15 - 3ce6563e-1134-47e9-b021-1406d2486401

Go back

1 Já, ókei,
2 en hvað segirðu annars í dag?
3 Ég segi fínt.
4 Já, ég, ég er búinn að vera með bullandi kvef alla viku.
5 jæja, já er það?
6 Já, loksins dafna frá mér í gær.
7 En vonandi ekki COVID.
8 Nei, ég,
9 þetta var dálítið spennt svo ég fór í próf á þriðjudaginn,
10 Já,
11 svo, það var heppilega neikvætt.
12 jæja það er gott, hvaða sprautu fékkst þú á sínum tíma?
13 Ég er kominn með tvær sprautur af Pfizer. Já, já.
14 Já, ókei.
15 Ég fékk einmitt Astra Zeneca. Tvær af því.
16 En hvað segirðu hérna.
17 Það er eitt sem við höfum svo sem aldrei
18 talað um og ég var svona að velta fyrir mér
19 svona áhugamálunum þínum? Svona fyrir utan, fyrir utan
20 skólann.
21 Hvað finnst þér gaman að gera? Já.
22 Sko, ef, fyrir utan skólann, það er,
23 það er kannski svona fótbolti sem er, núna, mundi kannski lýsa sem helsta áhugamálinu
24 svona búinn að fylgjast með enska boltanum í alveg
25 allmörg ár núna.
26 Ókei, hvert er? Hvert er þitt lið?
27 Mitt lið er Everton.
28 Nú, þú ert með lið í sömu borg og ég.
29 Já, ert þú hinum megin?
30 Ég er búinn að halda með Liverpool alveg síðan ég var sjö ára,
31 Já ókei, þú hefur aldrei breytt því.
32 aldrei breytt. Það má ekki breyta segja þeir.
33 Það, já, það er búið að vera um [UNK] áratugi,
34 Já.
35 með sama liðinu?
36 En hvað, hefur þú haldið með einhverju öðru liði?
37 Já, ég held að ég byrjaði að halda með Everton
38 kannski svona tvö þúsund og fjögur eða eitthvað,
39 þegar ég var svona tíu ára,
40 fyrir það,
41 þá var ég ekki byrjaður að fylgjast með fótboltanum
42 og, svo að ég hélt með Arsenal af því að
43 vinir mínir héldu með Arsenal
44 Já,
45 en, svo byrjaði ég að fylgjast með
46 og, svona, og
47 og, svona sjá hvaða lið var hvað
48 og svo, svo hjálpaði það að, það var fjölskylduvinur sem var í liðinu um þetta leyti.
49 Nú?
50 Hvað er það?
51 Þannig að, tvö þúsund og fjögur var Bjarni Þór Viðarsson í Everton.
52 Jájá, alveg rétt.
53 Og, fjölskyldur okkar eru nátengdar
54 Og eru þá
55 eru einhverjir fleiri Íslendingar þá sko fyrir utan allavega Gylfa?
56 Hafa þessir tveir bara verið eða?
57 Fyrir utan þá tvo þá veit ég allavegana ekki um neinn annan.
58 En,
59 en hefurðu hérna spilað eitthvað fótbolta sjálfur?
60 Er þetta ekki, ég hef aldrei æft persónulega
61 en
62 það er, við strákarnir sem voru í grunnskóla við, svona höfum haft svona lítinn hóp okkar sem hittumst til að spila smá fótbolta af og til
63 Já,
64 svo að ég hef verið að spila þetta, svona aðeins
65 þótt að ég hef aldrei æft þetta
66 já, hefurðu þá verið að spila innanhúss eða? Já já.
67 en, bíddu, en við hittumst oftast bara á svona litlum velli fyrir utan grunnskóla, hann er oftast laus.
68 En hvað segirðu um stöðu hérna,
69 Gylfa núna í Everton? Einmitt.
70 Já, [UNK] maður, svona vill ekki leyfa sér að hafa skoðun, af því að þetta er, eitthvað virkt mál.
71 Það er voða erfitt að taka einhverja afstöðu á meðan maður hefur ekki nægar upplýsingar.
72 Já, það er, mér finnst ekki gott að gera það þegar það eru svona virk mál.
73 En þetta er ja, þetta er bara neikvætt, og ég veit ekki hvort maður getur sagt eitthvað meira en það.
74 En hvað hérna?
75 Er einhver, er eitthvað svona annað, aðrar íþróttagreinar sem þú fylgist með eða?
76 Nei, ekki, í rauninni ekki.
77 Ég hef, svona aðeins horft á aðrar íþróttir, handbolta og körfubolta.
78 En ég hef aldrei orðið svona eitthvað djúpt sokkinn í þau
79 en ég hef oft giskað, það ef ég myndi vera Ameríkani, þá myndi ég örugglega fíla hafnabolta.
80 En, ég, það er bara mín ágiskun, ég, mér finnst eins og það er eitthvað sem myndi passa við mig.
81 Ég hérna, ég bjó nú í Bandaríkjunum
82 í nokkur ár
83 og reyndi svona eftir bestu getu að koma mér inn í þennan hafnabolta
84 en það, þetta kveikti aldrei neitt í mér.
85 Mér fannst einhvern veginn vanta, vantar hérna
86 Já,
87 svona action.
88 ég held að, að, að, ég held að þeir tala um að þessi íþrótt er níutíu prósent stærðfræði.
89 Já,
90 Það er, það er ekki bara action, það eru útreikningar og meðaltöl, eitthvað svona, þannig.
91 Bandaríkjamenn líka, þeir velta sér mjög mikið upp við tölfræði í öllum íþróttagreinum.
92 Já, ég hef séð það
93 það eru mjög margar tölur um hvern einasta leikmann,
94 alveg sama hvaða íþrótt það er,
95 Já, en hann handboltinn það er nú reyndar eitthvað sem ég fylgist mjög vel með, eða svona alla vega þegar að íslenska landsliðið er að keppa sko.
96 já, það hjálpar að
97 þetta er íþrótt þar sem Ísland er, svona, ágætlega gott
98 En hvað hérna, hvað með svona hugaríþróttir eins og skák,
99 en ég hef teflt, það, það var til, það hefur verið til skákborð heima, alveg áður en ég var fæddur.
100 hefurðu eitthvað verið að tefla?
101 Svo að það var alltaf til.
102 Og, jú, ég tefldi svona með svona öðrum.
103 Og ég, ég get ekki sagt hvort að ég er eitthvað góður í því.
104 Ég get allavegana sagt að ég kann reglurnar.
105 Kannt mannganginn, já,
106 ég sjálfur hef hérna
107 teflt mikið í gegnum tíðina,
108 ég byrjaði snemma
109 þegar ég var strákur að æfa skák
110 uppi í Taflfélagi Reykjavíkur
111 og var síðan reyndar kominn á tímabili þegar ég var svona í kringum tvítugt,
112 þá er ég kominn í stigalista í topp tuttugu og fimm
113 á á Íslandi
114 Já.
115 en síðan raunverulega hætti ég þessu að mestu leyti. Sko,
116 Ókei, bara [UNK]
117 og ég, maður fór náttúrulega að gera annað og fór í nám og bæði hér heima og svo aftur úti og svo
118 Reyndar er það þannig með skákina að til að halda sér
119 í mjög góðu formi
120 og svona
121 í topp
122 með topp hérna
123 skákmönnunum. Þá er það rosalega mikil vinna
124 og maður sér það sko á
125 þessum skákmönnum sem að
126 ná lengst að
127 það er gríðarlega mikil vinna á bak við það og getur verið, það er oft talað um það sko að skákin sé hún er mjög mikil einstaklingsíþrótt
128
129 vegna þess að menn eru oft að
130 kannski stúdera byrjanir og fræði í skákinni sko marga klukkutíma á dag
131 og það getur. Það er oft talað um að þetta geti haft svona frekar slæm félagsleg áhrif. Sko,
132 að menn verði svona
133 kannski dálítið sko, menn loki sig dálítið mikið af, það sé vandamálið.
134
135 Sko, það er oft talað um að skákin sé
136 íþrótt, list og vísindi
137 já,
138 og vísindahlutinn af skákinni er raunverulega þetta að að hérna
139 analísera sko, greina skákir og finna nýjungar, nýja leiki.
140 Til dæmis í þekktum stöðum, koma á óvart, koma andstæðingnum á óvart til dæmis. Það er svona
141 ákveðinn hluti af skákinni en stór hluti af skákinni er svona sálfræði sko.
142 já,
143 Þetta er, þetta er kannski það sem er svona vísindahlutinn af þessu
144 og
145 svo er auðvitað talað um þú veist að hérna
146 skákin sé list líka vegna þess að það er hægt að
147 tefla mjög fallegar skákir.
148 Forna drottningunni fyrir mát eða eitthvað og úr því verður einhvers konar list
149 já,
150 Það er ákveðin svona listsköpun eða sköpun á meðan menn eru að tefla.
151 Og sko svo er þessi
152 síðasti þáttur íþrótt, það er talað um að skákin sé íþrótt líka.
153 Ég meina hún er náttúrlega augljóslega hugaríþrótt en svo er í skákinni núna eins og svo sem í mörgu öðru sko eða flestu öðru, að það skiptir bara miklu máli að þeir sem eru að tefla séu í góðu líkamlegu formi. Hérna af því að
154 það hefur líka bara áhrif.
155 Það er erfitt að aðskilja huga og líkama, þannig að ef maður er í góðu líkamlegu formi þá getur það hjálpað mönnum mjög mikið til þess að
156 tefla betur, líka bara af því að úthald skipti máli. Mörg af þessum mótum eru mjög löng.
157 já,
158 Það hefur verið að tefla kannski marga klukkutíma líka á dag. Sko, þannig að hérna
159 þetta er orðið, líkamlegt form er farið að skipta miklu meira máli heldur en var áður. Sko.
160 já,
161 en, þarna, um þennan sálfræðilega hluta
162 þar sem, svona, maður er að, svona, að
163 taka andstæðinginn sinn út af laginu
164 Já,
165 ég er að lesa bók um, svona, um gervigreind.
166 já,
167 Þar var verið að fjalla um, um þegar tölva
168 vann heimsmeistara í fyrsta skipti.
169 já, já, hann Kasparov.
170 Ég held að það var [UNK] .
171 Það, það var talað um það, að eitt af [HIK:þei], eitt af því sem hann gerði mjög vel var að, að taka andstæðinginn út af laginu,
172 og svona vinna með sálfræðina, og, að, þegar hann var að keppa gegn tölvunni þá, þá var það bara alls ekki hægt að gera það.
173 já,
174 Hann, maður gæti ekki tekið tölvuna út af leginu, hún er bara að gera útreikninga.
175 já, þetta er alveg rétt, sko Kasparov og hann var svona þekktur fyrir það að
176 Og
177 að sýna mjög miklar svona
178 tilfinningar við skákborðið
179 og sérstaklega kannski sérstaklega þegar hann var kominn, þegar hann taldi sig sjálfan vera kominn með betri stöðu og jafnvel unna stöðu,
180 þá setti hann svona ákveðinn svip.
181 svona sigurmanns svip upp
182 og að einhverju leyti kannski
183 til þess að taka andstæðinginn á taugum og, en hann gerði þetta reyndar líka þegar hann var kominn í vandræði,
184 það var nú kannski ekki alveg nógu sniðugt hjá honum að hann,
185 hann svona
186 hann gaf líka andstæðingnum til kynna að andstæðingurinn væri jafnvel kominn með betri stöðu sko,
187 af því að honum leið, Kasparov leið ekki vel. Þegar hann var kominn með verra tafl sko
188 Já, já, já, nákvæmlega
189 en þetta náttúrulega einmitt,
190 þýðir lítið að sýna að þessi viðbrögð, á móti tölvu, sýna tilfinningar,
191 og þetta reyndar
192 hefur einmitt breytt skákinni dálítið mikið
193 vegna þess að hún er búin að færast svo mikið online.
194 já,
195 Og náttúrlega sérstaklega auðvitað í Covid tíma sko.
196 Að hérna, nú tefla menn mjög mikið á
197 netinu og,
198 ég geri það sjálfur, ég hef ekki mætt í skákmót í mörg ár, svona sem sagt
199 þar sem menn mætast við skákborðið sko,
200 en hef verið að tefla í svona kannski einhverjum hraðskákir á netinu
201 og
202 þetta, maður finnur auðvitað þetta sko að þennan þennan þátt vantar. Hann hverfur að verulegu leyti sko úr
203 skákinni þegar maður er að tefla svona á netinu þetta og geta séð andstæðinginn, geta séð hvernig hann bregst við, geta hérna
204 leikið sko
205 leikið einhverjum leikjum með einhverjum, jafnvel með einhverjum svona tilþrifum skilurðu, þannig að það hafi áhrif á andstæðinginn.
206 já,
207 Allt þetta hverfur sko þegar maður teflir svona,
208 teflir svona online sko.
209 Já, þetta er eitthvað sem maður þarf að æfa af því að væntanlega eru, eru öll stórmót, öll í persónu,
210 Já, þau hafa sko að minnsta kosti hafa þau verið það í gegnum tíðina, þau hafa náttúrulega verið öll í persónu.
211 en nú er farið að halda stórmót
212 svona. Ja, það er spurning já, stórmót, og ja, sko ekki kannski alvarlegri mótin
213 sko, það hafa verið haldin stórmót á á hjá topp skákmönnum. Þá urðu þeir að tefla
214 það sem kallast atskákir,
215 sem eru styttri skákir.
216 Það er til sem heitir hraðskákir þar sem er yfirleitt svona fimm mínútur eða minna.
217 Svo eru atskákir sem eru svona tuttugu og fimm mínútur til fimm mínútur
218 og svo er í þriðja flokki
219 sem kallast kappskákir, sem að er þessi hefðbundna skák þar sem maður menn sitja lengi við, skákborðið
220 já, og hugsa um brögðin, sem að, margar mýtur.
221 og já,
222 einmitt og það. Ég meina til dæmis þegar er verið að keppa um heimsmeistaratitil þá er náttúrlega alltaf verið að nota kappskákir, langar skákir,
223 og hingað til hefur ekkert heimsmeistaraeinvígi verið haldið öðruvísi heldur en að menn mætist sko face to face.
224 Og það er erfitt að sjá að að það verði breyting á því sko
225 Já,
226 og svo náttúrulega líka sko,
227 það sem hefur komið með
228 þessari hérna
229 skák á netinu, að það eru auðvitað svindlmál sem komu upp.
230 já, það myndi vera eitthvað sem þyrfti að hafa góða sýn á.
231 Já, já,
232 já, já þannig að þetta er svona.
233 Það eru mjög athyglisverðir og skemmtilegir punktar sem menn geta velt sér upp úr í þessari skák og og menn hafa verið af því við erum að tala um þessi svindl,
234 menn geta verið mjög hugmyndaríkir, sko með með svindl og það þarf ekki einu sinni
235 þarf ekki einu sinni
236 sko skák yfir netið til þess að svindla vegna þess að
237 mig minnir að hafi komið upp í síðasta Reykjavíkurskákmóti,
238 þá var,
239 þá var keppandi sem sagt að tefla hérna á staðnum. Þetta var í Hörpu
240 og andstæðingurinn tekur eftir því að að þessi skákmaður fer óvenju oft fram, sem sagt stendur upp og fer fram.
241 Og hann,
242 hann talar við skákstjórann, hann dómarann
243 og biður dómarann um að hérna
244 fylgja honum eftir
245 og þá kemur í ljós að þessi, andstæðingurinn, þessi sem stóð svona oft upp, hann fór alltaf á klósettið
246 og dómarinn síðan athugaði málið og þá var hann með síma
247 á klósettinu sem hann hafði falið einhvern veginn bak við klósett,
248 klósettið sjálft eða eitthvað svoleiðis
249 og það er náttúrlega þannig í þessum skákmótum, það má ekki vera með sína vegna þess að símar eru náttúrlega bara, sími er bara öflug tölva
250 Já,
251 sem þú getur verið með svona skák algorithma eða reikni
252 skákforrit sem að hérna gefa þér bestu leiðir. En þá var þessi sem sagt, hann stóð alltaf upp, labbaði reglulega inn á klósett, sló stöðuna inn
253
254 til þess að fá
255 bestu leikina. Sko,
256 já, þar sem, bara, lítið forrit,
257 segir honum hvað besta, besta bragð er í þessa stöðu.
258 já,
259 já,
260 þessar þessar náttúrlega tölvur sko
261 skáktölvur eru orðnar svo rosalega öflugar og meira að segja að símarnir, þó þó það sé verið að keyra
262 skákforrit í síma
263 þá á maður raunverulega nánast engan möguleika á móti því sko. Þetta er orðið svo öflugt.
264 Já,
265 Þróunin er orðin svakaleg í þessu
266 og
267 hérna, ég meina, Kasparov sem þú nefndir þarna, Kasparov tapaði fyrir þessari ofurtölvu þarna. Hvenær var þetta aftur?
268 Tvö þúsund, rétt fyrir árið tvö þúsund, minnir mig.
269 Að þá geturðu ímyndað þér hvernig núna á ekki nokkur af þessum bestu stórmeisturum í heimi eiga ekki nokkurn möguleika gegn tölvum sko.
270 Þetta hefur svona gjörbreytt landslaginu í skákinni.
271 En hvað segirðu hérna?
272 Það hefur náttúrulega ekkert verið hægt að ferðast neitt í þessum covid tíma. Hefurðu eitthvað, fórstu eitthvað í sumar?
273 Eitthvað út á land?
274 Má ég sjá,
275 nei, í rauninni ekki. Þetta var mjög ferðalítið sumar.
276 Já,
277 Í, í fyrra, þá fær maður svona [HIK:í þessum] í þessu hugarástandi að ferðast innanlands, skoða svona hvað er á landinu, fór til Selfoss og Flúða og Hveragerðis.
278 Alveg svona ýmsa staði, en þetta sumar, þá, þá var þetta meira svona að vilja bara vera heima.
279 já,
280 Frekar bara að nýta einhverja sólardaga úti á svölum í staðinn fyrir að keyra einhverjar vegalengdir,
281 þú varst í Reykjavík bara mestan tímann.
282 já, bara á höfuðborgarsvæðinu.
283 Þannig að þú hefur ekki náð hérna hitabylgjunni þarna fyrir austan eins og ég náði.
284 Nei, það, ég hef, ég náði ekki að nýta sólardagana sem, eins vel og ég hefði getað.
285 Og, varst þú fyrir austan í sumar?
286 Já, ég náði þarna,
287 sko ég fór á Egilsstaði
288 og Egilsstaði og Hallormsstað og náði þar, ja hvað tæpar tuttugu og ein gráða þá sko.
289 En ef ég hefði verið viku fyrr þá hefði ég náð þarna þessum tuttugu og sex, sjö gráðum sem voru,
290 ekki það að mér fannst þetta alveg nógu heitt sko.
291 Þetta var ótrúlega gott veður þarna.
292 Já,
293 varstu þá að elta sólina?
294 Já, raunverulega á maður að gera það. Sko,
295 maður sá veðurspána og í hvað stefndi, þannig að
296 við keyrðum þarna austur, fórum suðurleiðina austur og
297 gistum, þarna í bændagistingu á nokkrum stöðum, byrjuðum þarna á Hala í Suðursveit
298 sem er hérna svona vestan við Höfn í Hornafirði.
299 Svo vorum við á Fáskrúðsfirði, það var líka mjög gott veður þar.
300 Svo vorum við sem sagt á Egilsstöðum og Hallormsstað
301 og enduðum svo á Mývatni
302 og alls staðar var nema það kom ekki dropi úr lofti, sko, þetta voru einhverjar fimm, sex nætur.
303 Það kom ekki dropi úr lofti.
304 Þetta var dálítið magnað.
305 En svo var á meðan var náttúrlega ekki gott, eða ekkert sérstakt veður hérna í Reykjavík. Ég meina, var ekki talað um að sólin hafi ekki látið sjá sig svo vikum skiptir sko
306 Það, það virtist vera þannig.
307 Kannski virtst það vera svo langt af því, af því að maður heyrði um sólina á, á hinum landshlutunum.
308 já,
309 einmitt,
310 En, ertu,
311 svo og svo kom hún reyndar. Þarna
312 kom núna góður kafli hérna í ágúst í Reykjavík, sko
313 já, það var svona aðeins svona fínt veður í seinni partinn, sumars. En núna virðist vera sílækkandi líkur á einhverjum sólardögum fram undan.
314 Ég er á, ég er á Akranesi núna.
315 Þar er, það er svo grátt og myglulegt að það er enn þá kveikt á götuljósunum.
316 já.
317 En hvað hérna,
318 en svona almennt með ferðalög sko,
319 hugsum um hérna fyrir Covid, hefur, hefurðu verið eitthvað að ferðast
320 til, ég meina eins og í Evrópu,
321 jafnvel til annarra heimsálfa?
322 Ég, ég hef farið til ýmissa landa, svona aðallega í, í gamla daga í, í svona fjölskylduferðum.
323 Já,
324 Þá, við fórum alveg Ítalíu, Frakkland, Spánn, nei, Svíþjóð, Danmörk og alls konar.
325 Ég á samt eftir að fara fyrir utan Evrópu
326 Ég á, ég á eftir að gera það.
327 já.
328 Ekki komið til Ameríku þá?
329 Nei, ekki einu sinni.
330 En ég á mikið af fjölskyldu í Svíþjóð. Svo að þegar við förum, svona næst til útlanda, þá verður það, verður það örugglega fyrsta ferðin.
331 En hvar í Svíþjóð?
332 Aðallega í Gautaborg.
333 Gautaborg, já.
334 Svo ég held að nokkrir hafi flutt til Stokkhólms.
335 Já, einmitt,
336 Svo er, svo, já, svo var ein fjölskylda þar, að flytja svo frá Svíþjóð til Spánar á þessu ári.
337 já, alltaf gott að vera í Svíþjóð.
338 Já,
339 Svo að, það þarf að fara aðeins lengra til að heimsækja þau.
340 já, einmitt.
341 En hvað sko?
342 En ég meina, hvaða, hvaða heimsálfu myndirðu vilja fara til ef að þú hefðir tækifæri til núna?
343 Já, það er alveg fullt af stöðum og löndum og borgum sem ég vil einhvern tímann heimsækja.
344 Já,
345 Hérna, New York og Tókýó og [HIK:Syd] Sydney
346 Og, það er, það er svo margt sem maður getur séð.
347 Það er bara, að svona að gera tíma þegar, þegar tækifæri gefst, það væri
348 ég myndi mæla með New York,
349 ég bjó sjálfur sko í New York
350 í hérna þrjú ár sko
351 og það er alveg rosalega gaman, að, að, að minnsta kosti er gaman að búa þar
352 í ákveðinn tíma.
353 Ég gæti reyndar ekki hugsað mér að búa þar
354 fyrir lífstíð
355 en það er sérstaklega gaman, held ég, að vera þarna í ákveðinn tíma.
356 Því þarna er sko, þá sér maður en stundum er sagt allra þjóða kvikindi sko.
357 Þetta er alveg ótrúlega fjölbreytt mannlíf.
358 Sér fólk raunverulega bara hvaðanæva úr heiminum þarna, sko.
359 Já,
360 Er svona, þetta er svona þverskurður af heiminum sem kemur þarna saman, sko.
361 já, það, eða ég held að New York, á þetta ekki að vera ein, ein svona, svona litríkasta borg í heiminum?
362 Ég gæti vel trúað því sko,
363 já, já, það má segja að
364 Frekar kannski London? Já.
365 það er ekkert ósvipað í London, en samt held ég að það sé meiri fjölbreytni í New York.
366 Já, það er, já, ég veit ekki hvort maður myndi vilja búa þar eða bara fara þangað í viku sem túristi, en annaðhvort þá, þá er það [UNK] að [HIK:seg] að geta sagt að maður hafi farið þangað.
367 Og það er sérstaklega gaman að sko ef þú einhvern tímann hefur tækifæri til að fara til New York
368 Já,
369 að ganga bara um borgina
370 vegna þess að þá þá upplifir maður svo mikið, þetta sem ég er að tala um, mannlíf og sér
371 hérna, allt þetta fólk og sumir eru skrítnir og undarlegir í háttum og
372 og það er bara skemmtilegt sko.
373 Ef þú hefur tækifæri þá væri, myndi ég velja New York númer eitt sko,
374 já,
375 það er, já, ég held að það ætti að vera, heyrðu, já, þa var Tókýó, svona eitt og tvö, það er alveg, kannski áður en ég, áður en ég er þrítugur.
376 já,
377 já,
378 Faraldurinn er búinn.
379 já, ókei, heyrðu, eigum við ekki bara segja þetta spjall gott í bili hjá okkur?
380 Jú, gott að binda enda á þetta hérna.
381 Já,
382 segjum það. Bless.
383 Heyrumst.
Go back