1 |
Þá er þetta byrjað. Hvað segirðu gott? Já. Það er svoleiðis.
▶ |
2 |
Já, byrjar maður á,
▶ |
3 |
ég segi allt gott, jafna mig eftir flensu en þetta fer nú vonandi allt að,
▶ |
4 |
maður fer allur að skríða saman vonandi, úr þessu.
▶ |
5 |
Um leið og, um leið og covid, hérna hægist á
▶ |
6 |
covid þá fara flensurnar af stað aftur þegar fólk fer að hittast. Já, akkúrat.
▶ |
7 |
Þegar maður, þarna, búinn að vera
▶ |
8 |
halda ofnæmiskerfinu sínu [UNK].
▶ |
9 |
Fólk hefur umgengist miklu minna en þau gerir alla jafna og núna, núna
▶ |
10 |
fer það að breytast vonandi, og sem betur fer og
▶ |
11 |
þá hérna, þá fara svona
▶ |
12 |
kvef og pestir að, að hérna, af stað í samfélaginu aftur, sem er reyndar líka gott. Við þurfum að, maður þarf að fá pest reglulega til að halda ónæmiskerfinu við bara á meðan það er ekki,
▶ |
13 |
meðan hún er ekki of slæm. J´, já.
▶ |
14 |
Veðrið er bara ljómandi gott, það er stafalogn og reyndar gengur á með smá rigningarskúrum.
▶ |
15 |
Búið að vera já, í gær var líka svona, gekk á með, það var reyndar, rigndi svolítið mikið seinni partinn í gær en svo er veðurspáin þannig að nú á bara að fara að kólna hérna fyrir norðan og, og bara fara alveg niður í eins, tveggja stiga hita jafnvel
▶ |
16 |
[UNK].
▶ |
17 |
og rigningu. Hér á að grána í fjöll og spáð slyddu og þeir sem eru á leiðinni norður held ég
▶ |
18 |
á föstudag og svo á sunnudag að keyra fjallvegi gætu bara lent í hálku jafnvel.
▶ |
19 |
En það getur bara gerst á Norðurlandi í öllum mánuðum ársins.
▶ |
20 |
Þannig er nú bara Ísland.
▶ |
21 |
Ég ætla, við ætluðum bræðurnir að sameinast, [UNK].
▶ |
22 |
Já,
▶ |
23 |
skynsamlegt,
▶ |
24 |
Leggjum af stað um hálf þrjúleytið, eitthvað svoleiðis.
▶ |
25 |
hljómar vel.
▶ |
26 |
Hvernig er veðrið í Reykjavík?
▶ |
27 |
Voða svipað og þú lýstir. Það er svolítið grátt yfir.
▶ |
28 |
Já. Já, einmitt. Ég var einmitt að spá í hvað ég ætti að hafa í matinn á föstudagskvöld.
▶ |
29 |
Ég finn eitthvað gott þegar ég fer inn á Akureyri.
▶ |
30 |
Ég gleymdi alveg að spá, kom upp einhver spurning hjá þér þá eða?
▶ |
31 |
Hvað eldar þú þegar þú ert að gera vel við þig og þína? Þá mundi ég eftir því að ég ætti eftir að. Mundi eftir þessu. Já, já, og líka versla inn fyrir jarðsetninguna.
▶ |
32 |
Já, já, það. Ætlarðu að versla á Akureyri?
▶ |
33 |
Það spáir allavega þurru veðri á laugardaginn, þannig að
▶ |
34 |
Þetta lúkkaði eins og að, það leit út fyrir að þetta yrði mjög fallegt veður.
▶ |
35 |
það verður gott.
▶ |
36 |
Bjart og kalt.
▶ |
37 |
Já, kalt en fallegt. Já.
▶ |
38 |
Jú.
▶ |
39 |
Maður tekur bara með sér úlpu, er það ekki? Bara dúnúlpu, þykka. Er það ekki? Ég get alveg komið með eitthvað fyrir þig.
▶ |
40 |
Reikna með. Ég tók ekki neitt sko svoleiðis
▶ |
41 |
en maður gæti einmitt þurft á því að halda, já það
▶ |
42 |
gæti orðið bara ansi kalt. Jú. Gæti alveg farið svo. Ég er ekki með neina svoleiðis yfirhöfn sko. Kannski, kannski já, ég allavega spái í
▶ |
43 |
þetta til morguns. Gæti alveg borgað sig.
▶ |
44 |
Ætlar þú að segja eitthvað, varstu búinn að ákveða það? Halda einhverja tölu?
▶ |
45 |
Já, ég ætla að gera það.
▶ |
46 |
Ja, svona bara, byggir svolítið bara á því sem var, því sama og var sagt við jarðarförina.
▶ |
47 |
En meira svona bara, [hik:teng], tengja það staðnum og,
▶ |
48 |
og hérna já, aðallega tengja það staðnum.
▶ |
49 |
En hérna já já, kemur í ljós hvernig ég hef það, ég nota
▶ |
50 |
seinnipartinn á morgun til að undirbúa það.
▶ |
51 |
Spenntur að koma.
▶ |
52 |
Já, þetta verður stutt stopp reyndar.
▶ |
53 |
Þið komið suður hvenær?
▶ |
54 |
Við komum suður á föstudaginn í næstu viku, ég þarf reyndar að koma á mánudagskvöld,
▶ |
55 |
fljúga vestur á miðvikudag fram og til baka og svo aftur til baka á miðvikudagsmorguninn.
▶ |
56 |
Já, alveg rétt.
▶ |
57 |
Verkefni sem kom upp í vinnunni.
▶ |
58 |
Rétt kem og, rétt kem og bara sef blá, sitthvora
▶ |
59 |
blánóttina áður en ég fer aftur til baka. Ég er bara búinn að
▶ |
60 |
Nú fæ ég spurninguna: Hversu oft ferðu út að hreyfa þig? Ertu búinn að vera að hlaupa eitthvað fyrir norðan?
▶ |
61 |
liggja í bælinu með þessa flensu. Ég er bara,
▶ |
62 |
Já, þetta kom bara stuttu eftir að þú mættir náttúrulega.
▶ |
63 |
ég var úti um,
▶ |
64 |
já, ég var jú, við vorum úti við um helgina. Það var
▶ |
65 |
yndislegt veður hérna á laugardaginn, þá var maður úti við og hérna,
▶ |
66 |
byrjaði svona en bara er ég búinn að liggja, vaknaði á, við vorum úti á sunnudaginn líka. Svo vaknaði ég bara á
▶ |
67 |
mánudagsmorguninn og er búinn að vera inni síðan, ég hef ekki farið út fyrir hússins dyr. Nema ég fór í covid test
▶ |
68 |
í gærmorgun,
▶ |
69 |
Alveg rétt. Varstu bara á bátnum?
▶ |
70 |
bara til að vera viss um það að þetta væri ekki covid, af því að maður er að fara að
▶ |
71 |
hitta fullt af fólki, já.
▶ |
72 |
Það gekk fljótt og vel.
▶ |
73 |
Erum við ekki bara öll að koma, eru ekki bara allir að koma þarna með hálf átta á morgun?
▶ |
74 |
Jú, nema að ég held að Heimir verði enn þá seinni, ég held að hann sé að vinna til sjö.
▶ |
75 |
Nei, hann, hann ætlar að hætta tvö.
▶ |
76 |
Já, ég átti víst ekki að nefna nöfn. Já já.
▶ |
77 |
Já, allt í lagi, þetta er bara fornafn.
▶ |
78 |
Nei, nei, allavega
▶ |
79 |
En þetta verður síðan, þetta verður bara merkt.
▶ |
80 |
jú, já, ég veit ég ekki með hvort að bróðir minn nær hálf átta. Alla vega í fyrsta lagi. Eldri bróðir minn.
▶ |
81 |
Svo eru bara allir að koma,
▶ |
82 |
já, þarna annað kvöld og svo, og svo eru allir að fara til baka á, á sunnudag,
▶ |
83 |
Um það leyti.
▶ |
84 |
allavega langflestir. Ekki alveg allir en flestir. Já.
▶ |
85 |
Ég var einmitt að,
▶ |
86 |
við vorum að spjalla í gær. Ég var að telja heillengi uppi í búð. Alveg langt fram á kvöld.
▶ |
87 |
Hann ætlaði, hann ætlaði held ég að hætta tvö.
▶ |
88 |
Þá er hann bara á svipuðu róli og restin, þá er það bara gott.
▶ |
89 |
Já og já, það er fátt leiðinlegra.
▶ |
90 |
Var vörutalning hjá ykkur? Já, já.
▶ |
91 |
Það er fátt leiðinlegra.
▶ |
92 |
Hvað segirðu,
▶ |
93 |
ég get ímyndað mér það, þá er bara verið að telja og tékka á því að lagerstaðan í tölvukerfinu sé sú sama, ekki satt?
▶ |
94 |
Sumar eru alveg örugglega ekki akkúrat, en bara uppfæra það.
▶ |
95 |
Hvert einasta sokkapar.
▶ |
96 |
Já, já, já. Eru sokkapör notuð svona til þess að, til þess að hérna,
▶ |
97 |
blíðka viðskiptavini eða gefa þeim auka afslátt eða? Eru sokkapör notuð sem skiptimynt til þess að svona gera aðeins betur? Já, já. Þá gleymist kannski stundum að skanna? Já, akkúrat. Já, það myndi ég gera.
▶ |
98 |
Já, líka bara, bara selt sko en já, stundum svona hendir maður einu með.
▶ |
99 |
Talningin gæti verið skrýtin.
▶ |
100 |
Myndir þú kaupa sjálfkeyrandi bíl?
▶ |
101 |
Það er náttúrulega komin, Teslan er sjálfkeyrandi þannig að það er hægt að kaupa í dag en hann ræður ekki við mjög mikið af íslenskum aðstæðum enn sem komið er.
▶ |
102 |
En hvernig, hversu langt eru þeir samt komnir?
▶ |
103 |
Það er ennþá. Þú getur það alveg.
▶ |
104 |
Hann getur keyrt sko, hann getur alveg
▶ |
105 |
keyrt sjálfur sko á, og skipt um akreinar og passað alla umferð í kringum sig og, og, og allt svoleiðis, farið á milli staða bara samkvæmt sko, samkvæmt hérna
▶ |
106 |
kortinu í bílnum og ef þú velur bara áfangastað þá getur hann keyrt eftir því.
▶ |
107 |
Er hann þá með þú veist einhvern svona, þú veist, fimmtíu metra fjarlægðar
▶ |
108 |
skynjara skilurðu í allar áttir eða?
▶ |
109 |
Já, já, bara eins og margir bílar eru komnir með, svona nálgunarvara. Margir bílar náttúrlega bara bremsa ef þú ferð of nálægt afturenda á næsta bíl og eitthvað svoleiðis. Og ég held að þetta sé bara,
▶ |
110 |
[UNK].
▶ |
111 |
þetta er að gerast rosalega hratt, þetta er að gerast
▶ |
112 |
rosalega hratt og ég held að um leið og
▶ |
113 |
sjálfkeyrandi bílar sko, það á eftir að þróa þá mjög mikið. Sjálfkeyrandi bílar kunna til dæmis ekki að keyra á malarvegum.
▶ |
114 |
Nei, þegar að þeir verða tilbúnir þá verður lítið eftir af malarvegum.
▶ |
115 |
Þeir þurfa, þeir þurfa hvíta, þeir þurfa hvítar línur og svona en
▶ |
116 |
þróunin er svo hröð að ég held sko að um leið og þetta er orðið nokkuð svona, um leið og
▶ |
117 |
sjálfkeyrandi bílar eru farnir að ráða við
▶ |
118 |
svona flestar aðstæður. Til dæmis
▶ |
119 |
að ráða við skafrenning á Íslandi þar sem þú sérð ekki línurnar og jafnvel sérð ekki veginn og hvað ætlar þú að gera þá? Stoppar þá bara bíllinn? Þegar að maðurinn getur keyrt áfram.
▶ |
120 |
Eða hvort þú getur alltaf tekið við, skilurðu.
▶ |
121 |
Já, já, já, já. En svo þegar þetta verður bara orðið, alla vega innan borg, í borgum, bara orðið bara, bara sjálfkeyrandi bílar, þá held ég að þú hættir að eiga bíl. Nei. Annaðhvort kaupirðu þér bara áskrift að bíl þegar þú þarft á að halda eða þegar þú getur bara pantað með fyrirvara. Þá geturðu sagt: Ókei,
▶ |
122 |
Já, þú meinar það að fólk eigi ekki sína eigin. Áskrift eða eitthvað, já.
▶ |
123 |
ég er að fara í viku ferðalag, ég ætla að panta bílinn, svona stóran bíl í viku.
▶ |
124 |
Og svo þegar maður sér lengra fram í tímann þá verður það bara þannig, að þegar það, á
▶ |
125 |
venjulegum vinnudögum,
▶ |
126 |
þá, þá hleypurðu bíla-, sjálfkeyrandi bílafyrirtækinu, að, gefurðu því aðgang að dagatalinu þínu og merkir bara við hvaða fundi þú þarft bíl á ef að, nema kerfið geti fundið það sjálft út ef það er á öðrum stað en þar sem þú vinnur, eða þar sem þú ert staddur.
▶ |
127 |
Bara sóttur.
▶ |
128 |
Og þá kemur bara bíll og sækir þig og hann er mögulega þá að samnýta ferðina með öðrum
▶ |
129 |
og, og hérna
▶ |
130 |
þú kannski staðfestir já ég þarf bíl, eða nei, ég þarf ekki bíl. Og svo,
▶ |
131 |
á nóttinni og um helgar, þegar það er minni þörf fyrir bíla.
▶ |
132 |
Þá fara þessir bílar bara á einhver, í einhver bílastæðahús fyrir utan borgina.
▶ |
133 |
Ekki bara hlaða sig. Þeir verða bara
▶ |
134 |
teknir út úr borginni þannig að bílarnir séu ekki að taka stæði eða,
▶ |
135 |
Já, þú meinar allir byggingarreitirnir verða þá bara fleiri og.
▶ |
136 |
þá, já, þá þarftu ekki lengur, þá þarftu ekki lengur sko, að reikna með því að allir bílar þurfi stæði eða bílskúr eða bílastæðahús. Bílarnir
▶ |
137 |
koma bara inn í borgirnar eftir þörfinni og fara svo bara út úr borgum, rétt út fyrir borgina, eða einhver geymslusvæði eða eitthvað svona. Ég held að þetta
▶ |
138 |
[UNK].
▶ |
139 |
muni þróast þannig.
▶ |
140 |
Þá gjörbreytist.
▶ |
141 |
Já, þú átt eftir að upplifa þetta.
▶ |
142 |
Ég hef stundum velt því fyrir mér
▶ |
143 |
hvort að, hvort að barnabörnin mín muni taka bílpróf.
▶ |
144 |
Kannski gera þau það en, þau munu, já næsta kynslóð mun nota bíla á einhverjum svona nótum
▶ |
145 |
eins og ég er búinn að vera að lýsa. Þau munu ekki nota bíla eins og við notum þá. Enda í rauninni er það fáránlegt ef maður hugsa út í það, þú kaupir þér bíl
▶ |
146 |
og hvað [hik:sit], hvað er hann í notkun stóran hluta af sólarhringnum?
▶ |
147 |
Já, einmitt.
▶ |
148 |
Þetta er, það er notað mikið af alls konar málmum og svona jarðefnum, jarðunnum efnum í bíla.
▶ |
149 |
Þetta er mjög dýrt, þetta er mjög mikið kolefnisspor, þetta er mikil mengun, bara við að framleiða bílinn
▶ |
150 |
og svo er hann í gangi, þú veist,
▶ |
151 |
tvo tíma á dag, ekki það. Í Reykjavík
▶ |
152 |
innan við klukkutíma á dag, hver einasti bíll.
▶ |
153 |
Já, en samt eiga allir bíl.
▶ |
154 |
Samt eiga allir bíl og margir eiga tvo bíla og sumir eiga þrjá bíla.
▶ |
155 |
Þetta er breyting sem ég held að muni, þetta á eftir að
▶ |
156 |
gjör-, gjörbreytast. Það að eiga bíl.
▶ |
157 |
Þetta er byrjað sko, ég meina. Þó það sé
▶ |
158 |
fyrir löngu byrjað erlendis er að byrja hérna heima sko, bara nú leigir fólk bíl í staðinn fyrir að kaupa bíl. Það er bara upphafið
▶ |
159 |
að þessu. Af hverju þarftu að leigja bíl og hafa hann alltaf hjá þér? Af hverju leigirðu ekki bara bíl þegar þú þarft á honum að halda?
▶ |
160 |
Ég var einmitt að pæla, við erum komin, pæla í að kaupa bíl.
▶ |
161 |
Spurning hvort að.
▶ |
162 |
Já,
▶ |
163 |
Mér finnst ennþá einhvern veginn, ennþá ekki alveg nógu lógískt að eiga bíl.
▶ |
164 |
nei, sko, það er tiltölulega dýrt, sko af því að þú leigir þá yfirleitt nýjan eða mjög nýlegan bíl.
▶ |
165 |
Sem er kosturinn því að þá veistu bara, það kostar þig ex
▶ |
166 |
krónur á mánuði og það er allt innifalið fyrir utan eldsneytið, tryggingarnar og viðhaldið og allt saman. Gallinn við
▶ |
167 |
að eiga bíl er það að þá koma svona stökk í kostnaði, þegar þú ert að borga tryggingu þá geturðu alveg dreift því, en
▶ |
168 |
svo kemur stökk, þú veist hann bilar og hann fer á verkstæði og kostar kannski bara hundrað þúsund kall.
▶ |
169 |
Og bara þú veist, [UNK].
▶ |
170 |
Þá, þá,
▶ |
171 |
já,
▶ |
172 |
já, ég man eftir þegar ég var í námi erlendis og við áttum bíl og svo bilaði hann. Þá krossaði maður bara puttana, maður var svo skíthræddur um að viðgerðin yrði, yrði dýr, hvort maður myndi eiga efni á viðgerðinni
▶ |
173 |
þann mánuðinn sko.
▶ |
174 |
Fór alveg eftir því hvort að námslánin voru komin. Hvenær þau yrðu borguð út. Það á margt eftir að breytast í framtíðinni, alveg ótrúlega mikið.
▶ |
175 |
Bara það sem hefur breyst frá því þegar ég var strákur er
▶ |
176 |
svo mikið og þetta er að breytist, þetta á eftir að breytast miklu meira og miklu hraðar á næstu fimmtíu árum
▶ |
177 |
heldur en það hefur gert síðastliðin fimmtíu ár.
▶ |
178 |
[UNK].
▶ |
179 |
Já, já já, já já. Og þetta voru malarvegir og einbreiðir
▶ |
180 |
og, já og núna brennirðu þetta á fjórum, fjórum og hálfum, eða fjórum og hálfum klukkutíma
▶ |
181 |
og allt á malbiki
▶ |
182 |
og,
▶ |
183 |
Kannski tíu ár þangað til að þú sest bara upp í bíl.
▶ |
184 |
og svo, já svo fara að koma.
▶ |
185 |
Já, það er kannski eftir tíu ár, já, sest ég upp í bíl sem ég pantaði og bara sagði, ég þarf svona, nú þarf ég stærri bíl í viku af því að ég er fara í ferðalag, en svo dugar mér bara lítil púdda í bænum þess á milli.
▶ |
186 |
Þá er nú líka að koma upp. Þá munu koma upp mál þegar ef að ég er of seinn að panta með stóra bílinn og allir hinir eru búnir að taka hann frá af því að allir eru að fara í sumarfrí á sama tíma og ég.
▶ |
187 |
En, en. En samt mér finnst mjög, æi þú veist, bílar eru svo mikið svona, tákn fyrir suma.
▶ |
188 |
Maður sér þetta bara eins og í.
▶ |
189 |
Já, svona stöðutákn.
▶ |
190 |
Já, já,
▶ |
191 |
það er bara alveg eins og fyrir suma eru hús stöðutákn eða föt eða hvað það nú er sko, en
▶ |
192 |
í rauninni er bara fáránlegt að
▶ |
193 |
það sé það. Hvað,
▶ |
194 |
hvað segirðu?
▶ |
195 |
Það heyrist dálítið illa í þér. Það er eins og þú hafir
▶ |
196 |
Já, nei, ég er að rölta hérna um. Ég er með heyrnartól.
▶ |
197 |
fjarlægst eitthvað aðeins.
▶ |
198 |
Já, einmitt. Já, það passar, nú varstu kominn of langt frá tölvunni. Ég var næstum því staðinn,
▶ |
199 |
Kannski er míkrófónninn í tölvunni en ekki í þarna,
▶ |
200 |
já, ég skal þá sitja hérna.
▶ |
201 |
sennilega, nú heyrist mjög vel í þér sko.
▶ |
202 |
Hérna, kannski ég prófi að standa upp og labba í burtu. Ég held að míkrafónninn sé hérna, breytist það nokkuð hjá mér?
▶ |
203 |
Já.
▶ |
204 |
Jú, aðeins.
▶ |
205 |
Aðeins? Já, ókei. Þá er það bara þegar að.
▶ |
206 |
Hvar ertu núna?
▶ |
207 |
Nú er ég bara svona tvo metra frá tölvunni.
▶ |
208 |
Hann er eitthvað tengdur í tölvuna.
▶ |
209 |
Þetta á að vera, míkrafónninn er í
▶ |
210 |
Já, ég hélt að það væri þannig hjá mér. Já, það hljómar samt eins og míkrófónninn sé bara í tölvunni sko. Það gæti líka alveg verið með að,
▶ |
211 |
heyrnartólunum í eyrunum.
▶ |
212 |
Það getur bara vel verið að fade-i aðeins eða minnki aðeins þegar
▶ |
213 |
að þegar að hérna, fjarlægist af því að þá
▶ |
214 |
er bara orðið lengra fyrir bluetooth
▶ |
215 |
að tengja þetta. Það getur vel verið að þetta sé eitthvað svoleiðis.
▶ |
216 |
þetta forrit skuli sækja hann þangað.
▶ |
217 |
Nei, ég er að nota, ég
▶ |
218 |
er alveg örugglega að nota hljóðnemann.
▶ |
219 |
Hljóðnemi.
▶ |
220 |
Á maður ekki að segja hljóðnemi?
▶ |
221 |
Skoða hérna uppsetninguna hjá mér, þá er.
▶ |
222 |
Ég veit það ekki. Ég er allavega búinn að vera að rölta hérna um öll gólf.
▶ |
223 |
Ég gerði það nefnilega líka þegar að þú, þú fórst.
▶ |
224 |
Já, ég heyri muninn, sko. Ég skil
▶ |
225 |
Ef það væri bara í tölvunni þá myndirðu ekki heyra í mér ef ég væri kominn hérna í stofuna.
▶ |
226 |
ekki alveg af hverju, þetta hlýtur samt
▶ |
227 |
að vera. Nei, og líka þegar maður er að nota þetta með síma eða, maður er oft með símann bara í vasanum, þá myndi enginn heyra í manni.
▶ |
228 |
En eru svona upptökur eins og við erum að gera núna, eru þær nýttar í rauninni bara til þess að halda áfram að þróa gervigreindina í að skilja mismunandi raddir og mismunandi áherslur og mismunandi talsmáta og allt þetta?
▶ |
229 |
Já, já, þetta verkefni sem ég er að hjálpa til við núna, er annars vegar að safna gögnum og leiðrétta gögn fyrir talgervla og svo talgreini. Þetta, þetta er þá, tengist talgreini.
▶ |
230 |
Að búa, að búa til texta úr þessu.
▶ |
231 |
Já, þetta er þá.
▶ |
232 |
Svo fer þetta inn í forrit sem býr til texta.
▶ |
233 |
Sem er þá bara svona.
▶ |
234 |
En er ekki hægt að nota þetta í báðar áttir? Getur þá ekki talgervillinn síðan tekið textann og lesið hann og borið saman við upptökuna?
▶ |
235 |
Já. Nefnilega sko að, það er alveg magnað. Maður náttúrulega hefur alveg, veit alveg hvað þeir eru komnir langt á ensku þú veist. Þú getur bara skrifað hvað sem er og fengið einhvern til að segja það
▶ |
236 |
og skilur flest allt. [UNK] Komin helvíti langt. Ef maður talar,
▶ |
237 |
ef ég tala svona nokkuð skýrt og greinilega þá mun hún alveg ná allri þessari setningu,
▶ |
238 |
en það er svona, en það er samt ástæðan fyrir því að við erum að, það er ástæðan fyrir því að við erum að spjalla sko.
▶ |
239 |
Já, en
▶ |
240 |
um leið og maður fer að muldra eitthvað eða tala hraðar eða eitthvað svoleiðis þá verður það erfiðara. En þegar við tölum svo báðir í einu, það hlýtur að vera svolítið flókið. En, en talgreinirinn þarf samt að ráða við það að heyra í tveimur í einu.
▶ |
241 |
Já, til þess að.
▶ |
242 |
Já, það er það, en við erum á tveimur rásum.
▶ |
243 |
Þannig að þetta verður greint í sitthvoru lagi.
▶ |
244 |
En ég held að það sé nefnilega einmitt.
▶ |
245 |
Já, ég held að þetta tengist eitthvað, ég veit sko voða lítið.
▶ |
246 |
Ég held einmitt að, þetta er á tveimur rásum en hann. Það er verið að þjálfa líka í að sko greina á milli raddanna.
▶ |
247 |
Já, já, splitta röddunum upp í tvær rásir sennilega. Eitt er að greina, en annað sko já eins og þú segir,
▶ |
248 |
Já.
▶ |
249 |
Það er rosa auðvelt fyrir hann núna. En það þarf að þjálfa hann í hinu sko.
▶ |
250 |
skýrt, talað hægt, þú veist, stoppa við punkta og allt svona. Hitt er að skilja einhvern svona.
▶ |
251 |
Þegar þú talar við, ætlar að biðja um eitthvað í símann þinn eða hvað sem er. Þá ertu.
▶ |
252 |
Getur alveg.
▶ |
253 |
Þá þarftu ekki, viltu ekki endilega þurfa að skipta yfir í einhverja
▶ |
254 |
þarna þægilega rödd fyrir hann, eða skilurðu, þú ættir bara að geta sagt eins og þú myndir tala.
▶ |
255 |
Og bara eins og þú hugsaðir ef þú veist
▶ |
256 |
bara
▶ |
257 |
maður sér fyrir sér
▶ |
258 |
verkefni eins og, er ekki í svona lögfræðisölum alltaf svona ritarar.
▶ |
259 |
Þá verða þeir bara tilgangslausir. Alþingi er byrjað að nota þetta forrit sem að þau eru að þróa hérna, sem við erum að vinna í.
▶ |
260 |
Þeir eru byrjaðir á því.
▶ |
261 |
Já já já já, já, í rauninni til þess að skrá niður fundargerðir eða það sem sagt er í þingsölum.
▶ |
262 |
Já. Annars sko, hingað til hefur þetta allt verið tekið upp og svo er fólk sem hlustar á upptökurnar og skrifar allt niður, allar umræður. Já, en, en sko,
▶ |
263 |
Ég held að það sé svolítið erfitt að fullkomna svona tölvu.
▶ |
264 |
En við getum þjálfað hana helvíti, svo getum við náttúrulega látið hana kenna sjálfri sér.
▶ |
265 |
[UNK].
▶ |
266 |
nákvæmlega, það er það sem er svo magnað,
▶ |
267 |
þegar þessi gervigreindartækni,
▶ |
268 |
þegar hún kemst af stað. Þegar hún er búin að ná grunninum þá er hún svo ógeðslega fljót að læra.
▶ |
269 |
Ýta undir hana til þess að hún geti síðan bara haldið áfram sjálf. Fyrirgefðu, nennirðu að endurtaka þig aðeins.
▶ |
270 |
Ég var að lesa þarna
▶ |
271 |
hvað heitir það ekki deep blue? Nei, nei, það heitir
▶ |
272 |
ekki deep blue, það er eitthvað miklu eldra
▶ |
273 |
það er eitthvað verkefni frá IBM.
▶ |
274 |
Sem þau eru komin mjög langt í, þar sem þeir eru að nota gervigreind til þess að greina
▶ |
275 |
upplýsingar úr rannsóknum um
▶ |
276 |
krabbamein, greina sem sagt hvaða krabbamein er á ferðinni með því að fara í gegnum niðurstöður úr blóðsýnum og,
▶ |
277 |
og kerfið sem sagt mælir síðan með krabbameinsmeðferðinni.
▶ |
278 |
Ég var að lesa grein.
▶ |
279 |
Það er búið að búa til gervigreindarkerfi sem að, sem að sem sagt greinir krabbamein. Mismunandi
▶ |
280 |
Myndum og eitthvað.
▶ |
281 |
tegundir krabbameina, byggt á rannsóknarniðurstöðum, blóðsýnum og einhverju fleiru. Ja, ekki myndum. En og það, í níutíu og átta prósent tilvika var
▶ |
282 |
kerfið að greina rétt krabbamein í samanburði við færasta krabbameins læknateymi í Bandaríkjunum.
▶ |
283 |
En svo kom óvænt í ljós að kerfið og síðan var kerfinu kennt að mæla með meðferðinni, og það mældi í áttatíu, níutíu og átta prósent með réttri meðferð
▶ |
284 |
en síðan bættist við í einhverjum þrjátíu eða fjörutíu prósentum tilvika kom kerfið, fór kerfið að koma með tillögur að öðrum
▶ |
285 |
Ókei.
▶ |
286 |
meðferðum sem læknunum hafði ekki dottið í hug.
▶ |
287 |
Þú ert bara að kenna. Já og
▶ |
288 |
Það er þá vegna þess að þegar kerfið var orðið svo fljótt að læra.
▶ |
289 |
Ég held að það séu birtar þrjúþúsund greinar um krabbameinsrannsóknir í heiminum á dag og það er enginn læknahópur sem getur lesið brot af þessu, en kerfið les þær allar.
▶ |
290 |
þær lesa þær allar.
▶ |
291 |
Og bara, tætir þetta í sig og greinir þetta og notar þetta og nú er verið að kenna kerfinu að einmitt að lesa
▶ |
292 |
röntgenmyndir.
▶ |
293 |
Kerfið getur náttúrulega horft sko á pixel fyrir pixel í myndinni.
▶ |
294 |
Hvert einasta.
▶ |
295 |
Kerfið sér örlítinn skugga af, getur
▶ |
296 |
séð sem sagt þegar að
▶ |
297 |
æxlið er að byrja að myndast löngu áður en mannsaugað sér það á mynd. Af því að, já, kerfið, í rauninni, bara fer í gegnum hvern einasta pixel í myndinni en mannsaugað horfir bara á myndina og rýnir í hvort það séu einhvers staðar skuggar.
▶ |
298 |
Já, og hann náttúrulega gæti auðveldlega misst af einhverju.
▶ |
299 |
Annað eins hefur nú gerst.
▶ |
300 |
Já,
▶ |
301 |
það gerist bara alltaf.
▶ |
302 |
Síðan nú birtist hérna: Hvert fórstu? Hvert fórst þú síðast þegar þú varst að ferðast innanlands. Við vorum einmitt að reyna að plana að fara eitthvað innanlands í sumar. Ég var byrjaður að skoða gistingar, þær eru töluvert mikið dýrari en á síðasta sumri
▶ |
303 |
Já, maður getur trúað því.
▶ |
304 |
og ef þú ætlar að fara svo á þessi betri hótel eins og þið fóruð á í fyrra þegar að hérna,
▶ |
305 |
fyrir austan.
▶ |
306 |
Í há, um hásumarið, það kostar svona sextíu þúsund kall fyrir tvo. [UNK].
▶ |
307 |
Eins og, þetta er ekki eins og þegar við fórum, fórum og þarna, það var rigning, svo við hringdum bara eitthvert.
▶ |
308 |
Það var náttúrlega allt laust, maí í fyrra.
▶ |
309 |
Fengum svítu,
▶ |
310 |
fundum einhverja svítu í.
▶ |
311 |
Fengum einhverja svítuíbúð samdægurs á tíu þúsund kall.
▶ |
312 |
En já, núna í júlí er bara, það er megnið orðið bara upppantað í júlí, já.
▶ |
313 |
Það var náttúrulega mjög óeðlilegt ástand og kemur ekki aftur, skulum við vona, því það er
▶ |
314 |
ekki gott fyrir hagkerfið þegar að allt er
▶ |
315 |
Það er gott að maður náði að gera, nýta þetta eitthvað samt.
▶ |
316 |
meira og minna lamað.
▶ |
317 |
Það gerist, það gerist.
▶ |
318 |
Eru ekki farnir að hrannast inn útlendingar?
▶ |
319 |
Já, nú er eftirspurnin miklu meiri,
▶ |
320 |
sem betur fer.
▶ |
321 |
Maður er farinn að taka aðeins eftir því í búðinni líka.
▶ |
322 |
Jú jú, ferðamennirnir eru farnir að koma,
▶ |
323 |
aðallega frá Bandaríkjunum en líka frá öðrum löndum. Já, en ég var að
▶ |
324 |
lesa einhverja spá frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
▶ |
325 |
Það samt reiknar með því sko, að ferðaiðnaður í heiminum verði
▶ |
326 |
allavega fjögur ár í viðbót að ná sér,
▶ |
327 |
miðað við það sem það var tvö þúsund og nítján. Já, það eru svo ofboðslega margir líka bara sem misstu vinnuna og hafa verið tekjulausir og eiga bara ekkert efni á því að ferðast.
▶ |
328 |
Já, bara verið tekjulaus í langan tíma.
▶ |
329 |
Ég hugsa að, að þetta verði svolítið fyndið hérna,
▶ |
330 |
Já. Gerir þetta svo miklu flóknara.
▶ |
331 |
Ísland í kannski október, ég hugsa bara að það verði enginn hérna.
▶ |
332 |
Fari bara allir. Já, af Íslendingum.
▶ |
333 |
Næstkomandi október.
▶ |
334 |
Já, ég hugsa svona þegar sumarið er búið þá muni fólk alveg,
▶ |
335 |
Já, þú meinar að Íslendingarnir fari erlendis.
▶ |
336 |
Íslendingar eru náttúrulega byrjaðir að fara heilmikið til Spánar og Tenerife og.
▶ |
337 |
já.
▶ |
338 |
Já, já,
▶ |
339 |
enn þá náttúrulega allir að bíða eftir að fá, eða mjög margir
▶ |
340 |
Já, ég keyrði þarna framhjá. Alveg galið.
▶ |
341 |
að bíða eftir að fá seinni bólusetninguna eins og sýndi sig
▶ |
342 |
í gær
▶ |
343 |
þegar biðröðin við Laugardalshöllina náði bara einhvers staðar lengst upp á Suðurlandsbraut.
▶ |
344 |
Ég ætla einmitt að vera. Ég ætlaði að vera vakandi í dag. Það var auglýst að það gætu orðið einhverjir afgangs
▶ |
345 |
skammtar af þarna, Jansen.
▶ |
346 |
Ég vona að ég fái sms-ið í dag.
▶ |
347 |
Já, já,
▶ |
348 |
Ég er eftir einhverjar tvær vikur.
▶ |
349 |
já. Ertu komin, er það komið niður í þinn aldurshóp? Er þinn árgangur núna?
▶ |
350 |
Þrjár vikur. Ég er í síðasta, síðustu vikunni, sem að.
▶ |
351 |
Bara einhvern tímann í lok sumars.
▶ |
352 |
Já, ég á líka eftir að fá seinni sprautuna. Fólkið, allir sem fóru af stað í gær, og þess vegna var þessi örtröð, fór af stað til að fá seinni sprautuna í rauninni of snemma því að það var búið að sýna fram á það að virknin er best þegar það líða tveir til þrír mánuðir á milli.
▶ |
353 |
Var þetta ekki af því að það voru komnar einhverjar fjórar vikur.
▶ |
354 |
Þetta var örugglega fólk sem fór á svipuðum tíma og þú fórst.
▶ |
355 |
[UNK]. Ég skil ekki af hverju fólki lá svona á.
▶ |
356 |
Jú, ég held það. Já, já.
▶ |
357 |
Já, nýta tækifærið.
▶ |
358 |
Er það ekki bara dæmigert fyrir Íslendinga, þeir ætla allir af stað til útlanda og eitthvað svoleiðis.
▶ |
359 |
Ég hugsa það. Já, einmitt. Já, við erum það.
▶ |
360 |
Heyrðu, ég þarf að, þarf að fara að undirbúa fund sem ég á eftir nokkrar mínútur.
▶ |
361 |
Já, það væri óskandi.
▶ |
362 |
Ég vona að kerfið nái að læra eitthvað af þessu spjalli okkar. Ókei.
▶ |
363 |
Takk fyrir þetta.
▶ |
364 |
Segjum það. Þá stöðva ég hér upptökuna.
▶ |
365 |
Takk sömuleiðis, bara gaman. Bless.
▶ |