1 |
Jæja, hvað segirðu?
▶ |
2 |
Ég er nokkuð góður en þú?
▶ |
3 |
Ég segi bara allt fínt sko, hvað ég sá að þú varst að koma úr búðinni.
▶ |
4 |
Já, ég fór í Bónus áðan og var að kaupa inn hérna, fyrir fjölskylduna.
▶ |
5 |
Já, stór fjölskylda.
▶ |
6 |
Nei, ég myndi nú ekki segja það, við erum náttúrulega bara tvö.
▶ |
7 |
Já, og hvað hérna,
▶ |
8 |
ertu búinn að setja upp grill á svölunum eða?
▶ |
9 |
Ég er ekki búinn að því en hérna það styttist í það. Það eru, það var náttúrulega gott veður í gær og svona þannig að, við förum bráðum í að, að, að kaupa þetta grill.
▶ |
10 |
Ertu búinn að koma þér fyrir hérna, hvað varstu aftur með úti á svölum þarna um daginn?
▶ |
11 |
Varstu kominn með svona, ætlaðirðu ekki að setja svona pallflísar eða þannig?
▶ |
12 |
Jú, það verða líklega einhverjar pallflísar þarna, settar nýjar jafnvel sko, það eru einhverjar gamlar núna. Og svo kemur örugglega bara einhvers konar hérna, einhvers konar patio eins og sagt er.
▶ |
13 |
Já, líst vel á það.
▶ |
14 |
Já, einmitt, ég grillaði í gær sko, ég reif grillið hérna fram og, og hérna, grillaði bara pulsur.
▶ |
15 |
Hversu margar? Yes. Ég trúi þér.
▶ |
16 |
Ég, þetta var alveg, hvað er í pakka, eru ekki tíu? Þannig að þetta hafa verið átta stykki.
▶ |
17 |
Það var rosalegt sko.
▶ |
18 |
En það var ekki til hérna, ég er mjög svekktur af því það var ekki til, hérna, svona pulsusinnep í búðinni, þú veist.
▶ |
19 |
Svona klassískt.
▶ |
20 |
Svona íslenskt [HL: íslenskur]. Nei, einmitt. Ókei, ég vissi það ekki.
▶ |
21 |
Já, sem er ekki sinnep sko.
▶ |
22 |
Það nefnilega er ekkert sinnep í pulsusinnepi.
▶ |
23 |
Þetta er bara hveiti og bragðefni eða eitthvað þannig.
▶ |
24 |
Oj maður, hvað er maður búinn að vera að borða hérna öll þessi ár. Já, já, já, já. Já [UNK] Ég frétti af því.
▶ |
25 |
sem er frekar ógeðslegt.
▶ |
26 |
Já, það er frekar ógeðslegt.
▶ |
27 |
En síðan, síðan er að styttast í að hérna,
▶ |
28 |
að við getum keypt okkur hérna íbúð,
▶ |
29 |
Geggjað, geggjað.
▶ |
30 |
sótt um hérna, sótt um lán í morgun bara, meira að segja.
▶ |
31 |
og hvað, hvernig, hvenær fáið þið að vita?
▶ |
32 |
Einmitt.
▶ |
33 |
Ég veit það ekki, ég þarf eiginlega bara að fara aftur inn á
▶ |
34 |
á netið eða vefinn þarna og hérna
▶ |
35 |
tékka á lánunum, sjá hvernig staðan er,
▶ |
36 |
Frábært að heyra maður, ha.
▶ |
37 |
af því að núna er þetta bara á netinu, það er svona pínu creepy. Þið, þið gerðuð það væntanlega líka þannig líka.
▶ |
38 |
Já, við gerðum þetta svolítið mikið í gegnum.
▶ |
39 |
Eða þurftuð þið að tala við einhverja manneskju í bankanum eða? Já.
▶ |
40 |
Við fórum einu sinni held ég, fórum á einhvern fund og hérna, en ekkert í rauninni eitthvað sem að tók eitthvað langan tíma. Við vorum aðallega í gegnum síma og á netinu bara. Þetta var náttúrlega þegar Covid var í, í, í hæsta [HIK: flug] hæsta flugi sko, þannig að.
▶ |
41 |
Já [UNK]
▶ |
42 |
Það er, það er nefnilega var þannig að, eða þú veist, ég var að gera þetta í gegnum netið. Ég var næstum því búinn að bara,
▶ |
43 |
klára að sækja um umsóknina fyrir hérna
▶ |
44 |
láninu sko, þú veist bara tekið öll boxin og velja lán og allt það.
▶ |
45 |
Svo hugsa ég bara, þú veist, á maður ekki að tala um við einhvern eða?
▶ |
46 |
Af hverju, af hverju er hann þá að fara að gera þetta
▶ |
47 |
og hérna án þess að tala við
▶ |
48 |
manneskju í bankanum um sko, þú veist ég var náttúrulega búinn að tala við einhvern þarna út af greiðslumatinu en
▶ |
49 |
en um, [HIK: u], um, út af hérna, þú veist um lánin skilurðu. Þú veist bara hvort þetta sé sniðugt eða hvað þeir myndu mæla með og svona. Það er svolítið skrítið að það sé hægt að gera þetta bara þú veist.
▶ |
50 |
Já, já bara í, í tölvunni sko. Ég, við, við, við vorum á því sama sko. Nema hérna, nema að skal ég þér segja við vorum, vorum
▶ |
51 |
svolítið lengi að fatta það að við gátum bara séð um þetta allt sjálf líka sko og manni finnst nú svo óþægilegt með þetta sko
▶ |
52 |
af því manni finnst þetta vera svo stórt skref sko.
▶ |
53 |
Já, einmitt sko, ég bara þú veist af [UNK] tikkað í eitthvað box bara eitthvað, viltu skuldsetja þig um, þú veist, tugi milljóna. Bara eitthvað, já já.
▶ |
54 |
Já, ekki málið.
▶ |
55 |
Það er svolítið skrítið sko, en, en hérna, en ég sko pantaði sem sagt bara þá í staðinn fyrir að klára þetta í gær, þá pantaði ég bara tíma
▶ |
56 |
sem að var þá í morgun sko. Þú veist, bara svona símtal.
▶ |
57 |
Já, einmitt, einmitt.
▶ |
58 |
Og hérna, það var mjög gott sko, en þú veist, það var samt bara að staðfesta hluti sem maður var búinn að komast að sjálfur en, en það er alltaf gott að fá að heyra það samt sko.
▶ |
59 |
Já, það var nákvæmlega sama hjá mér, ég veit ekki, veit ekki hversu mörg símtöl ég pantaði og var síðan í rauninni bara að heyra hluti sem ég vissi alveg sjálfur sko. Þetta var alveg bara upp á staðfestinguna eins og þú segir sko. Þannig að,
▶ |
60 |
þetta gerðist tiltölulega hratt hjá okkur sko, svona allt þetta prósess og áður en við vissum af einhvern veginn vorum við bara komin með þessa íbúð eftir að hafa boðið í hana bara daginn áður sko. Þannig að, [HIK: e] ekki eitthvað sem að við bjuggumst við sko. Já, þannig að þetta gekk svona svolítið hratt einhvern veginn allt fyrir sig sko. En hérna, já, geggjað.
▶ |
61 |
Já. Já.
▶ |
62 |
Já
▶ |
63 |
Já. Einmitt. Já við buðum í þetta bara. Hvenær var það? Það er nú orðið dálítið síðan. Vika eða eitthvað.
▶ |
64 |
Eða, það var nú í síðustu viku.
▶ |
65 |
Jæja. Já, já. En þú veist það verður ekkert afhent fyrr en sko, í sumar einhvern tímann.
▶ |
66 |
Ég veit það ekki, eitthvað um mitt [HIK: sum], um mitt sumarið sko.
▶ |
67 |
Já, þannig að þið þurfið að bíða í einhverja x mánuði náttúrulega. Já. Einmitt.
▶ |
68 |
Já, en það er allt í lagi. Við getum hangið hér, það er ekkert mál.
▶ |
69 |
En, en það bara, hérna,
▶ |
70 |
Af því að fólkið sem á heima þarna
▶ |
71 |
Já, ókei, ókei.
▶ |
72 |
Ég held að þau séu að fara að flytja erlendis. Þannig að,
▶ |
73 |
það getur verið dálítið gott sko, af því það eru fastir skápar, eða svona drasl á [HIK: hillö], nei á, á veggjunum.
▶ |
74 |
Já, já.
▶ |
75 |
Þá gæti verið dálítið öflugt að hérna
▶ |
76 |
þurfa ekki að taka þær niður sko ef þú veist hvað ég meina.
▶ |
77 |
Já, þá getið þið bara átt þetta, tala um það?
▶ |
78 |
við erum að spá í að tala við þau, sko. Spyrja [HIK: hva], hversu mikið þau ætla raunverulega að drösla með sér
▶ |
79 |
Já, [HIK: úm] um að gera sko.
▶ |
80 |
þangað sem þau eru að fara sko.
▶ |
81 |
af því að það er,
▶ |
82 |
þú veist það eru líka ísskápar þarna og svona sem passar.
▶ |
83 |
Já, hann hlýtur nú að fylgja með.
▶ |
84 |
er inni í innréttingunni. [HL: naaa] ég veit ekki, ég meina fólk er að fara.
▶ |
85 |
Sko flestir sem að, ef þú værir að flytja eitthvert annað,
▶ |
86 |
taka ekki flestir ísskápinn og svoleiðis með sér?
▶ |
87 |
Ég held það sé misjafnt sko, það eru einhverjar reglur sem segja til um að ákveðnir hlutir fylgja með sko og eiga að gera það samkvæmt lögum sko.
▶ |
88 |
Allavega á Íslandi er það þannig, er það ekki?
▶ |
89 |
Við vorum óviss hvort það væri til dæmis, þú veist, ísskápur og eitthvað svoleiðis. En það var allt skilið eftir þarna hjá okkur, til dæmis [UNK] og, ísskápur, meira að segja uppþvottavél, sem ég held að sé nú ekki hlutur sem að eigi að fylgja með samkvæmt lögum sko.
▶ |
90 |
En
▶ |
91 |
og líka ofninn og náttúrulega helluborðið og allt það skilurðu. Þú veist maður spyr sig, hvar hvar endar endar sú lína sko sem á, á dótinu sem á að fylga með sko.
▶ |
92 |
Já.
▶ |
93 |
Ég hef nefnilega haft á tilfinningunni að það sé einmitt sko
▶ |
94 |
bara eiginlega bara ísskápur og svo þvottavél og þurrkari sem að er svona, fólk tekur með sér sko
▶ |
95 |
og svo einhvern veginn, en síðan veit ég að fólk er líka að taka sko, uppþvottavélar og annað úr innréttingunum sko.
▶ |
96 |
Já, já, ég skil þig. Ég, ég, ég hélt alltaf sko að þetta væri bara allt saman sko. Þú veist í, í hérna. Þú veist af því þetta er keypt þannig eins og þú segir sko.
▶ |
97 |
Mér finnst það bara svolítið fyndið, sko af því að þú veist,
▶ |
98 |
innréttingar eru svo
▶ |
99 |
hvað heitir það, þú veist þær eru svo einstakar, eða þú veist þær geta verið sérstakar,
▶ |
100 |
það er svolítið, kannski svolítið ólíklegt að þú finnir akkúrat, eða lendir akkúrat á innréttingu sem að þú veist, passar fyrir vélina sem passar akkúrat í hina innréttinguna, gömlu.
▶ |
101 |
Ég veit það ekki.
▶ |
102 |
Þannig að ég hélt að þetta væri allt hlutir alltaf sem að myndu fylgja með í svona kaupum og svona.
▶ |
103 |
Já, í Bandaríkjunum þá er það þannig sko, eða þú veist
▶ |
104 |
þegar þú ert að leigja þá ertu með
▶ |
105 |
þvottavél og þurrkara í íbúðinni sem að
▶ |
106 |
sem að voru skilin eftir, eða þú veist þau tilheyrðu bara íbúðinni, sko og, og ísskápurinn líka
▶ |
107 |
og hérna. En, og mér fannst það skrítið þá, sko. Þú veist, þannig að
▶ |
108 |
þetta var, það var alltaf lenskan, allavega á Íslandi, að þú veist, taka þetta dót með sér skilurðu.
▶ |
109 |
Eins og við áttum ísskáp,
▶ |
110 |
þegar við bjuggum hérna í Reykjavík og svo tókum við hann með okkur þegar við fluttum í Hafnarfjörð.
▶ |
111 |
Og þú veist.
▶ |
112 |
[HIK: umm]
▶ |
113 |
Já, ég held að það sé, [HIK: eageetta] þetta er bara misjafnt sko.
▶ |
114 |
Náttúrulega öðruvísi á leigumarkaðinum þegar að, þegar að þú reynir að finna þér náttúrulega deal sem að er með sem mestu innifalið fyrir þig líka sko.
▶ |
115 |
Eins og til dæmis, þú veist, fylgir, fylgir svona með eða ekki og, og allt það sko.
▶ |
116 |
Já. Já, einmitt.
▶ |
117 |
Því það þarf ekkert endilega alltaf að vera.
▶ |
118 |
Já, já ég, við ætlum að kanna það næst ef að þetta fer í gegn.
▶ |
119 |
Þú veist, [UNK]
▶ |
120 |
tala við eigendurnir og sjá hvað þau ætla að skilja eftir og, og hérna,
▶ |
121 |
reyna,
▶ |
122 |
Já, um að gera maður, um að gera, líka bara, ég meina, spyrjið þið bara með alls konar húsgögn, maður. Þú veist, ef að þau eru að fara út, bara eitthvað, að þá, þá getur vel verið að þau vilji líka selja ykkur eitthvað á, lægra verði en það væri í boði á úti í úti í búð sko, þannig að
▶ |
123 |
reyna að spara okkur, reyna að spara okkur eitthvað. Já.
▶ |
124 |
það er [HIK: ei] eitthvað sem okkur var boðið hérna með ákveðna hluti og, og ég meina við vorum komin með ákveðna aðra hluti, hluti inn sko bara af því við vorum með gott fólk í kringum okkur sem að gat reddað okkur hinu og þessu sko.
▶ |
125 |
Já,
▶ |
126 |
En, en annars hefðum við örugglega sagt já við, já við því sko. Þannig að ekkert að því að taka upp þú veist, einmitt kannski einhverja, einhverja þvottavél eða whatever skilurðu inn í, inn í, inn í jöfnuna svona sko.
▶ |
127 |
Er það ekki?
▶ |
128 |
já, algjörlega sko.
▶ |
129 |
Algjörlega, ég hérna, við fáum.
▶ |
130 |
Ég veit að það er fólk í fjölskyldunni sem var að losa sig við, við hérna, við sófa.
▶ |
131 |
Snilld.
▶ |
132 |
Þannig að við fáum, fáum svoleiðis.
▶ |
133 |
Og svo er
▶ |
134 |
ýmislegt sem þú veist um sem að
▶ |
135 |
Já, já. Einmitt.
▶ |
136 |
er búið að losa úr ákveðinni íbúð,
▶ |
137 |
það er er alveg eitthvað, eitthvað þar sem að
▶ |
138 |
Það hljómar mjög vel.
▶ |
139 |
sem að við ætlum að [HIK: bl] blokka upp sko.
▶ |
140 |
Og hérna, já, þannig að það er góð redding og þú veist,
▶ |
141 |
Nú verður bara, maður verður [HIK: da] banka á timbrið hérna sko.
▶ |
142 |
Já.
▶ |
143 |
Sjö, níu, þrettán, sko,
▶ |
144 |
þetta er bara í,
▶ |
145 |
þessi lán eru í vinnslu sko. Ég ætla ekki alveg að vera að jinx-a þetta hérna.
▶ |
146 |
Þetta getur verið prósess. Þetta getur verið, tekið náttúrulega mjög langan tíma sko. Maður getur ekki.
▶ |
147 |
Ég meina, við vorum mjög lengi að leita sko, ef ég á að vera hreinskilinn við þig. Við vorum einmitt þú veist, komin [HIK: okk] okkur fannst við vera komin langleiðina með eitt skilurðu án þess að vera búin að gera eitthvað fyrir alvöru en, en, en svo bara er þetta svo fljótt að fara líka sko. En ég vona að, ég vona að þetta gangi upp hjá ykkur sko með þetta.
▶ |
148 |
Já,
▶ |
149 |
Hljómar eins og þetta sé málið.
▶ |
150 |
já,
▶ |
151 |
Þau eru allavegana búnir að samþykkja
▶ |
152 |
þú veist, það er komið samþykkt kauptilboð og allar græjur og þá er þetta bara hvort að bankinn sé til í að [HIK: ley-lá] lána manni peninga sko.
▶ |
153 |
Já, ókei. Já, þetta er alveg komið þangað, geggjað.
▶ |
154 |
Það, það hljómar mjög vel. Já.
▶ |
155 |
Já, já.
▶ |
156 |
Já, það bara, þannig þetta er bara svona.
▶ |
157 |
Það er spennandi, þetta verður, það verður mikið að gera í sumar sko.
▶ |
158 |
Þú veist hvar ég á, hvar ég á heima. Þú getur alltaf hringt í mig líka ef þig vantar hjálp.
▶ |
159 |
Maður er líka að reyna.
▶ |
160 |
Já einmitt, ef ég ætla að hringja í þig, þarf ég þá ekki að vita númerið þitt? Það hjálpaði mér ekkert að vita hvar þú átt heima [UNK], ætla að hringja í þig.
▶ |
161 |
Ertu ekkert fyrir gamla mátann og þú getur bara komið og bankað upp á, kemur bara, sækir mig.
▶ |
162 |
Já, já, nákvæmlega. Ég er löngu hættur að nota síma.
▶ |
163 |
Jú, mæta bara og er svo brjálaður ef að þú ert ekki heima, skil ekkert í því.
▶ |
164 |
Það er hérna.
▶ |
165 |
Já, það eru sumir sem eru búnir að fara úr snjallsímanum í gömlu Nokia símana, en þú ferð bara alla leið.
▶ |
166 |
Já. Nei, ég, ég var nú kannski aðeins að ýkja þar en ég er reyndar hættur á Instagram ef þú vildir vita það.
▶ |
167 |
Þannig, engin samskiptatækni.
▶ |
168 |
Já.
▶ |
169 |
Kominn með nóg af því.
▶ |
170 |
Já. Já, er það? Ókei.
▶ |
171 |
Þetta, já, þetta er bara eitthvað eitur,
▶ |
172 |
Ég held að þetta sé nú ekkert, ég held þetta sé nú ekkert eitur fyrir alla en ég fann það að þegar tíminn minn var farinn að snúast einhvern veginn of mikið að mínu mati í eitthvað svona forrit að þá svona í grunninn ákvað ég bara að segja, segja þetta gott í bili. En svo getur maður alltaf náð í þetta aftur ef maður vill vera á þessu sko.
▶ |
173 |
eitthvað fen.
▶ |
174 |
Já.
▶ |
175 |
Algjörlega sko, þetta er alltaf þarna sko.
▶ |
176 |
Já, þessi forrit eru ofboðslega skrýtin sko, svo þegar þú hættir á svona forriti að þá, af því að þetta er svo ávanabindandi fyrir marga og ávanabindandi hérna í rauninni hefur verið ávanabindandi fyrir mig líka. Það er ástæðan af hverju mér líkar þetta ekki. Ein ástæðan.
▶ |
177 |
Og þú veist, það er, þetta er [HIK: ekk], getur verið algjör tímasuga samt sko.
▶ |
178 |
En svo
▶ |
179 |
gera þau eitt einmitt og eru að þú veist ég, ég hérna eyði [UNK] þessum aðgangi þarna og, og þá halda þau þér, gefa þér tíma til þess að koma aftur.
▶ |
180 |
Segir ókei, hérna, svona eins og dópsali sko. Þú veist. Segja við þig sko já hérna, þú vilt delete-a, flott það er móttekið, ef að þér snýst hugur þá hefurðu tíma til þess að sækja þennan aðgang aftur til fimmta maí.
▶ |
181 |
Og ég er búinn að vera með, ekki búinn að vera með þetta í sko einhvern, örugglega mánuð núna þannig að þú sérð hvað þetta er langur tími. Sem þau eru að reyna, reyna að fá mann aftur sko inn í loop-una sko.
▶ |
182 |
Þetta er alveg rosalegt sko. Og þú veist að, [HIK: og], og af því þú veist það eru náttúrulega þessar auglýsingar,
▶ |
183 |
auglýsingar og annað sem birtist í þessu, svona sérsniðið að þér sko.
▶ |
184 |
Þú veist, hérna inni í feed-inu, þá fá, þau vilja fá þína augnbolta sko, á auglýsingarnar.
▶ |
185 |
Þá græðir platform-ið.
▶ |
186 |
Og hérna, mér finnst líka svolítið fyndið að það er svona,
▶ |
187 |
svona Facebook,
▶ |
188 |
eitthvað Facebook hate sko, og svo er náttúrulega Instagram, er Facebook sko, eða þú veist, Facebook á Instagram.
▶ |
189 |
Gleymist sko.
▶ |
190 |
Sérstaklega hjá þessari ungu kynslóð sko.
▶ |
191 |
Sem að segir að, að til dæmis Facebook er ekki lengur hipp og kúl og svo er það á Facebook allan daginn og áttar sig ekki á því.
▶ |
192 |
Það gleymist sko.
▶ |
193 |
Þetta er rosalega fyndið. En það er, en þetta er svona að verða alltaf meira og meira, einhvern veginn
▶ |
194 |
þú veist alltaf, á færri og færri, hérna,
▶ |
195 |
valdið er í, alltaf í höndum
▶ |
196 |
færri einstaklinga eða færri fyrirtækja.
▶ |
197 |
Þetta er eins og með media bara þú veist, alla, eins og þú veist ljósvakamiðla, hvað sem þetta kallast. Þú veist, media
▶ |
198 |
fyrirtækið sko.
▶ |
199 |
Þá er þú veist, Disney núna á alveg geðveikt mikið af,
▶ |
200 |
eru nýbúnir að vera að kaupa bara síðustu árin sko fullt af fyrirtækjum,
▶ |
201 |
til dæmis eins og
▶ |
202 |
þú veist þeir keyptu E S P N,
▶ |
203 |
og bara A B C.
▶ |
204 |
Keyptu, hérna núna nýlega þarna, hvað heitir það þarna
▶ |
205 |
Pixar og allt sko.
▶ |
206 |
Já, einmitt.
▶ |
207 |
Já og líka þarna,
▶ |
208 |
twentieth century fox.
▶ |
209 |
Þannig að þess vegna media control, og hver átti Rupert Murdoch. Hann átti síðan Fox News og Sky og eitthvað.
▶ |
210 |
Þú veist, þannig að þetta vill alltaf, þetta [HIK]
▶ |
211 |
Þetta hallar alltaf í þessa átt,
▶ |
212 |
Einokun á markaði.
▶ |
213 |
virðist vera, þú veist þarna svona,
▶ |
214 |
þetta er svona
▶ |
215 |
já, já, já akkúrat. Svona monopoly ástand sko.
▶ |
216 |
Ég veit ekki alveg hvernig menn brjóta það upp sko með valdi kannski.
▶ |
217 |
Þú veist með lögum og öðru sko.
▶ |
218 |
sem er í rauninni bara vald.
▶ |
219 |
Eða þú veist, ef þú ert frá sjónarhóli þess sem er bisnesskarl, þú veist þá er þetta bara þú veist,
▶ |
220 |
Já, já, þá ertu kominn í, í, í samfélagslegar umræður eins og, eins og kapítalisma versus, versus þarna sósíalisma og kommúnisma í rauninni því að hérna, hversu langt ætlarðu að taka einmitt svona löggjöf í, í, í svona [HIK: kapítalist] kapítalísku [samflagi] samfélagi sko, þannig að.
▶ |
221 |
Þá þegar að það kemur einhver svona löggjöf þá er bara þú veist, þá er það bara kúgun sko.
▶ |
222 |
Ef að ég ætla að gerast of djúpur en ég ætla að sleppa því núna kannski. Nei, það er ekki gott að fara of djúpt.
▶ |
223 |
Já, það er ekki gott sko.
▶ |
224 |
Það er ekki málið sko.
▶ |
225 |
[UNK]
▶ |
226 |
Já,
▶ |
227 |
en það er gott sko.
▶ |
228 |
Heyrðu hérna já. Heyrðu, ég held að þetta verði mjög,
▶ |
229 |
ég held þetta verði mjög busy sumar, þú veist, það, maður ætlar líka að reyna að ferðast eitthvað skilurðu.
▶ |
230 |
Ætlið þið að reyna að ferðast eitthvað innanlands þá eða?
▶ |
231 |
Svo er maður kannski að fara eitthvað að flytja og eitthvað og,
▶ |
232 |
og reyna að klára allt sem maður er að gera núna.
▶ |
233 |
Já,
▶ |
234 |
við ætlum að reyna að taka
▶ |
235 |
sko helgina, nei vikuna fyrir verslunarhelgi
▶ |
236 |
þá langar mig rosalega að taka bara þú veist, þá viku, þú veist bara,
▶ |
237 |
Einhvers staðar úti á landi, bara. Já, einmitt.
▶ |
238 |
vera bara ekki á svæðinu sko.
▶ |
239 |
já, þú veist bara í nokkra daga og kannski helgina sitthvoru megin.
▶ |
240 |
[HIK: eru þi], eruð þið með einhver svona plön eða, eruð þið að hugsa, ekki eruð þið að hugsa út fyrir landsteinana.
▶ |
241 |
Nei, ég sko, við erum að reyna, við erum að safna fyrir góðri útlandaferð einhvern tímann.
▶ |
242 |
Eruð þið svona djörf?
▶ |
243 |
En hvort sem það verður í [HIK: sss] það verður líklega ekkert í sumar, þar sem við gerum það.
▶ |