14 - 389f0bb5-ac42-401b-b23a-d1d9759d0291

Go back

1 Jæja, ókei
2 það er mjög margt
3 sem er bara svona
4 lög um, en sem er líka bara
5 svona viðurkennt, sem, sem er samt hægt að, að tala rosalega mikið um svona í sambandi við siðfræðileg
6 sjónarhorn og þannig, til dæmis
7 Ókei.
8 ófrjósemisaðgerðir.
9 Ókei eða já, já bara
10 Nei, ég er að djóka. Ég meina, þetta er áhugavert.
11 það virkar, I guess
12 Umræðuefni og það var þess vegna sem ég var að [HL: úlala] ekki út af.
13 ó já, bíddu bara, hér kemur.
14 Ekki yfir hugmyndinni um [HIK: ófrjóm], ófrjósemisaðgerðir [UNK]
15 Nei, nei, nei, nei, nei, nei, nei, nei.
16 nei, nei, nei, nei, ókei.
17 Ég er ekki alveg það slæm.
18 Það er nú kannski smá þú veist, [HL: úllala] við það, ég veit ekki, ég veit ekki.
19 Ókei, þannig að mér skilst að lögin eru þannig að til þess að fá að, að fara í það þá þarf maður að vera orðinn tuttugu og fimm ára.
20 Allavegana.
21 [HL: Ó], bíddu, er þetta til að gera konur ófrjósamar, og karla?
22 Já, því það er bara til þess
23 þú veist, ég. Já,
24 já, ég er, já,
25 sko, mér skilst að það sé, hvað segir maður, afturgengt, eða er hægt að, hjá körlum en ekki hjá konum.
26 Hjá körlum. Já.
27 Nei, nei, nei, af því þú þarft að taka eggjastokkana, eða ekki taka þá, en þú veist.
28 Eða [UNK]. Ég veit ekkert hvernig þetta virkar, en það allavegana bara.
29 Ég veit ekki. Ég held þú getir annaðhvort fengið þú veist hysterectomy eða
30 hitt dæmið sem ég man ekki hvað er, en það er allavegana, eða tubes tied, hvað er það?
31 Já,
32 Ókei, núna er ég búin að segja tvisvar sinnum hluti á ensku.
33 Já, já. Allt í góðu.
34 allavegana
35 þannig að, ókei, ef kona myndi fara til læknis
36 og hérna,
37 já, nota bene, þetta var siðfræðisdæmi sem ég var að, leysa.
38 En hérna,
39 myndi fara til læknis,
40 og vill ekki fá börn í framtíðinni,
41 bara búin að ákveða það.
42 Og vill bara eiga [HIK: á], áhyggjulaust þú veist, líf.
43 Ekki þurfa að hafa áhyggjur af því að verða ólétt, og vill fá
44 [HIK: ófrjós], ófrjósemisaðgerð.
45 Já,
46 finnst þér að læknar ættu að geta neitað henni um það?
47 Það er þú veist, mér finnst þetta vera dálítið sko, af því ég veit, ég horfði á einhverja heimildarmynd og eitthvað þannig, þar sem í Bandaríkjunum að það væri ótrúlega erfitt fyrir konur að fá þessa aðgerð, sem er náttúrlega bara út af því að samfélagið
48 Út af allir eru bara eitthvað, „en þetta er heilagt réttindi“.
49 „En þetta er bara, þetta er ástæðan, af hverju þú átt líkama. Konur eiga að eignast börn, [HL: bla bla].“
50 „Þú ert verksmiðja.“
51 Já, einmitt.
52 Og þú veist, ég er svona smá, þú veist, ósammála því, þú veist, af því að konur eiga að geta gert það sem þær vilja við líkama sinn og bara út frá því sem þær telja rétt eins og allir aðrir, skilurðu.
53 Það skiptir ekki máli hvaða kyn þú ert, þetta er, þú veist,
54 þinn líkami og mér finnst ekki að siðfræðislegt álit mitt eigi að hafa, þú veist, áhrif á lög um hvað þú getur gert við líkamann þinn.
55 Ef, ef það meikar sens, ég veit það ekki, þetta er svona.
56 Ég skil, já, já, en það eru svo margir sem sjá þetta.
57 En,
58 en á sama tíma, já, en á sama tíma er ég sammála að það þurfi að vera, þú veist, ákveðnir svona,
59 ákveðin tékk, bara til að gá þú veist, að þetta sé, þú veist, konan sem vilji gera það, að það sé enginn að
60 [UNK]
61 neyða hana í þetta eða þú veist að pressa hana í þetta og að, þú veist, hún,
62 þetta sé allt þú veist, hennar ákvörðun eins og með allar aðrar víst læknisfræðilegar aðgerðir sem breyta líffræðinni þinni.
63 Þú veist hvað ég á við. Og mér finnst þetta ekkert vera eitthvað sérstakt
64 fyrir, þú veist, þetta. Eða, þú veist, maður gerir þetta líka þegar maður, og þetta er náttúrlega ekki sami hluturinn. Ég ekki að segja að þetta sé sami hluturinn. En maður gerir þetta líka. Þegar maður er að fara þú veist, í
65 lýtaaðgerðir, þá finnst mér að fólk ætti að tékka, þú veist, hvort að það sé ekki,
66 Já, hvort að það sé einstaklingurinn sjálfur sem.
67 þú veist, ákvörðun einstaklingsins og ég veit að þetta er náttúrulega ekki sami hluturinn af því þetta er bara munur á, þú veist, útliti og, þú veist, hvernig lífi þú vilt lifa, eða þú veist.
68 Já, þetta er, þetta er kannski sama svona mengi, eða þú veist, þetta er svona,
69 þetta er í sama þýði en ekki sama
70 Já, já, já, ég skil.
71 úrtaki einhvern veginn.
72 Já, en mér finnst þetta bara mjög fáránlegt að fólk, eða þú veist, að þetta séu svona ótrúlega einhvern veginn
73 Já.
74 litið niður á þetta frá samfélagslegu,
75 þú veist, sjónarmiði.
76 Já, mér finnst þetta, þetta er svolítið svona gamaldags hugmynd um að,
77 að þetta sé svona
78 heilagt að allar konur þú veist,
79 þurfa að, að geta myndað líf. Eða þú veist að það sé einhvern veginn ekki bara þeirra ákvörðun heldur þarf hún að gera,
80 eða þú veist samfélagið einhvern veginn líka, tapa eitt,
81 Já, einmitt.
82 eina manneskju til að búa til líf. En svo.
83 Og líka bara einhvern veginn að eina leiðin fyrir konur til að fá virði í samfélaginu er að verða mæður. Þú veist, og ég er væntanlega ekki að segja, þú veist, mér finnst Ísland vera alveg frekar gott með. Eða þú veist, ég veit ekki um reglurnar. En þú veist, þetta er náttúrlega í svona meira róttækum löndum þar sem
84 er ótrúlega mikið af þessu, þú veist, eins og í Bandaríkjunum til dæmis.
85 Þá finnst mér þetta alveg þú veist, eða ég verð frekar pirruð á því.
86 Það er líka bara. En mér finnst engin ástæða, ég skil það alveg, þurfa að vera lög um þetta til þess að passa að fólk hérna, sé orðið nógu þroskað til að taka svona ákvörðun og, og líka bara upp á hérna,
87 upp á hætturnar sem fylgja þú veist, bara öllum aðgerðum náttúrulega, að
88 þetta sé ekki bara einhver krakki sem getur farið í aðgerð sem,
89 bara út af því. Þú veist, það þarf náttúrulega, geta verið hættur sem fylgja aðgerðum. En, en ef einhver, eða mér finnnst ekki að einhver annar gæti verið að
90 hérna, halda að þau viti meira um hvað persónan ætli að gera í framtíðinni eða hvað konan þú veist, vill.
91 Þú veist ef einhver kona er að segja þú veist, „ég mun, ég vill ekki börn í framtíðinni og ég er bara búin að ákveða þetta og
92 þetta bara, svona vill ég hafa lífið mitt“. Þá getur enginn sagt, bara
93 „en hvað ef þú skiptir um skoðun?
94 Þá er náttúrlega.
95 Börn eru yndisleg.“
96 Já, en þá er náttúrlega fólk bara að hugsa út frá sjálfu sér. Þú veist eins og ég ætti mjög erfitt með að taka þessa ákvörðun, jafnvel ef ég vildi ekki börn, þá væri ég bara svona en hvað ef skilurðu.
97 Þú veist, þannig að ég held að ég myndi persónulega aldrei
98 fara í þessa aðgerð, skilurðu. Þess vegna get ég [HIK: al], þú veist, þá myndi ég kannski vera bara við annað fólk svona ókei, en hvað ef, ertu viss um að þú viljir gera þetta? [HL: bla, bla, bla].
99 En þú veist, ég myndi samt aldrei,
100 þú veist, búast við því að þessi aðili muni einhvern veginn
101 breyta sinni lífssýn eða, þú veist, hvað hún vilji gera bara af því að ég er með öðruvísi viðhorf einhvern veginn.
102 Þú veist, af því að viðhorf mitt,
103 það kemur bara mér við. Eða þú veist, og hennar kemur líka bara henni við.
104 Og það er náttúrlega bara frábært að vera með mismunandi, þú veist, aðila á mismunandi
105 líf og svona,
106 svo að þetta sé ekki allt rosa einsleitt.
107 Já, algjörlega.
108 Svo er líka bara, þetta er ekkert eins endanlegt og fólk fær þetta hljóma. Út af því að
109 Nei, guð, þú getur ættleitt og.
110 ef það er fullt fullt af krökkum í heiminum sem
111 Já.
112 þú veist, vantar foreldra og, og það er líka tæknin er komin það langt að það er,
113 [UNK].
114 hvað heitir, [HIK: stuðgeng], eða svona surrogate, það eru mjög margir sem
115 Einmitt.
116 eignast börn þannig, sem já.
117 Og það er líka bara allt í lagi að vilja ekki eignast börn.
118 Bara, þú veist, flott fyrir þig.
119 En hverju svaraðir þú í prófinu?
120 Eitthvað svona sko, það er náttúrulega tímapressa, en,
121 og, [UNK] maður er að reyna að færa rök náttúrlega fyrir báðum hliðum,
122 en ég var bara svona já hvað, læknir getur ekki verið
123 að halda að hann viti meira hvað þú veist býr innra með konunni, eða þú veist hvað hún vill gera í framtíðinni og eitthvað.
124 Og það er líka ákveðin vanvirðing að vera
125 að, að tala um þetta eins og, eins og hann þekki betur.
126 Eða þú veist ef maður er eitthvað „[HL: aaa] ég held að
127 þú viljir þetta ekki í rauninni, eða þú veist þú myndir örugglega
128 þú veist, vaxa úr, eða þú veist þroskast og, og, og skipta um skoðun.“ eitthvað, þú veist það er smá svona, já.
129 En hvernig komstu, komstu ekki með einhverjar svona siðfræðislega, siðfræðislegt sjónarmið?
130 Komstu bara með, þú veist, autonomy?
131 Já, ég man ekki.
132 Autonomy.
133 Já, eða þú veist, hver á rétt,
134 Hvað er það á íslensku?
135 þetta er bara, rétt á því að stjórna sjálfum sér.
136 Já, já sjálfsákvörðunarrétturinn. En líka hérna.
137 Það er bara sjálfsákvörðunarrétturinn. Ég veit ekki.
138 Þetta er náttúrulega eitt það stærsta í siðfræðinni, er autonomy.
139 Já. Það náttúrulega trompar mjög mikið.
140 Ég man ekki alveg hvað,
141 hvað ég skrifaði þetta áður, frekar mikið, lög.
142 Já, mig langaði mjög mikið að, að fá þína skoðun á þessu.
143 Já.
144 Æi, ég verð bara mjög pirruð á þessu, þú veist, af því að líka,
145 þetta er svo mikið
146 æi, þú veist, af því að við erum alveg komin frekar [HIK: la], langt með, þú veist, kvenréttindi. Þú veist, og margir væru ósammála, þú veist, þessu af því að það er svo langt, þú veist, mikið eftir en það er komið alveg brjálæðislega langt miðað við sagnfræðina, einhvern veginn.
147 Maður myndi halda einhvern veginn að þetta væri hlutur af því að þetta er eitthvað svo augljóst brot á réttindum kvenna. Þú veist hvað ég á við.
148 Af því að þetta er bara, þetta er,
149 þetta er bara svo fávitalegt að
150 fólk, og þetta eru náttúrulega ekki bara karlmenn. Þú veist, það er helling af konum líka sem eru með, þú veist, og jafnvel meira konur sem eru að pressa aðrar konur til að, þú veist, verða mæður,
151 einhvern veginn. Og halda að þetta sé það eina sem þú getur gert við lífið þitt. En það er bara,
152 þú veist, mér finnst að við ættum að vera komin á þann stað í samfélaginu þar sem kona má bara gera,
153 þú veist, það sem hún vill. Ef hún vill vera húsmóðir þá bara fínt fyrir hana, skilurðu. Ef hún vill vera læknir, bara flott fyrir hana, skilurðu. Og ef hún vill vera móðir, fínt, ef hún vill það ekki, fínt, bara,
154 þú veist, það kemur bara einhvern veginn,
155 Það skiptir öðrum ekki máli.
156 æi, af því að þú veist, þetta er náttúrulega svo mikið, þú veist með þessa femínistahreyfingu,
157 þá eru komnar svo mikið af reglum einhvern veginn um hvernig þú átt að haga þér sem kona einhvern veginn.
158 Veistu hvað ég á við?
159 Já, það er náttúrulega svona ein hlið á því. Það er náttúrulega
160 ekki kannski svona á heildina.
161 Sjálfa
162 hreyfingin er að losa
163 Já.
164 hérna, fólk við þessar reglur bara, en.
165 [HL: Ó], hundrað prósent en ég er bara að segja, þú veist,
166 það er eins og [UNK] báðar hliðarnar, þú veist, af, af hliðunum á, þú veist, hérna,
167 Já, einmitt.
168 fólki, fólk sem trúir því [HIK: bar], því bara að konur eiga bara að vera heima og sjá um börnin, skilurðu. Þú veist, það er ein hliðin, og síðan er hin hliðin, er bara, þú veist,
169 já, skömm að eignast fjölskyldu og að lífið þitt snúist um fjölskyldu. Það er bara, þá ertu ekki femínisti lengur.
170 En þú veist, af hverju getur fólk ekki bara virt ákvarðanirnar, ákvörðun, þú veist, hverrar konu? Af því að það er bara,
171 það er bara sama hvað, einhvern veginn, [HIK: é], ég verð bara mjög pirruð á þessu, þú veist, af því að
172 ef gildin þín eru fjölskyldan þýðir það ekki að þú sért ekki femínisti.
173 Það þýðir bara að það eru gildin þín.
174 Og mér finnst að það ætti að vera bara hluti af hreyfingunni, bara þú veist,
175 að já, við bara viljum réttinn á því að konur mega bara ákveða hvað þær vilja gera við líf sitt,
176 sama hvað það er.
177 Algerlega jú,
178 og karlar.
179 Halló? Allt í lagi, nei, ég sagði bara já og karlar.
180 Halló? Fyrirgefðu.
181 Og karlar, auðvitað, og karlar.
182 Já.
183 Þetta er skrítið, það er náttúrulega svo [HIK: mik] mikið þróast núna
184 og það sem fær
185 mikla athygli líka er svona öfga,
186 eða það sem fólk kallar, svona öfgafulla.
187 Eða hvað [HIK: k] myndirðu segja svona extremists.
188 Að þú veist,
189 það má ekki, eða þú veist, það er
190 horft niður á fólk sem er bara, vill vera húsmæður og
191 sjá um fjölskylduna og þannig.
192 Sem er
193 ekki það sem málið snýst um, eða ekki hreyfingin í heild sinni.
194 Fyrirgefðu fyrir rantið. Ég bara, [HL: hlátur] ég hef greinilega vera með einhverja svona, uppsafnaða, uppsafnaðan pirring á þessu.
195 Greinilega, ég bara glöð að veita þér útrás.
196 Það er gott, maður hefur gott af því.
197 En hvað var meira spurt um?
198 Svona svipað,
199 fjallar um fóstureyðingar.
200 Ókei, ef, það var dæmi þar sem að
201 persóna eða hjón sem eiga þrjá stráka,
202 og konan er ólétt
203 og hérna,
204 hún fer í sónar og
205 kemur í ljós að það er strákur líka og hún er á tuttugustu viku.
206 Og hún, eða þau vilja hérna, fara í fóstureyðingu út af kyninu. Út af því að, þú veist, þetta er strákur.
207 [HL: Ó], nei.
208 [HL: æi].
209 Og svo bara, já.
210 Discuss.
211 Ég vona ekki, hvaða spurning var?
212 Ég myndi ekki fíla þetta fólk. En.
213 Þannig að, ég myndi [HIK: se], ég, eða þú veist já. Mér fannst þetta bara,
214 þú veist, þetta er, þetta er
215 bara,
216 já, þeirra [HIK: sk], þeirra ákvörðun. [HIK: é] þú veist.
217 Í lokin. Þetta er alveg, þetta er kannski ekkert besta
218 Já, já, algjörlega.
219 þú veist, rökstuðningurinn. Bara já, ókei.
220 Nei, ég veit það.
221 Þetta er strákur. En, en, ef þau eru ekki tilbúin.
222 Ég hélt að væri að fara að koma þú veist, já.
223 Ef þau eru ekki tilbúin í annan strák,
224 Æ, ég var bara þú veist, sko, þú veist. Ég hélt að spurningin væri að fara í áttina, þú veist, að, þú veist, já, jafnvel ef þau eru með, þú veist, heimili og allt þetta fyrir annað barn, eiga þau þá að
225 eiga réttinn á því að neita því að eignast annað, þú veist, og þá væri það væntanlega bara, þú veist, já, þau mega gera, þú veist, hvað sem þau vilja. En þarna er maður alveg bara svona [HL: æi].
226 Veistu hvað ég á við? Af því að þetta er manneskja, þú veist, þetta er ekki kynið sem skilgreinir, skilgreinir barnið einhvern veginn.
227 Og það er bara leiðinlegt, og líka bara fyrir strákana þeirra. Halda að þeir séu bara eitthvað.
228 [UNK].
229 Við erum komin með nóg af ykkur, ekki, við þurfum ekki að [UNK] svona.
230 Fyrirgefðu, ég bara, ég bara svona, [HIK: nú], ég varð bara eitthvað leið við þessari spurningu. Það sem mér finnst siðfræðislega rétt og það sem mér svona, álit mitt er mjög mismunandi,
231 eða þú veist, það er allt annað í þessari spurningu.
232 Já, ég skil.
233 Mér finnst þetta, já.
234 Hvað er í gangi?
235 [HIK: kass], einhver kassi.
236 sem er verið að opna.
237 [HL: hlátur], [HIK: all], allt í lagi. [UNK] tala um, hljóðið? Já, allt í lagi. [HL: hlátur] allt í góðu.
238 Já.
239 En hérna, já. Mér fannst þetta bara að þú veist, ef maður þarf að hugsa um þetta
240 út frá því sjónarhorni
241 eins og þú, þá skil ég að það er örugglega svolítið svona sorglegt.
242 En mér finnst þetta mjög mikið, bara
243 þú veist, hvað getur maður gert í því? Þú veist.
244 Þetta er fjölskylda sem vill ekki eignast þetta barn.
245 Nei, einmitt, og þetta er náttúrulega ekkert þín ákvörðun, þú veist, þetta er þeirra ákvörðun.
246 En ég samt bara.
247 En ég veit ekki. Ég held að ég myndi ekkert, ég myndi samt vera alveg, þú veist, jæja, skilurðu.
248 Já, einmitt, það er alltaf hægt að
249 þú veist, tala við fjölskylduna, sjá hvort það er einhver svona önnur ástæða á bak við ákvörðunina.
250 Já, eða þú veist, ég myndi ekki segja það við þau, fyrirgefðu, þetta hljómar mjög shady. En ég væri bara svona að hugsa það, ég væri bara einmitt ókei en þú veist.
251 Æ, ég veit ekki, mér finnst þetta bara eitthvað svona smá shallow. En,
252 en, þú veist, þetta er bara af því að þau sögðu að þetta væri bara út af kyninu, veistu hvað ég á við?
253 Af því að, þú veist, börnin þín eru meira en kynið þitt, og ég skil alveg að þau vilji stelpu, en.
254 Æ, ég veit ekki, þetta eru bara [HL: ooo].
255 Ég fæ svona [HL: ooo], nei.
256 Ókei, við skulum, skulum skipta um umræðuefni.
257 En, en, þú veist, ég er sammála því að þau eiga að mega gera þetta, af því að siðfræði, en mér líður ekki eins.
258 Ég skil, allt í góðu.
259 Þetta gerist stundum, ég bara svona, það sem mér finnst og það sem.
260 Hérna, já, [UNK].
261 Þetta minnir mig á, einhvern veginn,
262 ég veit að, ég veit að þetta er mjög ótengt, en þetta minnir mig á þegar þú varst að tala um Pet Sematary og ég var bara eitthvað „[HL: ó], þetta, þetta er bara góð bók.“
263 Og þú varst alveg miður þín yfir að litli strákurinn dó og, skiljanlega.
264 Ég held að það sé, þú ert bara mjög empatísk.
265 Já, já, [HL: bla, bla, bla], en þú veist, aftur,
266 Mér finnst [UNK].
267 aftur, þau eiga að mega gera þetta siðfræðilega séð af því að þetta er þeirra ákvörðun. Þetta kemur mér ekkert við úr lagalega séð.
268 En þú veist, þetta er bara svona. Ég er mjög mikið á þeirri skoðun að ég á ekki, þú veist, að þó að mér finnist eitthvað rangt,
269 þá þýðir það að það sé ekki rétt.
270 Nei, bíddu, þá þýðir það að það sé [HIK: ekk],
271 Já, einmitt. [HL: hlátur] Eða bíddu þá.
272 bíddu, þá þýðir það ekki að það sé ekki rétt.
273 Þarna kom það, þarna kom það.
274 En þú veist, þetta er bara, ég er ekki með eitthvað svona siðfræðislegt, svona, trump spil, skilurðu, eða trompspil, af því að, þú veist, það sem mér finnst,
275 eða þú veist, það sem ég myndi gera og [HL: bla, bla, bla],
276 þú veist, þetta er ekki, það þýðir ekki að það sé rétt.
277 Þau hafa heila líka. Heilinn þeirra virka hver. Af hverju? Hver? Um að? Hver ákveður hvor heilinn er betri, þú veist.
278 Nákvæmlega [HL: hlátur] það er bara mjög góður punktur.
279 Góður punktur.
280 Já, já, ókei. Við erum komin í tuttugu og eina mínútu.
281 Já.
282 Eigum við að segja þetta gott?
283 Já, og við náðum við að segja, eða þú veist, við náðum að sleppa nöfnunum.
284 Vel gert, þú varst næstum því búinn að láta þetta sleppa, sko, eða segja þetta.
285 Vel gert [UNK].
286 Það hefur verið gaman. Ókei, ég ætla að slökkva.
287 Bless í bili.
Go back