3 - 188092d3-f405-4710-a8f0-1fdc7e79a6e5

Go back

1 Ég var að byrja að taka upp þannig að það er komið, já ókei nú kemur: Vantar þig eitthvað til að spjalla um?
2 Já.
3 En þarna, já þetta er mjög fyndið verkefnið þetta er búið að vera í gangi dálítið lengi og þá fékk maður að velja þann sem maður talaði við og talaði kannski bara við einhvern gamlan vin en nú er búið að para fólk saman sem hefur kannski ekki hist.
4 Og þá er, veit maður ekkert hvað maður á að tala um.
5 [UNK] nema við tölum bara um algjöran grunn á
6 því hver við erum. Þarna, ertu búin að vinna lengi hérna?
7 Varstu ekki bara að byrja?
8 Síðan í maí.
9 Já ókei og geturðu þá kannski bara sagt mér hvað þú ert að gera svona [UNK]?
10 Já, já, ég get alveg gert það.
11 Þarna,
12 ég er örugglega að fara að henda um einhverjum enskum orðum, heldur þú að það sé allt í lagi?
13 Það er, þau eiga að geta ráðið við það. Eða þú veist.
14 Ef maður er að fara að tala um
15 einmitt, það sem við erum að gera.
16 Já, ég basically að þarna, við erum með fullt af tólum svona íslensk tól fyrir íslenska tungu
17 sem eru búin til frá HR og
18 já, líka færeyskum. En já
19 Hvað, eruð þið líka með færeysku?
20 já, við erum með sem sagt íslensku og færeysku tól sem við eigum dockerize-a og búa til API þannig að þarna þetta verði aðgengilegra fyrir svona almenning og fyrir fyrirtæki.
21 Já ókei. Og hver bjó til þessi tól til að byrja með?
22 Bara þú veist fólk í HR, fólk í
23 örugglega einhver í HÍ
24 Og í svona færeyska. Æi það er eitthvað færeyskt.
25 Við erum með eitthvað lítið teymi í Færeyjum sem er að gera þetta.
26 Ókei og er þetta svona
27 vélþýðingar eða hvers konar
28 tól er þetta?
29 já,
30 já, vélþýðingar, þarna
31 já, basically
32 svona NLB það er fullt af
33 buzzwords sem þú getur notað.
34 Tokenization
35 og svo [UNK] og eitthvað þannig. Veistu hvað þetta þýðir eða?
36 Já, ókei
37 já, ég veit hvað allt þetta, allt þetta þýðir ég er bara að reyna að átta mig á tólunum
38 spurning hvort að þessi gögn
39 viti hvað þetta þýði
40 það voru, það voru sko sumarnemar í þarna,
41 sem að voru að sem sagt skrifa upp úr þessum gögnum
42 og það er bara fyndið ef að, ef maður er að tala um eitthvað en ég meina.
43 Þetta á að geta ráðið við, held ég, ef maður er að segja til dæmis basically eða eitthvað. Ég veit það ekki ég bara,
44 hvernig á að, út af því það eru slettur í máli. Þannig að
45 þetta hlýtur að, eiga að koma þar sko. Eða þú veist ég bara, við sjáum. Maður er að gera sitt besta.
46 Meira að segja svo það er svo fyndið verkefni þarna
47 að allt í einu eru þau búin að para saman.
48 Og þau eru búin að para saman, sko ekki með neinu,
49 ekki með neinni pælingu um hverjir hafa talað saman áður, ég bara.
50 Það fengu allir einhvern sem þau höfðu aldrei talað við áður. Sem er líka bara alltílagi sko mér finnst það bara svo fyndið út af því að
51 Það er fullt af fólki sem ég tala við bara lengi á dag og gæti alveg gert hvort sem er.
52 Akkúrat. Hefurðu þá gert þetta áður?
53 Já, ég hef gert það með vinkonu minni og það var kannski þá, ég svona er kannski smá galli að þekkja of vel manneskjuna sem maður er að
54 tala við út af því þá kannski byrjar maður, ég gleymdi að við værum að sko í upptöku og þá byrjar maður bara að tala um hluti sem maður kannski vill ekkert verði opinber gögn, þannig að. Það svona,
55 Já, já ég skil þig.
56 þurfti að sko tala í hálftíma og segja bara: Eh nennið þið að nota tíu mínútur af þessu ég. Þannig að
57 Já, akkúrat.
58 en ég vona að þau hafi notað tíu mínútur annars er ég bara að særa fólk sem fer að
59 sækja gögnin.
60 Ertu búin að vinna hérna lengi?
61 Nei, grín
62 ég var ekki að móðga neitt mikið.
63 Ég var að vinna
64 í ár í þessu og svo er ég búin að vera í doktorsnámi í ár.
65 Þannig að það komin tvö ár í teyminu,
66 og fyrst var ég bara í svona
67 með eitt af þessum verkefnum sem eru í máltækni áætluninni.
68 Þarna
69 sem að, það var um greinarmerkjasetningu.
70 Sem sagt að setja sjálfvirk greinarmerki inn í texta, þú færð kannski ASR þarna eða talgreining les eða þú veist heyrir
71 skrifar þetta niður og svo þetta bara allt í belg og biðu einhvern veginn er ekki þarna,
72 er ekki neinn strúktúr á þessu, þannig.
73 og þannig við vorum bara að rannsaka leið til að gera greinarmerkjasetningu á íslensku.
74 Það er örugglega verið að nota það og svo er ég í doktorsnámi í sem sagt textanormun eða ég svona einbeiti mér að því. Veistu hvað það er?
75 Textanormun? Nei.
76 Jamm, það er sem sagt að
77 það er svona útþensla orða sem er svona, þau heita non-standard að eins og tölur og skammstafanir og þú veist ef þú sérð bara td. þá lestu í hausnum til dæmis, ef þú sérð þú veist
78 já, já, já
79 þarna tveir, einn, kona þá lestu tuttugu og ein kona en tölva veit ekkert hvernig á að gera þetta, þetta er dálítið fyndnin hlutur því þetta er svo ótrúlega auðveldur fyrir
80 okkur en þarna
81 en já, rosalega erfiður bara
82 Svona svipað og að greina myndir og svona?
83 Mjög létt fyrir manneskjur að, en. Já akkúrat.
84 já, það er bara þú veist, já af hverju ætti manneskjan að ruglast á chihuahua hundi og bláberja [UNK].
85 Þetta er eitthvað svona hlutir sem maður bara svona að þetta er og það eru ekki til nein gögn með þetta út af því það er ekki eins og einhver hafði verið þú veist eins og í vélþýðingu, þá er kannski einhver búinn að skrifa upp bara enska þýðingu á íslenskum texta eða eitthvað.
86 Út af því að það þarf að gera það. En það þarf enginn að eitthvað: hmm ég ætla að reyna að taka hérna texta og ég ætla skrifaði hann upp þannig að ég skrifa alltaf út eitthvað fimm þúsund krónur eða þú veist.
87 Þannig að það eru ekki til nein gögn og þá út af því að þarft alltaf því þú ert með svona tauganet og svona þá þarftu að vera með þarna
88 já, þarft að vera með bara shit load af gögnum alltaf og þú veist tauganet virka ekki nema þú sért með ótrúlega mikið af gögnum og það er svona eins, æ ég veit ekki það eru svona dálítið af rannsóknum þar sem að það voru sem sagt menn sem að eða svona sérfræðingar sem að bjuggu til mjög mikið af gögnum og
89 bjuggu þau bara til með svona gamalli aðferð og svo voru þeir með svona [UNK] keppni.
90 Þar sem fólk setti tauganet og var að reyna að nota taug, bara
91 til að gá hvort það sé hægt.
92 var það gert á Íslandi? Já ókei.
93 Nei, bara í svona alþjóðlegri [UNK] keppni er voða lítið búið að rannsaka þetta á Íslandi enda er erfiðara á íslensku út af því þetta er svona meira.
94 Út af því við erum með svo margar, mörg föll og kyn og tölu sem geta breytt orðinu.
95 akkúrat.
96 En þarna já, þá fannst mér greinarnar vera svolítið þannig að fólk var
97 ekki meðvitað um hvað var erfitt að fá gögn. Út af því að þau gerðu bara eftir að þau fengu gögn.
98 Og þá voru þau bara: já, við heyrðu við erum búin að gera þessa aðferð og þetta virkar bara vel fyrir gögnin sem við vorum með. En þau voru aldrei með alvöru gögn.
99 Þannig þetta er svona
100 þetta er svona á dálítið erfiðum stað einhvern veginn.
101 Þetta fellur dálítið milli svona
102 Og er það þá það sem þú ert að gera í doktorsnáminu? Ókei.
103 já.
104 Þannig að ég er að reyna að finna aðferðir og nú er ég að byrjar svona á dálítið almennri gervigreind fyrir þetta.
105 Bara út af maður er alltaf þú veist
106 Maður er í doktorsnámi og maður bara svona gá hvort hlutir virki og sanna að hlutir virki eða virki ekki.
107 Hvað er þetta doktorsnám lengi?
108 Hvort sem að
109 það eru þrjú ár á Íslandi
110 sem að er, manni finnst þetta vera rosa næs þegar maður byrjar: Já þetta eru bara þrjú ár. Og svo er maður búinn að vera eitt og bara: Guð. Hér hef bara tvö ár í viðbót.
111 Til að gera eitthvað.
112 En þú veist já. Þannig að doktorsnám er rosalega mislangt eftir löndum ég held það sé svona
113 fimm ár í Svíþjóð og fjögur í Danmörku. Já ég held það.
114 Fimm ár í doktorsnámi?
115 Er það ekki, þið eruð alltaf að taka þarna sama verkefnið?
116 Þú veist, öll þessi fimm ár, er það ekki?
117 Þannig að þú ákveður eitthvað bara í byrjun og ert að vinna í því?
118 Já en svo náttúrulega má það breytast skilurðu. Þú ákveður eitthvað í byrjun
119 Jú, þú ákveður eitthvað í byrjun en þú getur svo svona eins og ég ákvað bara textanormun, en það er kannski ekki doktorsnáms þú veist ég er búin byggja nógu gott kerfi.
120 Nógu gott skilurðu? Þarna,
121 Það er kannski ekki
122 þú finnur kannski svo nýja vinkla á þetta og getur aðeins aukið við, þú veist þetta fer alltaf í einhverja aðra átt heldur en þú ætlaðir að byrja með. En það er kannski fínt að halda grunnhugmyndinni.
123 Ef þú ert bara eitthvað :Hey ég ætla að rannsaka þetta. Þá eru bara ýmsir hlutir til að rannsaka þannig að.
124 Eins gott að finna
125 eitthvað sem þú hefur áhuga á.
126 Ég sko ég hef miklu meiri áhuga á svona máltækni svona skrifuðu máli heldur en, heldur en
127 æji þú veist þú veist út af því þetta er svo mikið bara rafmagnsverkfræði.
128 Þarna, en svo er ég, var ég í þessu teymi þar sem að
129 þessu talgreiningarteymi eða talgreining og talgerving.
130 Já,
131 Þarna og sem að er bara að gera rosa svo mikið svona rafmagnsverkfræðihluti og ég var bara að reyna að finna eitthvað þar sem ég gæt, sem þetta er talgervingarverkefni, sko svona normun út af því þetta er í rauninni þarf að norma texta áður en
132 þannig þarna sett eða þú veist, tölvan sér hann og hún bara fægir ef það er ekki búið að norma eitthvað sem hún hefur ekki séð áður.
133 Þú veist hún kann bara að bera fram. Þannig þetta er talgreiningar vandamál en ég næ að vera algjörlega á, á texta levelin skilurðu? Þannig að,
134 Ég vissi bara að mig langaði að vinna í máli
135 þú veist í texta í rauninni þannig að.
136 Það er bara mjög fínt.
137 já,
138 Ertu, varstu með einhverja reynslu af einhverju svona varstu með?
139 ég kláraði þarna
140 bachelor í tölvunarstærðfræði í HR fyrir ári síðan.
141 Og þar tók ég eitthvað smá svo er ég búinn að þú veist fikta eitthvað líka sjálfur.
142 Þá hefur áhuga á máltækni? Svona,
143 Þú veist eiginlega með svona AI í
144 svona general, ekki bara beint máltækni heldur. Já.
145 Já, nei, já bara svona almennt,
146 já, þá myndirðu örugglega fíla doktorsverkefni þá stefnu sem það er að taka
147 af því ég er bara að skoða
148 Ég er að skoða svona útskýranlega gervigreind út af því að það sem að tauganet eru, þau eiga
149 erfitt með er að þau, þú setur bara ógeðslega mikið af gögnum,
150 inn í eitthvað kerfi og það spýtir út einhverjum upplýsingar og þú ert bara: vá, geggjað en þú veist ekki af hverju það gerði það. Og það er alveg pínu óþægilegt eða þú veist það er kannski
151 Já.
152 Ég held að tauganet séu svona rosalega góð bylting fyrir sko hinn almenna notanda kannski. Svona fyrirtæki og eitthvað sem að
153 bara geta
154 fengið einhver [UNK] en þegar þú ert að vinna í rannsóknum þá er
155 stundum svona fyrir ákveðin verkefni þá getur verið mjög erfitt að fá ekki upplýsingar um af hverju þetta er svona.
156 Þannig það er svona, það er dálítið
157 Ertu þá að vinna í
158 svona binary tréum og eitthvað þannig eða?
159 Nei, eða þú veist ekki.
160 Það heitir sko learning classifier system sem ég er að skoða.
161 Lærdóms flokkunarkerfi sem að út af því að það sem við viljum að gervigreind geti gert er að læra
162 sjálf
163 og það er í rauninni er munurinn á manneskju og tölvum eða þú veist af hverju ætti tölva að geta lært sjálf?
164 Þannig að þetta er svona
165 þarna já, dálítið.
166 Sko að læra og svona reasoning þú veist að geta dregið ályktanir. Þú veist tölva getur ekkert gert það og ég líka þú veist
167 ég er samt alveg skeptísk á hvort ég vil að tölvur geti gert það.
168 Þetta er alveg skemmtilegt rannsóknarefni
169 en vil ég að tölvur geti dregið sínar eigin ályktanir? Ég veit ekki alveg hver
170 tilgangurinn er
171 eða þú veist upp að ákveðnu marki, jú, en kannski svona,
172 ef það er bara, mér finnst almenn gervigreind vera eitthvað sem er skemmtilegt rannsóknarefni
173 en
174 hættulegt
175 að ég vona [UNK]. Út af því ég vil frekar að tölvur geti leyst, gervigreind er geggjuð út af því þær
176 leysa þau verkefni sem eigi að leysa en af hverju þurfum við?
177 Af hverju þurfum við alvöru gervigreind? Þetta er svona,
178 En ertu að pæla, ætlarðu að vinna, ertu í eitthvað stóru verkefni hérna eða?
179 Eða þú veist hversu langt, hversu langt er þetta?
180 Ég er í hérna, þetta heitir microservices. Já, fyrir mig
181 það er eitt ár að þetta verkefni er í eitthvað tvö,
182 þrjú ár.
183 Ókei, ætlarðu að gera eitthvað annað svo eða fara í master eða?
184 Já, ég er að pæla í að fara í master.
185 Ertu kominn með einhverjar hugmyndir?
186 Ég væri til í að fara út
187 til Zürich til dæmis.
188 Ég held [UNK]
189 ja, það var örugglega gaman.
190 já,
191 sé geggjaður skóli,
192 eða hann er geggjaður, þarna nei
193 Það er örugglega mjög gaman, í svona þá kannski bara einhverri gervigreind?
194 Já, bara svona kannski tölvunarfræði bara yfirhöfuð út af því ég er ekki búinn að ákveða hvað ég vill þú veist, gera. Ég er með
195 mjög mikið af hlutum sem mig langar að svona prufa og
196 það er ekkert eitt sem er eitthvað, sem ég
197 sem er bara fínt, þú veist
198 alla vega núna sko.
199 þegar þú ert búinn með bachelor og það er
200 bara fínt að hafa svolítið opinn huga eða þú veist
201 en samt ógeðslega gaman að geta unnið í einhverju svona verkefni
202 í
203 þegar maður er að taka svona ár á milli
204 og þarna, já það er
205 Ég held það sé mjög gaman eða þú veist það bara
206 svo mikilvægt að flytja til útlanda, þannig að
207 Komast aðeins af þessari eyju,
208 það er.
209
210 Ég flutti í
211 [UNK]lengi ég flutti í tvö ár fyrst og svo
212 líður mér eins og það hafi verið já, fimm.
213 Þannig að, hvert flutti ég ekki?
214 Hvert fluttirðu?
215 Ég flutti á tvær borgir í Þýskalandi smá í París var svo fór í skiptinám tölvunarfræði í Stokkhólmi, vann í Gautaborg fór í master í Danmörku fór í skiptinám í Bandaríkjunum.
216 Þannig það er svona ýmislegt.
217 Já, sæll.
218 Þannig að það að koma heim eftir það er svona
219 það er gott en eða þú veist
220 það er mjög þægilegt eða mjög notalegt. En þú veist
221 maður verður finnst mér, að taka einhverja svona,
222 mér finnst rosalega mikilvægt að fara út
223 Já,
224 út af því að Ísland er eins lítið og það þá er þetta svona.
225 Og mér finnst það samt svona eins og þú veist,
226 bara ég var í Danmörku.
227 Og Danmörk er alveg æðislegt land. Danir hafa nákvæmlega enga ástæðu til að
228 fara, sem er ógeðslega leiðinlegt. Út af því að
229 það er alveg, það er gildi í því að
230 fara.
231 Því að, eða þú veist bara fara hvort sem að. En þau er bara eitthvað: Af hverju ætti ég að gera það?
232 Og ég man þegar hann fór í skiptinám frá sem sagt ITU þá þarna.
233 Þá var svo mikið verið að reyna að pitcha skiptinámið sem bara: hey Danir prófið að fara eitthvað nýtt og ég var bara eitthvað svona búin að
234 sjálf vera búa í einhverjum sex borgum eða eitthvað, maður eitthvað svona, þið þurfið ekki að segja mér hvað ég mun fá mikla reynslu út úr því að prófa að fara út fyrir þægindarammann eða þú veist.
235 Mig langar bara í betri skóla þar það var það sem að ég þú veist, það er mjög sniðugt að fara í sko frítt nám í Evrópu
236 og taka svo önn í Bandaríkjunum. Því þú þarft ekki að borga neitt
237 fyrir sko
238 fyrir eitthvað sem myndi kosta gríðarlega mikinn pening.
239 Bara taka frítt nám í Svíþjóð og fara þá í skiptinám út frá því yfir í eitthvað annað sko? Já.
240 Já, eða þú veist í bara Danmörku eða Svíþjóð eða bara ég held að í Evrópu sé
241 svona alla jafna frítt, veistu hvernig það er í Sviss eða?
242 Það er ekki frítt það er samt svona svipað og HÍ. Akkúrat.
243 Já, einmitt já svona skráningargjald
244 þarna sko í Danmörku held ég að sé bara ólöglegt að rukka þú veist ég borgaði núll krónur sko sem mér finnst vera svona
245 ég hefði alveg getað borgað sextíu þúsund kall sko.
246 Já, já akkúrat. Þannig að þú borgaðir bara leigu?
247 Mér finnst
248 bara í Danmörku já sko en svo er Danmörk með kerfi þar sem þau gefa þér laun fyrir að vera í námi eða svona styrk. Þarna
249 í alvörunni?
250 en ef þú ert útlendingurinn þá þarftu að vinna svolítið, þú þarft að vinna fjörutíu prósent eða hvað
251 átta tíma á viku, nei, fimmtán tíma á viku.
252 þarna til að eiga rétt á þessum styrk sem er eiginlega bara frábært út af því að þá kem ég
253 dálítið út úr náminu með sko vinnureynslu
254 og var allan tímann sem ég var í Danmörku bara með svona þrjú hundruð þúsund á mánuði,
255 bara þótt ég væri í námi, þú veist ég.
256 Sæll.
257 Þetta er í rauninni maður þarf ekki að taka nein námslán.
258 Og vinnur smá og þú veist styrkurinn sjálfan kannski fimmtíu þúsund kall en samt alveg sem hjálpar.
259 Það þú veist þetta er rosalega, mér finnst þetta rosa sniðugt kerfi. En þau eru eitthvað, Danir eitthvað bara smá bara: Hey við verðum að hætta að gefa útlendingum sem koma bara og taka styrkinn og fara.
260 Þú veist, þannig að, æ ég veit ekki, en samt einhvern veginn þú veist eru að vinna, maður er að borga skatt, þetta er í rauninni bara skattaafsláttur eða skilurðu að einhverju leyti.
261 Þú vinnur bara og
262 borgar í rauninni ekki skatt út af því þú færð þarna styrk á móti.
263 Varstu þá að vinna þú veist
264 átta til eitthvað fimmtán tíma á viku
265 Já ég var að vinna svona tvo
266 og fékkst þrjúhundruð þúsund kall?
267 já eða þú veist danska krónan er svo há. Þarna
268 Já, ég fékk samt tólf þúsund danskar,
269 eða nei ég var með svona [UNK] þúsund danskar í laun, þú veist þrjúhundruð þúsund fyrir skatt sko. Þarna
270 ég var með tólf þúsund danskar í laun og svo var þessi: styrkur hann var svona sexþúsund kall, þannig ég var, fyrir skatt þá var ég með þrjúhundruð og sextíuþúsund kall í laun
271 sem var þú veist, já bara
272 Það er nice. Var það í bachelor eða? Já ókei.
273 með master,
274 þannig að ef, ég eða þú veist mér fannst það bara mjög gott kerfi út af maður kemur ekki skuldum settur, þú veist ég er ennþá með bara námslán frá einhvern veginn
275 Lín, eftir að hafa verið í námi hér. Eða þú veist vá, pirrandi sko og kannski meira pirrandi
276 Eða þú veist HR er náttúrulega dýrari
277 Já, það er það.
278 En þú veist, ég veit ekki kannski
279 Hvað kostar HR?
280 Tvö hundruð og fimmtíu þúsund
281 á ári?
282 ein er tvö hundruð og fimmtíuþúsund þannig sirka fimmhundruð
283 Það er fáránlega mikið.
284 Það er ógeðslega mikið.
285 Þegar ég var að þú veist var að koma í doktorsnám, þá þarna
286 Og ég fór bara í doktorsnám út af því ég var að vinna hérna og
287 fólk vill endilega, þau vilja endilega fá mann í doktorsnám.
288 þannig þetta var meira svona
289 eða þú veist að mig langaði mjög mikið doktorsnám en ég var alveg líka að þú veist gera deildinni. Ég var ekkert að vera íþyngjandi fyrir deildina skilurðu? Þau vildu fá
290 doktorsnema
291 og þarna, og þá var ég bara fékk eitthvað svona móment þar sem ég bara: guð ætti ég þá að borga fyrir námið? og ég held það sko í doktorsnámi að þá er það bara eitthvað.
292 fimmhundruðþúsund kall á önn
293 Sem að þú veist í rauninni þú þarft bara að borga ef þú ert eitthvað svona sem að enginn er, að já ert doktorsnemi, sem ert það ákveðin í að vera í doktorsnámi án þess að vera á neinum styrk, þá er alveg hægt að láta þig, eða þú veist, ef að enginn vildi styrkja þig þá kannski ertu ekki að gera það merkilega hluti
294 að, eða þú veist
295 Þannig að yfirleitt er það, hvað er svona þú veist er búist við að maður á að borga fyrir doktorsnámið
296 Það er ekki neitt sko. Ef þú, þú veist nei það er bara borgað niður, það væri fáránlegt ef ég allt í einu ætti gefa mánaðarlaun í doktorsnám sko
297 með styrk? Ekki neitt?
298 Eða þú veist ég er að vinna, ég er ennþá
299 ég er ennþá að vinna fyrir deildina sko.
300 Þarna, eða þú veist sem er bara
301 Já það væri ógeðslega þú veist það er erfitt að taka ákvörðun að fara í doktorsnám ef að maður bæði lækkar í launum og það er allt í einu fram borga fyrir að mega vera í vinnunni. Maður er bara svona en það var allavega það var alls ekki sko þú veist.
302 Það var bara, en þarna, já þannig þetta var
303 Það er svona spurning. En það er mjög gott, það er mjög næs að vera í doktorsnámi út af því
304 að maður fær að stjórna miklu meira tíma sínum.
305 En það náttúrlega gallarnir eða þú veist fer bara eftir hvernig týpa maður er þá eru gallarnir svona að
306 þá er maður kannski meira bundinn, oft að gera svona þyngri hluti einhvernveginn þú veist maður getur ekki bara tikkað af einhvern veginn hluti.
307 Þú veist í gær þá var ég eitthvað út af því að ég var að kenna líka og þá var ég bara
308 að undirbúa kennslu og svona og þetta var svo næs að geta bara gert það og svo vera búin með það. En í doktorsnámi þá ertu alltaf einhvern veginn svona: Já ég þarf aðeins að hugsa í dag.
309 Og svo líður þér eins og þú hafir ekki gert neitt, út af því þú varst að hugsa í allan dag
310 Þannig þetta er svolítið svona ekki fyrir hvern sem er sko
311 Já, já, yes.
312 taka nokkur ár af þessu.
313 Já, ég trúi því.
314 Er það fyrir þú veist, er það búist við fyrir þá alla að doktorsnámið er frítt?
315 Já þú veist ef þú færð styrk, ef þú ert á einhverjum styrk þá
316
317 held ég að þú borgir ekki fyrir doktorsnám sko ég náttúrulega veit ekki hvernig það er í öðrum skólum en mér finnst þetta bara mjög skrýtin pæling. Ég hef líka heyrt af fólki sem að út af því að í Bandaríkjunum þá er svona master og doktor tekin saman dóti.
318 Þess vegna eru svona margir Bandaríkjamenn með doktorsgráðu,
319 út af því þú veist þú ferð bara í fimm ára nám.
320 Og ég hef alveg heyrt um fólk sem fer í þannig prógramm og hættir eftir tvö ár þegar búið að fá master bara til að þurfa ekki að borga,
321 Þannig að þú veist út af því að um leið og þú ert doktorsneminn þá áttu frekar að vera á launum heldur en að borga styrk sem sagt að þú veist
322 Þetta er bara svo einhvern veginn erfitt prógram alltaf að þú veist þurfa að borga svona mikið þegar þú ert í skóla.
323 Þú veist ég er búin að vera að hugsa bara þegar maður er í vinnu, nei þegar maður er í skóla skóla og hugsar eitthvað: Vá ég fæ hérna skóla afslátt af öllu en ótrúlega gaman að vera ég
324 Og svo byrjar maður að vinna og þá fær maður bara líkamsræktar styrk, samgöngustyrk og niðurgreiddan mat og
325 allskonar þú veist sem að bara
326 Þannig að maður heldur að maður hafi það eitthvað gott maður, þá er það bara maður fær meiri afslætti þótt maður sé sem launþegi sko.
327 já, já
328 En ég held að við hljótum að vera kominn með nóg af þessu spjalli eða þú veist. Er ekki komin með nóg en þú veist bara svona.
329 Já, já, ég líka sko
330 Maður ætlar að fara, ég er ekki búin að gera neitt nema spjalla eftir að ég kom í vinnuna sko.
331 Bara eftir að ég tók upp tölvuna þá er ég: Jæja nú þarf ég að byrja að vinna byrja að vinna, byrja að taka hérna spjall.
332 En þú mætir aldrei í vinnuna eða?
333 nei, ég er yfirleitt bara heima.
334 Já það er mjög þægilegt að sem sagt svona
335 stemmning að mæta stundum, finnst mér.
336 já, já ég skil þig.
337 En ég er eiginlega alltaf heima líka bara.
338 Þú veist það er kannski kannski einn dagur í viku sem maður kemur. Þá er maður að spjalla allan daginn út af því að það er bara truflandi
339 Það er sagt að þessi í Covid þá hafi framleiðni aukist svo mikið
340 en það er bara út af því fólk hætti að vera hresst.
341 Það er bara svona.
342 Já, heyrðu ég kem í vinnuna og þarna
343 eða þú veist það þarf, það fer bara í vinnuna, þarf ekki að eyða neinum tíma í samgöngur.
344 Og þú veist jújú það er kannski meiri framleiðni en það er kannski aðeins minn, eða þú veist töluvert minni hamingja í þú veist allir séu neyddir til að vera heima bara að framleiða á fullu alltaf.
345 Já, þurfum allavega að geta talað við einhvern.
346 Ég held að það séu svo margir í einmitt svona rannsóknarumhverfi sem finnst ógeðslega næs að vera bara heima.
347 Og þess vegna mætir aldrei neinn í vinnuna og svo er XXX geðveikt stressuð í að allir muni mæta og það verði ekki pláss fyrir alla og ég eitthvað svona:
348 Það mun aldrei gerast.
349 Mun aldrei,
350 ég var sko rekin í annað herbergi út af því að hún hélt það myndi ekki
351 vera pláss fyrir alla, og svo.
352 Er alltaf þannig ég er ein og svo er einn frammi og ég er bara: ok
353 Já, það er allt of þægilegt að vera heima, það er.
354 Auðveldara aðgengi í mat og þarf ekki að
355 Já akkúrat.
356 Þarf ekki að borga HR matinn
357 Já þarft þú að borga
358 sjö hundruð eða fjórtán hundruð?
359 Ég er bara ekki viss, ég bara er ekki búinn að kaupa mér mat
360 síðan ég byrjaði að vinna sko.
361 ef maður er starfsmaður þá þarf maður, þú borgar örugglega sjöhundruð sem að er mjög lítið fyrir þarna
362 fyrir svona heitan mat. En fjórtán hundruð er svona meira en mann langar að borga
363 Heitan mat já.
364 þannig að, þarna
365 ég var alltaf að borga sjö hundruð bara sem starfsmaður svo allt í einu er ég í námi og það var bara: nei. Við getum ekki niðurgreitt þennan mat lengur
366 Og ég þarna með miklu lægri mánaðarlaun heldur en ég var og þannig ég þarf núna alltaf treysta á að einhver út af því að það má hins vegar fara í mat og kaupa tvo skammta.
367 Þannig að ég get alltaf farið með einhverjum sem kaupir fyrir mig og svo legg ég inn á hann sjöhundruðkall. Þannig þetta er svona
368 en þú veist þetta er svo mikið vesen í staðinn fyrir að bara gefa mér mat.
369 Vonandi verður eitthvað athugað, mér finnst þetta vera fáránlegt að vera að taka
370 taka einhvern svona basic réttinn af doktorsnemum
371 Allavega fyrir doktorsnema.
372 en þú veist mér finnst samt skrýtið að háskólanemar eigi ekki rétt á,
373 þú veist einhverjum frekar niðurgreiddum mat
374 Ég held hann kosti miklu, eða ég veit ekki hvort, hann kostar miklu minna í HÍ held ég eða ég veit það ekki. Kannski ekki.
375 en já, það var gaman að spjalla við þig.
376 Já, sömuleiðis.
377 við, erfitt að við höfum ekki farið í gegnum þessar spurningar hérna fyrir neðan núna er,
378 hvar sérð þú þig [UNK]
379 Já, eru spurningar?
380 sko ef þú horfir á skjáinn
381 það er alltaf vantar þig eitthvað til að spjalla um og svo eru ótrúlega fyndnar spurningar sem var eitthvað svona
382 Hvað var uppáhalds lagið þitt þegar þú varst unglingur? Eitthvað svona.
383 Hvað finnst þér um.
384 Hvað finnst þér um þarna rafhlaupahjól? Já,
385 Já þannig þetta er, ég hugsaði hvort við þyrftum að grípa í spurningar út af því við höfum ekki hist áður en ég held það sé betra að tala bara um vinnuna.
386 En ég bara þá sé þig einhvern tímann ef þú kemur í skólann. Það var gaman að spjalla.
387 já,
388 Sömuleiðis. Bæbæ.
389 Ok bæ.
Go back