33 - 997d4fe0-0a55-4b1a-bb36-e4303bc51777
Go back
1 |
Allt í lagi,
▶ |
2 |
hvert fórst þú síðast þegar þú varst að, þegar þú varst að ferðast innanlands?
▶ |
3 |
Hveragerði? Já,
▶ |
4 |
þú varst að taka þátt í íþróttaviðburði, ekki satt?
▶ |
5 |
Hveragerði?
▶ |
6 |
Hvort ég var. Jú, passar.
▶ |
7 |
Hengill, ekki satt?
▶ |
8 |
Hljóp þar fimmtíu og þrjá kílómetra.
▶ |
9 |
Já, það er, það er ógeðslega klikkað.
▶ |
10 |
Já, fimmtíu og þrír kílómetrar er mjög langt.
▶ |
11 |
Já, það er
▶ |
12 |
ég hef aldrei labbað það langt sko.
▶ |
13 |
Ekki ég heldur.
▶ |
14 |
Hérna, já, þetta var steypa.
▶ |
15 |
Mesta svona sem ég hef gert var að hjóla í Grindavík og til baka
▶ |
16 |
frá Keflavík,
▶ |
17 |
á bara hjólið sem ég átti þegar ég var í tíunda bekk.
▶ |
18 |
Það er langt.
▶ |
19 |
Já,
▶ |
20 |
og það líka var alveg mikið meiri vindur en við gerðum ráð fyrir af því að þetta var ég og
▶ |
21 |
og vinur minn sem var alveg jafn vitlaus og ég.
▶ |
22 |
Já.
▶ |
23 |
Við vorum bara með tösku með nesti og that's it sko,
▶ |
24 |
Já, það er, það hljómar eins og svona strákapara vitleysa.
▶ |
25 |
já,
▶ |
26 |
Reyndar átti hann kærustu í Vogum og hafði oft hjólað þangað
▶ |
27 |
þannig að hann var töluvert
▶ |
28 |
vanari þessu en ég.
▶ |
29 |
Já.
▶ |
30 |
En samt þetta var, þetta var algjör þvæla, náttúrlega.
▶ |
31 |
Hvernig heldur þú að heimurinn verði eftir hundrað ár? Já.
▶ |
32 |
Heimurinn verður eftir hundrað ár,
▶ |
33 |
bara heitari, aðallega
▶ |
34 |
eða þú veist ég veit það ekki maður.
▶ |
35 |
Þú ert, þú ert ekki á dómsdagsbuxunum?
▶ |
36 |
Nei,
▶ |
37 |
ekkert en nei,
▶ |
38 |
eða ég vona ekki þú veist
▶ |
39 |
er með svona svona.
▶ |
40 |
En jájá þú veist við, það verður eitthvað
▶ |
41 |
sem þarf að, sem þarf að eiga við
▶ |
42 |
varðandi þessa hluti og
▶ |
43 |
en þú veist ég held að við aðlögumst alveg sko.
▶ |
44 |
En já, það gæti orðið smá strembið þarna í tíma.
▶ |
45 |
Já, það gæti orðið það.
▶ |
46 |
En svona á meðan
▶ |
47 |
Golfstraumurinn fer ekki alveg í rugl
▶ |
48 |
þá ættum við að vera góð hér, svona nokkuð góð miðað við annars staðar.
▶ |
49 |
Það er ótrúlega fyndið.
▶ |
50 |
Nú tel ég mig ekkert heimskan mann en Golfstraumurinn er eitthvað sem ég veit bara hvað heitir.
▶ |
51 |
Nei,
▶ |
52 |
já, já, ég er mjög lítinn skilning á því. Sko, bara bara eitthvað sem að þú veist ég las í bók þegar ég var í áttunda bekk eða eitthvað.
▶ |
53 |
Þetta tengist eitthvað þarna Suður-Ameríku eitthvað.
▶ |
54 |
Segðu mér eitt því ég hef sterkar skoðanir á þessu.
▶ |
55 |
Hver er uppáhalds sundlaugin þín?
▶ |
56 |
Sko
▶ |
57 |
ég myndi segja
▶ |
58 |
æ ég veit það ekki við förum bara mest í Laugardagslaug, held ég, núna,
▶ |
59 |
en ég heyri að það sé klikkuð sundlaug í Keflavík núna,
▶ |
60 |
þar sem ég ólst upp en hef ekki farið þangað síðan síðan hún varð betri.
▶ |
61 |
En já, bara Laugardalslaug örugglega
▶ |
62 |
af því það er uppáhaldslaug sonar míns aðallega
▶ |
63 |
Mín er, hérna, Flosalaug í Svínafelli.
▶ |
64 |
Hvar er Svínafell?
▶ |
65 |
Heyrðu, það er rétt hjá þar sem ég fór í eitthvað, eitthvað ferðalag í tíunda bekk
▶ |
66 |
já,
▶ |
67 |
og hún er alveg hringlaga.
▶ |
68 |
já
▶ |
69 |
þannig að þú getur verið eins og eldislax
▶ |
70 |
Ég var nákvæmlega þannig.
▶ |
71 |
Nei, við sem sagt, það sem svo gaman var að því að þú nærð niður á botn þá gastu labbað bara í hringi
▶ |
72 |
og þegar allur hópurinn labbaði hringi þá myndaðist svona sog í miðjuna.
▶ |
73 |
Þú sást alveg þú veist, þú, hefðirðu verið í miðjunni þá hefðirðu getað snert bara botninn þurran sko. Já.
▶ |
74 |
það er klikkað,
▶ |
75 |
Síðan hættum við að að labba í hringi og þá fóru bara allir með straumnum sem hafði myndast í lauginni og síðan var náttúrulega líka alveg ógeðslega fallegt þarna í kring.
▶ |
76 |
já,
▶ |
77 |
já, það er svo mikið af góðum sundlaugum úti á landi.
▶ |
78 |
Já, enda er þetta líka, bær er ekki bær ef það er ekki sundlaug, sko.
▶ |
79 |
Já, það er rétt,
▶ |
80 |
það er til dæmis mjög góð sundlaug í Vestmannaeyjum.
▶ |
81 |
Ég hef ekki komið í hana. Ég þarf eiginlega að fara þangað.
▶ |
82 |
Það er rosalega gott system.
▶ |
83 |
Eða sem sagt kerfi sem að
▶ |
84 |
sem sagt, einn gæi sem ég þekki sem ég hitti
▶ |
85 |
á þjóðhátíð hann var með kærustunni sinni þarna.
▶ |
86 |
Þarna og
▶ |
87 |
þau voru alveg að drekka og allt en þau vöknuðu alltaf á morgnana og fóru beint í sund og komu síðan aftur.
▶ |
88 |
Þau voru alltaf ferskasta fólkið á svæðinu.
▶ |
89 |
Þetta er það sem maður gerði á Eistnaflugi, líka
▶ |
90 |
vaknaðir í ástandi,
▶ |
91 |
fórst í sund bara í sundlauginni í Neskaupstað
▶ |
92 |
og síðan labbaðirðu niður í Egilsbúð og fékst þér pítsu.
▶ |
93 |
Ógeðslega stóra pizzu.
▶ |
94 |
Já.
▶ |
95 |
Vá, ég væri til í að fara í Egilsbúð. Er hún ennþá til eða?
▶ |
96 |
Ég held það.
▶ |
97 |
Ég heyrði einhvern tímann að það væri eitthvað svona rekstrarerfiðleikar og ég eitthvað. Nei
▶ |
98 |
Það er nátturlega bara bara ástæða til þess að bara brenna á Neskaupstað, ekki það. Ég væri alveg til að vera á Neskaupstað á morgun.
▶ |
99 |
Þá vera bara,
▶ |
100 |
þeir spá að það gæti alveg farið upp í tuttugu og níu stiga hita.
▶ |
101 |
Já, já hvað er þá? Já, já það.
▶ |
102 |
Það er
▶ |
103 |
stundum gott, stundum ekki.
▶ |
104 |
Ég þarna
▶ |
105 |
á svo erfitt með hita stundum.
▶ |
106 |
Mér finnst eiginlega best þegar það er bara skýjað og þú veist tíu stiga hiti.
▶ |
107 |
Mér finnst það eiginlega langþægilegast bara
▶ |
108 |
Já,
▶ |
109 |
ég er svona eiginlega sammála þér,
▶ |
110 |
ég er þannig. Mér líður best á veturna, sko.
▶ |
111 |
Það fellur svo mikil ró yfir allt,
▶ |
112 |
Já, nákvæmlega,
▶ |
113 |
við fórum alltaf út í Varmaland
▶ |
114 |
þegar ég var úti í sveit þegar ég var lítill, var sendur út í sveit af því
▶ |
115 |
foreldrar mínir fengu nóg af mér
▶ |
116 |
og já, fórum alltaf út í Varmaland í sund þar. Þar er klikkuð sundlaug.
▶ |
117 |
Hún var klikkuð allavegana þegar ég var lítill. Hún er örugglega pínkulítil.
▶ |
118 |
já,
▶ |
119 |
en síðan er það málið, að það skiptir ekki máli hvort hún sé stór,
▶ |
120 |
Já, já,
▶ |
121 |
það er bara gaman.
▶ |
122 |
já
▶ |
123 |
nákvæmlega,
▶ |
124 |
Bara, það er gaman í sundi.
▶ |
125 |
já, já,
▶ |
126 |
Og hef aldrei kunnað að synda neitt vel.
▶ |
127 |
En það er ekkert það sem þú varst að gera þarna.
▶ |
128 |
Nei,
▶ |
129 |
maður þarf ekki að kunna að synda vel til þess að fara að kaffæra vinum sínum
▶ |
130 |
og pissa í laugina.
▶ |
131 |
Ég var einu sinni með vini mínum úti í sumarbústað.
▶ |
132 |
Þá fórum við í Hveragerðislaug held ég. Vorum í sumarbústað þar.
▶ |
133 |
Og hann hoppaði af svona
▶ |
134 |
svona bretti sem alveg skoppaði
▶ |
135 |
Já.
▶ |
136 |
og nema eitt skipti þá hoppaði hann ekki alveg nógu langt.
▶ |
137 |
og brettið, þú veist,
▶ |
138 |
mætti honum farandi í öfuga átt við hann í með hornið í rófubeinið á honum.
▶ |
139 |
Hann grét svo lengi og hann gat ekki hreyft sig sko.
▶ |
140 |
Þetta var svo sárt, allur líkamsþunginn hans fór beint á hornið
▶ |
141 |
með rófubeinið
▶ |
142 |
og rann síðan af því.
▶ |
143 |
Þetta er svo vont.
▶ |
144 |
Ég lenti í því einu sinni
▶ |
145 |
þegar ég var í skóla að
▶ |
146 |
þá héldum við eitthvað svona fótboltamót
▶ |
147 |
já,
▶ |
148 |
og ég ætlaði að gera eitthvað rosalega flott spark
▶ |
149 |
já,
▶ |
150 |
og ég hoppaði eitthvað upp í loftið
▶ |
151 |
með,
▶ |
152 |
ég sem sagt sparka með hægri fætinum og ég fer eins og svona næstum því karatespark sko,
▶ |
153 |
já,
▶ |
154 |
en ég lendi á vinstra hnénu með hælinn á rófubeininu mínu
▶ |
155 |
Ah! Já, ég hef gert svipað.
▶ |
156 |
og ég spilaði restina af af fótboltaleiknum látandi eins og það væri allt í lagi þegar það var bara ekki.
▶ |
157 |
Já, ég hef
▶ |
158 |
já
▶ |
159 |
lenti í svipað þegar það var sópað undan mér löppunum í júdó
▶ |
160 |
já, þá einhvern veginn settist ég á löppina á sjálfum mér og beyglaði mig allan.
▶ |
161 |
Ég var eins og
▶ |
162 |
eins og einhver garnflækja þarna á gólfinu.
▶ |
163 |
Fáránlegur.
▶ |
164 |
Hversu oft ferð þú út að hreyfa þig?
▶ |
165 |
Ekki mikið þessa dagana.
▶ |
166 |
Nei,
▶ |
167 |
Ég er að koma úr meiðslum
▶ |
168 |
en fyrir það
▶ |
169 |
þá fór ég á hverjum degi.
▶ |
170 |
já.
▶ |
171 |
Hengill
▶ |
172 |
aðeins að, aðeins að rugla í þér.
▶ |
173 |
Já, ég er ennþá að að borga fyrir hann.
▶ |
174 |
Já, ég reyni alltaf að fara fimm sinnum í viku í World Class.
▶ |
175 |
World rass, eins og ég kalla það.
▶ |
176 |
Þar sem
▶ |
177 |
svona ég er ekki alveg
▶ |
178 |
með straumnum í menningunni þar endilega en þú veist þetta er bara svo góð stöð og mikið af tækjum og mikið að gera að það er erfitt að,
▶ |
179 |
nenna að fara eitthvað annað þegar þú ert búinn að fara þangað.
▶ |
180 |
Já, ég meina, við fórum þarna saman
▶ |
181 |
Já,
▶ |
182 |
síðasta vetur.
▶ |
183 |
Já, þetta er reglulega flott stöð, sko.
▶ |
184 |
já,
▶ |
185 |
en þú veist, það er líka.
▶ |
186 |
En það er líka meira af svona rosalega
▶ |
187 |
í tísku liði þarna sko sem að
▶ |
188 |
mikið af förðuðum konum.
▶ |
189 |
En annars staðar
▶ |
190 |
Og mikið af svona nýjustu fötum, nýjustu hinu og þessu
▶ |
191 |
og hóptímarnir snúast
▶ |
192 |
mikið um hvernig rassinn á þér lítur út.
▶ |
193 |
Þetta er rosalega svona barn síns tíma á ákveðinn hátt
▶ |
194 |
að ég held,
▶ |
195 |
þú veist, þetta hlýtur að taka enda einhvern veginn
▶ |
196 |
Ég held að það komi bara bylgjur í þessu eins og bara í öllu öðru þegar kemur að bara útliti og tísku.
▶ |
197 |
já,
▶ |
198 |
Núna virðist vera í tísku að vera með stóran rass og og stórar mjaðmir og og
▶ |
199 |
ég veit það ekki, ég hérna
▶ |
200 |
Ég lít kannski ekki út fyrir það en ég hérna reyni að pæla mjög lítið í þessu.
▶ |
201 |
já, já,
▶ |
202 |
það er líka, sumar af þessum stelpum, þú veist maður,
▶ |
203 |
ég hugsa ég hugsa oft um það þegar ég sé eitthvað svona af því þú veist allur klæðnaðurinn einhvern veginn er hannaður til að þú horfir á rassinn á henni.
▶ |
204 |
Og þú veist það er svona smá bil þannig að þú sérð smá í magann eitthvað og, en þú veist það er,
▶ |
205 |
þetta er allt einhvern veginn teygjurnar og allt, þetta er allt þannig að þú standir alveg með rassinn úti
▶ |
206 |
og þú veist ég pæli oft þú veist
▶ |
207 |
ef maður myndi taka fötin í burtu, hvort hvort það væri eins mikið eins og hún væri með stóran rass eða ekki.
▶ |
208 |
Já,
▶ |
209 |
þetta,
▶ |
210 |
þetta er, þetta er skrýtin þróun.
▶ |
211 |
Já, þetta er skrítið
▶ |
212 |
og fáum þetta lánað frá svörtu fólki held ég
▶ |
213 |
sem að byrjuðu með tónlistarmyndbönd og svona.
▶ |
214 |
Ja, sennilega já,
▶ |
215 |
Þau virðast
▶ |
216 |
ákvarða mikið fyrir okkur
▶ |
217 |
hvað er cool og hvað ekki,
▶ |
218 |
sem er fine.
▶ |
219 |
já,
▶ |
220 |
ég er bara ekkert sérstaklega kúl
▶ |
221 |
Já, nei, ekki ég heldur.
▶ |
222 |
og hérna
▶ |
223 |
finn mig ekki einhvern veginn eins og ég þurfi að eltast við þetta.
▶ |
224 |
Ég reyndar er
▶ |
225 |
þannig blessaður að ég lít út eins og ég gæti alveg borið barn, sko.
▶ |
226 |
Með stóran rass, stórar mjaðmir,
▶ |
227 |
ég væri mikill fengur ef ég væri kona.
▶ |
228 |
En síðan,
▶ |
229 |
hinn hlutinn af því er að þjálfa lappir og rass og svona, þú veist, þetta er með þeim betri vöðva hópum sem þú getur svona
▶ |
230 |
miðað á þannig séð.
▶ |
231 |
Algerlega.
▶ |
232 |
Ég meina, þetta er skárra, finnst mér, heldur en en að taka bara efri líkamann.
▶ |
233 |
Já, eða þú veist ef að stelpu magavöðvar væru trendið, mér finnst þetta skárra en það líka.
▶ |
234 |
Þú getur ef þú fókuserar rosalega mikið þá geturðu meira að segja gert svona
▶ |
235 |
ójafnvægi í rauninni
▶ |
236 |
þannig að togar þig svolítið fram
▶ |
237 |
eins og eins og eins og þig langi meira til að beygja þig þegar þú ert með svona vöðva
▶ |
238 |
frekar en að
▶ |
239 |
að vera með góða bakvöðva líka á móti alveg hinum megin á mjóbakinu
▶ |
240 |
Já, þetta virðist mjög oft gleymast þegar fólk talar um þessa kjarnavöðva
▶ |
241 |
að halda að það séu bara magaæfingar.
▶ |
242 |
Þess vegna,
▶ |
243 |
þess vegna er ég mikill réttstöðumaður.
▶ |
244 |
Það bara,
▶ |
245 |
það gerir svo ógeðslega mikið.
▶ |
246 |
Já, ég hefði átt að gera meira af því fyrir
▶ |
247 |
Hengilinn. Meira af kjarnaæfingum,
▶ |
248 |
ég fann mikið fyrir því þegar ég kom í mark, bara hvernig mér leið í bakinu.
▶ |
249 |
Já, er það?
▶ |
250 |
Já, bakinu maganum, þú ert að hlaupa í alls konar ójöfnu þannig að þú ert með þessa kjarnavöðva spennta allan tímann
▶ |
251 |
já,
▶ |
252 |
og þú tekur ekki eftir því af því að þú ert að einbeita þér að því að hlaupa og og
▶ |
253 |
og passa upp á næringuna þína og vatnið og allt það.
▶ |
254 |
Þú tekur ekki eftir því að þú ert búinn að vera þú veist eins og ég, ég kláraði á,
▶ |
255 |
ja, næstum því tíu tímum,
▶ |
256 |
já,
▶ |
257 |
búinn að vera tíu tíma með spennta magavöðva.
▶ |
258 |
Maður verður svolítið þreyttur í bakinu á því. Já.
▶ |
259 |
Já, það er klikkað.
▶ |
260 |
Já, það er líka bara svona,
▶ |
261 |
svona æfingar gleymast oft þegar þú veist,
▶ |
262 |
fólk vill fá magavöðva og svona, alveg
▶ |
263 |
þú veist þá er bara eru þeir bara á gólfinu að sitja upp mikið.
▶ |
264 |
En,
▶ |
265 |
Já,
▶ |
266 |
og gleyma í rauninni svona aðal orrustunni, sko,
▶ |
267 |
til þess að búa til flotta magavöðva, hún náttúrulega gerist ekki í magaæfingunum, hún gerist í eldhúsinu, sko.
▶ |
268 |
já, einmitt
▶ |
269 |
einmitt svona, já, það er náttúrulega alltaf verið að gera grín að þessu
▶ |
270 |
en hér kemur ein góð. Hvað finnst þér best við að búa þar sem þú býrð?
▶ |
271 |
Já.
▶ |
272 |
Sem getur þýtt Sandgerði
▶ |
273 |
eða Ísland eða Reykjanes?
▶ |
274 |
Mér finnst, það sem mér finnst gott við að búa á Reykjanesinu
▶ |
275 |
er að það er einhver svona ákveðinn sjarmi yfir því hvað landslagið er kalt
▶ |
276 |
og miskunnarlaust.
▶ |
277 |
Já, ég, ég kannast við þetta.
▶ |
278 |
Það er svona, á veturna, það er bara,
▶ |
279 |
það er bara hraun hérna, rok
▶ |
280 |
og sjórinn allur úfinn.
▶ |
281 |
Já,
▶ |
282 |
Og það er skafrenningur. Og vertu bara inni.
▶ |
283 |
Já, við höfum farið með hundana í þessu veðri
▶ |
284 |
bara í kraftgöllum og
▶ |
285 |
þú veist alveg, það er
▶ |
286 |
náttúran þarna sýnir svo vel að það er hættulegt að fara eitthvað út fyrir slóðina og þetta er allt hættulegt bara.
▶ |
287 |
Já, þetta er svona, já, miskunnarlaust.
▶ |
288 |
Já,
▶ |
289 |
en síðan ógeðslega flott á sama tíma því að þú veist þegar er heiðskírt og skítkalt þá sérðu bara yfir til Reykjavíkur og Akraness og allt þetta og yfir á jökul.
▶ |
290 |
Já,
▶ |
291 |
Hvað er það, Snæfellsjökul?
▶ |
292 |
já, þú sérð náttúrulega Snæfellsjökul mjög vel héðan
▶ |
293 |
Já og bara
▶ |
294 |
og
▶ |
295 |
þetta er svo hrikalegt
▶ |
296 |
það er í rauninni bara besta lýsingin þótt við séum ekki með
▶ |
297 |
fjöll eða eða neitt þannig að neinu ráði,
▶ |
298 |
já,
▶ |
299 |
sérstaklega þegar þú ert á, þú veist,
▶ |
300 |
nálægt Reykjanesbæ og annað. Það eru engin fjöll hérna, þetta er bara flatlendi.
▶ |
301 |
já, já,
▶ |
302 |
Þetta er hrikalegt.
▶ |
303 |
Það er allt svo,
▶ |
304 |
gott dæmi.
▶ |
305 |
Ég var að hlaupa um daginn og ég hljóp út á Miðnesheiði
▶ |
306 |
í átt að Stafnesi
▶ |
307 |
og þar hljóp ég fram á
▶ |
308 |
refagreni.
▶ |
309 |
Og ég hugsaði það einmitt, uppi á miðri Miðnesheiði, sem er síðast þegar ég vissi mannskæðasta heiði á landinu,
▶ |
310 |
búa þessi grey
▶ |
311 |
og maður hugsaði bara: vá, hvað þetta þarf að vera hart af sér til þess að búa hér. Það er ekkert skjól.
▶ |
312 |
já,
▶ |
313 |
Það er ekkert skjól hérna, það er ekki. Það eru ekki tré, það eru engin fjöll, það er,
▶ |
314 |
engar háar byggingar, ekkert til þess að skýla þér frá
▶ |
315 |
rokinu og kuldanum og svona saltþurrkinum sem er hérna.
▶ |
316 |
já, nákvæmlega
▶ |
317 |
Ég elska það.
▶ |
318 |
Fyrir mig myndi ég segja bara,
▶ |
319 |
núna bý ég í Reykjavík en ég ólst upp í
▶ |
320 |
Keflavík,
▶ |
321 |
að svona
▶ |
322 |
eiginlega bara þjónustan hérna, sko,
▶ |
323 |
af því það er bara mikið þægilegra að fara á spítala hérna.
▶ |
324 |
Það er mikið þú veist ég er með tveggja ára strák núna,
▶ |
325 |
Já.
▶ |
326 |
þú veist, það er náttúrulega allt frítt og allt en líka þegar ég fer. Þá er alveg ljósmóðir og þegar þegar við vorum í því þá var ljósmóðirin ógeðslega góð og þú veist allt bara handan við hornið
▶ |
327 |
og þú veist ef að ég hringi á sjúkrabíl þá er hann töluvert fljótari að koma en hann myndi gera í Keflavík örugglega bara því Keflavík er að eiga við
▶ |
328 |
svo mikið mikið stærra svæði.
▶ |
329 |
Eftir því hvað er í gangi.
▶ |
330 |
Já bara, ég er ekki hrifinn af heilbrigðisstofnununum
▶ |
331 |
í Keflavík. Nei, bara enga góða reynslu af þeim.
▶ |
332 |
Ég hef eina.
▶ |
333 |
Já,
▶ |
334 |
Ég upplifði það að
▶ |
335 |
nú er konan mín ófrísk
▶ |
336 |
já,
▶ |
337 |
og að fara á mæðraverndina inn í Keflavík er eins og að vera kominn á annað sjúkrahús.
▶ |
338 |
já,
▶ |
339 |
já, ókei,
▶ |
340 |
Það er bara ekki það sama.
▶ |
341 |
Við komum þarna,
▶ |
342 |
vorum þarna eina nótt
▶ |
343 |
já,
▶ |
344 |
eða svona aðeins fram eftir nóttu
▶ |
345 |
og það var bara eins og ég segi,
▶ |
346 |
þetta var eins og vera á allt öðru sjúkrahúsi.
▶ |
347 |
Ég er ekki sá eini sem segir þessa sögu frá fólki fólk sem hefur farið þar í gegn líður ofsalega vel með það sko
▶ |
348 |
en ég
▶ |
349 |
ég til dæmis sæki heilbrigðisþjónustu annars staðar.
▶ |
350 |
Ég sæki hana inn í Reykjavík frekar heldur en hér.
▶ |
351 |
já, þetta
▶ |
352 |
þetta er bara ekki í lagi þarna sko,
▶ |
353 |
það er bara ekki nógu mikill peningur og ekki nógu góð þjónusta þarna sko.
▶ |
354 |
Já og síðan eru þeir að að að fara að byggja annað sjúkrahús þegar þeir geta ekki einu sinni viðhaldið því sem er hérna.
▶ |
355 |
Já, er það? Ég hafði ekki frétt af því.
▶ |
356 |
Það er alla vega það sem ég heyrði sko að það væri verið að byggja annað sjúkrahús hérna, stefnd, stefnt að því að byggja annað sjúkrahús hérna í staðinn fyrir að viðhalda því sem að er
▶ |
357 |
af því að það er, þetta er ekki lítið sjúkrahús.
▶ |
358 |
Nei, alls ekki.
▶ |
359 |
Það er bara sá kafli af því sem við förum inn á er bara já,
▶ |
360 |
í rauninni bara sýnishorn.
▶ |
361 |
Já, já, já, Keflavík,
▶ |
362 |
það er fullt af svona hlutum við Keflavík að, þú veist, mig langar ekki
▶ |
363 |
sérstaklega mikið að búa í Keflavík aftur.
▶ |
364 |
Nei, ekki ég heldur.
▶ |
365 |
Það má margt bæta þar.
▶ |
366 |
Ég náttúrlega bjó uppi í Ásbrú þar sem þú veist það er allt of dýr leiga þar fyrir hvað þú ert að fá og og bara
▶ |
367 |
það eru alls konar hlutir í gangi við Ásbrú,
▶ |
368 |
þú veist það eru einhver leigufélög búin að kaupa þetta allt upp í staðinn fyrir að ég veit ekki nota þetta undir námsmenn eins og þeir ætluðu að gera og
▶ |
369 |
alls konar svona kjánalegar ákvarðanir sem að maður skilur ekki alveg,
▶ |
370 |
eða þú veist maður skilur ekki alveg. Það er bara spilling örugglega eða eitthvað, einhver að græða á þessu.
▶ |
371 |
Þetta er,
▶ |
372 |
ég mun ekki flytja aftur þangað
▶ |
373 |
en aðrar ástæður fyrir því, ég bara,
▶ |
374 |
mér líður betur í í minni sveitarfélögum. Þegar ég elst upp í Keflavík, þá er Keflavík náttúrulega mikið mikið minni
▶ |
375 |
og allt svona
▶ |
376 |
mikið nær þér, maður gat farið og verslað hérna einhvers staðar og og aðilinn sem þú verslaðir við
▶ |
377 |
þekkti foreldra þína eða eitthvað, átti barn á þínum aldri eða eitthvað, og var allt saman svona mikið nær og vinalegra, sko.
▶ |
378 |
Já,
▶ |
379 |
síðan er
▶ |
380 |
síðan er eitthvað viðloðandi við Keflavík ennþá þar sem þar sem það er bara meira af ofbeldi þar á
▶ |
381 |
á djamminu en annars staðar
▶ |
382 |
sem að hékk bara eftir að við vorum alltaf að slást við
▶ |
383 |
Kanana sem að voru rétt hjá okkur eða eða hvað það var sko þetta,
▶ |
384 |
voðalega kjánaleg menningarþróun.
▶ |
385 |
Já, sem að
▶ |
386 |
mér finnst í sjálfu sér ekkert eiga neitt mikinn rétt á sér akkúrat núna.
▶ |
387 |
Að þetta orðspor því að þetta er bara einfaldlega ekki
▶ |
388 |
bærinn lengur.
▶ |
389 |
Já.
▶ |
390 |
Þetta er
▶ |
391 |
mikið meiri ró og og þetta er náttúrulega orðið eins og Reykjanesbær orðið annað stærsta sveitarfélag landsins
▶ |
392 |
sem segir okkur það að það er svona,
▶ |
393 |
hreinræktað fólk er í minnihluta núna, sko.
▶ |
394 |
Já,
▶ |
395 |
og það er bara svo stutt síðan þetta var í gangi líka að það, þetta er ennþá að hristast af eitthvað.
▶ |
396 |
já, já,
▶ |
397 |
Og síðan er náttúrulega gerist þetta endrum og eins og það kemst alltaf í fréttirnar þegar það gerist þannig að
▶ |
398 |
það heldur því við líka.
▶ |
399 |
já,
▶ |
400 |
En síðan er náttúrlega, eins og er að koma í ljós miðborg höfuðborgarinnar alveg langverst núna.
▶ |
401 |
já,
▶ |
402 |
Sá sýnishorn af því,
▶ |
403 |
Alltaf myndbönd líka sem fylgja, sem mér finnst svolítið skemmtilegt.
▶ |
404 |
já,
▶ |
405 |
Maður fær alltaf svona,
▶ |
406 |
smá svona þórðargleði
▶ |
407 |
þegar
▶ |
408 |
maður er að sjá einhvern láta illa og alveg láta einhvern valta yfir sig,
▶ |
409 |
já,
▶ |
410 |
sérstaklega ef það kemur smá saga með því,
▶ |
411 |
já,
▶ |
412 |
Hann getur lesið. Það er svo, það er svo gaman að, að fá svona skemmtilega sögu af nágranna sínum eða eitthvað.
▶ |
413 |
þú veist, einhver með þér í skóla fer í fangelsi eða eitthvað.
▶ |
414 |
Ég er að standa mig aðeins betur en þessi gæi.
▶ |
415 |
Já, þetta er,
▶ |
416 |
það eru einhver svona, já
▶ |
417 |
Ég held að við förum nú bara að kalla þetta gott
▶ |
418 |
svo við förum nú ekki yfir.
▶ |
419 |
ok.
▶ |
420 |
Bara vertu blessaður, góðar stundir.
▶ |
421 |
Góðar stundir.
▶ |