45 - deb42548-02ba-4717-b844-32c28b4c54a1

Go back

1 Já, sæl. Heyrðu,
2 Hæ.
3 ég var að hugsa, þegar að við erum búin að eiga þetta samtal, hvort að það sé ekki upplagt
4 að kíkja í sund?
5 Jú, mig langar mjög mikið í sund.
6 Flott, ætlarðu að taka einhverjar ferðir í sundinu? Eða ætlarðu bara að slaka á í pottinum eða?
7 Ég hugsa að ég nenni ekki að synda í kvöld.
8 Nei, nei, ég hugsa að ég taki heldur ekki á mig að synda í kvöld. Ég var að
9 gera hnébeygjur í ræktinni ég hefði kannski alveg gott af því að
10 synda smá en ég
11 hugsa að ég tsjilli bara sjálfur með þér.
12 Já, vel gert. Ég tók axlir í morgun,
13 Ú, fórstu í ræktina?
14 já,
15 ég hætti við að hlaupa, Begga,
16 hún hætti við á seinustu stundu.
17 Ókei, hvað, var vinkona þín að beila á þér eða hvað?
18 Já, hérna hún var bara eitthvað,
19 átti eitthvað erfitt með að vakna. Eða þú veist, hún vill frekar hittast eftir vinnu en ég er alltaf að vinna aðeins lengur en hún þannig að það gengur eiginlega ekki.
20 Hvert fórstu að æfa?
21 Bara World Class.
22 Í Laugum eða? Já, ókei, næs.
23 Já,
24 Já, og hvað hérna,
25 hvað söng í Maríu, þú varst með henni, er það ekki?
26 jú,
27 bara allt gott,
28 hún var bara mjög indæl og þakkaði mér alveg ótrúlega mikið fyrir að hafa keypt blóm og eitthvað, en hérna.
29 Ég keypti svona gul blóm. Ég veit ekki hvaða týpa þetta er en,
30 en já, einhver gul blóm og keypti eitthvað súkkulaði með núggati í og og skrifaði svo lítið kort.
31 Skemmtilegt, skrifarðu lítið kort?
32 Já, já maður, ég negldi þetta.
33 Vá. Hún hefur verið sjúklega ánægð með þetta.
34 Já, ég vona.
35 Ég er ansi hræddur um að hún fari núna að leita eftir ástæðu til þess að lána þér kæliboxið sitt.
36 Já einmitt, það var líka. Þeir voru með poka með lime í, í kæliboxinu.
37 Hverja helgi: Þurfið þið ekki á kæliboxinu að halda?
38 Ég var að hafa einhverjar aðeins svona áhyggjur af því, þú veist, ég þreif hann en
39 lét hana vita.
40 En lyktin var bara frekar góð, kom á óvart.
41 Já, eða þú veist, var þá einhver svona lime lykt eða eitthvað? Já, ókei.
42 Já.
43 Samt var það í poka sko.
44 Það bara, þú veist, kæliboxið heldur svo vel.
45 Þú veist kannski bara ef ég hefði skilið eftir opið í tvær mínútur þá hefði það farið.
46 Já, já María á samt einhverjar svona
47 þrifnaðargræjur, hún getur örugglega eitrað þetta, þessa lykt
48 út úr, úr þessu boxi sko, ég hef engar áhyggjur af því.
49 Ég hugsa að það þurfi ekki að eitra þetta samt sko. Já ég skil þig.
50 Varla, varla þarf að eitra. Ég kalla þetta eitur, ég veit ekkert hvað
51 er viðeigandi að kalla svona dót.
52 Já heyrðu hérna, á morgun þá er ég að fara í jóga
53 Nice.
54 klukkan hálffimm.
55 Ég veit ekki hvort þú viljir koma með en ég er allavega að fara,
56 ég hef ekki farið í jóga í alveg
57 tvær vikur,
58 ég lenti sko í skammarkróknum hjá World Class um daginn
59 og ég er svona
60 fimm sinnum búinn að biðja þau um að afskrá úr
61 hérna skammarkróknum.
62 En ég tók svona siðræna ákvörðun
63 um að, um að láta þau ekki taka mig af núna vegna þess að ég sannarlega
64 mætti ekki í tímann sem ég skráði mig í
65 og þetta var í byrjun júní sko
66 þannig ég hef ekki mætt í einhverjar tvær vikur í jóga.
67 Ég er orðinn mjög spenntur fyrir því að, að kíkja á morgun.
68 Já geggjað, ég væri alveg til í að reyna, nei ég get það ekki. Vá, ég hefði verið ótrúlega til í það eða bíddu, það er í klukkutíma, sko. Nei, ég get það ekki á morgun. Ég er nefnilega, ég er að hugsa að reyna kannski að fara í hádeginu á morgun að gera eitthvað því að
69 Já, já,
70 ég þarf að vera uppi í vinnu milli fimm og tíu.
71 já.
72 Við erum að taka á móti
73 sófa og það er enginn annar sem getur gert það.
74 Þannig að
75 já,
76 þannig að ég þarf að vera uppi í vinnu.
77 Ert þú að fara að taka á móti sófa? Ein?
78 Geturðu? Hérna, ætlarðu að bera hann ein? Ókei, ókei.
79 Ég var að segja það, já. Það er gæi sem kemur samt með hann.
80 Nei, hann hjálpar mér að bera hann upp líklega, gæinn.
81 Næs.
82 Það er nú hellings hreyfing í því að bera sófa.
83 Einmitt jájá, ég ætla bara að vinna fram eftir, svo er sjónvarp þarna þannig að ég get horft á leikina og
84 Ertu eitthvað?
85 ég borða bara eitthvað þarna.
86 Ertu eitthvað hérna, ertu eitthvað
87 að horfa á leikina út af þessu veðmálakerfi þarna? Ertu eitthvað?
88 Já, ég er búin að vera að ég var að horfa, var að horfa í dag sko á Pólland,
89 Já, já,
90 já, Pólland maður.
91 það var bara svo svekkjandi.
92 Vont að fá á sig rautt spjald og lenda svo undir. Það eru ekki góðar líkur sko.
93 En við höfum tröllatrú á Spánverjum og á morgun eru
94 Portúgalir að keppa.
95 Við höfum tröllatrú á þeim, þeir hljóta að vinna Ungverjaland sko.
96 Ég, já, ég eiginlega
97 eins og þú veist þá er ég, þá veðja ég að Portúgal vinni þetta mót sko.
98 Þeir unnu síðast sko, þeir unnu síðasta Evrópumótið.
99 Í Frakklandi,
100 tóku Frakka í úrslitum.
101 Okkar allra besti Eder skoraði
102 eina mark leiksins,
103 bara blálokin bara upp úr þurru í uppbótartíma held ég.
104 Það var, það var næs.
105 Ég reyndar var ekki með neinn pening á leiknum þá en,
106 en ætla augljóslega ekki gera sömu mistök aftur.
107 Ég segi svona.
108 Fyndna er að fólk mun sko, sem sagt
109 krakkarnir sem eru að vinna með mér í HR núna,
110 þau eru að fara að hljóðrita þetta spjall sko.
111 Ert þú ekki bara að leiðrétta þetta spjall?
112 Það þarf ekkert endilega að vera sko.
113 Sorrí að ég lét þig nú ekki vita, ég hefði nú átt að vara þig kannski við en hérna.
114 Við erum búin að tala um svo hérna, já einmitt.
115 Svona ótrúlega innileg málefni eins og fótbolta en hérna,
116 en það sést kannski best hvað maður fer illa með þá sem standa manni næst sko.
117 Ha? Nú skil ég ekki.
118 Nei, bara að ég hafi ekki sagt þér, þetta er náttúrulega helber dónaskapur.
119 Og alveg ólíðandi sko. En hérna,
120 það var svolítið skemmtilegt áðan,
121 það var spurning
122 hvað er uppáhalds listaverkið þitt?
123 Einfalt, Rauð nótt eftir Kristínu.
124 Hvað segirðu? Rauð nótt?
125 Eftir Kristínu?
126 Hvað er það?
127 Það er listaverk.
128 Skilurðu, segðu mér eitthvað frá því,
129 ég þú veist, ég veit ekkert hvað þú veist er þetta,
130 Já ókei ókei, já.
131 er þetta stytta eða er þetta málverk eða hvað er þetta?
132 Ertu samt ekki ánægður með mig hvað ég var fljót að svara? Vissi þetta alveg nákvæmlega.
133 Já,
134 það var reyndar mjög impressive svona að því sögðu sko.
135 Þetta er, hérna, þetta er málverk sem að er nakin kona og bak við hana er rauður himinn með stjörnum á. Þetta verk var alltaf uppi á Kjarvalsstöðum þegar mamma var að vinna þar þegar ég var lítil
136 og mér fannst þetta bara það fallegasta sem ég hef séð,
137 Kristín Guðmunds,
138 ég held hún sé Guðmundsdóttur, en hún er alla vega enn þá bara ein af mínum uppáhalds
139 listamönnum.
140 Og hún hefur gert.
141 Hún aðallega var að gera í byrjun, hún lærði út í úti að gera svona líkön gylli Jesú Maríu myndir
142 Já,
143 og hérna og fór svo
144 að gera píkumyndir.
145 já, sú sú gella?
146 Já, já, já, þetta er konan sem að fór og hélt listasýningu inni á dekk, inni á bílaverkstæði, og gerði, setti píkumyndir út um allt. Það var,
147 Já, þú varst búin að segja mér eitthvað frá þessu,
148 hún er, hún er geggjuð.
149 hún er, hún er alvöru femínisti.
150 Mamma er örugglega
151 með nokk.
152 Ég veit ekki hvað þú átt við með því en
153 Nei, bara svona þú veist, hún er svona kona sem að er
154 á ótrúlega skemmtilegan hátt, svona öðruvísi hátt, að
155 fagna kvenmönnum. Ég veit ekki, ég er bara að segja þetta af því það er verið að taka þetta upp,
156 ég vil bara hljóma vel, skilurðu?
157 Þú veist basically. En hérna,
158 úff, hérna.
159 en í alvörunni samt, í alvörunni líka.
160 Þú veist að hérna, þetta er alveg töff concept.
161 Hún er geggjuð sko. Hún ögrar norminu. Og hennar helsta líkan sem er svona guðlegt líkan var mynd af
162 konu,
163 ótrúlega þreyttri með tvo Bónuspoka í hendinni og þetta er geggjuð mynd sem var svona
164 að gera hina þreyttu mömmu að einhvers konar
165 guðlegri veru. Það var.
166 Það er geggjuð mynd. Mamma á alveg þó nokkrar myndir eftir hana.
167 Mér finnst hún okkar fremsti.
168 Hvað kallar maður þetta?
169 Málara listamaður.
170 Já,
171 flestir málarar eru listamenn.
172 Eða þú veist. Hvað kallarðu þetta? Listamaður sem málar.
173 Er það ekki bara málari?
174 Er það samt ekki eitthvað annað orð? Málari hljómar eins og einhver iðnaðarmaður.
175 Já, já, málari.
176 Eða þú veist nei. Þú getur líka talað um iðnaðarmenn sem málara þannig að það er ekki alveg rétt.
177 Loka glugganum, ég vona að það sé ekki fullt af umhverfishljóðum allan tímann á meðan ég er að spjalla, það yrði frekar mikill bömmer.
178 En góða samt við þetta er að sko
179 þitt tal og mitt tal
180 vistast í tvær mismunandi rásir.
181 Þannig að þú veist þetta eru tvö skjöl sem eru transcribe-uð, þú annars vegar og ég hins vegar sko. Það er líka allt í lagi sko.
182 Já, ókei, það er mjög jákvætt. Ég var að hugsa að við værum að tala ofan í hvort annað aðeins,
183 Punkturinn er sá að gervigreindin geti líka skilið spjall. Þess vegna erum við þú veist inni á spjallvettvanginum skilurðu.
184 Þetta er annað kerfi heldur en
185 restin sko.
186 Þannig að við megum tala yfir hvort annað aðeins sko. Og það er augljóslega leyst með því að hafa bara tvær mismunandi
187 rásir sko.
188 einmitt, svo lengi sem við erum ekki óþarflega mikið fram í fyrir hvort öðru.
189 Einmitt, einmitt eins og við. En við erum nú alveg frekar góð í því að tala ekki yfir hvort annað allt of mikið.
190 Hérna. Sko, ef ég má svara minni spurningu, spurningunni þá er uppáhalds
191 listaverkið mitt
192 og það fyrsta sem mér datt í hug er eðlilega hérna tveggja tíma tónverkið eftir uppáhalds, hljómsveitina mína Above and Beyond.
193 Þarna á og BBC Radio 1 en það er í alvörunni ég meina það er allavega sú list sem ég hef örugglega mest neytt yfir ævina án gríns sko.
194 En hérna, ég var actually að sjá sjúklega áhugaverða wikipedia síðu í dag.
195 Og hún er um eldgos sem gerðist árið átján hundruð og fimmtán
196 og þetta gerðist sem sagt hérna
197 í Indónesíu.
198 Þú hefur kannski heyrt um þetta,
199 hvellirnir úr sko sprengingunni, af því þetta var sprengigos,
200 heyrðust einhverjar þú veist tólf hundruð mílur frá
201 allt annars staðar í Asíu sko
202 og hérna og gosmökkurinn var svo agalegur að
203 að það sko
204 mörg tugi þúsunda ferkílómetra svæði,
205 sem var bara þakið ösku,
206 og alveg þú veist tólf hundruð mílum frá var enn þá aska skilurðu,
207 sem var eins sentimetra þykk þú veist, alveg fáránlegt gos.
208 Þetta er stærsta gos í hérna
209 svona á skráðum tímum þú veist frá því að við fórum að skrifa.
210 Og
211 ástæðan fyrir að ég er að minnast á þetta er sú að þetta hafði bara geigvænleg áhrif um allan heim.
212 Þú veist bara á plantekrur og veðurfar og allt þetta dót sko.
213 Og
214 þetta hafði svo mikil áhrif að þetta hafði áhrif á myndlist þessa tíma.
215 Og það er mynd eftir einhvern breskan
216 myndlistarmann,
217 málara,
218 sem heitir Turner.
219 Og þar er einhver mynd af einhverri svona landslagssenu sem er máluð af einhverju sumarlandslagi.
220 Og þar er himinninn svona gulleitur
221 sem hann var árið átján hundruð og fimmtán í Bretlandi
222 og mér fannst þetta stórmerkilegt þú veist hvað þetta er
223 þú veist hvað þetta er ótrúlegt gos og þetta var alveg,
224 fáránlega þú veist. Ég var nefnilega að skoða sko Fagradalsfjall. Hvað komu margir
225 rúmmetrar af hrauni úr því
226 og Fagradalsfjall núna er þú veist,
227 það er eitthvað þúsund sinnum eða hundrað sinnum minna en hérna
228 Lakagígar.
229 Og það er alveg miklu minna heldur en þetta
230 Tambora eldgos,
231 þú veist þetta var bara ógurlegt sko þú veist það var hundrað og sextíu rúmkílómetrar af efni
232 og ég held að Fagradalsfjall sé sko núll komma núll sex ferkílómetrar. Þú veist 100%
233 Það er hægt að spjalla líka, lítið eldgos.
234 en engu að síður þegar maður kemur þangað þá er það alveg mikilfenglegt, skilurðu?
235 En þú veist miðað við eyjar bara sem er nú gos sem margir muna eftir þá er það bara mjög lítið, er það ekki?
236 Jú, það er minna en Eyjar sko enn þá, það er enn þá minna en eyjar.
237 Og líka ég reyndar,
238 þegar Eyjafjallajökull jökull gaus
239 fór mamma með þyrlu yfir. Það var líka þú veist
240 Já, það var svipað stórt og Eyjar.
241 miklu, miklu stærra sko,
242 ég hefði verið til í að sjá það sko.
243 Sástu samt manninn sem var að klifra á gosinu og þurfti að hlaupa í burtu. Frá
244 Já,
245 það var viðtal við hann á mbl.is
246 þú veist, hvað var hann að gera?
247 sko
248 ég skimaði yfir viðtalið við hann,
249 Brenglaða dæmi sko.
250 en þú veist hann, hann bara eitthvað fullyrðir að þetta sé ekkert jafn hættulegt og fólk heldur
251 og ég meina ef við eigum að stíga aðeins út fyrir það sem kannski almannavarnir segja sem að er samt alveg rétt hjá þeim þú veist að vara fólk við. Eðlilega maður vill ekki að allir séu að príla ofan á hrauninu skilurðu.
252 En hraun er þú veist, það snöggkólnar alveg
253 rosalega mikið hratt sko.
254 Þú veist, það helst ekki fáránlega heitt í marga daga
255 og þú veist og þetta er alveg gegnheilt, bara gegnheill steinn skilurðu þannig að hann var bara eitthvað hlaupandi á því.
256 Þetta myndband er svolítið skrítið, það er spilað hraðar heldur en þú veist
257 raunveruleikinn.
258 Þú veist það spilar svona á tvöföldum hraða eða eitthvað.
259 Í alvöru? Vá hvað það er fyndið
260 Og þá lítur þetta geðveikt illa út
261 en svo hægt þarna undir lokin og þá lítur þetta bara út eins og
262 eitthvað sjúklega hægfljótandi hraun skilurðu.
263 Vá, hvað það er sturlað að þeir hafi gert myndbandið hraðara.
264 Það lítur verr út.
265 Já, já, já, bara æsifréttamennska at its finest.
266 Fyrirgefðu.
267 Fyndið, þeir voru einmitt að tala um það hérna Gulli og hérna Kristófer niðri í vinnu áðan að hérna
268 að þeir eru náttúrlega með athugasemdakerfið inni á mbl
269 og það var einhver svona
270 clickbait
271 þú veist æsifréttamennsku fyrirsögn
272 og þeir fengu bara svona mestu viðbrögð sem þeir hafa fengið í einhvern mánuð eða eitthvað inni á [UNK] kerfinu.
273 Það var mjög fyndið.
274 Já ókei.
275 Hvað var greinin, veistu það?
276 Morð skekur Færeyjar.
277 Þetta var bara um einhvern sjónvarpsþátt.
278 Já ókei, já það var ekki alvöru morð?
279 Nei, þess vegna er þetta svona fáránleg.
280 Það er ógeðslega fyndið.
281 Þú veist þetta er alveg fáránlega fyndin fyrirsögn.
282 En hundrað prósent æsifréttamennska.
283 Já,
284 er sjúklega sniðugt
285 djöfulsins meistari þessi gæi sem skrifaði þessa grein.
286 Já, ég meina,
287 við fórum líka að tala um að það er ekkert fyrr en internetið kemur þar sem fólk er orðið rosa viðkvæmt fyrir þessu en
288 Sjúklega vel gert.
289 fólk er búið að vera að gera svona fyrirsagnir,
290 síðan að dagblöð þú veist
291 fóru að líta dagsins ljós.
292 Ég meina ef þú skoðar gömul dagblöð úr New York eða þú veist Bandaríkjunum.
293 Já,
294 Þá sérðu svona fáránlega uppblásnar fyrirsagnir um eitthvað
295 mjög venjulega atburði.
296 voða lítið um það, ég þekki það voða lítið,
297 var ekki að lesa blöð þá.
298 Nei, þú veist, rámar í
299 ég hef séð einhverjar svona gamlar fyrirsagnir.
300 Var að skima í gegnum eitthvað gamalt efni
301 fyrir svona eiginlega rannsókn sem ég var að gera í [UNK]. Ég byggi þetta ekki á miklu.
302 Heyrðu, talandi um að kíkja í sund.
303 Áhugavert. Góð spurning. Þú mátt byrja núna.
304 Það er spurning hérna: Hver er uppáhalds sundlaugin þín?
305 Þetta er bókstaflega það fyrsta sem kemur upp í hausinn á mér
306 en það er bara laugin í Vestmannaeyjum.
307 Ég veit ekki hvort það sé satt en mér skilst að megi ekki keppa í henni vegna þess að það er svo mikið salt í henni eða var svo mikið salt í henni.
308 Því þeir notuðu þú veist einhvern hluta
309 um hundraðshluta þriðjung eða eitthvað þar á milli af sko
310 sjávarvatni í henni.
311 En ég veit ekki hvort það sé satt enn þá en hún er víst mjög saltrík.
312 Og hérna sem gerir fólki auðveldara að synda í henni eða fljóta náttúrulega.
313 Þá er hún ekki keppnishæf sko.
314 Ég á sælar minningar þar, amma fór svo oft með mig í sund sko.
315 Ég man ekki, fórum við í sund þegar við vorum í Vestmannaeyjum?
316 Já, við fórum manstu, vorum að horfa á börnin.
317 Vá, hvað það hljómar illa.
318 Vá, bíddu ég man samt ekki eftir því, vá hvað ég er grilluð.
319 Við fórum í vaðlaugina og þú veist það voru einhverjir
320 krakkabjánar að
321 svamla í kringum okkur og eitthvað að leika sér og
322 og okkur fannst það geðveikt fyndið.
323 Já, jú, jú, jú, jú, jú, jú, jú, jú, ég man eftir henni, ég fór líka í hana þegar ég hljóp þarna tíu kílómetrana.
324 Jú, ég hef farið í hana tvisvar, ég var alveg farin. Já, það er góð laug sko.
325 Ég bara vel valið.
326 Fyndið, ég ólst upp sko í Laugardalslauginni.
327 Hún er stærst og best svona tæknilega séð einhvern veginn,
328 Hún er geðveik.
329 af því það er hægt að gera mest í henni. Og laugar eru geggjaðar.
330 En ég hérna,
331 ég tengi hana samt líka alltaf aðeins við að hitta alla og að fara í skólasund, það eru líka neikvæðar minningar.
332 Ekki það, ég var alveg góð í skólasundi og
333 Þú veist er vont að hitta alla?
334 eða þú veist. Það er bara, það verður, svo maður fer í sund
335 til að slappa af og hafa geggjað næs
336 og svo hérna er þetta gamla hverfið mitt.
337 Þannig að það er bara önnur hver manneskja sem er: Nei blessuð. og maður er bara eitthvað já spjalla! Og ég er svo meðvirk. Að ég get ekki sagt við fólk,
338 Láttu mig í friði.
339 ég get ekki sagt eða þú veist
340 Ég held að flestir,
341 já, ég, ég get ekki er alltaf bara hæ, gaman að sjá þig!
342 ég hugsa að flestir geri það líka samt.
343 Og ég bara
344 Ekkert ógnvægilegur við fólk í sundi.
345 já, ég,
346 þú veist, það er líka bara, maður er bara líka eitthvað vulnerable, maður er bara eitthvað á bikiníinu og ómálaður af því maður var að synda og eitthvað og svo hittir maður alla og það eru allir bara eitthvað: oh my god langt síðan ég hef séð þig! Og svo bara eitthvað.
347 Eiginlega var þetta einhvern veginn þannig á tímabili að ég var óvart bara einhverja fjóra klukkutíma í sundlauginni af því að ég bara hitti alltaf einhvern og var svo meðvirk að ég náði aldrei að segja bless og var alltaf á leiðinni upp úr að fara þegar einhver annar kom og var bara eitthvað
348 já ókei eitthvað.
349 Nei, ég var einmitt að hugsa þetta er týpískt, týpískt þú held ég sko.
350 Ég hugsa að þetta kannski tengist sundlauginni ekki neitt og kannski bara þarf ég bara í einhver meðvirknispor,
351 ekki frekar en að frekar sé eitthvað laugin þá kannski var þetta bara tækifæri fyrir mig til að
352 vinna í mér.
353 Ef ég fæ að klára.
354 Ég verð samt líka að viðurkenna að
355 sundlaugin þarna úti á Nesi,
356 mér fannst alltaf gaman að fara með þér í hana sko. Hún er frekar næs.
357 Mér finnst Vesturbæjarlaugin ógeðslega skemmtileg.
358 Ég hugsa,
359 já, ég hugsa samt að Árbæjarlaugin sé uppáhaldslaugin mín.
360 Bíddu, Árbæjarlaugin? Ég hef ekki farið í hana svo lengi. Af hverju er hún góð?
361 Já,
362 Ég veit það ekki, hún er bara, hún er uppáhaldslaugin mín.
363 Ég fíla þarna innisvæðið.
364 bíddu, er
365 Það er ógeðslega nice að fara með krakka þar og.
366 er það þessi laug sem að maður labbar svona í gegnum
367 eitthvað út?
368 Æi það er þú veist, það er einhver sundlaug.
369 Ég skil ekki alveg hvað þú átt við.
370 Sem þú labbar svona í gegnum eitthvað út,
371 Ég er að meina, það er svona smá hólf ofan í lauginni
372 þú veist, eitthvað getur verið bara hurð eða.
373 þú veist eða svona hurð ofan í lauginni sem að maður fer í gegnum og það er svona plastfilmur skilurðu sem að skilja að út og inn.
374 Hanga niður, já,
375 Já,
376 þú veist, laugin byrjar inni og þú ferð ekki á einmitt.
377 er það ekki Árbæjarlaugin?
378 Já, einmitt, einmitt, mér fannst hún alltaf svo undursamleg,
379 ég man ég fór í hana einhvern tímann fyrst þegar ég var þú veist á einhverju
380 pollamóti þú veist í fótbolta
381 og mér fannst það svolítið undursamleg.
382 Kópavogslaug er líka góð.
383 Við Óli fórum þangað um daginn,
384 hún er reyndar bara allt í lagi, pottarnir eru allt í lagi bara.
385 Mér þykir hún allt í lagi,
386 sundlaugin sjálf er fín, það er gaman að synda þar, en mér finnst restin allt í lagi bara, persónulega.
387 Hún var kannski meira en allt í lagi þegar það er ótrúlega gott veður,
388 Já, sól hefur líka áhrif ef maður hefur bara að fara í einhverja laug þegar það er geðveikt veður.
389 Þá auðvitað er minningin af lauginni bara eitthvað Gucci dæmi.
390 hundrað prósent, hundrað prósent.
391 Trúirðu á álfa? Tröll eða drauga? Ekki?
392 En
393 já, ég veit ekki alveg, nei, ekki neitt, nei því miður.
394 Ég veit ekki,
395 ekki ég heldur ekki í svona hefðbundnum skilningi.
396 Ekki í hefðbundnum skilningi? Ókei.
397 Ókei, ókei, gott,
398 Sko ég sagði rosalega oft við hérna túristana sem ég fór með
399 hvað áttu við?
400 á Suðurland.
401 Af því Eyjafjöllin, þau líta svo út eins og það er fullt af einhverjum tröllum sem hafa þú veist skilurðu breyst í stein þarna og þú veist það er fullt af einhvers konar svona steinum bara á
402 einhverjum miðjum akri þú veist, sem bara duttu úr fjallinu og enduðu einhvers staðar bara á algjöru flatlendi, skilurðu.
403 Og þetta er náttúrulega kallað álfasteinar og ég meina verurnar í fjöllunum oft svona tröll
404 skilurðu og meina Grýla og Leppalúði eru svona tröllkarl og kerling, skilurðu, sem að búa uppi í fjallinu í hellunum og mér finnst Eyjafjöllin alltaf einhvern veginn svona minna mig á þetta. Þessar sögur sko.
405 Og hérna
406 þegar ég er í skapi til þess þá tala ég oft um það svona hvað
407 álfar eru
408 og tröll og ég meina líka svona í fjölgyðistrú allt þetta.
409 Þetta er svona persónugerving á náttúruöflunum sko.
410 Ég meina til dæmis ef þú, ef þú
411 Hvað áttu við? Hvernig þá? Útskýrðu.
412 þegar þú horfir á
413 fjallshlíðarnar
414 að þá oft sérðu bara andlit eða eyra eða nef eða einhvers konar verur skilurðu.
415 Í heilu.
416 Hvað eru álfar? Þannig að tröll eru grjót. En hvað eru álfar?
417 Þú veist álfar náttúrlega ef þú skoðar hvernig álfar hegða sér þú veist þeir hérna
418 Ef þú ætlar að segja að þetta sé nátttröllin.
419 þeir eru oft, ha? Hvað segirðu?
420 Stela börnum?
421 Stela börnum, já ég meina
422 Stela börnum.
423 og ég hugsa að jólasveinarnir séu svona ákveðið svona
424 blanda af álfum og tröllum sko og jólasveinarnir náttúrulega.
425 Þeir tákna svolítið svona náttúruöflin og og þeir eru oft svona allegóría fyrir veturinn held ég, þú veist eins og,
426 já, já,
427 Já, ég er sammála því, þeir eru hundrað prósent
428 og ég hugsa að það hafi verið góð leið til að segja krökkunum, þú veist, þú vilt ekkert vera að segja við krakkana þína:
429 við munum svelta.
430 við bara erum búin að renna út af mat. Pulsurnar eru búnar nei, Bjúgnakrækir kom, hann stal öllum pulsunum og og mér finnst þetta sorglegt og ég las einmitt einhvern tímann einhverja geðveika grein um þetta og þá einmitt var ég sagði þetta líka við túristana mína sko, þegar ég tók jólasveinana, þá tók ég einmitt þennan líka og og og
431 Nákvæmlega.
432 Já.
433 Kertasníkir kom seinastur er ótrúlega ljóðrænt.
434 Þá klárast seinasta kertið og það er ekki hægt að kynda í kofanum lengur
435 Og þú veist og líka, og líka
436 líka bara að þú veist sólin þú veist hverfi handan sjóndeildarhringsins í rauninni sko. Þú veist það má taka það jafnvel enn þá lengra sko.
437 og hvað segirðu við börnin? Hvað áttu við?
438 Því kerti er náttúrulega líka bara myndgerving fyrir ljós, sko.
439 Já,
440 ég allavega, mér fannst þetta, það var einhver. Ég las einhvern tímann einhverja grein eftir einhvern sálfræðing sem
441 að var að tala um þetta út frá því að fólk væri að, létta lundina hjá börnunum sínum af því það væri allt klárast í búinu
442 að búa til einhverja skemmtilegri, einhvern skemmtilegri raunveruleika heldur en var í rauninni.
443 Algerlega.
444 Nei, það, það er svo sem örugglega hægt að gera einhverja greiningu á því.
445 En það útskýrði samt ekki köttinn.
446 Það er jú
447 jú. Jú, reyndar var annað, það var hérna,
448 af því ef þú færð ekki föt
449 þá nær jólakötturinn þig
450 þá verður þér kalt,
451 þú vext upp úr fötunum og verður úti. Það var eitthvað,
452 þú verður að fá föt af því annars
453 En sko hérna með álfana,
454 verður þú úti, það var eitthvað.
455 ef maður skoðar þú veist eins og flestar sögur sem ég hef heyrt um álfa, ein sem er kannski svona fyndin það er til dæmis
456 ef þú pissar á álfastein
457 þá verður þér illt í tittlingnum í mörg ár.
458 En líka frændfólk mitt sem að.
459 Það er, það er mjög fyndið sko.
460 Ég vissi það ekki, vá hvað það er fyndið.
461 En líka þú veist ef þú til dæmis byggir of nálægt álfahólum eða vanvirðir álfastein þú veist, færir þá til eða annað slíkt, að þá leggja þeir á þig bölvun
462 sko,
463 og hérna og ég meina þú veist
464 náttúrlega Ólafur Liljurós, hann hittir álfamær og hún býður honum að ganga í björg og bú með oss eins og svo segir í laginu manstu? Einmitt.
465 En þú söngst það svo fallega fyrir mig um daginn
466 Að þú veist þannig að, að sko
467 álfarnir, þeir, þeir
468 klárlega tákna svona
469 virðingu fyrir náttúruna því þeir eru náttúrulega bara allegóría fyrir ýmiss konar
470 svona hættu, hættuþætti í náttúrunni og þú veist það að við eigum að virða náttúruna og vera ekki skeytingarlaus gagnvart náttúrunni sko.
471 Og það er eflaust meira ég meina þeir náttúrulega tengjast líka þessum írska þarna
472 álfi sem að er
473 á pott af gulli við enda regnbogans sko.
474 Íslenskir álfar líkjast mjög mikið honum.
475 En en já,
476 mér finnst, mér finnst. Ég veit ekki af hverju við fórum að tala um þetta en hérna. Já, já, alveg rétt, það bara
477 Þú fórst að tala um þetta af því að
478 þú varst að segja, þú spurðir mig hvort ég trúði á álfa.
479 vefsíðan lagði þetta til.
480 En hérna ókei.
481 Það var rosalega gaman að spjalla við þig,
482 ég vona að við fáum tækifæri til að spjalla mikið meira saman. Heldurðu að það sé séns á því eða?
483 Heldurðu að það sé séns á því? Þú ert frekar fastur með mér allavega í einhvern tíma.
484 Heyrðu hérna, takk fyrir spjallið.
485 Takk sömuleiðis. Bæ.
486 Bless bless.
Go back