1 |
Heyrðu, hvað segir þú gott?
▶ |
2 |
frítimiJæja. Ég segi bara fína, ég hef ekki hitt þig áður. Ertu nýr í,
▶ |
3 |
Já,
▶ |
4 |
ég hérna var að byrja í meistaranáminu í gervigreind og máltækni
▶ |
5 |
ókei.
▶ |
6 |
og fyrir það
▶ |
7 |
þá er ég búinn með master í rekstrarverkfræði [UNK],
▶ |
8 |
Sagðirðu rekstrarhagfræði?
▶ |
9 |
verkfræði, verkfræði,
▶ |
10 |
Verðurðu þá hérna heima eða?
▶ |
11 |
já, ég lærði þarna uppi í HR.
▶ |
12 |
Ókei.
▶ |
13 |
og hérna kláraði, útskrifaðist þar fyrir ári síðan, sem sagt sumarið tvö þúsund og tuttugu.
▶ |
14 |
Og hérna var búinn að vera að vinna eitt ár áður sko sem verkfræðingur, eiginlega,
▶ |
15 |
og svo vann ég eitt ár í viðbót
▶ |
16 |
og fékk bara leið
▶ |
17 |
og langaði til þess að fara aftur í nám og hér er ég.
▶ |
18 |
Ókei og af hverju? Af hverju varð máltæknin fyrir valinu?
▶ |
19 |
Ég hérna
▶ |
20 |
var þá búinn að vera að vinna við svona gagnagreiningar og tók þarna
▶ |
21 |
machine learning kúrsinn hjá Jóni þegar ég var í verkfræðinni
▶ |
22 |
Já,
▶ |
23 |
og þar svolítið svona opnaðist bara svolítill nýr heimur af tækifærum þar sem ég bara
▶ |
24 |
vissi ekki að væri til og hafði fyrir ekkert það mikla reynslu af forritun
▶ |
25 |
nei, einmitt.
▶ |
26 |
og svo byrjaði ég að hérna, [UNK]
▶ |
27 |
Þú kannt samt væntanlega á R og matlab og eitthvað svoleiðis, er það ekki?
▶ |
28 |
já, já ég þekki það sko, þekki það
▶ |
29 |
en hérna, lærði töluvert meira á þetta í gegnum þennan kúrs
▶ |
30 |
og svo,
▶ |
31 |
Er það ekki python kúrs?
▶ |
32 |
jú, Python, jú nákvæmlega, nákvæmlega, nákvæmlega, og svona er
▶ |
33 |
Python er mitt svona go to tungumál
▶ |
34 |
Já, ég hef voða lítið notað það annað fyrir utan bara bash skelina og eitthvað síðan ég hérna fór sjálfur í nám.
▶ |
35 |
og
▶ |
36 |
já, en þú, hvað ert þú búinn að vera lengi í þessu og hvað dró þig í þetta?
▶ |
37 |
Ég, ég
▶ |
38 |
hérna byrjaði í hugbúnaðarverkfræði, byrjaði reyndar í stærðfræði, fór síðan í yfir í hugbúnaðarverkfræði og síðan hérna
▶ |
39 |
langaði mig alltaf að gera eitthvað
▶ |
40 |
svona meira tengt tungumálum af því ég hef alltaf haft dálítið
▶ |
41 |
mikinn áhuga á tungumálum almennt,
▶ |
42 |
já, já ókei, já ókei, já, já, já
▶ |
43 |
þannig að ég tók eitt ár bara í málvísindum í HÍ og var á sama tíma, á sama tíma sótti ég um
▶ |
44 |
mastersnám úti í Edinborg í máltækni
▶ |
45 |
og fór þangað tvö þúsund og átján
▶ |
46 |
og þetta er eins árs skráða þannig að ég kom aftur tvö þúsund og nítján haustið og já, fór bara beint að vinna í þessari máltækniáætlun í rauninni.
▶ |
47 |
Byrjaði hjá Árnastofnun og svo er ég núna búinn að vera í HR í tæplega ár.
▶ |
48 |
Já.
▶ |
49 |
nú ertu aðeins að detta út hjá mér.
▶ |
50 |
Heyrirðu ekki í mér núna?
▶ |
51 |
Jú, þarna kom það, kom það aftur.
▶ |
52 |
Hvernig finnst þér, já?
▶ |
53 |
Skal taka, taka mækinn þannig að hann sé nær. Heyrirðu betur í mér núna?
▶ |
54 |
Já, bara svona forvitnisspurning, hérna,
▶ |
55 |
Já,
▶ |
56 |
hvernig finnst þér, eins og þú veist að hafa lært úti og ert að nota íslenskumáltækni,
▶ |
57 |
máltækni á íslensku
▶ |
58 |
hvernig, svona
▶ |
59 |
já,
▶ |
60 |
hvernig yfirfærist það yfir? Já, já, jájá, einmitt, já, einmitt, einmitt, einmitt, já
▶ |
61 |
það er náttúrlega
▶ |
62 |
af því að námið var á ensku.
▶ |
63 |
Enskan er hérna
▶ |
64 |
í fyrsta lagi sko laus við alls konar flækingar sem eru í íslenskunni og í öðru lagi þá er, þá miðast einhvern veginn öll svona grunntækni og allt sem allir nota, það miðast dálítið við ensku þannig að það er smá challenge að til dæmis ég er að vinna í talgervilsröddum og
▶ |
65 |
það er einhvern veginn, allir innviðirnir sem eru byggðir inn í
▶ |
66 |
þú veist öll kerfin sem að er búið að gera. Þeir miðast allir við ensku. Þannig að ef maður ætlar að láta þú veist nota annað annað hérna,
▶ |
67 |
þú veist annað sett af fónemum eða eða díla við
▶ |
68 |
stafi sem eru ekki í ascii skilurðu? Eða getur verið það beisik,
▶ |
69 |
þá getur það verið dálítið mikið maus en það hefur samt bara þú veist. Við erum náttúrlega, í þessari áætlun erum við að byggja upp þessa innviði fyrir íslensku máltæknina.
▶ |
70 |
Þannig að það náttúrulega er bara hluti af verkefninu.
▶ |
71 |
Og í rauninni stærsti hlutinn.
▶ |
72 |
en bara svona fyrir, þú veist, þig,
▶ |
73 |
þú veist, að hafa lært, eins og ég segi, á, allt á ensku og allt væntanlega ekkert íslenskt málkerfi í því eða hvernig íslenskan virkar per se
▶ |
74 |
og já, já já já, auðvitað, auðvitað já já, já, einmitt
▶ |
75 |
Já, náttúrlega þetta ár sem ég tók í málvísindum, það hjálpar með það og og hérna
▶ |
76 |
já,
▶ |
77 |
svo er maður sko,
▶ |
78 |
þetta er merkilega
▶ |
79 |
þú veist lítið. Maður er merkilega lítið að vinna í actual málvísindum, finnst mér.
▶ |
80 |
Alla vega það sem ég er að gera. Jú, við erum að vinna með framburð og orðabækur og eitthvað svoleiðis. En svo er þetta bara
▶ |
81 |
módel sem maður þjálfar, sem eru í rauninni ekkert þannig háð ensku nema í einhverjum svona tæknilegum útfærslum.
▶ |
82 |
einmitt, áhugavert.
▶ |
83 |
Já.
▶ |
84 |
Ég er reyndar að taka
▶ |
85 |
námskeið í HÍ í íslenskum málkerfum
▶ |
86 |
Já, hver er að kenna?
▶ |
87 |
og, Marko,
▶ |
88 |
eða heitir hann ekki Marko? Myrko, Myrko, já já.
▶ |
89 |
Mirko?
▶ |
90 |
Já, ég var einmitt með honum í einum kúrsi fyrir nokkrum árum.
▶ |
91 |
Við erum bara tvö í kúrsinum sko, þannig að,
▶ |
92 |
Hann er flottur gaur.
▶ |
93 |
eða tvö sem mætum, erum þrjú sem erum skráð,
▶ |
94 |
þannig það er mjög áhugavert að vera í svona litlum hóp.
▶ |
95 |
Einmitt. Já, þetta verður allt miklu persónulegra, er það ekki?
▶ |
96 |
En líka mjög skemmtilegt.
▶ |
97 |
Jú, þetta er í rauninni bara spjall sko.
▶ |
98 |
Aðeins annað en í verkfræðinni?
▶ |
99 |
allt annað sko, allt annað
▶ |
100 |
þó að í verkfræðinni masternum þá vorum við samt ekkert svo mörg sko en,
▶ |
101 |
Nei.
▶ |
102 |
en ég hef ekkert kynnst neinum.
▶ |
103 |
Orðið nógu sérhæft.
▶ |
104 |
Já, já, alveg þannig sko.
▶ |
105 |
En vorum samt alveg þrjátíu, fjörutíu manns kannski skráðir í kúrsa
▶ |
106 |
en á móti erum við hins vegar
▶ |
107 |
þrjú og svo erum við átta í öðrum kúrs
▶ |
108 |
Já,
▶ |
109 |
þú veist og þrettán, þetta er
▶ |
110 |
miklu, miklu minna sko.
▶ |
111 |
þetta er náttúrlega það sérhæft, eitthvað svona hérna
▶ |
112 |
inngangur að í rauninni málvísindum fyrir íslensku fyrir verkfræðisinnaða.
▶ |
113 |
Já.
▶ |
114 |
Nákvæmlega, nákvæmlega, nákvæmlega.
▶ |
115 |
Það pool af mögulegum nemendum er kannski ekkert mjög stórt.
▶ |
116 |
Þannig að sem að, það einmitt það dró mig svolítið í þetta. Hvað það
▶ |
117 |
eru fáir sem eru að gera þetta og eru að gera eitthvað svona öðruvísi.
▶ |
118 |
Ég fann það svolítið þegar ég kláraði verkfræðina
▶ |
119 |
að, hvað þetta var ekki í rauninni nógu mikil sérfræði, þú veist sérfræðikunnátta, sem ég hafði klárað þarna
▶ |
120 |
það voru svona aðeins of margir í þú veist að berjast um sömu stöðuna,
▶ |
121 |
Já, þig langaði í aðeins meira niche dæmi?
▶ |
122 |
já, líka aðeins svona skemmtilegra og hérna
▶ |
123 |
Já.
▶ |
124 |
eitthvað öðruvísi.
▶ |
125 |
Það er svona svolítið það sem dró mig í þetta.
▶ |
126 |
Langar þig að vera vinna hérna heima í að koma einhverju af stað eða langar þig að komast eitthvert út eða hvað er?
▶ |
127 |
Long term pælingin? Eða ertu kannski ekki þar?
▶ |
128 |
Ég er ekki alveg komin þangað sko en
▶ |
129 |
þegar að ég hugsa út í það að þá held ég að það sé, þú veist frekar að gera garðinn frægan hérna heima
▶ |
130 |
Já.
▶ |
131 |
heldur en að fara út sko, maður veit aldrei, aldrei að segja aldrei.
▶ |
132 |
Þetta er náttúrulega Amazon og Google og Microsoft og öll þessi stóru fyrirtæki eru öll með hérna
▶ |
133 |
með sína
▶ |
134 |
máltæknideild.
▶ |
135 |
Og mér skiljist að það sé erfitt að finna fólk í þessar deildir sko þótt að þetta sé
▶ |
136 |
hjá þessum stóru fyrirtækjum.
▶ |
137 |
Já, algjörlega. Það er, þetta er náttúrulega bara það,
▶ |
138 |
það sérhæft.
▶ |
139 |
Við erum í miðju spjalli,
▶ |
140 |
ekki trufla.
▶ |
141 |
Einmitt, ég var einmitt að tala við sem sagt konu
▶ |
142 |
frá Bandaríkjunum.
▶ |
143 |
Sem að er, stýrir svona tæknideild hjá Nike,
▶ |
144 |
Já.
▶ |
145 |
Hjá Nike?
▶ |
146 |
já Nike, Nike, já, íþróttavörufyrirtækinu, og hún var að segja mér að hún hafði verið að ráða inn
▶ |
147 |
Íþróttavörufyrirtækinu?
▶ |
148 |
Ókei.
▶ |
149 |
tvo einstaklinga
▶ |
150 |
menntaðir í gervigreind, reyndar ekki máltækni.
▶ |
151 |
Hún sagði mér að það hafi verið mjög erfitt að finna aðila sem að kunna þetta.
▶ |
152 |
Það eru margir sem þykjast kunna þetta,
▶ |
153 |
Já, ókei.
▶ |
154 |
Já.
▶ |
155 |
en mjög fáir sem að kunna þetta.
▶ |
156 |
Einmitt.
▶ |
157 |
Kannski eins og ég segi bara einhverjir sem hafa lært tölvunarfræði og tekið einhver bara crash kúrsa í gervigreind
▶ |
158 |
og segjast, segjast síðan kunna þetta sko.
▶ |
159 |
Já, og segja að síðan já,
▶ |
160 |
einmitt þetta er svona já.
▶ |
161 |
Það eru nokkur stig af því að kunna hluti og til þess að vinna við,
▶ |
162 |
Einmitt. Nákvæmlega.
▶ |
163 |
til þess að vinna við það þá þarf maður kannski að vera kominn á aðeins hærra stig en að hafa tekið einn inngangskúrs.
▶ |
164 |
Einmitt, einmitt, ég ætla reyndar ekkert að fela það. En ég gerði þetta,
▶ |
165 |
hef verið að taka svona inngangskúrsa á bara netinu en
▶ |
166 |
var nú aldrei að segjast, segjast vera með sérfræðiþekkingu í þessu,
▶ |
167 |
það var svona svolítið sem að, já.
▶ |
168 |
Nei, ég meina,
▶ |
169 |
það er flott að taka inngangskúrsa og það er fyrsta skrefið. En svo eru bara nokkur skref í viðbót.
▶ |
170 |
Einmitt, einmitt nákvæmlega og það var svona líka alveg svolítið sem að opnaði fyrir mig meiri áhuga á þessu og þessir inngangskúrsar sem ég tók.
▶ |
171 |
Og þú veist, ég fann það að mig langaði til að vita meira og þótt þetta hafi alveg verið stór ákvörðun að leggja verkfræðina á að setja verkfræðina upp í hillu og fara nýja leið
▶ |
172 |
og að segja upp vinnunni bara og hérna
▶ |
173 |
og fara í þetta sko.
▶ |
174 |
Já.
▶ |
175 |
Það er náttúrlega alltaf smá stökk að hætta í vinnunni eða svona þegar maður er orðinn svona ráðsettur og síðan eitthvað svona: heyrðu, nei, ég ætla aðeins að aðeins að skipta um gír.
▶ |
176 |
Ég þurfti alveg að eiga samtal við kærustuna mína um þetta, en hún styður mig í þessu.
▶ |
177 |
Já, já, það væri frekar leiðinlegt ef hún gerði það ekki.
▶ |
178 |
Í þessari vegferð.
▶ |
179 |
En ég held að séu helling af tækifærum í þessu og
▶ |
180 |
meira spennandi tækifæri allavega fyrir mitt, mitt svið.
▶ |
181 |
Algjörlega.
▶ |
182 |
Já, já kærasta mín er líka á leiðinni aftur í nám þannig að,
▶ |
183 |
það er að taka annan master og alles þannig að.
▶ |
184 |
Hvað, hvað er hún að gera? Og hvað er hún að fara að gera?
▶ |
185 |
Hún vinnur núna að kenna íslensku sem annað mál í grunnskóla
▶ |
186 |
en hana langar að fara í, í talmeinafræði.
▶ |
187 |
Talmeinafræði? Ókei. Frábært.
▶ |
188 |
Hún lærði mjög svipað sko,
▶ |
189 |
við vorum á sama tíma úti í náminu og hún lærði svona.
▶ |
190 |
Hún lærði það sem heitir developmental linguistics, sem er málþroskafræði,
▶ |
191 |
sem er
▶ |
192 |
svipað og talmeinafræði í rauninni. Þau læra um tal og málmein og alls konar. En það er ekki þessi klíníska gráða sem er
▶ |
193 |
kennd á Íslandi og hérna maður þarf að vera samþykktur af talmeinafræðingasamtökunum og eitthvað til að fá að vinna við það.
▶ |
194 |
Þetta er svona,
▶ |
195 |
já, þarf að taka þriggja ára nám í viðbót til þess að fá það.
▶ |
196 |
En hvað?
▶ |
197 |
En hvað fleira? Hvað fleira svona
▶ |
198 |
hefur þú að segja um þig?
▶ |
199 |
Hvað fleira getur, getur þú sagt mér?
▶ |
200 |
Já,
▶ |
201 |
Hvað fleira gerir þú?
▶ |
202 |
ég er mikill kórsöngvari, ég er í sex sönghópum.
▶ |
203 |
Já, ókei vá.
▶ |
204 |
Já, var í söngnámi áður en ég fór út í nám og svona.
▶ |
205 |
Sem sagt áður en ég fór út í master .
▶ |
206 |
Ókei, ég bara vildi að ég kynni að syngja.
▶ |
207 |
Já, það er bara fara í söngtíma, fara í kór og
▶ |
208 |
Heldur þú að, geta allir lært að syngja?
▶ |
209 |
kýla á það.
▶ |
210 |
Ég er ekki viss um það. En það geta allir, það geta allir orðið betri.
▶ |
211 |
Sumir sko.
▶ |
212 |
Ég er alveg hræðilega
▶ |
213 |
þarna falskur.
▶ |
214 |
Mig grunar að þetta sé eitthvað svona þannig að ef maður fær ekki nógu mikið tónlistar ílag, þegar maður er á einhverjum x aldri, ef maður er kannski þú veist fimm til tólf ára eða eitthvað, þá bara vanti einhvern svona einhverja fúnksjón. Til þess að hérna
▶ |
215 |
já,
▶ |
216 |
meðtaka þetta. Ég var í drengjakór þegar ég var lítill þannig að ég hef alltaf átt bara frekar auðvelt með að
▶ |
217 |
að halda lagi og svona.
▶ |
218 |
Maður, maður einhvern veginn, fær tilfinningu fyrir þessu og svo eru einhverjir sem hafa ekki þessa tilfinningu
▶ |
219 |
og ég bara veit ekki hvernig það er með að ef maður er orðinn fullorðinn og er enn þá einhvern veginn svona laglaus hvort maður geti unnið sig fram úr því af því að það er náttúrulega þannig með tungumál að það verður það verður faktískt erfiðara þegar maður er orðinn fullorðinn að læra ný tungumál.
▶ |
220 |
Mig grunar að þetta sé svona,
▶ |
221 |
þetta eru líka svipaðir, svipuð fúnksjón, einhvern veginn.
▶ |
222 |
Ég get ímyndað mér það. [UNK]
▶ |
223 |
Þannig að það er eiginlega mestur frítími minn sem fer í að syngja.
▶ |
224 |
Ég er meira að segja að syngja á tónleikum í kvöld annað kvöldið í röð.
▶ |
225 |
Nú? Hvaða tónleikum?
▶ |
226 |
Í Hörpu, Eldborg.
▶ |
227 |
Nú?
▶ |
228 |
Hvaða tónleikar eru þetta? Með Sinfó, já.
▶ |
229 |
Syngja með Sinfó.
▶ |
230 |
Mig langaði einmitt alltaf að fara á þá tónleika.
▶ |
231 |
Já, það er kannski ekki of seint að ná í miða, ég veit það ekki.
▶ |
232 |
Ég er með nokkur verkefni sem ég þarf að skila í kvöld sko, þannig að ég,
▶ |
233 |
Jæja, ókei.
▶ |
234 |
þannig að ég,
▶ |
235 |
Á föstudagskvöldi? Er það ekki fulldónalegt?
▶ |
236 |
jú, það eru meira að segja tvö verkefni, þetta eru svona
▶ |
237 |
dæmatímaverkefni bara, vikuleg dæmaskil bara.
▶ |
238 |
Hvað, er ekki hægt að biðja um þau á hádegi á mánudegi eða eitthvað? Hvaða stælar eru þetta að fá þig á föstudagskvöldi?
▶ |
239 |
Nákvæmlega, þvílíkur dónaskapur bara.
▶ |
240 |
Maður, ef ég væri að kenna þennan kúrs þá myndi ég ekki, ég væri alla vega aldrei að fara að nota helgina í að fara yfir verkefni.
▶ |
241 |
Breytir engu hvort það er á mánudagsmorgni eða föstudagskvöldi.
▶ |
242 |
Það er svo sem alveg fínt að fá að deadline-ið á föstudegi, þá svona
▶ |
243 |
rífur maður sig í gang og klárar þetta á föstudegi, þá hefur maður helgina fyrir sig sko.
▶ |
244 |
Já kannski, kannski er þetta í rauninni. Kannski er einhver greiði gerður með þessu.
▶ |
245 |
Já einmitt, einmitt.
▶ |
246 |
Ég er ekkert mjög æstur að fara aftur í í háskólann, ég
▶ |
247 |
hérna. Já,
▶ |
248 |
ég kominn með nóg af því í bili.
▶ |
249 |
Ég hélt ég væri kominn með það sjálfur sko.
▶ |
250 |
Já, þetta er rosa fínt sko, mér finnst
▶ |
251 |
Já,
▶ |
252 |
en er þetta síðan bara fínt?
▶ |
253 |
þetta vera miklu meira svona
▶ |
254 |
vinnustemning í þessu heldur en í verkfræðinni sko.
▶ |
255 |
Og ég hugsaði alveg að bæta við mig þú veist einu og hálfu ári og taka tölvunarfræðina.
▶ |
256 |
Já, er þetta eins árs
▶ |
257 |
gráða sem þú ert í? Nei, að taka.
▶ |
258 |
Þetta er tveggja ára, tvö ár en út af því að ég var búinn með svo mikið úr verkfræðinni,
▶ |
259 |
ég gat fengið svo mikið metið upp í tölvunarfræðina.
▶ |
260 |
Já, ég skil þig.
▶ |
261 |
Í rauninni allt valið í tölvunarfræði gat ég fengið metið.
▶ |
262 |
Og svo einhverjir grunnkúrsar sem ég var búinn með.
▶ |
263 |
Já, ég var í svipuðum pakka þegar ég skipti úr stærðfræði yfir í, yfir í hugbúnaðarverkfræði, það var,
▶ |
264 |
maður fékk eiginlega allt metið. Svo náði ég að fá einn japönskukúrs metinn, ég er dálítið ánægður með það. Þetta var í HÍ.
▶ |
265 |
Áhugavert. Fyndið. Það er ótrúlega fyndið.
▶ |
266 |
Tók einn tíu eininga japönskukúrs og fékk hann bara metinn sem hluta af hugbúnaðarverkfræðigráðu.
▶ |
267 |
Ég þurfti ekki einu sinni að rökstyðja það, þau bara
▶ |
268 |
samþykktu það strax.
▶ |
269 |
Það er mjög áhugavert og sko ég veit að ég get fengið alveg þrjátíu einingar metnar frá verkfræðinni í þessu námi sko.
▶ |
270 |
En ég er ekki alveg búinn að ákveða mig hvort ég ætli að gera það eða ekki.
▶ |
271 |
Já.
▶ |
272 |
Nei, nógu mikið af áhugaverðum kúrsum sem þú vilt ekki?
▶ |
273 |
Einmitt, einmitt.
▶ |
274 |
Og ég náttúrulega er að fara yfir dót ef mig langar
▶ |
275 |
til þess að læra á þetta.
▶ |
276 |
Þannig að það er svo eins og ég segi svo mikið af áhugaverðum kúrsum sem mig langar til þess að taka, þannig að,
▶ |
277 |
en það er gott að, gott að vita af því.
▶ |
278 |
Já, einmitt ef þú, ef þú færð allt í einu skólaliða.
▶ |
279 |
Þannig að það væri faktískt séð eiginlega bara ein önn eftir hjá mér sko og svo bara ritgerðin.
▶ |
280 |
Já vá,
▶ |
281 |
Þannig að
▶ |
282 |
hérna, ég myndi missa af alveg heilli önn.
▶ |
283 |
já,
▶ |
284 |
En ég ætla örugglega ekki að gera það.
▶ |
285 |
Ég kannski tek eitthvað upp í að hérna,
▶ |
286 |
ef ég finn ekkert áhugavert.
▶ |
287 |
já, nei, í minni upplifun sko,
▶ |
288 |
af því að ég tók þetta, þetta er eins árs gráða sem ég tók sem sagt tvær annir og ritgerð
▶ |
289 |
og mér fannst það bara of stuttur tími til þess að einhvern veginn meðtaka þetta allt, sérstaklega sko ritgerðin af því að ritgerðin var, maður hafði ekki heila önn fyrir hana heldur hafði maður bara sko tvo mánuði
▶ |
290 |
til þess að vinna heilt meistaraverkefni. Reyndar ritgerðin þarna úti, þau vilja hafa þær mjög stuttar, þær eru eiginlega bara eins og svona eins og svona
▶ |
291 |
fræðigrein í tímarit.
▶ |
292 |
Já já ókei, það er ekki lengra.
▶ |
293 |
Kannski fimmtán, tuttugu, í mesta lagi þrjátíu blaðsíður,
▶ |
294 |
Annað en hérna heima. Þar sem er alltaf beðið um þú veist áttatíu síður í mastersritgerð,
▶ |
295 |
fimmtíu síður í bachelor.
▶ |
296 |
Vá, merkilegt samt sko, er það samt ekki bara að koma efninu vel frá sér á þrjátíu blaðsíðum?
▶ |
297 |
Jú, og það er eitt sem að hérna,
▶ |
298 |
sá sem stýrir deildinni talaði mikið um sko, að að það væri svo, væru svo margir sem að
▶ |
299 |
skrifuðu bara lélegan texta.
▶ |
300 |
Af því að ef maður er að fara að skrifa fræðigreinar þá er eitt af því mikilvægasta sem maður þarf að kunna að skrifa knappan texta af því maður alltaf með einhver pláss mörk þú veist, svona hérna
▶ |
301 |
conference paper eru stundum með fjögurra blaðsíðna takmörk eða eitthvað.
▶ |
302 |
Einmitt.
▶ |
303 |
Og ef þú ætlar að lýsa aðeins bakgrunninum líka og heilli tilraun og niðurstöðunum og kannski hérna einhverjum nýjum arkitektúr sem þú ert að búa til. Þá,
▶ |
304 |
þá þarftu skrifa ansi knappt,
▶ |
305 |
og vera frekar hérna
▶ |
306 |
kjarnyrtur.
▶ |
307 |
Einmitt.
▶ |
308 |
Nákvæmlega.
▶ |
309 |
Þannig það var mikið lagt upp úr því að, og líka í öllum svona ritgerðum fyrir kúrsa og eitthvað bara, þú veist ef það er hérna,
▶ |
310 |
ef það er of mikið orðagjálfur og of langar setningar og þú segir eitthvað í löngu máli sem væri hægt að segja á miklu styttri máta, þá er bara grimmt dregið niður fyrir það.
▶ |
311 |
Já,
▶ |
312 |
það er áhugavert og alveg sniðugt að gera það.
▶ |
313 |
Það er, þarna,
▶ |
314 |
auðvelt að líka missa taktinn í
▶ |
315 |
svona fræðigreinum
▶ |
316 |
og mikilvægt að ná að skrifa þetta niður á heildstæðan og bara svona góðan máta.
▶ |
317 |
Já, mér hefur fundist lenskan hérna heima á Íslandi, vera dálítið, ég náttúrlega. Ég þekki dálítið mikið af hugvísindafólki og mér finnst lenskan í því vera dálítið að fólk er að skrifa langan texta til að skrifa langan texta eða þú veist.
▶ |
318 |
Já, einmitt,
▶ |
319 |
Það að fara kannski eitthvað rosa djúpt ofan í einhver svona bakgrunnsatriði sem að væri bara hægt að þú veist segja, það væri hægt að segja í ritgerðinni bara:
▶ |
320 |
Lestu þessa heimild og það stendur allt sem þú þarft að vita þar.
▶ |
321 |
Endurtaka einhvern eitthvert efni sem er kannski ekkert mikið verið að bæta við.
▶ |
322 |
Það er gott að
▶ |
323 |
geta losnað út úr því og skrifa bara það sem þar sem maður er að bæta við.
▶ |
324 |
Gerðirðu eitthvað skemmtilegt í sumar?
▶ |
325 |
nei, ekkert þannig sko, ég hérna,
▶ |
326 |
áður en ég byrjaði í náminu þá,
▶ |
327 |
eða það var sem sagt í sumar
▶ |
328 |
dreifingarstjóri hjá Emmessís.
▶ |
329 |
Já, varst bara í sumarstarfi að harka?
▶ |
330 |
Já, það er í rauninni já í rauninni sko.
▶ |
331 |
Og hérna já,
▶ |
332 |
Dreifingarstjóri hjá Emmess ís?
▶ |
333 |
þar stýrði ég bæði vöruhúsinu og allri dreifingunni,
▶ |
334 |
Ókei.
▶ |
335 |
já, ísnum.
▶ |
336 |
[UNK]
▶ |
337 |
það er bara langmest að gera á sumrin þannig að
▶ |
338 |
ég fékk ekkert frí.
▶ |
339 |
Og hérna, en ég byggði mér sólpall
▶ |
340 |
Einmitt.
▶ |
341 |
og það var svona sennilega það stærsta sem ég gerði í sumar.
▶ |
342 |
Með eigin höndum eða?
▶ |
343 |
Ég fékk aðstoð. Fékk aðstoð. En ég var með í því.
▶ |
344 |
Fékkstu einhverja smiði í það?
▶ |
345 |
Já, myndaðir hersluvélina.
▶ |
346 |
Ég er seint talinn handlægur.
▶ |
347 |
En hérna, fékk þarna aðstoð frá manni mömmu minnar,
▶ |
348 |
Nei,
▶ |
349 |
hann er svona gamall smiður.
▶ |
350 |
einmitt,
▶ |
351 |
Þannig að hann hjálpaði mér með þetta.
▶ |
352 |
þannig að hann hefur leiðbeint þér.
▶ |
353 |
Já, en þetta var bara lítill pallur.
▶ |
354 |
Það var gaman að þessu.
▶ |
355 |
Þannig að þú býrð í íbúð með garð?
▶ |
356 |
Já bý, er með garð,
▶ |
357 |
bý í Hveragerði
▶ |
358 |
keyptum okkur íbúð þarna þar sem Eden var.
▶ |
359 |
Og þá eru,
▶ |
360 |
Megi minning hennar lifa.
▶ |
361 |
blessuð sé minning hennar,
▶ |
362 |
og það er reyndar, veit ekki hvort þú hafir séð þessar íbúðir sem eru þarna en þetta eru bara svona litlar íbúðir, eins og við búum í tvíbýli. Ein íbúð fyrir ofan okkur.
▶ |
363 |
Já.
▶ |
364 |
Þannig að við fengum svona smá garð. Það er sameiginlegur garður en við erum með smá, við byggðum pall á okkar hluta.
▶ |
365 |
Ekki er þetta þarna, húsin sem eru svona eins og einhver svona brauðbox eða eitthvað þannig?
▶ |
366 |
Nei. Það var svona minn skilningur að það væru bara eldri borgarar sem væru þar. En þetta er greinilega eitthvað annað.
▶ |
367 |
Þetta er annað. Það hins vegar eru ekki bara eldri borgarar í brauðhúsa,
▶ |
368 |
þarna brauðpokahúsunum sko.
▶ |
369 |
Það er önnur hús sem eru bara fyrir eldri borgara.
▶ |
370 |
Nei, ég veit það bara af því að af því að hérna
▶ |
371 |
afi og amma kærustunnar minnar búa í þeim húsum
▶ |
372 |
Þannig að það,
▶ |
373 |
og allir nágrannar og allir vinir þeirra þar eru eldri borgarar.
▶ |
374 |
við skoðuðum samt þessar íbúðir líka
▶ |
375 |
en ákváðum að fara frekar þarna í bara í Edenbyggðina
▶ |
376 |
og erum bara ótrúlega hamingjusöm þar.
▶ |
377 |
Keyrirðu þá í skólann á hverjum degi eða?
▶ |
378 |
Já, ég reyni það nú.
▶ |
379 |
Ég fer vissulega ekki á hverjum degi, ég er með litla skrifstofu heima sem ég get notað.
▶ |
380 |
Einmitt.
▶ |
381 |
Mér finnst nú samt sem áður betra að fara í skólann og fara úr skólanum.
▶ |
382 |
Annars er svolítið eins og maður sé alltaf í skólanum.
▶ |
383 |
Já, einmitt, hafa einhver svona skil á milli.
▶ |
384 |
Það hjálpar mjög mikið að vera
▶ |
385 |
með skrifstofu þarna sem ég get notað og svo að geta keyrt í bæinn.
▶ |
386 |
Kærastan mín hún er hjúkrunarfræðingur á Landspítalanum þannig að þegar hún er að vinna á morgunvöktum þá fer ég með henni í bæinn.
▶ |
387 |
Já.
▶ |
388 |
Annars þá er ég, vera bara heima, spara bensínið líka.
▶ |
389 |
Akkúrat, maður verður að hugsa um umhverfið.
▶ |
390 |
Einmitt, nákvæmlega. Verður maður ekki að gera það líka?
▶ |
391 |
Já, ég meina ég bý í Vesturbænum og ég fer ekki á hverjum degi.
▶ |
392 |
Ég er með allt of nice heimaskrifstofu.
▶ |
393 |
Einmitt, einmitt, einmitt
▶ |
394 |
Skil það, við bjuggum nú í bænum hérna áður en við fluttum þangað og ég,
▶ |
395 |
þegar ég lít til baka, þá hérna
▶ |
396 |
skil ég ekki af hverju ég hjólaði ekki meira á milli.
▶ |
397 |
Nei, ég fer alltaf á svona rafmagnshlaupahjóli.
▶ |
398 |
Þau voru nú ekki, einmitt,
▶ |
399 |
já, rafskutlur, já mér finnst það, það er skemmtilegt.
▶ |
400 |
Rafskutlu eins og ég vil kalla þær, ég vill ekki kalla þær rafskútur.
▶ |
401 |
Skúta er bara annað farartæki.
▶ |
402 |
Einmitt, einmitt, það er bara bátur.
▶ |
403 |
Já.
▶ |
404 |
Og hvað gerum við þegar skúturnar verða rafvæddar? Hvað eigum við þá að kalla þær?
▶ |
405 |
Nákvæmlega,
▶ |
406 |
það vantar orð sko.
▶ |
407 |
Já,
▶ |
408 |
Þú notar það mikið?
▶ |
409 |
Já, ég ég keypti mér í fyrra, fyrrasumar, keypti bara mína eigin skutlu.
▶ |
410 |
Já.
▶ |
411 |
Snilld. Ég hef einmitt hugsað að kaupa mér svona bara fyrir, til þess að vera með
▶ |
412 |
innanbæjar þarna í Hveragerði.
▶ |
413 |
Þetta er svo nice svona þegar maður er að fara bara kannski einn, einn til tvo kannski þrjá kílómetra.
▶ |
414 |
Það þú veist þannig að. Manni myndi líða illa að vera eitthvað svona að keyra,
▶ |
415 |
það er allt of stutt til að keyra og ég meina svo þarf maður að leita að stæði og það tekur lengri tíma og.
▶ |
416 |
Þessar skutlur eru, einmitt, þessar skutlur eru
▶ |
417 |
Það er samt aðeins of langt til að labba.
▶ |
418 |
náttúrulega algjör snilld og þær koma einmitt til Hveragerðis í sumar þannig að,
▶ |
419 |
Já, hopp og allt það?
▶ |
420 |
þannig að ég svona tek þær stundum ef að
▶ |
421 |
ef ég er að fara í eitthvað partí.
▶ |
422 |
Já, en hvað, hvað kostar þetta? Er þetta ekki svona? Er þetta ekki svona fimmhundruðkall skiptið?
▶ |
423 |
Mér sýnist þetta vera
▶ |
424 |
svolítið eins og þú veist leigubílataxtinn er, þú veist, þá borgar meira því styttra sem þú ferð.
▶ |
425 |
Já út af, út af
▶ |
426 |
Já, einmitt, það er eitthvað startgjald og svo þú ert búinn að vera aðeins í smá tíma þá held ég að gjaldið fari niður.
▶ |
427 |
startgjaldinu
▶ |
428 |
Ég hérna tók hopp um daginn frá háskólanum
▶ |
429 |
niður í Smáralind og hérna,
▶ |
430 |
ókei. Það hefur kostað sitt.
▶ |
431 |
það að kostaði nú samt bara þúsund kall sko þannig að,
▶ |
432 |
þá datt mér í svona hug að þetta væri,
▶ |
433 |
Ókei.
▶ |
434 |
að tímagjaldið eða kílómetragjaldið myndi fara niður
▶ |
435 |
því lengra sem þú ferð.
▶ |
436 |
Já.
▶ |
437 |
Einmitt, líka ef maður er á fullum hraða allan tímann. Þá nær maður,
▶ |
438 |
af því að þeir rukka held ég fyrir mínútuna.
▶ |
439 |
En það er náttúrlega,
▶ |
440 |
það var einn vinur minn sem kom með ágætis punkt sko af því að hann notar svona
▶ |
441 |
rafskutlur rosa mikið og alveg bara elskar þær, en hann segir: það er ekki séns að hann sé að kaupa sér svona sjálfur af því að
▶ |
442 |
mikilvægasti fídusinn er ef þú ferð á þessu og
▶ |
443 |
svo skilurðu þetta eftir og þarft ekki að pæla í því.
▶ |
444 |
Það er reyndar mjög góður punktur sko.
▶ |
445 |
Af því eins og þegar
▶ |
446 |
ég fer á mínu hlaupahjóli í skólann en er í vinnu þá þarf ég alltaf að taka það með mér upp.
▶ |
447 |
Já, einmitt.
▶ |
448 |
Þú veist og bera það inn og þetta er alveg tuttugu kíló.
▶ |
449 |
Það er reyndar mjög góður punktur sem ég hafði ekki hugsað út í sko,
▶ |
450 |
að það er alltaf stór partur af þessu er að geta skilið þetta eftir.
▶ |
451 |
Já, þú veist ég myndi aldrei fara, fara á þessu inn á einhvern skemmtistað á djammið eða eitthvað því að þá þyrfti ég að vera að passa upp á þetta allan tímann.
▶ |
452 |
Nákvæmlega, nákvæmlega.
▶ |
453 |
Þetta er,
▶ |
454 |
já, það eru kostir við að hafa þetta svona.
▶ |
455 |
Hvað skal segja? Miðstýrt?
▶ |
456 |
Er það ekki svona það sem er að
▶ |
457 |
Deilihagkerfið,
▶ |
458 |
koma svo sterkt inn núna þessi árin?
▶ |
459 |
Deilihagkerfið.
▶ |
460 |
deilihagkerfið, jú. Og það er náttúrlega betra, þá
▶ |
461 |
þarf að kaupa færri hluti.
▶ |
462 |
Nákvæmlega.
▶ |
463 |
Framleiða færri hluti.
▶ |
464 |
Það er það sem þetta snýst um.
▶ |
465 |
En hvað svona er fram undan hjá þér?
▶ |
466 |
Hjá mér?
▶ |
467 |
Já, ég á eftir að sjá hvort ég verð ráðinn næsta árið, ég á eftir að fá samning frá fyrsta október. Þannig að,
▶ |
468 |
Ókei.
▶ |
469 |
já, framtíðin er mjög opin.
▶ |
470 |
Er ekki mál, máltækni áætlunin. Hún er að renna út núna, er það ekki?
▶ |
471 |
Það er eitt ár í viðbót. Ókei.
▶ |
472 |
Nei, það er eitt ár í viðbót.
▶ |
473 |
Það er eitt ár í viðbót og síðan hérna,
▶ |
474 |
síðan er þetta bara búið.
▶ |
475 |
Málið er að þetta er eitthvað mjög skrýtið með hvernig fjármagninu er úthlutað, því er greinilega úthlutað bara með mjög stuttum fyrirvara.
▶ |
476 |
Þú veist á grundvelli hérna
▶ |
477 |
afkasta og árangurs seinasta árs og bla, bla, bla eitthvað.
▶ |
478 |
En já.
▶ |
479 |
Ég samt býst við því að fá að vera hérna áfram og.
▶ |
480 |
Er samt ekki alveg líklegt að það verði hent aðeins meiri fjármagni í þetta?
▶ |
481 |
Eftir að máltækniáætlunin rennur út.
▶ |
482 |
Jú, ég held að þetta muni bara á næstu árum, af því það er líka það er annar sjóður, það er náttúrulega tækniþróunarsjóður og síðan er markáætlun um tungu og tækni.
▶ |
483 |
Sem eru aðrir sjóðir en máltækniáætlunarsjóðurinn og ég held að þeir muni kannski fá aðeins aukið fjármagn,
▶ |
484 |
vera kannski aðeins meira í úthlutunum af því að það hafi verið kvartað dálítið. Þeir sem eru í, sem sagt ekki stofnanir
▶ |
485 |
þú veist litlu sprotafyrirtækin. Þau hafa verið að kvarta dálítið yfir því að hagnýtingarverkefnin þeirra séu ekki að fá nógu mikla styrki.
▶ |
486 |
Það er kannski að fara að koma sterkara inn núna á næstunni?
▶ |
487 |
Já, ég held að það sé pælingin sko og þess vegna er verið að,
▶ |
488 |
þess vegna og örugglega af öðrum ástæðum líka að vera að að aðeins skera niður í þessa innviðaáætlun sem er svona questionable ákvörðun en já,
▶ |
489 |
hugmyndin er að þá sé rýmkað meira fyrir hagnýtingum.
▶ |
490 |
Bara nokkuð góðir, ég held það líka.
▶ |
491 |
Ég held þetta sé bara komið gott.
▶ |
492 |
Hún er yfir hálftímann og það er allt sem var beðið um.
▶ |
493 |
Heyrðu, þetta var bara gaman að spjalla við þig, gaman að kynnast þér.
▶ |
494 |
Vonandi fæ ég að sjá þig einhvern tímann hérna í skólanum.
▶ |
495 |
Algerlega ertu hérna uppi á? Ertu með skrifborð þarna uppi
▶ |
496 |
á LVL svæðinu?
▶ |
497 |
Já, já, ég þarna er í horninu við hliðina á XXX.
▶ |
498 |
Yes, heyrðu.
▶ |
499 |
Ókei, ég sé þig kannski bara í næstu viku eða eitthvað.
▶ |
500 |
Bara sömuleiðis, þú stoppar væntanlega, er það ekki?
▶ |
501 |
Takk fyrir spjallið.
▶ |
502 |
Heyrðu, góða helgi. Bæjó.
▶ |
503 |
Jú, algjörlega. Góða helgi.
▶ |