að redda því? Ókei. +
204Það reddar því, þá get ég tekið próf sem er komið á tveimur tímum og þá er ég með próf sem er gilt. +
205En ertu þá ekki bara að fara að gera það? +
206Þú veist, jú jú, +
207En lest, það er lítið um lestarpláss og það bætir örugglega þrjátíu fjörutíu þúsundkalli á kostnaðinn. +
208Það er frábært! +
209Það er frábært. +
210Ókei, en ég meina, þú ert +
211í öllum, í öllum tilfellum ertu samt sem áður að fara að komast til Íslands að því gefnu að þú sért með neikvætt pé sé próf. Ókei. +
212Já. +
213Ókei, ég meina +
214það er bara ákveðinn skellur! +
215Já, svona gerist. +
216En, en, en hvað, ertu búinn að pakka öllu niður eða? +
217Ég er að pakka núna, ég held ég sé svona +
218meira en hálfnaður. Já, einmitt. +
219Ókei, já, já, ég myndi nú ekkert, þetta, þetta reddast allt fyrir rest sko. Það versta er bara að þú ert að missa smá +
220pening þarna ef þú þarft að fara. +
221En þú verður fljótur að vinna það upp, þú ert náttúrulega svo, +
222þú ert alveg þjóðþekktur fyrir það hvað þú +
223ert sparsamur sko, þannig að ég hef engar áhyggjur af þér. +
224Já já, hefur skánað núna en mætti vera betra. +
225Já, en ókei. Hérna og ég meina þú og þú segir bara þegar að þú hefur alls ekkert meiri tíma en, en hérna, hérna er spurt sko, trúir þú á álfa, trölla eða drauga? [UNK]. +
226Nei, það trúi ég ekki á. +
227Ókei, en þú veist. Hefurðu þú veist, hvað finnst þér um þessar sögur? +
228Ég meina hvað, hver er skilningurinn þinn á þessum sögum? Þú veist, hvaðan koma þessar sögur? +
229Einmitt. +
230Ég hugsa að fólk finni útskýringar á einhverjum fyrirbrigðum sem er ekki augljóst hvað er. Einhver furðuleg hljóð úti í móa eða furðulegt steinhrap eða eitthvað svona +
231og út frá þessu spinnst einhverjar sögur. Ég get jafnvel ímyndað mér að þetta væru krakkar að stríða öðrum krökkum eða koma með einhverjar svona sögur +
232því að það virðist vera mjög létt fyrir bara litlar sögur eða litla orðróma að spinna upp á sig hrikalega mikið, sérstaklega í samfélögum fyrir, þú veist, mörg hundruð árum. +
233Einmitt, já. +
234Sko ég nefnilega, þú ert náttúrulega vísindamaður. +
235Já, +
236En hérna. +
237Það sem ég ætlaði að segja en ekki þegja sko, tengdapabbi minn var að segja mér um daginn +
238að það var einhver prestur +
239á sautjándu öld eða eitthvað, nú man ég ekki +
240já hvort hann hafi ekki, hvort hann hét ekki Ambrose. +
241Og hann, hann var bara þjóðþekktur +
242fyrir það að geta sko +
243lesið í hljóði. +
244Hvað þýðir það? +
245Skilur þú? [UNK] +
246Bara að [HIK: le], þú veist að lesa texta +
247en ekki upphátt heldur í hljóði. +
248Skilurðu, það þótti bara stórkostlega merkilegt og við vorum einmitt að tala um þú veist, við vorum að tala um svona, hvernig fólk var og, og hugsaði þú veist fyrir, þú veist bara í, þarna í kringum tímann þar sem að +
249fjöldaprentun �� rituðu máli fer að, að detta í gang. +
250Fyrir tíma svona nútímavísinda og þar fram eftir götum. +
251Vegna þess, eins þú og segir sko, þessar skýringar, +
252þær eru ekkert endilega augljósar en þær virka kannski miklu augljósari ef að, þú veist +
253ef þú lærir frá mjög ungum aldri rosalega margt um vísindi og, og, og, og um þú veist +
254heiminn út frá einhverju líffræðilegu eða eðlisfræðilegu eða stjarnfræðilegu sjónarmiði. +
255[UNK] hvernig útskýrir þú þá helming hlutanna sem er að gerast þarna, skilurðu? +
256Já, með þá, +
257þú veist, þá er heimurinn það flókinn og þetta er bara galdrar +
258hvort eð er. +
259Basically sko. +
260En, en mér fannst það líka svolítið áhugavert sko að þú veist, að hérna +
261meira að segja, meira að segja bara svona +
262einfaldur hlutur eins og að lesa, +
263að fyrir kannski ekkert svo löngu að þá hafði fólk til dæmis bara allt öðruvísi hugmynd um, um lestur heldur en til dæmis það hefur í dag. Og já þú veist og +
264í rauninni sko ástæðan fyrir því að hann, hann minntist á þennan prest var sú sko að, að, að hann +
265las einhvers staðar að, að, sko +
266á árum áður þegar að fólk kannski hafði aðeins meira fyrir lífinu og tilverunni, +
267að þá var sko rými til þess að hugsa +
268og bara þú veist að hugsa innra með sér +
269og pæla í hlutunum, pæla í framtíðinni og pæla þú veist í eðli heimsins og annað slíkt +
270var bara ekki jafn algengt og í dag. Þú veist, auðvitað er ekkert hægt að sanna þetta. Þetta eru svona getgátur, skilurðu. +
271En eins og, eins og þetta fyrirbæri þú veist, að hann hafi getað lesið án þess að lesa upphátt. +
272Að það var einhvern veginn óskiljanlegt því þá var spurningin sko þú veist hvernig heyrði hann +
273textann? +
274Skilurðu? Hvernig skynjaði hann textann? Og þá voru margir sem sögðu bara: ja, +
275þú veist, það er bara Guð sem er að þú veist +
276varpa textanum í hausinn á, í hausinn á honum sko í rauninni. +
277Huga hans. Og fólk kenndi svona þú veist að +
278það sem ég hugsa í dag við myndum kalla eitthvað svona óhlutbundna hugsun. +
279Það, fólk kenndi það bara við sko einhver, einhver, einhverja, einhverja sko, uppljómun Guðs, skilurðu? +
280Já, +
281Ég veit það ekki, mér finnst það, mér finnst það, mér finnst það sérstakt. +
282Ég veit ekki af hverju ég fór að spá í þessu í kringum álfa og tröll, en hvað um það. +
283Já, já. +
284Það, svipuðum nótum, mér finnst einmitt líka, sem er kannski á svipuðum nótum en kannski aðeins öðruvísi, +
285Já. +
286Einmitt. +
287ef þú ert með einhvers konar geðveiki og einhverjar svona ofskynjanir eða ranghugmyndir, þá eru margir sem tengja það mjög mikið við guð eða engla að segja að ef hann gerir eitthvað, +
288Já, +
289sem ég hef heyrt, að sko, +
290algjörlega. +
291Einmitt. +
292nú til dags er fólk gjarnan með einhverjar hugmyndir um að lögreglan eða erlend leyniþjónusta sé að njósna um þau. +
293Þetta er eitthvað svona vald sem er að valda þessum tilfinningum eða þessum hugsunum hjá þér og áður en við gátum sett það á erlends ríkisöfl eða eitthvað þannig, þá var það eiginlega bara guð sem var svona yfirnáttúrulegt og gat valdið öllu svona. +
294Já. +
295Einmitt, það er áhugavert, en mér finnst líka áhugaverur punktur eins og þú veist maður hefur heyrt um þetta þú veist +
296þegar einstaklingar verða virkilega manískir +
297eða þegar þú ert með einhvern einstakling sem hefur [HIK: scschizo] þjáist af schizophreniu eða eitthvað svoleiðis sko. +
298Að hérna, þá fá þeir einmitt bara einhverja svona, svona messíasarkomplexa. +
299Eða eins og þú segir að þú veist það eru einhverjir djöflar eða englar að tala við þau. En svo veit maður aldrei sko, hvort að, hvort að þetta sé sko +
300verði fyrir einhverjum áhrifum þú veist af umhverfinu. Þú veist, þú, við, þú veist. +
301Fólk hefur einhvers konar hugmynd um fyrirbærið englar og djöflar og svona messías og Jesú Kristur og allt þetta dót sko. +
302Og maður veit ekki hversu mikið af þeim hugmyndum er bara varpað inn á þessa geðsjúkdóma sko. +
303Ég las eða ég var að horfa á myndband þar sem geðlæknir var að fjalla um þetta og var að koma með hugmyndir um hvað hvað veldur svona svona hugsunarbrestum. Eða svona +
304hver mekanísminn er á bak við þetta, +
305og hann benti á, með þessa kenningu, að +
306þú veist, þú hefur kannski upplifað það að finnast einhver vera að fylgjast með þér +
307eða svona, er svona yfirnáttúruleg tilfinning, það er eitthvað er að fylgjast með mér, það er eitthvað +
308bara yfir mér basically +
309og þessi tilfinning verður sterkari og sterkari og þú byrjar kannski að leita og sérð, já heyrðu, +
310myndavélin á tölvunni minni er opin, set lím fyrir hana, +
311og það slaknar aðeins á tilfinningunni. En svo kemur hún aftur kannski næsta dag, er ennþá einhver að fylgjast með mér? +
312Og ef tilfinningin er svona sterk, +
313þá, +
314ef þú ert þannig settur, þá trúirðu tilfinningunni frekar en að þú hafir rangt fyrir þér og flækir og flækir stigið um að það geti eitthvað verið að fylgjast með þér, byrjar á að loka gluggunum af því að einhver er kannski að kíkja inn um gluggana. +
315Tilfinningin fer ekki burt, það er ennþá verið að fylgjast með þér. +
316Þannig að þú býrð til ýktari og ýktari útskýringar +
317Ókei. +
318af því að þú ert svo viss um bara þessa tilfinningu. +
319Þess vegna færðu fólk sem er svona að, það er verið að njósna um þá, fara í gegnum dótið þeirra, finnur öll merki sem staðfesta þessa tilfinningu sem er +
320í upphafi. +
321Ég velti því fyrir mér hvort að, og nú er ég náttúrulega bara algjör svona sófasálfræðingur sko. +
322Já, ég líka. +
323En, en þú veist, en maður veltir fyrir sér hvort þetta sé, +
324nú vil ég vil ég ekki nota enska orðið. En, en það er eins og þetta sé svona ákveðinn svona skortur á því að geta samið við raunveruleikann um það hvað sé raunverulega satt og ekki. +
325Þú veist, þú veist af því. +
326Ég meina, það sem hlýtur að vera óeðlilegt þarna er ekki bara tilfinningin heldur það að maður þráist við það að upphefja tilfinninguna sem einhvern svona ófrávíkjanlegan sannleik. +
327Já, +
328Af því, af því ég fæ fullt af ranghugmyndum +
329bara þú veist, á hverjum degi. Maður kannski fer í eitthvað matarboð með ókunnugu fólki. Og maður er eitthvað +
330Guð ég sagði eitthvað rosa dónalegt eða ég kannski var ekki nógu brosandi og maður fer að halda að fólk kannski hafi einhverja hugmynd um mann. +
331En svo þú veist ef að maður fær einhver sönnunargögn um það actually mín upplifun af þessu matarboði var bara algerlega á skjön við það [HIK: se], sem +
332fólki fannst eða sem var í raun og veru í gangi. +
333Að þá verður maður að vera tilbúinn svona að, að sætta sig við það að raunveruleikinn er ekki hvernig maður hélt að hann væri. +
334Eða þú veist, eins og ef maður fer í atvinnuviðtal þá heldur maður að maður sé kannski sjúklega fær en svo actually kemst maður bara að því +
335að maður, maður er bara glataður og hefur engan veginn hæfileikann til þess að sinna starfinu +
336og þá þarf maður einhvern veginn að sætta sig við það. +
337Já. +
338Já. +
339Einmitt. +
340Einmitt. Já, já en þú veist. +
341Já, það fer eitthvað úrskeiðis að brjóta niður tilfinninguna þegar raunveruleikinn er að reyna að sýna þér gögn á móti tilfinningunni og þetta þarf ekki bara að vera geðsjúkdómur, þú getur ímyndað þér fólk með átröskun eða, þú veist, fólk sem notar stera og finnst það ekki vera orðið nógu stórt +
342eða fólk sem á enga vini og upplifir að allir séu að gera grín að þeim og gera lítið úr þeim bak við þá. +
343Þetta er einhver svona innbyggður mekanismi sem fer úrskeiðis. +
344Og [UNK] og eflaust eru bara, eru til skýringar á þessu líka sko út frá þróunarfræðilegu sjónarmiði. +
345Já, +
346En þú veist þetta hlýtur að vera +
347einhvers konar svona skammhlaup þú veist því, því það að gera þetta +
348er, er örugglega einhver aðlögun í einhverjum tilfellum sko. +
349já, ég trúi því. +
350Þannig að þú veist, þetta er ekki. Þetta er ekki hegðun. Ja, þetta er ekki hegðun sem er í sjálfu sér slæm. En, en hún svona, hún fer með suma út í gönur sko, sumir +
351taka hana allt of langt sko. +
352já, +
353[UNK] bara borða ógeðslega mikið af mat. Þar [HIK: ti], þar til þú +
354verður offeitur skilurðu? +
355Það er klárlega aðlögun að vilja fá meiri kalóríur en það getur farið algjörlega úrskeiðis ef þú ert algerlega hömlulaus í því. +
356[UNK] +
357Einmitt. +
358Líka bara, það er +
359kerfi í okkur sem sækir í dópamín og hefur örugglega mótast mjög vel þegar við vorum bara einhverjir veiðimenn á steinöld. +
360Og núna erum við með allt sem við getum viljað við, þú veist, tölvuna okkar. +
361Þannig að það er mjög auðvelt að koma þessu kerfi úr skorðum, gjörsamlega. +
362Já. +
363Hundrað prósent en fyndið sko, sjúkraþjálfarinn minn sagði mér um daginn þú veist +
364ókei, eðlilega eins og í dag við erum öll að sitja ógeðslega mikið og þess vegna er ótrúlega algengt að menn eru að fá bakverki og verki í mjaðmirnar og annað slíkt sko. +
365En það er enginn að segja mér, segir hann, að þessir frumbyggjar hafi ekki líka stundum verið að fá í bakið. +
366Já, +
367Skilurðu þú veist, það hefur alveg líka verið thing sko. +
368Því náttúrulega í þessu eins og öllu öðru +
369við, við manninn og lífið og tilveruna er að þróun er náttúrulega ekki sko, þróun sem ferli +
370er ekki sko að hámarka, hún er ekki að hámarka aðlögun eða þú veist hún er ekki að fullkomna líkamsgerð okkar. Hún, hún er að, hún er að +
371hámarka sko, +
372hérna, +
373færni manns til þess að afrita genin sín sko. +
374já, +
375Sem er [UNK], sem er ekkert það sama og að hámarka lífsgæði eða hámarka líkamslega eiginleika eða gera okkur fullkomin sko. Það er bara allt annað ferli sko. +
376Engan veginn, það eru ótrúlega mörg dýr sem sko +
377búa til einhver þúsund egg sem kannski hundrað lifa af. Það er bara kerfi sem virkar fyrir þessi dýr. +
378Einmitt. Já, og hámarka líkurnar á að koma genunum sínum til næstu kynslóðar. +
379Já. +
380Já, þetta er áhugavert. Þú ert ógeðslega mikill vísindamaður. +
381Já, +
382Þú ert rosa mikill [HIK: grú] þú grúskar rosalega mikið í þessu. Það er alltaf gaman að spjalla við þig um svona hluti sko. +
383já, ég er sammála, mér finnst það +
384gaman líka þegar ég hitti á þig með svona, þú hefur, +
385þú hefur gaman af þessu líka og það er gaman að varpa þessum hugmyndum við þig. +
386Algjörlega. +
387Algjörlega. +
388Nei, þetta er líka bara, ég veit ekki, ég hef rosa, ég hef rosa gaman af, sérstaklega sko þú veist ég hef gaman af öllum þessum, þessum umræðuefnum þú veist. Þróun, sálfræði, öllu þessu sko. +
389En eins og við vorum að ræða áðan um geðsjúkdóma sko með sálfræðina áður en við klárum þetta samtal. +
390Að sko sálfræðin sem vísindagrein, +
391hún er líka rosa mikill sko ólíkt sko, ólíkt kannski svona eðlisfræði og þeim vísindum. Þetta á kannski aðallega við um eðlisfræði. +
392En þá í grunninn er sálfræði sko þjónn mannsins. +
393Markmið sálfræðinnar og skilgreining geðsjúkdóma er +
394út frá einhvers konar svona hugmyndum um lífsgæði og hvað er sannarlega gott fyrir mann. Þú veist af því +
395öll þessi viðbrögð eru alveg eðlileg en ef þau leiða þig út í gönur +
396þá er það, þá er það geðsjúkdómur og gönurnar er bara, þú veist, það miðast út frá velferð manna sko. +
397Já, +
398mér finnst það líka bara bundið svo við kerfið sem er við lýði á hverri stund. Ég ætla að segja fyrir hundrað, hundrað og fimmtíu árum, +
399Algjörlega. +
400þá var kona sem vildi kjósa bara flokkuð sem geðveik +
401bara af því að þú ert ekki að gera það sem konur eiga að gera, +
402eignast börn og vera heima. Þetta er mjög, +
403Algjörlega, algjörlega. +
404enska orðið er adaptive, ég veit ekki hvernig maður íslenskar það. +
405Bara þú veist, aðlagandi eða? En. +
406Já, +
407og við getum hugsað okkur bara eins og ef það eru til sálfræðingar í Mið-Austurlöndum, hvernig þeir +
408Já. +
409takast á við, ég veit ekki, þunglyndi eða kvíðaröskun eða eitthvað svona, +
410Eða samkynhneigð eða whatever. Einmitt. +
411eða samkynhneigð, +
412Nei, nei og þú veist og líka bókstaflega sko a pé a samtökin hérna +
413sálfræði, amerísku sálfræðisamtökin. +
414Þau bókstaflega skilgreina geðsjúkdóma. +
415já, +
416Og bara þú veist taka suma þú veist eins og það að vera transmaður eða kona +
417bara fyrir ekkert svo löngu var skilgreint sem geðsjúkdómur +
418og er það ekki lengur, bara samkvæmt skilgreiningu sko. +
419Þannig að þetta er mjög, þetta er mjög svona +
420skilgreiningin á geðsjúkdómum er kvik upp að einhverju marki sko. +
421Ég var í góðum áfanga á síðustu önn, síðustu haustönn, +
422sem hét philosophy of science, heimspeki vísinda, +
423og þar var verið að fjalla um hvað eru vísindin nákvæmlega +
424því að það er mjög sterk hugmyndafræði, +
425hvað skyldi til vísinda og hvað sterk vísindi eru. Þetta hefur fengið mig mjög mikið til að hugsa um, af því að það er gjarnan til þessi kvarði þar sem eðlisfræði er á lengsta endanum og svo efnafræði og líffræði og eitthvað svona +
426og svo mýkri vísindi sem eru þá kannski sálfræði og svona. +
427Einmitt. [UNK] líffræði líka að einhverju marki eða sumar undirgreinar líffræðinnar. +
428Já, akkúrat, og tólin sem er að vinna með þar, þau bara geta ekki verið jafn nákvæm af því að þú ert gjarnan að taka einhver hópúrtök og eitthvað. Já. +
429Já, líka bara þú veist eins og þú veist +
430segðu mér hvernig einhver lífvera mun þróast. +
431[UNK] það er ekki einu sinni hlutverk líffræðinnar skilurðu. +
432En hvernig stjörnur þróast er mjög mikilvægt að vita og er eiginlega undirstöðuatriði í eðlisfræði eða skilurðu, stjarneðlisfræði. +
433Og ég hef verið að detta svolítið inn á þetta með hagfræði, +
434og ég hef verið að hringja í menn og spjalla við þá aðeins um þetta, af því að +
435Já. +
436ég er að fá svona tilfinningu, því meira og meira sem ég les hvað hagfræði er mikilvæg, hvað einhvern veginn allt, allur heimurinn byggir á hvernig hagfræðin gengur, eða bara hvernig ríkisafkoma ríkja er, +
437Já. +
438og ég er að skoða, svona, +
439ástæður fyrir því að það virðast vera deilur í hagfræði er, ég veit ekki hvort ég eigi að kalla það, mismunandi vísindaleg nálgun á hagfræði, á hagfræðilegt kerfi? +
440Algjörlega. Nei algjörlega. +
441Og að einhverju leyti sko líka bara mismunandi heimspeki sem er til grundvallar sko. +
442Já, +
443og bara að kerfið bregst við, hvernig það er verið að vinna á það. Ef ríkið gerir einhverja aðgerð sem á kannski að minnka vexti eða eitthvað, nú er ég að bulla bara eitthvað, +
444þá verður fólk ótrúlega hrætt um sparnaðinn sinn og gerir eitthvað þannig að það verða öfug áhrif, +
445bara út af því það veit hvað er að gerast. +
446Algjörlega. +
447Já, já og þú veist og þú ert alltaf með þessi sko, +
448þú veist, þú ert alltaf með þessi víxláhrif eða víxláhrif? +
449Þú veist, þetta er svipað eins og þú veist ef þú ferð í einhvern dal og fjarlægir alla úlfana. Að þú veist +
450þá mun, þá mun hérna, +
451þá mun fjölgun í einhverjum, í einhverjum +
452nagdýrum aukast og það mun valda mjög miklum gróðurskemmdum og það mun raska vistkerfinu og þú veist og þá, þú veist +
453rebalance-ast það einhvern veginn. Þú veist, þú ert alltaf með einhver svona +
454action og reaction sko. Þú veist að. +
455En fyndna með eins og vexti og svona er að sko vextir og verðbólga eru svona tvö fyrirbæri sem bara þar sem væntingar eru ráðandi þátturinn eiginlega sko +
456frekar en eitthvað annað. +
457En hérna +
458en við getum rætt hagfræðina kannski frekar þegar þú ert kominn heim. Ég hugsa að við séum bókstaflega bara að renna út á tíma. +
459Já, ég sé það. +
460Við alveg tókum bara góðan hálftíma þannig bara þú ert að hjálpa mér sjúklega mikið. +
461já, +
462Ég, ég heyri í þér hinum megin ég kannski bjalla í þig rétt stutt og leyfi þér svo halda áfram að pakka niður. Thank you sir. +
463Jess. Já, takk fyrir. +
+
+ + +
Go back
+ + + + + +