1 |
Við erum byrjuð,
▶ |
2 |
af því að um daginn vorum við að tala um litlu frænku þína,
▶ |
3 |
Jámm
▶ |
4 |
Já, já
▶ |
5 |
hérna, og þú veist, ertu eitthvað með þeim um, þú veist, jólin eða áramótin eða eitthvað svona?
▶ |
6 |
já, við sem sagt, það er svona, það er alltaf svona [HIK:stórfjö], já ókei ekki stórfjölskyldu. En það er alltaf matarboð sem sagt á jóladag
▶ |
7 |
þar sem að ég og systkini mín og amma og afi og við komum öll í mat heima hjá mömmu.
▶ |
8 |
Eru krakkarnir þá mikið að tala um, þú veist jólagjafirnar sínar og eitthvað?
▶ |
9 |
Já, ég meina, þetta er náttúrlega bara daginn eftir aðfangadag,
▶ |
10 |
þannig að þá eru þau oft eitthvað oh, ég fékk þetta! [HL:ba ba ba] eitthvað.
▶ |
11 |
Já, af því ég, þú veist.
▶ |
12 |
Ókei, mig langar í börn og ég er svo spennt að fá að upplifa þetta.
▶ |
13 |
Af því að það tala svo margir um það svona, þú veist.
▶ |
14 |
Maður er kannski, ég veit það ekki, tólf, þrettán, fjórtán eða eitthvað, þegar maður svona
▶ |
15 |
missir jólaandann smá, eða þú veist, ég man alveg eftir því þegar jólin voru bara einhvern veginn það sérstakasta í heimi
▶ |
16 |
Já,
▶ |
17 |
já, sama hér.
▶ |
18 |
og mig langar alltaf svo að endurupplifa það. En það einhvern veginn kemur aldrei alveg aftur eins og þegar maður var barn.
▶ |
19 |
Nei, maður getur, já maður kannski svona nær að upplifa það að hluta til aftur í gegnum sitt eigið barn. Þegar maður er að, þegar maður er að plata það.
▶ |
20 |
Já, þú veist, ég er einmitt svo spennt fyrir því
▶ |
21 |
Já, ég fatta hvað þú meinar.
▶ |
22 |
en, þú veist, ég held að maður geti alveg líka séð það í gegnum yngri systkini eða lítil frændsystkini og svona.
▶ |
23 |
Já, já, pottþétt,
▶ |
24 |
já, hún þarna,
▶ |
25 |
systir mín hún, ég var þú veist í heimsókn hjá henni um daginn og hún var einmitt svona að segja mér hvað
▶ |
26 |
hún væri að gera fyrir krakkana, hún keypti eitthvað svona.
▶ |
27 |
Æ þetta er eitthvað, þetta þarna, Elf on a Shelf dótið.
▶ |
28 |
[UNK]
▶ |
29 |
[UNK]. Hún keypti þannig álf sem að
▶ |
30 |
heitir víst Nilli.
▶ |
31 |
Ég veit ekki af hverju, en hún keypti hann og var að útskýra þetta fyrir mér að, alltaf á hverri nóttu þá fer hann og gerir eitthvað skrítið,
▶ |
32 |
Einhver svona prakkarastrik.
▶ |
33 |
eitthvað prakkarastrik og krakkarnir þurfa að finna hann daginn eftir og
▶ |
34 |
og þú veist. Hugmyndin er að hann sé svona aðstoðarmaður jólasveinanna eða, eða eitthvað í þá áttina
▶ |
35 |
og já systir mín
▶ |
36 |
var allavega bara að tala um hvað, sem sagt litli frændi minn hann. Hann er alveg búinn að fatta sko að, að jólasveinninn er ekki til og eitthvað da da da.
▶ |
37 |
En hann er samt rosa góður í að, sko leika með fyrir, fyrir litlu systur sína.
▶ |
38 |
Það er mjög krúttlegt.
▶ |
39 |
En fær hann samt ekki enn þá í skóinn?
▶ |
40 |
Jú, jú, jújújú,
▶ |
41 |
ef hann fengi ekki, hann er náttúrlega, hann er pinkulítill enn þá en, þú veist,
▶ |
42 |
En [HIK: mé], mér finnst hann svo lítill enn þá eða svona, þú veist.
▶ |
43 |
sko náttúrlega, í fyrsta lagi myndi það,
▶ |
44 |
það myndi svolítið svona, skemma fyrir, eða þú veist,
▶ |
45 |
ef litla frænka mín myndi byrja að sjá, bara: „Ha, af hverju ert þú ekki að fá í skóinn? Brósi.“
▶ |
46 |
Þá, þá myndi,
▶ |
47 |
þá myndi þetta vera uppljóstrað
▶ |
48 |
og svo líka ég meina eins og ég, ég, þú veist, var einhvern tímann,
▶ |
49 |
ég veit ekki nákvæmlega hvenær en einhvern tíma búinn að fatta að þetta væru mamma og pabbi að setja gjafir í skóinn minn
▶ |
50 |
en ég ætlaði ekkert að leyfa þeim að hætta því.
▶ |
51 |
Einmitt, nákvæmlega.
▶ |
52 |
Já, ég fæ alltaf gjöf frá Kertasníki enn þá, mér finnst það mjög gaman.
▶ |
53 |
Jámm, [UNK], það er.
▶ |
54 |
Þá fæ ég oft svona snakk og kók og eitthvað,
▶ |
55 |
Ahh, namm
▶ |
56 |
það er geggjað, og sjampó og eitthvað svona sem maður getur notað líka,
▶ |
57 |
mér finnst það geðveikt.
▶ |
58 |
Já, ég einmitt, [HIK:mé], mér finnst það geggjað að fá, að geyma, eða þú veist hafa bara síðasta, að því að sko, [UNK]
▶ |
59 |
þrettán litlar gjafir er svo mikið.
▶ |
60 |
Það er mjög mikið, já.
▶ |
61 |
Já.
▶ |
62 |
Ég fríka út að reyna að finna, þú veist, gjöf einu sinni á ári,
▶ |
63 |
það að þurfa að finna gjöf þrettán daga í röð er algjör martröð.
▶ |
64 |
Já,
▶ |
65 |
en náttúrlega þegar maður er yngri, þá er alveg,
▶ |
66 |
Já, manni finnst allt geggjað.
▶ |
67 |
já, einmitt, þú veist,
▶ |
68 |
maður kannski fékk mandarínu og Smarties, eða
▶ |
69 |
ég fékk einu sinni, svona, rúllu af kreppappír til að gera músastiga, oh mér fannst það geðveikt.
▶ |
70 |
Já, það er geggjað.
▶ |
71 |
Ég er svona, líka föndurkona eins og þú veist.
▶ |
72 |
Já, já já,
▶ |
73 |
Ég, já, ég er líka bara að hugsa núna, sko
▶ |
74 |
hversu stressandi þetta sé fyrir foreldrið að því að,
▶ |
75 |
eins og ég, ég sko, skrifa alltaf, þú veist, á lítil bréf.
▶ |
76 |
Svona: „Mig langar að fá, geturðu gefið mér þetta núna? Ég er búinn að vera rosa þægur!“ og setti bréfið í skóinn.
▶ |
77 |
en, þú veist, það er ekki eins og mamma og pabbi vakni á nóttunni, fari, kíkja á bréfið, fari þá út í búð til þess að kaupa rétta hluti,
▶ |
78 |
Nei, nákvæmlega.
▶ |
79 |
þannig að þau þurfa, þau þurfa að fatta, að þú veist, spyrja fyrir, annaðhvort, þú veist daginn fyrir eða einhverjum dögum fyrr: „hvað ætlar þú að biðja þennan jólasveininn um?“ svo segir maður þeim það, og þá eru þau eitthvað: „ókei, ókei við þurfum að fara út í búð og.“
▶ |
80 |
Já, einmitt,
▶ |
81 |
já,
▶ |
82 |
þau þurfa að vera svolítið lúmsk, en það er auðvitað alveg hægt að,
▶ |
83 |
þú veist, það er kannski ekki hægt að ætlast til þess að sami jólasveinninn komi með gjöfina, þá nóttina, þú veist það er kannski meira svona. Hann lætur næsta jólasvein vita.
▶ |
84 |
Já, já, það var líka, mig minnir að það sé útskýring sem ég hafi oft fengið.
▶ |
85 |
En ég held að þetta svona, [UNK], ég held þetta mengist líka svolítið af sko, svona [UNK] allar jólamyndirnar og eitthvað sem við sjáum eru náttúrlega frá Bandaríkjunum
▶ |
86 |
Já,
▶ |
87 |
og þar er einhvern veginn alltaf eins og jólasveinninn sé með svona risastóran sekk með bara öllum mögulegum gjöfum.
▶ |
88 |
já, einmitt.
▶ |
89 |
Þannig að þá, þá ímyndar maður sér sko sem krakki að ef hann er mættur og sér mig að mig langar í þetta þá sé hann með það í pokanum.
▶ |
90 |
Já, nákvæmlega, algjörlega.
▶ |
91 |
En íslensku jólasveinarnir eru alveg eins miklir kapítalistar og ameríski jólasveinninn kannski.
▶ |
92 |
Nei, nei,
▶ |
93 |
nei, nei, nei.
▶ |
94 |
Coca-Cola jólasveinn, þeir eru reyndar allir komnir á samning hjá Coca-Cola sýnist mér en.
▶ |
95 |
Já, íslensku jólasveinarnir.
▶ |
96 |
Já,
▶ |
97 |
Já.
▶ |
98 |
Við erum svo
▶ |
99 |
Ameríkuvænn, náttúrulega.
▶ |
100 |
já,
▶ |
101 |
En mér finnst einmitt pínu skemmtilegt núna,
▶ |
102 |
eins og ég sá á Facebook að litli frændi minn var svo áhyggjufullur,
▶ |
103 |
að hann vissi ekki hvort jólasveinarnir kæmust út af Covid
▶ |
104 |
A, æi,
▶ |
105 |
og ég var náttúrlega ekkert búin að pæla í því af því að ég er fullorðin, eða á að vera það.
▶ |
106 |
en nei, já já,
▶ |
107 |
En mér finnst svo, ég elska þegar börn pæla ótrúlega skynsamlega í einhverju svona ævintýradóti
▶ |
108 |
já
▶ |
109 |
og hérna, en mamma hans sagði honum að það væri allt í lagi af því að þeir myndu bara nota spritt og svona.
▶ |
110 |
Og grímur örugglega líka, ég meina, þá er það allt í lagi.
▶ |
111 |
Æ, það er ótrúlega,
▶ |
112 |
það er ótrúlega krúttlegt.
▶ |
113 |
Já, mér finnst það svo sætt.
▶ |
114 |
Hundurinn var að koma.
▶ |
115 |
En hérna.
▶ |
116 |
Já, ég ætlaði að spyrja
▶ |
117 |
af því þú varst að tala um þarna, jólaboðið á jóladag.
▶ |
118 |
Jámm, jámm,
▶ |
119 |
Hvað borðið þið?
▶ |
120 |
sko, ókei,
▶ |
121 |
í því boði, á jóladag, þá er alltaf strangt, hangikjöt, laufabrauð, uppstúfur. Sko, það.
▶ |
122 |
Já, það er svolítið þannig hjá okkur líka, á jóladag, eða þú veist,
▶ |
123 |
vanalega, það svona má vera
▶ |
124 |
hamborgarhryggur eða hangikjöt, þú veist
▶ |
125 |
það má alveg svissa, hvort það sé jóladagur eða aðfangadagur,
▶ |
126 |
það skiptir ekki máli.
▶ |
127 |
Ég skil þig.
▶ |
128 |
[UNK]
▶ |
129 |
Já, ég veit ekki einmitt hvenær en það var einhvern tíma, þegar ég var krakki. Þá byrjaði ég að uppgötva að jólahefðir annarra voru svolítið öðruvísi en heima hjá mér. Mér fannst það algjör skandall!
▶ |
130 |
eins og til dæmis þegar ég uppgötvaði það að sumir, og meira að segja bara mjög margir,
▶ |
131 |
borða hangikjöt á aðfangadag,
▶ |
132 |
Já, ég hef alveg gert það.
▶ |
133 |
[UNK], og mér finnst það bara út í hött.
▶ |
134 |
Já, mér finnst
▶ |
135 |
mér finnst passa betur að hafa hamborgarhrygg á aðfangadag og hangikjöt á,
▶ |
136 |
æi, ég veit það samt ekki,
▶ |
137 |
mér finnst bara bæði passa af því við höfum gert bæði.
▶ |
138 |
Já, mér finnst hamborgarahryggur á aðfangadag líka út í hött.
▶ |
139 |
Já, þú ert náttúrulega með rjúpur.
▶ |
140 |
Já, mér finnst allt nema rjúpur, á aðfangadag vera út í hött,
▶ |
141 |
Fáránlegt, já.
▶ |
142 |
ja, nema, einmitt, þú veist
▶ |
143 |
það voru þarna þessi tvö jól einhvern tímann þegar að rjúpuveiðar voru bannaðar,
▶ |
144 |
[HIK:þa], þá,
▶ |
145 |
annað af þeim skiptum þá vorum við með kalkún. Ég man ekki hitt, það var pottþétt hamborgarahryggur.
▶ |
146 |
mér finnst kalkúnn vera, bara áramótamatur.
▶ |
147 |
Vá, ókei, ég er nefnilega, ég er ekki með neinn sérstakan áramótamat, það er bara svona,
▶ |
148 |
þú veist, Já, ég er með mjög fast, aðfangadagur verður að vera rjúpa, jóladagur verður að vera, þarna,
▶ |
149 |
hangikjöt og svo annar í jólum, þá er alltaf sko eiginlega sama boð, nema heima hjá ömmu og afa.
▶ |
150 |
Og þá er eiginlega alltaf sko
▶ |
151 |
lambafille og, og hugsanlega afgangar af hamborgarahrygg,
▶ |
152 |
Bíddu, hver er með jóladagsboðið?
▶ |
153 |
mamma,
▶ |
154 |
Mamma, já mamma þín, þannig að þið hittist heima hjá ykkur?
▶ |
155 |
já, já, já, já.
▶ |
156 |
Já, ókei,
▶ |
157 |
Og, [UNK], svo er það allt sama liðið, sem fer sko í boðið næsta dag nema það er heima hjá ömmu og afa,
▶ |
158 |
já, vá, það er alveg mikið.
▶ |
159 |
þetta er mjög stíf, þetta er mjög stíf hefð, en svo eru áramótin alltaf bara svona eitthvað.
▶ |
160 |
Þú veist, við erum bara einhvers staðar, við svissum mjög oft upp heima hjá hverjum við erum,
▶ |
161 |
maturinn er bara svona eitthvað sem okkur dettur í hug.
▶ |
162 |
Nefnilega ekki mikið að fara í jólaboð.
▶ |
163 |
Það var kannski verið hjá afa og konunni hans. En
▶ |
164 |
annars ekki jú, reyndar amma mín á afmæli á Þorláksmessu.
▶ |
165 |
Þannig að mér finnst alltaf gaman að fara til hennar þá.
▶ |
166 |
En svona milli jóla og nýárs er ekki mikið, endilega
▶ |
167 |
Já ókei, það er alltaf, það er alltaf einmitt sko, alltaf stíft jóladagur og annar í jólum er stíft prógramm
▶ |
168 |
eitthvað svona, stíft á hverju ári.
▶ |
169 |
og náttúrulega aðfangadagur, það eru þrír dagar þarna í röð og fjórir ef þú telur Þorláksmessu og mamma og pabbi reyna að draga mig í skötuboð,
▶ |
170 |
En svo,
▶ |
171 |
já, mér finnst mjög gaman að fara í skötuboð, mér finnst það svona
▶ |
172 |
alveg upplifun, en ég hef aldrei smakkað skötu sjálf.
▶ |
173 |
sko, ég fór í fyrsta skipti á ævinni í skötuboð í fyrra
▶ |
174 |
og og ég, það tók mig nokkrar tilraunir að ganga inn í húsið af því að ég kúgaðist bara á lyktinni.
▶ |
175 |
Já, það var, það var svakalegt sko, ég veit ekki
▶ |
176 |
þú veist, ég er bara ekki nógu vanur þessu af því að loka mig alltaf inni í herbergi á Þorláksmessu.
▶ |
177 |
Þannig að já, það tók mig nokkrar tilraunir að komast inn en svo þegar ég komst inn á þá, þú veist, ég pantaði mér einhverja eitthvert
▶ |
178 |
hvað var það? Ég held að það hafi verið lúðupiparsteik
▶ |
179 |
[UNK]
▶ |
180 |
sem sagt, í staðinn fyrir skötu og ég fékk að smakka skötu bara hjá bróður mínum. Allt í lagi, það var allt í lagi, fannst mér ekki jafn vond og lyktin
▶ |
181 |
og svo voru allir líka með bjór og það hjálpaði rosamikið.
▶ |
182 |
Ég trúi því.
▶ |
183 |
En hérna, já ég ætlaði að segja að, áramótin eru alveg frekar mikil hefð hjá mér.
▶ |
184 |
Það er yfirleitt með frænku minni, sem sagt, systur mömmu og fjölskyldur hennar.
▶ |
185 |
Það er svona partí, og svo, þú veist eftir miðnætti koma kannski fleiri.
▶ |
186 |
Já, já
▶ |
187 |
Ég hef líka oft verið með afa mínum og konunni hans.
▶ |
188 |
já,
▶ |
189 |
En hérna, já, og þú veist,
▶ |
190 |
Þannig að það verður alveg pínu [HIK: skr], eða mér finnst mjög skrýtið að í ár
▶ |
191 |
verðum við bara fjölskyldan
▶ |
192 |
en hérna,
▶ |
193 |
en mamma er alveg mjög jákvæð með þetta og er bara eitthvað svona: "Já við höfum þetta bara kósí, og," þannig að þú veist.
▶ |
194 |
Það er líka allt í lagi þó að það sé einu sinni öðruvísi.
▶ |
195 |
já,
▶ |
196 |
já, það er einmitt já, það er eiginlega sko, síðan hjá mér er það þannig að þú veist, það er einmitt bara, við gerum bara eitthvað. En síðan, síðan sem sagt, krakkar systur minnar fæddust, þá höfum við eiginlega alltaf verið með þeim
▶ |
197 |
og sama hvort við erum hérna heima hjá okkur eða heima hjá, heima hjá þeim eða í bústað eða eitthvað,
▶ |
198 |
þannig að þú veist, það er já, það er svona eiginlega eina sem er hefð hjá okkur.
▶ |
199 |
Mér finnst það reyndar alveg mjög, skemmtileg tilhugsun að fara í bústað.
▶ |
200 |
Já, við höfum gert það, kannski svona tvisvar,
▶ |
201 |
þrisvar. Það er, það er mjög gaman.
▶ |
202 |
[HIK:Þa] það er svona öðruvísi, af því þú veist, af því að, af því að mér finnst mjög gaman að vera í borginni og vera umkringdur fáránlega mikið af sprengingum.
▶ |
203 |
Já, ég skil það reyndar alveg.
▶ |
204 |
En það er líka gaman að vera.
▶ |
205 |
Við vorum einhvers staðar [UNK] , ég man ekki nákvæmlega hvar við vorum, einhvers staðar þarna á Suðurlandi
▶ |
206 |
og maður gat alveg séð svona. Já, þarna er svona þyrping af sprengingum að koma upp. Þarna eru Flúðir og þarna er Laugarvatn og
▶ |
207 |
[UNK], sjá svona, það var alveg þétt náttúrulega yfir byggðunum.
▶ |
208 |
Svo þurftum við að, þú veist,
▶ |
209 |
við þurfum eitthvað að tala við bóndann sem var á bóndabænum við hliðinni á bústaðnum til þess að fá leyfi til að skjóta upp af því að hann var með hesta og eitthvað.
▶ |
210 |
Ég held að það geti verið rosalegt, með svona dýr. Maður þarf að passa það vel, en hundurinn minn er reyndar,
▶ |
211 |
eiginlega ekki hræddur við neitt,
▶ |
212 |
honum er svo sama.
▶ |
213 |
Jæja, ókei, vá,
▶ |
214 |
Já, eða þú veist,
▶ |
215 |
það var allavega það sem pabbi sagði, ég svona pældi ekkert mikið í
▶ |
216 |
en hann var bara: "Já, hann var bara geðveikt rólegur og pældi ekkert í þessu og."
▶ |
217 |
En þú veist, hann hefur líka alltaf verið svona
▶ |
218 |
eins og þegar hann var hvolpur, þá var hann bara strax farinn að fara upp og niður stiga, sem er víst ekki alltaf þannig hjá hvolpum.
▶ |
219 |
já ókei,
▶ |
220 |
[HIK:mé], mér finnst hann alltaf vera eitthvað svo taugatrekktur þannig að ég hefði haldið að
▶ |
221 |
hann myndi stressast yfir sprengingunum, en jæja.
▶ |
222 |
Já, eða þú veist, hann er alveg æstur og langar að fara út og eitthvað svona.
▶ |
223 |
En hann er ekki oft hræddur við eitthvað.
▶ |
224 |
Hoh, [UNK]
▶ |
225 |
Ertu búinn að kaupa allar jólagjafir?
▶ |
226 |
Já, ég er en nþá að spá í að kaupa þarna, það sem þú stakkst upp á daginn fyrir mömmu og pabba,
▶ |
227 |
Já, einmitt.
▶ |
228 |
ég held að væri næs,
▶ |
229 |
Ég held ég ætli að gefa eitthvað svipað líka.
▶ |
230 |
en annars er ég svona, kominn með flestallt
▶ |
231 |
Það er reyndar alveg næs af því að,
▶ |
232 |
ég ætla að vera,
▶ |
233 |
við ætlum að gefa saman ég og systur mínar
▶ |
234 |
og svo kærasti eldri systur, eða sem sagt
▶ |
235 |
jájá
▶ |
236 |
mið, miðsystur hennar, já
▶ |
237 |
miðsysturinnar
▶ |
238 |
þar sem ég er elst,
▶ |
239 |
og svo verður kærastinn minn líka með í því.
▶ |
240 |
Þannig að það er mjög næs að gefa svona, þá getur maður gefið aðeins stærri gjöf.
▶ |
241 |
Guð já, ég
▶ |
242 |
já, ég
▶ |
243 |
Það er erfitt að vera einhleypt einkabarn.
▶ |
244 |
sko ég náttúrlega, treð mér alltaf inn í, bara allar gjafir sem ég get,
▶ |
245 |
þannig að.
▶ |
246 |
Ég held, eða þú veist já, þegar ég segi að ég sé búinn að kaupa allar jólagjafir þá er ég að meina, ég er búinn að rotta mér inn í gjafirnar sem mamma er búin að kaupa handa systkinum mínum og börnum þeirra
▶ |
247 |
Það er samt alveg, þú veist,
▶ |
248 |
mér finnst oft betra að gefa stærri gjafir.
▶ |
249 |
já, ég er sammála
▶ |
250 |
Og að það séu bara fleiri með í því.
▶ |
251 |
já, já, klárlega stærri gjafir eru líka bara skemmtilegri en minni gjafir, þá er hægt að gefa eitthvað meira svona, vá!
▶ |
252 |
Já, nákvæmlega, og
▶ |
253 |
mér finnst við líka bara vera, eða mér finnst ég allavega vera
▶ |
254 |
á þeim aldri að ég á eiginlega allt.
▶ |
255 |
Og ef mig langar virkilega í eitthvað þá kaupi ég það mér það sjálf,
▶ |
256 |
Já,
▶ |
257 |
já, nákvæmlega,
▶ |
258 |
þannig að ég vil frekar fá kannski bara gjafabréf eða eitthvað sem ég get nýtt mér.
▶ |
259 |
já, klárlega. Það eina einmitt mamma spurði hvort að ég hefði eitthvað svona á jólagjafalistanum í ár og það eina sem ég gat sagt var
▶ |
260 |
þráðlaus heyrnartól af því að ég týndi mínum,
▶ |
261 |
þú veist, það er það eina.
▶ |
262 |
Bíddu, áttir þú þráðlaus?
▶ |
263 |
Já, svona Bluetooth
▶ |
264 |
Já, ókei, hérna
▶ |
265 |
Bose eða?
▶ |
266 |
Ókei, nei ég er bara að spá.
▶ |
267 |
man ekki, ég allavegana týndi þeim í strætó.
▶ |
268 |
O vá, það er fúlt.
▶ |
269 |
En ég var samt að fatta eitt, bara út af lyktinni hérna inni hjá mér. Ég er með pizzu í ofninum,
▶ |
270 |
Já, ókei.
▶ |
271 |
búinn að vera með allan þennan tíma,
▶ |
272 |
Ó, ókei.
▶ |
273 |
þannig að
▶ |
274 |
við skulum bara slútta upptökunni.
▶ |
275 |
Gaman að spjalla við þig.
▶ |
276 |
Sömuleiðis.
▶ |