1 |
Hver á að byrja?
▶ |
2 |
Það kemur spurning hérna: Hver er uppáhalds sundlaugin þín?
▶ |
3 |
Ó, já, uppáhalds sundlaugin,
▶ |
4 |
ætli það sé ekki bara, Akureyrarsundlaug?
▶ |
5 |
Mér fannst svo gaman þar.
▶ |
6 |
Varstu oftar þegar þú varst krakki, eða? Já, þannig.
▶ |
7 |
Nei nei, bara þegar ég var að
▶ |
8 |
heimsækja Akureyri bara í gegnum tíðina og svona. Já, já.
▶ |
9 |
Hefurðu farið oft?
▶ |
10 |
Ég hef oft farið til Akureyrar og stundum í sundlaugina.
▶ |
11 |
Já, ég man ekkert eftir þessari sundlaug. Ó.
▶ |
12 |
Nei, þú hefur sjálfsagt ekkert verið, þetta hefur verið bara fyrir þína tíð sko.
▶ |
13 |
Þú verður að athuga það að ég var orðin svolítið gömul þegar ég átti þig.
▶ |
14 |
Já, satt. Ég myndi segja að mín væri bara Grafarvogssundlaug.
▶ |
15 |
Hún er líka góð.
▶ |
16 |
Mér finnst rennibrautin svo skemmtileg.
▶ |
17 |
Svo fór ég líka í Kópavogssundlaug með, með barnabarnið,
▶ |
18 |
elsta barnabarnið og hérna,
▶ |
19 |
já, og ég hef farið svolítið oft með hann þangað af því að
▶ |
20 |
honum finnst svo gaman að fara með ömmu þangað og renna í rennibrautinni og hann lét mig renna líka og svona. Ég var næstum því bara búin að reka hausinn í á leiðinni niður.
▶ |
21 |
Oh my. Stressandi
▶ |
22 |
Það var svolítið scary. Já,
▶ |
23 |
ömmu líf. Bíddu, Kópavogi, er það ekki þarna?
▶ |
24 |
já, svolítið stressandi ömmulíf.
▶ |
25 |
Þar sem að pabbi þinn var að byggja.
▶ |
26 |
Já, er ekki ótrúlega stór rennibraut þar, eða hátt upp?
▶ |
27 |
Jú sko, hann fór í þessa sem er lokuð. Ég fór í hina sem er opin af því að mér finnst svo vont að fara í svona, eða sko hún var hálfopin þessi sem ég fór í en hann fór í lokaða.
▶ |
28 |
Já.
▶ |
29 |
Ég fór ekki í það sem betur fer.
▶ |
30 |
Og hvað, bara flaugstu næstum því úr sundlauginni?
▶ |
31 |
Nei, sko þegar þú veist, þegar maður, af því ég sko
▶ |
32 |
sat svona hálfvegis uppi til þess að fara ekki of hratt að
▶ |
33 |
þá hausinn næstum því lentur í þarna efri
▶ |
34 |
Já.
▶ |
35 |
kantinum á þessu röri sem ég var inni í.
▶ |
36 |
Mér fannst ég svolítið í hættu stödd sko. Já, jú, þetta er svona rör, inni á milli er það, já það var að vísu svona úr plasti en, en það, það var ekki, hefði ekki verið gott að reka sig í það sko.
▶ |
37 |
Já, er ekki eitthvað járn sem kemur upp inni á milli?
▶ |
38 |
Já, maður þarf eiginlega að liggja alveg aftur en þá fer maður,
▶ |
39 |
Þá fer ég allt, allt of hratt. Já,
▶ |
40 |
þá fer maður ótrúlega hratt.
▶ |
41 |
Oh, týpískt. Ég,
▶ |
42 |
ég held ég hafi farið þangað þegar ég var lítil en ég man ekkert eftir því, ég man hvernig hún lítur út að utan, sundlaugin.
▶ |
43 |
já, ókei,
▶ |
44 |
En ég man ekkert meira. Já, eða kannski er ég óvart að tala um hana, það gæti verið.
▶ |
45 |
en manstu eftir sundlauginni í Kópavogi þar sem er rétt hjá hérna
▶ |
46 |
vini þínum?
▶ |
47 |
Já, það var, það, sú sundlaug er ný en þessi sem ég er að meina er gamla sundlaugin sko. Hún er eldgömul.
▶ |
48 |
Hvað er hún gömul?
▶ |
49 |
Hún hefur bara verið gerð upp sko, gerð svo skemmtileg.
▶ |
50 |
Hún er alveg frá því að Kópavogur byggðist sko, í gamla daga. Örugglega.
▶ |
51 |
Hvenær var það? Nítján hundruð tuttugu og eitthvað? Nei, allavega
▶ |
52 |
Ég veit ekki hvenær Kópavogur er byggður. Já, einmitt, það gæti verið tuttugu og eitthvað sko, fyrir hundrað árum.
▶ |
53 |
gamli Kópavogur er mjög gamall.
▶ |
54 |
Vá.
▶ |
55 |
Hún er náttúrulega ný þannig, hún er alltaf gert, gerð upp og svoleiðis. Það er ekki það.
▶ |
56 |
Það var rosalega góð sundlaug. En þessi
▶ |
57 |
sem hin sem þú varst að tala um þarna hinum megin í Kópavoginum, það er Salasundlaug, Salalaug held ég. Já, alveg í nýja hverfinu bara á milli systur þinnar og vinar þíns
▶ |
58 |
Hinum megin í Kópavoginum. Ó.
▶ |
59 |
Já.
▶ |
60 |
í Salahverfinu sko.
▶ |
61 |
Salahverfi, ég man sko engin nöfn.
▶ |
62 |
Það er á milli, manstu ekki eftir Nettóbúðinni sem var lítil búð þarna rétt hjá þar sem við vorum stundum að fara þegar við vorum heima hjá honum. Ofboðslega lítil Nettóbúð.
▶ |
63 |
Jú, var svona varla kósý.
▶ |
64 |
Mjög nett.
▶ |
65 |
Algjörlega og hún, sundlaugin er við hliðina á þessum búðum eða þessari húsi.
▶ |
66 |
Já, já,
▶ |
67 |
ég man smá eftir henni en ég held ég hafi ekki farið í hina sundlaugina.
▶ |
68 |
Nei, held ekki sko, ekki með mér allavegana. Árbær, já Árbær. Það var nú alveg, í gamla daga, alveg bara,
▶ |
69 |
Ég man ég fór nokkrum sinnum með Hilmi í Árbæjarsundlaug. Reyndar ekki oft.
▶ |
70 |
rosalega vorum við oft þar.
▶ |
71 |
Ég man svo vel eftir innilauginni út af því það eru svo kósý plöntur, það er svo mikið af plöntum inni. [UNK].
▶ |
72 |
Ég man ekki eftir því, ég man bara eftir inni í Grafarvogslauginni, innilaugin þar.
▶ |
73 |
Já, já, þar eru svona flísar í loftinu og búið að búa til svona myndir úr þeim. [UNK].
▶ |
74 |
Já, og svo er eitthvað svona gúmmídót sem maður getur hent sér af svona einhverjar fígúrur. Leikið, alveg rétt.
▶ |
75 |
Já, skólasundið var eiginlega bara alltaf þar.
▶ |
76 |
Já, inni.
▶ |
77 |
Já, ég held það.
▶ |
78 |
Ég man eftir því einu sinni fór ég að fylgjast með skólasundinu og þá varstu úti. Þá var ég bara í heita pottinum, með eitthvað svona eitthvað.
▶ |
79 |
Já ókei, það er blandað bara.
▶ |
80 |
Sérð þú spurninguna sem kemur upp? Það stendur myndir þú
▶ |
81 |
Nei, ég myndi sko ekki þora því.
▶ |
82 |
kaupa sjálfkeyrandi bíl?
▶ |
83 |
Ef hann myndi bila sko, hvað þá?
▶ |
84 |
Keyra bara út af. [UNK].
▶ |
85 |
Ég myndi ekki þora því.
▶ |
86 |
Vissirðu að nýju Teslurnar geta keyrt sjálfar?
▶ |
87 |
Nei, ég hugsa ekki. Eða jú, var ekki, var ekki einhver búinn að segja mér það?
▶ |
88 |
En ég hef allavegana heyrt að það er bara autopilot takki. Þá bara
▶ |
89 |
keyrir bíllinn fyrir þig, ég myndi ekki treysta því.
▶ |
90 |
Ég myndi vera hrædd um það myndi bara klikka sko,
▶ |
91 |
Já, og líka ef einhver hleypur inn á veginn eða eitthvað og ég sé það frá ákveðinni fjarlægð, ég sé þau koma að veginum og þá get ég byrjað að hægja á mér en bíllinn myndi kannski ekki fatta það. Hann myndi bara fatta það þegar þau eru komin nálægt, eða ég veit það ekki.
▶ |
92 |
Þetta hlýtur að vera ótrúlega vel hannað, fyrst það er
▶ |
93 |
en samt, það er svona atriði eins og til dæmis
▶ |
94 |
ef þú sérð einhvern keyra
▶ |
95 |
svona eins og hann sé drukkinn, nálægt þér
▶ |
96 |
í umferðinni þá myndirðu svona, þá myndi ég allavegana reyna að forðast að vera nálægt honum. En það er ekkert víst að þessi sjálfstjórn myndi fatta það.
▶ |
97 |
Ekki.
▶ |
98 |
Eða þá ef að lítið barn væri að koma hlaupandi eftir bolta.
▶ |
99 |
Já, [UNK].
▶ |
100 |
Þú veist.
▶ |
101 |
Og tekur eftir og fattar hvað er í gangi sko.
▶ |
102 |
Já, eins og maður sér kannski einhverja krakka vera að leika nálægt veginum og hægir á sér bara just in case þannig að
▶ |
103 |
Já. Já, eitthvað
▶ |
104 |
ef einhver hleypur inn á veginn.
▶ |
105 |
svoleiðis. Já, ég vil frekar stjórna mínum bíl sjálf, þakka þér kærlega fyrir.
▶ |
106 |
Bíllinn þinn er svo þægilegur, þó að hann sé beinskiptur þá þarna er svo þægilegt að keyra hann.
▶ |
107 |
Það er alveg satt.
▶ |
108 |
Hann er svo mjúkur. Mér finnst hann eiginlega bara skipta um gír fyrir mann.
▶ |
109 |
Eitthvað annað en minn bíll,
▶ |
110 |
algjör ristavél.
▶ |
111 |
Já,
▶ |
112 |
Svo stífur gírinn.
▶ |
113 |
já, er ekki hægt að setja olíu, liðka það eitthvað til?
▶ |
114 |
Jú, örugglega eitthvað en hann er bara, hvernig hann er byggður er,
▶ |
115 |
enginn lúxus.
▶ |
116 |
Hann er bara frekar stífur yfir höfuð.
▶ |
117 |
Já. Oh boy, allt annað sko.
▶ |
118 |
Ef ég keyri nýja bíla þá finn ég hvað þeir eru mjúkir.
▶ |
119 |
Já, þegar kemur að öllu.
▶ |
120 |
Eins gott að þú ert ekki að vinna við útkeyrslur í þessum bíl.
▶ |
121 |
Hræðilegt. Algjörlega.
▶ |
122 |
Heyrðu, það minnir mig á það, ég þarf að fara með minn bíl í skoðun.
▶ |
123 |
Einhvern tímann. Ég veit það ekki alveg.
▶ |
124 |
Hvenær? Er það ekki ágúst?
▶ |
125 |
Nei, september já já. Er það ekki seinasta talan sem að skiptir máli?
▶ |
126 |
September, ókei. Endar hann á níu?
▶ |
127 |
Já, já, þá er það september. Þá þarf ég ekki að hafa áhyggjur.
▶ |
128 |
Nógan tíma.
▶ |
129 |
Kannski fínt að bara vera bara búin að því.
▶ |
130 |
Ég held ég geri þetta bara í júlí, áður en ég fer, annaðhvort áður eða eftir að ég fer til Spánar.
▶ |
131 |
Ó.
▶ |
132 |
Ertu þá ekki búin í öllum bólusetningunum?
▶ |
133 |
Jú, seinni bólusetningin, við erum að vonast til þess að mega, tek hana þegar við erum búin að vera átta vikur
▶ |
134 |
bólusett og þá eru akkúrat tvær vikur þangað til förum í ferðina þannig við ættum að geta fengið svona skjal inni á Heilsuveru og prentað út.
▶ |
135 |
Vottorð um að við séum búin að fá báðar bólusetningarnar og haft það bara með okkur þegar við förum út og sýna á ensku náttúrulega eða spænsku, ég veit ekki alveg.
▶ |
136 |
Já.
▶ |
137 |
Það verður að hafa svona vottorð.
▶ |
138 |
En veist þú hvenær þú færð þína bólusetningu?
▶ |
139 |
Ég var eitthvað að heyra það að
▶ |
140 |
konur fæddar níutíu og sjö, að þær fái bólusetningu, eitthvað átjánda júní, þá vikuna.
▶ |
141 |
Það er bara í, eftir tvær vikur.
▶ |
142 |
Já, það er ótrúlega stutt þangað til. Mér finnst það skrýtið út af því ég er svo ung.
▶ |
143 |
Ég hélt að það væri.
▶ |
144 |
Er verið að taka bara þú veist random aldurshópa núna til þess að dreifa meira úr bólusetningunni?
▶ |
145 |
Getur það verið já,
▶ |
146 |
já, af því að sko Díana er nýbúin að fá, hún er sjötíu og þrjú módel.
▶ |
147 |
Já,
▶ |
148 |
Það munar svolítið. Já einmitt.
▶ |
149 |
Tuttugu og eitthvað árum sko.
▶ |
150 |
Já, þetta er ábyggilega eitthvað svona.
▶ |
151 |
Verið að dreifa eitthvað sitt á hvað, ég veit það ekki annars.
▶ |
152 |
Já þessu.
▶ |
153 |
já, sérstaklega út af það var sagt konur fæddar þetta ár.
▶ |
154 |
Já, já, já, já, þú meinar, ekki karlmenn.
▶ |
155 |
Eitthvað spes að þú veist taka fram konur.
▶ |
156 |
Já, eða ég las það allavega, kannski las ég það vitlaust. Mbl. Bara á netinu.
▶ |
157 |
En hvar lastu þetta?
▶ |
158 |
Já, bara Morgunblaðinu.
▶ |
159 |
Þú ert svo klár.
▶ |
160 |
Hvernig er hægt að vera svona klár? Já, til að byrja með þá getur getur maður. [UNK].
▶ |
161 |
Já, ég ætla að fara að bera á mig svona brúnkukrem til að fá aðeins brúnku á mig áður en ég fer til Spánar.
▶ |
162 |
Já, ætlarðu ekki að fá brúnku á Spáni?
▶ |
163 |
Jú, ég vona það, en ég er að meina sko af því að það er svo leiðinlegt að vera alveg glær,
▶ |
164 |
ofboðslega snjóhvítur.
▶ |
165 |
Já, þú reyndar ert með smá lit í húðinni náttúrulega.
▶ |
166 |
Eitthvað annað en ég.
▶ |
167 |
Ég er svolítið rauð.
▶ |
168 |
Eins og rauður karfi. Það sé ástand.
▶ |
169 |
[UNK]. Nærð þú alveg að fá einhverja brúnku þegar þú ferð í sólbað?
▶ |
170 |
Já, það er hérna, það kemur smá en ég er voða lengi að fá brúnku á lappir og svoleiðis. Þess vegna,
▶ |
171 |
Já, lappirnar alltaf ótrúlega lengi að koma.
▶ |
172 |
Þær eru bara, þær vilja ekki skipta um lit.
▶ |
173 |
Skrítið hvað það er mismunandi eftir líkamspart, hversu vel húðin tekur við lit.
▶ |
174 |
Já.
▶ |
175 |
Maginn á mér tekur strax við lit.
▶ |
176 |
Er það? Heppinn.
▶ |
177 |
Já. Spes. [UNK]. Alltaf að vera í magabol.
▶ |
178 |
Minn er bara snjóhvítur. Já, þegar þú talar um maga, ég var að segja Þorgeiri frá því að ég er með smá, eða svolítið feitan maga sko núna.
▶ |
179 |
Sýna, segja Þorgeiri. Já, þetta er svolítið hættuleg fita sem er með hérna akkúrat framan á maganum. Það er fita sem getur valdið krabbameini.
▶ |
180 |
Já þarna, erfiða fitan sem er neðst á maganum. [UNK]
▶ |
181 |
Já, hún er hættuleg, sko. Þess vegna var ég að segja við hann ég þarf eiginlega að losa mig við hana sko.
▶ |
182 |
Ef ég gæti það.
▶ |
183 |
Allavegana hreyfa mig meira, nú var verið að setja mig í skammarkrókinn í leikfiminni. Ég var ekkert of sein eða ég gerði ekkert af mér.
▶ |
184 |
Ha, varstu sett í skammarkrók?
▶ |
185 |
Já, í leikfimi þá er það svoleiðis að ef maður mætir ekki í tímann sem maður var búinn að panta eða mætir of seint, þá er maður settur í
▶ |
186 |
skammarkrók í viku þannig að maður getur ekki pantað sér tíma í heila viku. Ég kvartaði og sagði, ég, ég kom í tímann og maður lætur vita af sér í afgreiðslunni frammi og það var ungur maður sem skrifaði, sagði, já þetta er í lagi.
▶ |
187 |
Ég sagði hvað ég hét, hvert ég var að fara.
▶ |
188 |
Samt var ég sett í sama skammarkrók.
▶ |
189 |
Þá er nú eins gott að ég bara noti vikuna til að reyna að hreyfa mig á annan hátt, fara út í labbitúra. Já, þetta er svona í World Class.
▶ |
190 |
Spes.
▶ |
191 |
Er erfitt að afbóka?
▶ |
192 |
En sko,
▶ |
193 |
hvað segirðu?
▶ |
194 |
Er erfitt að afbóka tíma eða? Ha, af hverju [UNK]?
▶ |
195 |
Nei, nei, maður gerir það bara í tölvunni.
▶ |
196 |
Það er ekkert erfitt, en það er bara málið er að ef maður mætir ekki í tíma og afbókar ekki þá fer maður skammarkrókinn en ég mætti í tímann sko, og hann merkti við.
▶ |
197 |
Ég kvartaði en samt eru þeir ekki að laga það.
▶ |
198 |
Mér finnst það svolítið lousy.
▶ |
199 |
Þeirra mistök, sko, að ég þurfi að, jæja,
▶ |
200 |
en ég er ekki að kvarta af því að ég þarf hvort eð er
▶ |
201 |
að hugsa um aðra. Það er svo mikið að gera í bókhaldinu og starfinu og svona. Fer bara í labbitúr.
▶ |
202 |
Já. Ég er með spurningu.
▶ |
203 |
Hver er uppáhalds bíómyndin þín?
▶ |
204 |
Bíómyndir, það er Blondie þarna númer eitt, Legally Blonde.
▶ |
205 |
Legally Blonde. Hún er líka á topp þrjú hjá mér sko.
▶ |
206 |
En hver er númer eitt hjá þér?
▶ |
207 |
Ég er með nokkrar uppáhalds. Mér finnst mjög erfitt að setja eina,
▶ |
208 |
Já, það er voða erfitt.
▶ |
209 |
sko topp þrjú eða fjögur, það er
▶ |
210 |
Monsters University
▶ |
211 |
Ó.
▶ |
212 |
og Legally Blonde
▶ |
213 |
og Pride and Prejudice og líka Coco, sem er Pixar mynd.
▶ |
214 |
Það eru líka æðislega bíómyndir.
▶ |
215 |
Hvað segirðu? Ha? Nei.
▶ |
216 |
Það eru, það eru alveg fleiri, ég bara man ekki akkúrat núna.
▶ |
217 |
Eru ekki örugglega komnar tíu mínútur?
▶ |
218 |
Jú, þetta á að vera í kringum hálftíma.
▶ |
219 |
Eigum við að röfla í hálftíma?
▶ |
220 |
Jæja, þá er best að við röflum eitthvað meira, alveg.
▶ |
221 |
Við erum búnar með meira en helming.
▶ |
222 |
Meira en korter sko.
▶ |
223 |
Gæti trúað því.
▶ |
224 |
Hérna, mér finnst svo gaman af þessum myndum sem að, eru hérna,
▶ |
225 |
hvað heitir þetta? Ha?
▶ |
226 |
Myndirnar sem þú tókst.
▶ |
227 |
Já, myndir sem [UNK]. Það er blóm af, það er mynd af blómi sem ég gaf Díönu og það þrífst svo vel í glugganum hjá henni. Það bara blómstrar og blómstrar.
▶ |
228 |
Já, ég er með hana hérna í símanum og, og blómið er þú veist, það er eitthvað
▶ |
229 |
Var hún að senda þér mynd?
▶ |
230 |
svo fallegt og þú veist það er bara eitthvað svo
▶ |
231 |
heilbrigt og mér finnst svo gaman að horfa á það. [UNK].
▶ |
232 |
Hvaða blóm?
▶ |
233 |
Hvað tegundin heitir eða?
▶ |
234 |
Nei, ég man ekki hvað tegundin heitir. Þetta er bara pottablóm,
▶ |
235 |
og það er bara svo fallegt, finnst mér.
▶ |
236 |
Er hún með svona græna putta?
▶ |
237 |
Það hlýtur að vera en sko, glugginn hennar snýr út í norður þannig að maður myndi halda að það væri ekki nóg. En það er alveg nóg birta bersýnilega.
▶ |
238 |
Er það ekki suðurglugginn sem var oftast með mesta sól? [UNK].
▶ |
239 |
Jú, en
▶ |
240 |
það er eiginlega of mikið fyrir venjuleg blóm,
▶ |
241 |
Já, það er. Já.
▶ |
242 |
kaktusar kannski eru í lagi þar. Það er rosalega mikið hiti og sól í, af því að þarna
▶ |
243 |
bara steikjandi sko.
▶ |
244 |
Já, brennur bara laufblöðin.
▶ |
245 |
Já, allt of mikil sól.
▶ |
246 |
Eru ekki einhverjar plöntur sem fíla það í botn samt?
▶ |
247 |
Hvað segirðu?
▶ |
248 |
Eru ekki enhverjar plöntur sem fíla það alveg í botn? [UNK].
▶ |
249 |
Jú, það eru hérna kaktusar, manstu ekki [UNK], voru með kaktusa í stóra glugganum. Já, eða hún erfði þá eftir pabba eða hún hafði nú eiginlega ræktað þá flesta, held ég,
▶ |
250 |
og þeir lifðu góðu lífi þarna, alveg bara plumuðu sig alveg eins og þeir væru í Mexíkó eða eitthvað.
▶ |
251 |
Já, ég man eftir þessum kaktusum. Ég hélt að afi ætti þá. Ég hélt að afi átti þá.
▶ |
252 |
Já [UNK], var að sko
▶ |
253 |
rækta þá en
▶ |
254 |
Ó. Ég hélt að þetta var bara skraut.
▶ |
255 |
núna heyri ég að afinn er kominn heim.
▶ |
256 |
[UNK]. Með voffa. [UNK].
▶ |
257 |
Hundurinn eltir.
▶ |
258 |
Ég ætla að fara að fá mér eitthvað að borða og svo ætla ég að fara í bókhaldið.
▶ |
259 |
Hvað ert þú oftast lengi með svona bókhald?
▶ |
260 |
Já, sko, undirbúningsvinnan sem ég er í, það er að raða pappírunum í
▶ |
261 |
möppuna.
▶ |
262 |
Ég var alveg í einn og hálfan tíma í gær og ég á eftir að vera í hálftíma, það eru svona tveir tímar í allt og svo að, að hérna
▶ |
263 |
pikka þetta inn í tölvuna, það tekur líka tvo tíma.
▶ |
264 |
Já, þarf maður þá að raða upp eftir dagsetningu fyrst?
▶ |
265 |
Já, það er alveg helmingurinn af vinnunni. Já, já,
▶ |
266 |
Er þetta allt bara eiginlega í rugli þegar þú byrjar að raða þessu upp?
▶ |
267 |
bara eitthvað alls konar drasl, ég er að taka upp alls konar pósta þarna og sumt af því er ekkert sem á að fara í bókhaldið. Maður lifandi bara.
▶ |
268 |
Nóg að gera. Það er önnur
▶ |
269 |
Það er svolítið svoleiðis. Hvað?
▶ |
270 |
spurning komin upp. Hvar sérð þú þig eftir fimm ár?
▶ |
271 |
Í nýjum heimi
▶ |
272 |
eða á Spáni [UNK] þá er það
▶ |
273 |
Í sólinni.
▶ |
274 |
Spánn.
▶ |
275 |
Með barnabörnin í kringum mig.
▶ |
276 |
Já, þau eigið eftir að njóta sín mikið, eða ég held það.
▶ |
277 |
Já, ég hugsa það, það verður gaman að fara í heimsókn þangað.
▶ |
278 |
Er ekki svæðið sem að íbúðin er á, er þetta ekki svona strandarsvæði?
▶ |
279 |
Nei, það er bara sundlaug, það er ekki strönd. [UNK],
▶ |
280 |
Maður er svona tuttugu mínútur að labba niður á strönd.
▶ |
281 |
En ef maður er á svona hlaupahjóli eins og við ætlum að kaupa,
▶ |
282 |
já, já, bara svona rafmagns sem að eru uppi á gangstéttum sko.
▶ |
283 |
Eins og er niðri í bæ.
▶ |
284 |
Af því við kannski ef við þekkjum ekki umferðina og það nógu vel líka. Þá er maður ábyggilega stutt, enga stund sko. Já, já. En hérna.
▶ |
285 |
Það er ótrúlega sniðugt.
▶ |
286 |
Drífa sig á ströndina.
▶ |
287 |
Af því að það er svo heitt. Manni verður alveg, maður er gersamlega held ég ef það er
▶ |
288 |
heitt sko að labba í sól, það er bara ekkert grín.
▶ |
289 |
Já.
▶ |
290 |
Eða taka bílaleigubíl, það er líka hægt. Já.
▶ |
291 |
En það, þá já þarf
▶ |
292 |
alltaf að vera einhver driver sko.
▶ |
293 |
Eru leigubílar dýrir á Spáni?
▶ |
294 |
Ég veit það ekki,
▶ |
295 |
ég hef enga reynslu af því. Já, er það? Já. Nei?
▶ |
296 |
Ég man að í Bretlandi er svo ódýrt að taka taxa.
▶ |
297 |
Og, náttúrulega, mig minnir að það sé alveg ódýrara að taka strætó.
▶ |
298 |
En það var ekkert það dýrt að taka leigubíl.
▶ |
299 |
Eitthvað annað en hérna.
▶ |
300 |
Já. Já, já, mikið af fólki.
▶ |
301 |
Aðeins dýrara.
▶ |
302 |
Þegar ég var í .arna Edinborg,
▶ |
303 |
og það er svo mikið af fólki sem býr þar og Glasgow. Það er bara allar gangstéttir eru troðfullar af fólki,
▶ |
304 |
maður er bara.
▶ |
305 |
Mér fannst það svo yfirþyrmandi eitthvað, það var allt of mikið fyrir mig.
▶ |
306 |
Já, þetta var eitthvað svo óþægilegt að vera að versla allan daginn í einhverri mannþröng.
▶ |
307 |
Þá er nú betra að vera á netinu og panta bara þar. Já, þær geta verið mjög skemmtilegar, ég er sammála þér, ég fór inn í eina svoleiðis í Barselóna.
▶ |
308 |
Eða finna einhver svona kósý bæ eða eitthvað. Fara í einhverjar pinkulitlar, einkareknar búðir.
▶ |
309 |
Það var svona fatabúð og konan sem afgreiddi var svona fatahönnuður en hún seldi líka sínar vörur líka [UNK]. Keypti þetta þú veist fjólubláa, nei þarna,
▶ |
310 |
mussuna sem er með fiðrildinu framan á, þú sagðir að ég væri eins og indversk.
▶ |
311 |
Já. Það er ótrúlega skemmtilegt.
▶ |
312 |
Keypti hann. Já, það er svo skemmtileg búð.
▶ |
313 |
Já, er það eitthvað sem hún hannaði bara?
▶ |
314 |
Og líka keypti líka frá öðrum, það var svo lítið að gera, það var eiginlega bara ég, kannski einn eða tveir aðrir þarna inni í búðinni.
▶ |
315 |
Var það í einhverju svona litlu svæði?
▶ |
316 |
Það var bara inni í Barselóna, einhverju miðsvæði. Við hliðina á einhverri kirkju, þau vildu endilega skoða kirkjuna, Matti og,
▶ |
317 |
eða hinir sem voru með mér segi ég.
▶ |
318 |
Ég nennti því ekki. Bara að utan smá.
▶ |
319 |
Þá bara sá ég þessa búð og fór þarna inn. Og keypti,
▶ |
320 |
ég held ég hafi keypt svolítið af svona mussum, mig minnir það. Já.
▶ |
321 |
Heitir þetta mussur?
▶ |
322 |
Fyndið nafn.
▶ |
323 |
Fyndið að það er ekki notað í dag heyri ég.
▶ |
324 |
Ég held að bara þetta snið af klæðnað er ekkert mikið til í dag,
▶ |
325 |
allavegana ekki hjá yngri kynslóðinni.
▶ |
326 |
Mussur eru ekki í tísku. [UNK]. Múmú? Já, mussur eru ekki kjólar, það er kannski bara við buxur sko en, en þær, þær voru allavegana þannig að ég var alltaf í mussu þegar ég var unglingur, þarna frá tólf ára upp í fjórtán já. Ég var bara alltaf í sömu mussunni alveg.
▶ |
327 |
Heitir muumuu á ensku.
▶ |
328 |
Muumu. Já, það er svona stórt, stór víður kjóll með einhverjum myndum.
▶ |
329 |
Grænni úr einhverju svona
▶ |
330 |
austurlensku efni. Voða flott. Ég held að mamma hafi saumað hana fyrir mig.
▶ |
331 |
[UNK].
▶ |
332 |
Mamma, hún var klár að sauma já.
▶ |
333 |
Mig langar svo að kunna að sauma en ég er með enga náttúrulega hæfileika á því sviði.
▶ |
334 |
Þú bara kannt þetta víst.
▶ |
335 |
Sko. Ég prófaði að læra það og ég bara var ekki að ná þessu.
▶ |
336 |
Heilinn minn vill ekki virka á þessa vegu.
▶ |
337 |
En já, mér finnst ekkert mál að teikna og mála og
▶ |
338 |
eitthvað í þá áttina. Ég gæti hannað föt. Ég gæti teiknað fötin en svona [UNK].
▶ |
339 |
Já,
▶ |
340 |
láta einhvern annan [UNK].
▶ |
341 |
Að svona reikna út sniðin og hvernig á að sauma kjól.
▶ |
342 |
Já, það. Það er hérna að reikna sko það er, þá ertu klæðskeri. Ég geri það ekki, ég hérna bara tek sniðin og sauma eftir þeim.
▶ |
343 |
Já.
▶ |
344 |
En að búa til snið,
▶ |
345 |
Það er hægt að náttúrulega kaupa [UNK].
▶ |
346 |
það er önnur ella sko. Ég kann,
▶ |
347 |
ég held ég kunni það nú voða illa. [UNK].
▶ |
348 |
Er ekki hægt að kaupa bækur sem eru með sniðum í?
▶ |
349 |
Jú, jú, það er það sem maður kaupir sko. Úti í bókabúð
▶ |
350 |
Já, kaupirðu það bara úti í föndurbúð eða?
▶ |
351 |
geturðu keypt svona eða einhverjum búðum, [UNK], það er hægt að kaupa, bókabúðum líklega, svona blöð sem heitir Burda og svoleiðis
▶ |
352 |
Já,
▶ |
353 |
og þar er svona hægt að lesa.
▶ |
354 |
Þá er hægt að sauma, þá eru myndir af fötum sem hægt er að sauma, svo er bara, svo er inni í blaðinu sniðið. Maður þarf samt að taka það upp á, á
▶ |
355 |
svona pappír eins og maður notar. Já.
▶ |
356 |
bökunarpappír.
▶ |
357 |
Taka í gegn sko. Fyrst bökunarpappírinn ofan á,
▶ |
358 |
tekur í gegn
▶ |
359 |
og klippir það út bökunarpappírinn og setur það á efnið og festir, gerir eftir því á efnið.
▶ |
360 |
Já. Heyrðu, er ekki bara kominn hálftími?
▶ |
361 |
Það er eitthvað smá eftir.
▶ |
362 |
Borða eitthvað, orðin svo svöng. [UNK].
▶ |
363 |
Það er ekki mikið eftir.
▶ |
364 |
Tölum þá um hvað þú ætlar að borða.
▶ |
365 |
Já, ég er að hugsa um að fá mér sko ristað brauð
▶ |
366 |
og ég ætla bara að hafa,
▶ |
367 |
Já, ætlarðu bara að fá þér snarl?
▶ |
368 |
já eitthvað svoleiðis. Hvaða dingl var þetta?
▶ |
369 |
Já,
▶ |
370 |
Ég rakst í glasið.
▶ |
371 |
ég verð að sýna þér myndina af blóma, blóminu sem ég gaf henni Díönu. Það er mjög fallegt.
▶ |
372 |
Monsteran mín
▶ |
373 |
sem að er niðri í stofu, hún er bara alveg dauð.
▶ |
374 |
Hún er bókstaflega dottinn úr pottinum.
▶ |
375 |
Hver er það? Monstera?
▶ |
376 |
Já, hún er dottin út pottinum.
▶ |
377 |
Þannig að, þarna, það er bara hola ofan í moldinni, það er eins og hún hafi bara hoppað upp úr.
▶ |
378 |
Nei, niðri í stofu.
▶ |
379 |
Inni á hvaða stofu?
▶ |
380 |
Já, niðri í stofu, já, ég tók eftir því að það var bara farið blómið.
▶ |
381 |
Hún bara hljóp úr pottinum.
▶ |
382 |
Ætli það hafi ekki verið þegar pabbi þinn var að
▶ |
383 |
vesenast með þetta tæki þarna.
▶ |
384 |
Gott að það virkar fyrir hann. Ég er voða fegin og líka fegin að hann sé með stóra ferðatösku og geti tekið með til Spánar, hann verður tíu daga þar eða eitthvað svoleiðis.
▶ |
385 |
Ó je, [UNK].
▶ |
386 |
Já. Nei, [UNK] þegar hann sefur sko.
▶ |
387 |
Það væri ógeðslega fyndið ef þú værir í sólbaði með eitthvað tæki alveg.
▶ |
388 |
Nei, thank you very much.
▶ |
389 |
Hvað er eiginlega heitt á Spáni? Já. Mér finnst svo fyndið hvað það þarf að vera með loftkælingar í heitum löndum, en hérna heima þá erum við með ofna til þess að hita húsið.
▶ |
390 |
Ég þori ekki að hugsa um það.
▶ |
391 |
Það er ábyggilega alveg ógeðslega, ógeðslega heitt. Kæli, inni eða svona loftkæling inni í íbúðinni.
▶ |
392 |
Já,Matthías segir að þessi loftkæling virki þannig að á veturna er hægt að nota hita, láta hann hita.
▶ |
393 |
Já. Já, hægt að nota á báða vegu?
▶ |
394 |
Þannig að það er ágætt. Þá bara,
▶ |
395 |
Mér [UNK].
▶ |
396 |
þá gerirðu það.
▶ |
397 |
Ég man úti í útlöndum þegar ég var í einhverri verslunarferð, þá var svo ótrúlega heitt úti
▶ |
398 |
og alltaf þegar maður fór inn í einhverja búð þá var ótrúlega kalt inni í búðinni, það var svo þægilegt.
▶ |
399 |
Já,
▶ |
400 |
Andstætt vandamál miðað við það sem ég upplifi oft hérna. Svona á veturna.
▶ |
401 |
já,
▶ |
402 |
og líka þegar maður er að ná svona [UNK], og fer inn í svona mold, þá getur bara verið kalt þar inni. Maður þarf virkilega, bara
▶ |
403 |
verða ekki kvefaður.
▶ |
404 |
Já. Ég man þegar öll fjölskyldan fór til Flórída og það var svo svakalega köld loftræsting á einhverjum veitingastað sem var bara að blása beint á okkur að helmingurinn af hópnum fékk kvef og vorum bara kvefuð alla ferðina. Út af loftræstingu.
▶ |
405 |
Ekki hægt. Nei, þetta er nú ekki hægt sko. Fáránlegt.
▶ |
406 |
Þau voru bara að drepast úr kulda á veitingastaðnum.
▶ |
407 |
Það er svo margt spes við Bandaríkin, eða mér fannst það allavegana þegar ég fór.
▶ |
408 |
Já, já, það er svolítið margt spes.
▶ |
409 |
Það sem mér fannst mest spes var hvað loftkælingin var extreme. Svona of mikil.
▶ |
410 |
Ég man að einu sinni þegar við Matti vorum á Portúgal,
▶ |
411 |
þá var svo rosalega heitt og við löbbuðum inn í eina búð bara til þess að kæla okkur.
▶ |
412 |
Já, heyrðu þetta var svona,
▶ |
413 |
selja svona teppi á rúm, keyptum rúmteppi þar sem ég notaði í mörg ár.
▶ |
414 |
Þannig að þeir sem eru með þessar kælingar þeir fá kúnna inn sko. [UNK].
▶ |
415 |
Það var svona mynd í glugganum, það er rosa kalt inni hjá okkur.
▶ |
416 |
Já, mér fannst líka svo spes við Bandaríkin svona tax.
▶ |
417 |
Ef maður var að kaupa eitthvað þá þurfti maður alltaf að borga aukalega skatt.
▶ |
418 |
Það var ekki reiknað með í verðinu strax.
▶ |
419 |
Nei, mér fannst það svo pirrandi út af því að ég var búin að reikna verðið út áður en ég fór á kassann og svo þurfti ég að borga meira þegar ég var komin að kassanum og ég átti ekki nóg. Bara, hvernig á ég að reikna svona hratt prósentureikning?
▶ |
420 |
Það finnst mér líka rosa pirrandi.
▶ |
421 |
Alveg ógeðslega pirrandi. [UNK].
▶ |
422 |
Mér fannst það fyndnast þegar ég fór í dollar store og þú veist, þá er hver einasti hlutur þarna inni kostar einn dollara,
▶ |
423 |
og við tókum nokkra hluti og reiknuðum hvað það væri mikið, þú veist. Segjum að þetta hafi verið fimm hlutir. Þannig að þetta átti að vera fimm dollarar, svo fórum við á kassann og þá var það sex og hálfur eða eitthvað, út af þessum skatt. Þannig að dollar tree er bara lygi.
▶ |
424 |
Já, það er bara ekki satt þá.
▶ |
425 |
Já. Mér fannst þetta svo fáránlegt, að geta ekki borgað með bara einum dollara ef þú ert í dollar store, þú þarft að borga aukalegt.
▶ |
426 |
Það er bara algjör synd.
▶ |
427 |
Skrítið, borgar fólk ekki skatt þarna?
▶ |
428 |
Jæja, er ekki kominn hálftími?
▶ |
429 |
Það eru tvær mínútur eftir.
▶ |
430 |
Þú færð ristað brauð eftir smá. Jú.
▶ |
431 |
Ég fer bara og læt
▶ |
432 |
krem á andlitið á meðan,
▶ |
433 |
á meðan ég tala við þig, er það ekki allt í lagi?
▶ |
434 |
Jú, jú.
▶ |
435 |
Sleikja á sér loppuna.
▶ |
436 |
Já. Hann er alltaf að snyrta sig.
▶ |
437 |
[UNK] svo mikið krútt, hann er svo mikið kúrukisi.
▶ |
438 |
Ó, já, kúra og kela svona, en svo kemur hann inn með fugla í kjaftinum, þá er ég nú ekki eins hrifin af honum.
▶ |
439 |
Oj. [UNK].
▶ |
440 |
Vondur kisi segi ég þá og Matthías skrifaði svona, wanted, dead or alive.
▶ |
441 |
Hann notaði svo fyndna mynd af kisa líka. Kisi var eins og einhver panther á myndinni, hann var ógeðslega illilegur á svipinn. Ég var bara oh my.
▶ |
442 |
Alveg eins og hann væri að fara að veiða.
▶ |
443 |
Hver voru verðlaunin? Fimm þúsund dollarar.
▶ |
444 |
Fimm þúsund dollarar.
▶ |
445 |
Dead or alive. Þetta er, og svo bjuggu þeir til,
▶ |
446 |
úr pappakössum bjuggu þeir til jail, það er að segja fangelsi fyrir svona kisur.
▶ |
447 |
Ég vildi ekki leyfa þeim að setja kisuna inn af því að
▶ |
448 |
Sheriff office.
▶ |
449 |
kisan veit náttúrulega ekki. Hún er bara að fara eftir eðlinu.
▶ |
450 |
Dýrin.
▶ |
451 |
Jú, núna er tímínn kominn. Takk sömuleiðis, takk fyrir, takk fyrir.
▶ |
452 |
Takk fyrir spjallið. Á ég þá að slökkva á símanum eða hvað?
▶ |
453 |
Já. ég slekk á upptökunni. Bæ.
▶ |
454 |
Já, heyrðu, þú gerir það, takk fyrir.
▶ |