1 |
Ókei
▶ |
2 |
hérna
▶ |
3 |
ég hlakka rosa mikið til að fá þig aftur til landsins. Það verður gaman að sjá þig.
▶ |
4 |
Já, ég hlakka mjög mikið til líka, það verður gott að hitta ykkur karlana.
▶ |
5 |
Hvað hérna, hvað verður þú lengi í sóttkví?
▶ |
6 |
Fimm daga til fimmtudagsins fimmtánda.
▶ |
7 |
Ókei, áttu, þú sagðir mér þú ættir von á því að fá kannski seint að heyra.
▶ |
8 |
Þegar ég var á landinu um jólin,
▶ |
9 |
þá fór ég í seinna próf fimm dögum seinna og ég fékk svar úr því held ég klukkan tíu um kvöldið,
▶ |
10 |
þannig að ég er ekkert vongóður um að ég losni á fimmtudaginn. Frekar þá að ég verði laus á föstudaginn.
▶ |
11 |
Ókei
▶ |
12 |
Ókei
▶ |
13 |
Ókei
▶ |
14 |
En þið eruð hvað, að fara að vera uppi í sveit?
▶ |
15 |
Já, fáum lánað húsnæði hjá ættingja.
▶ |
16 |
Já ókei, nice.
▶ |
17 |
Já ókei. Hvað hérna, hvað er á döfinni þegar þú kemur?
▶ |
18 |
Þú náttúrulega ætlar að kíkja í afmæli hjá félaga okkar er það ekki á föstudeginum?
▶ |
19 |
Jú, ef allt gengur eftir þá kíkjum við þangað
▶ |
20 |
Ókei.
▶ |
21 |
og
▶ |
22 |
það er svona ennþá óákveðið hvernig skipulagið verður á okkur, ég er bara fyrst að hugsa að við myndum verða fimm daga í sveitinni og svo fimm daga í bænum.
▶ |
23 |
En ef við erum að fara að kíkja í bæinn út af þessu afmæli þá er spurning hvort við tökum bæinn fyrst og svo sveitina.
▶ |
24 |
Og
▶ |
25 |
Einmitt. Ertu þá að meina eftir sóttkvíina?
▶ |
26 |
Já, ókei.
▶ |
27 |
já,
▶ |
28 |
og svo erum við, við ætlum að fara vestur að heimsækja ættmenni þar líka. Það verður einn til tveir dagur.
▶ |
29 |
Ókei, geggjað!
▶ |
30 |
Og svo er ég búinn að staðfesta
▶ |
31 |
við minnsta kosti þrjá vini að við ætlum að kíkja í heimsókn eða mat og svona og þá kynni ég
▶ |
32 |
nýja kvonfangið fyrir vinunum í fyrsta skiptið.
▶ |
33 |
Já, geggjað. Er hún ekki spennt fyrir að koma?
▶ |
34 |
Hún er mjög spennt, hún er líka svolítið stressuð.
▶ |
35 |
Hvað er hún, hverju er hún stressuð fyrir?
▶ |
36 |
Þetta byrjaði sem eitthvað grín að ef þið mynduð ekki samþykkja hana þá myndi ég líklegast bara henda henni út, sko.
▶ |
37 |
Já, já.
▶ |
38 |
Sem var náttúrulega bara meint þannig að ef þið væruð með einhver komment þá myndi ég auðvitað taka tillit til þess og reyna að meta það ef þið sæjuð eitthvað sem ég sæi ekki.
▶ |
39 |
Ég er með eina athugasemd fyrir þig.
▶ |
40 |
En já,
▶ |
41 |
Bara þú veist, ef þú ert, ef þú ert hamingjusamur með henni
▶ |
42 |
að þá, þá erum við bara nokkuð sáttir sko. Við viljum bara sjá þig ánægðan með þetta sko.
▶ |
43 |
já, ég held að það sem hún hugsi er að, ef einhver kemur ekki vel við hana, þá verði það eitthvað vesen.
▶ |
44 |
Ég hef enga trú á því og það er ekki kvarði sem ég met,
▶ |
45 |
Já.
▶ |
46 |
þú veist, hversu vel þetta gengur.
▶ |
47 |
Einmitt, nei ég meina þú veist
▶ |
48 |
og, og í sjálfu sér er það líka alveg í lagi sko, ég hugsa að þú veist, ég er ekki allra, þú veist mín kona er, er ekki allra.
▶ |
49 |
Það verður aldrei þannig að, að þín kona sé allra. Kannski verður hún allra í okkar svona nánasta vinahópi en hún er
▶ |
50 |
eðli málsins samkvæmt ekkert allra. Og það er bara eins og það er.
▶ |
51 |
Já ég myndi ekki hafa [HIK: mik] miklar áhyggjur af því.
▶ |
52 |
Nei, það er ekki,
▶ |
53 |
ekki eitthvað sem ég er að stressa mig á, alls ekki. Já.
▶ |
54 |
Hérna
▶ |
55 |
með Fimmvörðuháls.
▶ |
56 |
Þið eruð þá að fara kannski að taka seinni fimm dagana í þá törn.
▶ |
57 |
Það er alveg, ég meina, það er alveg smá séns þarna er það ekki í vikunni eftir helgina?
▶ |
58 |
Er það ekki?
▶ |
59 |
Ég hugsa það núna já, fyrst ég er að hugsa að skipta þessum áætlunum,
▶ |
60 |
þá verði það kannski frekar vikuna nítjánda til tuttugasta og fjórða. Að það verði hægt að fara þá.
▶ |
61 |
Ókei, þú veist það væri náttúrulega bara algjörlega brilljant en annars líka
▶ |
62 |
ef að, ef að við getum ekki meldað okkur saman í einhverja slíka ferð
▶ |
63 |
að þá náttúrlega kannski leikum við bara eftir eyranu og sjáum hvernig veðrið verður.
▶ |
64 |
Já.
▶ |
65 |
En þú veist, þá væri alveg gaman að, ég veit ekki, kíkja í sund eða kíkja á upp á Esjuna eða, eða
▶ |
66 |
gera eitthvað, skilurðu?
▶ |
67 |
Þó svo að við hittumst vissulega í þessu afmæli
▶ |
68 |
það væri gaman að hittast líka eitthvað.
▶ |
69 |
Ég verð mjög til í það. Þess vegna er ég mjög spenntur fyrir að ef við náum Fimmvörðuhálsi saman, ég myndi njóta þess mjög mikið.
▶ |
70 |
Já, það væri geðveikt! Sérstaklega ef að við fáum eitthvað gott veður, það yrði ógeðslega gaman.
▶ |
71 |
Já,
▶ |
72 |
við erum líka búin að vera að undirbúa, við erum búin að vera að taka göngur hérna upp í tuttugu og fimm kílómetra til þess að undirbúa okkur.
▶ |
73 |
Ókei, ókei. Vá, bíddu, bíddu nei ha?
▶ |
74 |
Upp í tuttugu og fimm kílómetra? Eruði uppi á Mars eða?
▶ |
75 |
Nei, lengd, tuttugu og fimm kílómetra. Við erum ekki búin að ganga neitt upp í móti.
▶ |
76 |
Ókei, ókei en það er samt, það er samt
▶ |
77 |
djöfulsins ganga, tuttugu og fimm kílómetrar.
▶ |
78 |
Já, ég er mjög ánægður með það. Það er góður gönguhópur hérna.
▶ |
79 |
[UNK] hvað eruð þið bara, þú veist,
▶ |
80 |
nú skil ég ekki, labbið þið bara tuttugu og fimm kílómetra í einum vettvangi?
▶ |
81 |
Já, eða ein góð ganga sem er þá kannski sex tímar eða eitthvað svo. Kringum stöðuvatn sem er hérna fyrir utan bæinn eða litla tinda sem bæjarfélagið er búið að gera út á að sé hægt að ganga á. Já.
▶ |
82 |
Vá, ókei [UNK].
▶ |
83 |
Vá, það er alveg. Það er alveg
▶ |
84 |
mjög [HIK: lang], löng ganga sko.
▶ |
85 |
Jesús.
▶ |
86 |
Já, ókei. Ég er ekki alveg viss um að ég nenni að labba með ykkur tuttugu og fimm kílómetra en ég skal, ég skal labba með ykkur tólf kílómetra.
▶ |
87 |
Svo náttúrulega líka sko
▶ |
88 |
aldrei að vita nema gosið fari aftur að, að spýta í lófana og, og, og fari að hérna gjósa að einhverju viti. Ég veit nú ekki hvort það sé enn þá að gjósa.
▶ |
89 |
Já, það var einmitt hugsunin, eitthvað kvöldið, ég hugsa að það sé skemmtilegra að fara um kvöld að skoða þetta.
▶ |
90 |
Já, sko það náttúrulega
▶ |
91 |
það er varla hægt að tala um, um kvöld orðið lengur sko.
▶ |
92 |
[UNK] það er svo bjart sko.
▶ |
93 |
En hérna, en það, það er alveg þess virði og sérstaklega, sérstaklega ef að þú
▶ |
94 |
nærð að sjá eitthvað sko. Þannig að við, það er líka eitthvað sem við þurftum líka kannski að leika,
▶ |
95 |
leika bara eftir, eftir tóninum sko.
▶ |
96 |
Já, við fórum einmitt um daginn,
▶ |
97 |
ég,
▶ |
98 |
og XXX og forritunarfélagi minn, okkar og, og, og konan hans hans ásamt systur, systur hans.
▶ |
99 |
Nú er ég að reyna að nefna ekki nein nöfn sko, þetta er náttúrulega háleynilegt sko.
▶ |
100 |
Og þá náðum við alveg helluðu,
▶ |
101 |
helluðum ljósaskiptum, eða hvað sem það kallast á, á íslensku þegar sólin er svona alveg við það að setjast.
▶ |
102 |
Ja, það er geðveikt.
▶ |
103 |
Og hérna, hún
▶ |
104 |
var eiginlega bara svona í jafnri hæð við sko
▶ |
105 |
við eldgosið og við hérna strókinn sem kom upp úr því. Það var svolítið fallegt og skemmtilegt. Það var ógeðslega, ógeðslega gaman að fara.
▶ |
106 |
Það er geðveikt, ég væri mjög mikið til í að ná einhverju þannig.
▶ |
107 |
Já.
▶ |
108 |
En ókei, hérna, sko hérna er spurt sko:
▶ |
109 |
hvert myndir þú fara ef þú gætir farið hvert sem er?
▶ |
110 |
Einhvers sta'ar annars staðar en hér þar sem ég er akkúrat núna, ég,
▶ |
111 |
sólin er að gera út af við svefninn minn og það er búið að vera þrjátíu gráður og raki í síðustu fimm daga, ég er búinn að sofa að meðaltali fimm tíma um nóttina síðustu fjóra daga.
▶ |
112 |
Vá, damn.
▶ |
113 |
Og hvað hérna,
▶ |
114 |
þú færð væntanlega enga sko, þú færð, færð
▶ |
115 |
enga lausn frá því hérna á Íslandi sko.
▶ |
116 |
Ekki við ljósinu en hitastigið verður betra. Viðráðanlegra.
▶ |
117 |
Út í hött.
▶ |
118 |
Já, já er alveg [UNK] það eru alveg þrjátíu gráður hjá þér? Það er frekar mikið sko.
▶ |
119 |
Vá, Jesús.
▶ |
120 |
Það er maður á deildinni minni sem er frá Rúanda
▶ |
121 |
Já
▶ |
122 |
og hann er að kvarta yfir því að það sé of heitt hérna.
▶ |
123 |
Einmitt. Jesús.
▶ |
124 |
Og hvernig er kærastan að takast á við þetta? Er hún alveg líka bara lömuð yfir þessu eða?
▶ |
125 |
Hún, hún, hún kvartaði í allan vetur yfir hvað það er kalt og mikill snjór þarna inn og
▶ |
126 |
nú þorir hún ekki að láta upp úr sér að það sé of heitt. Þannig að,
▶ |
127 |
Eðlilega ekki. Já.
▶ |
128 |
hún er líka í Suður-Svíþjóð núna
▶ |
129 |
með öðrum vinnufélögum í ferðalagi, þannig að það er
▶ |
130 |
aðeins skárra veður hjá henni.
▶ |
131 |
Ókei, hvað er hún að gera? Er hún í siglingum eða er hún borgarferð, borgarferð eða eitthvað?
▶ |
132 |
Borgarferð
▶ |
133 |
og ströndin og
▶ |
134 |
ég veit ekki hvað þetta heitir á Íslensku. Glassblowing.
▶ |
135 |
Glergerð.
▶ |
136 |
Já, já, já, já.
▶ |
137 |
Ætli það sé ekki bara glerblástur eða?
▶ |
138 |
Já, glerblástur.
▶ |
139 |
Já, ókei. Og hvað, þetta er væntanlega ekki, bíddu, Suður-Svíþjóð, þetta er þá ekki,
▶ |
140 |
hvorki Gautaborg né Stokkhólmur.
▶ |
141 |
Nei, þetta er akkúrat mitt á milli.
▶ |
142 |
Skánn.
▶ |
143 |
Já, ókei, ókei.
▶ |
144 |
En bíddu, er strönd þar?
▶ |
145 |
Er þetta við ströndina bara syðst eða?
▶ |
146 |
Já.
▶ |
147 |
Nei, ég lýg, ókei, þetta er fyrir vestan. Þetta er rétt hjá Kalmar.
▶ |
148 |
Já, já, já.
▶ |
149 |
Þetta er sunnar heldur en Stokkhólmur, töluvert. Já.
▶ |
150 |
Bíddu ókei, þannig þú ert actually að segja að það er staður sem heitir Kalmar?
▶ |
151 |
Getur það virkilega verið staðurinn sem Kalmarsbandalagið eða sambandið var kennt við?
▶ |
152 |
Ég held að það sé bara nákvæmlega sá staður. Fallbyssu.
▶ |
153 |
Vá!
▶ |
154 |
Bíddu, nú, nú man ég ekki.
▶ |
155 |
[HIK: mi] mig minnir sko að við höfum lært það í sögunni í emm err að Eystrasaltið hafi verið sko
▶ |
156 |
lokað af Dönum og Svíum með sko, hérna,
▶ |
157 |
kanónum hvað heitir aftur, hvað er cannon á íslensku?
▶ |
158 |
Fallbyssum. Lærðir þú þetta í emm err?
▶ |
159 |
Ég man að við lærðum um Kalmarbandalagið, það var fyrsta sameining Svíþjóðar, Noregs og Danmerkur.
▶ |
160 |
Já.
▶ |
161 |
Einmitt, einmitt.
▶ |
162 |
Og það hrundi svo í sundur, held ég, eftir fyrsta kónginn. Þetta er rétt svo það sem ég man.
▶ |
163 |
Já, já, já, já. Já.
▶ |
164 |
Djöfull, djöfull kann ég enga sögu sko.
▶ |
165 |
Já, ókei.
▶ |
166 |
En ég ætlaði líka að segja þér að ástæðan fyrir því að ég er að stressa mig núna.
▶ |
167 |
Já, ég, ég ætlaði reyndar að spyrja þig
▶ |
168 |
líka. Hvað? Hvað er í gangi?
▶ |
169 |
Heyrðu, ég átti bókað í dag klukkan sex í PCR-próf því að þú þarft neikvætt PCR-próf áður en þú kemur til landsins.
▶ |
170 |
Já.
▶ |
171 |
Einmitt.
▶ |
172 |
Það er albókað með þriggja tíma fyrirvara af því að hjúkrunarfræðingurinn sem átti að taka sýnin mætti bara ekki í vinnu eða eitthvað
▶ |
173 |
Ókei, áhugavert.
▶ |
174 |
og út af því að ég bý í svo miklu krummaskuði, þá er ekki hægt að fá
▶ |
175 |
Ókei.
▶ |
176 |
neitt próf hérna sem gefur niðurstöður á innan við þrjátíu og sex tímum.
▶ |
177 |
Þú veist, það er það besta sem ég get fengið, niðurstöður á þrjátíu og sex tímum,
▶ |
178 |
þannig að ég er að reyna að bóka eitthvað svona snöggpróf á flugvellinum í Stokkhólmi
▶ |
179 |
sem kostar tvöfalt meira og ég náði samt ekki að bóka það tveimur tímum fyrir flug af því að það var allt bókað, þannig að
▶ |
180 |
ég sendi þeim bara tölvupóst um hvernig staðan er á mér
▶ |
181 |
og ef það er ekki hægt ætla að leysa það, þá þarf ég að taka lest á morgun og vera mættur snemma upp á flugvöll til þess að geta tekið þetta próf.
▶ |
182 |
Bíddu, hvenær ertu að fljúga hingað?
▶ |
183 |
Laugardaginn.
▶ |
184 |
What? Ókei, þannig að þú ert alveg á bara síðasta séns að fá þetta?
▶ |
185 |
Já.
▶ |
186 |
Ókei! Og hvað, er kærastan búin að fara í próf eða?
▶ |
187 |
Já, hún tók ferð til Kalmarborgar og lét prófa sig í dag.
▶ |
188 |
Ég skil ókei.
▶ |
189 |
En ég meina, ertu ekki þá bara að fara að fara á morgun bara eitthvað, þú veist?
▶ |
190 |
Og láta taka prófið? Eða?
▶ |
191 |
Ég er búinn að hringja á alla staði en þeir, út af því að það er ekki prófað sýnin hér, þau eru send til Stokkhólms og prufuð þar, þannig að þeir segja: við getum komið með svarið eftir þrjátíu og sex klukkustundir
▶ |
192 |
Sem er of seint.
▶ |
193 |
og ef ég fer, sem er of seint.
▶ |
194 |
Ókei, en þú getur ekki beðið á flugvellinum í Reykjavík eða í Keflavík
▶ |
195 |
eftir niðurstöðunni?
▶ |
196 |
Það, af því sem ég les á heimasíðunni, þá
▶ |
197 |
þarf prófið að vera tilbúið fyrir brottför frá Stokkhólmi.
▶ |
198 |
What? Ókei, og hvað, ég meina, þú veist,
▶ |
199 |
hversu
▶ |
200 |
ég [HIK: ski] nú bara er ég að reyna að átta mig á því hversu líklegt það er að þú lendir í alvörunni í veseni.
▶ |
201 |
Þannig að þetta,
▶ |
202 |
vesenið virðist vera það að ég þurfi að taka lest á morgun í staðinn fyrir að fljúga á laugardaginn til Stokkhólms.
▶ |
203 |
Ókei, en þá, en það ætti að redda því? Ókei.
▶ |
204 |
Það reddar því, þá get ég tekið próf sem er komið á tveimur tímum og þá er ég með próf sem er gilt.
▶ |
205 |
En ertu þá ekki bara að fara að gera það?
▶ |
206 |
Þú veist, jú jú,
▶ |
207 |
En lest, það er lítið um lestarpláss og það bætir örugglega þrjátíu fjörutíu þúsundkalli á kostnaðinn.
▶ |
208 |
Það er frábært!
▶ |
209 |
Það er frábært.
▶ |
210 |
Ókei, en ég meina, þú ert
▶ |
211 |
í öllum, í öllum tilfellum ertu samt sem áður að fara að komast til Íslands að því gefnu að þú sért með neikvætt pé sé próf. Ókei.
▶ |
212 |
Já.
▶ |
213 |
Ókei, ég meina
▶ |
214 |
það er bara ákveðinn skellur!
▶ |
215 |
Já, svona gerist.
▶ |
216 |
En, en, en hvað, ertu búinn að pakka öllu niður eða?
▶ |
217 |
Ég er að pakka núna, ég held ég sé svona
▶ |
218 |
meira en hálfnaður. Já, einmitt.
▶ |
219 |
Ókei, já, já, ég myndi nú ekkert, þetta, þetta reddast allt fyrir rest sko. Það versta er bara að þú ert að missa smá
▶ |
220 |
pening þarna ef þú þarft að fara.
▶ |
221 |
En þú verður fljótur að vinna það upp, þú ert náttúrulega svo,
▶ |
222 |
þú ert alveg þjóðþekktur fyrir það hvað þú
▶ |
223 |
ert sparsamur sko, þannig að ég hef engar áhyggjur af þér.
▶ |
224 |
Já já, hefur skánað núna en mætti vera betra.
▶ |
225 |
Já, en ókei. Hérna og ég meina þú og þú segir bara þegar að þú hefur alls ekkert meiri tíma en, en hérna, hérna er spurt sko, trúir þú á álfa, trölla eða drauga? [UNK].
▶ |
226 |
Nei, það trúi ég ekki á.
▶ |
227 |
Ókei, en þú veist. Hefurðu þú veist, hvað finnst þér um þessar sögur?
▶ |
228 |
Ég meina hvað, hver er skilningurinn þinn á þessum sögum? Þú veist, hvaðan koma þessar sögur?
▶ |
229 |
Einmitt.
▶ |
230 |
Ég hugsa að fólk finni útskýringar á einhverjum fyrirbrigðum sem er ekki augljóst hvað er. Einhver furðuleg hljóð úti í móa eða furðulegt steinhrap eða eitthvað svona
▶ |
231 |
og út frá þessu spinnst einhverjar sögur. Ég get jafnvel ímyndað mér að þetta væru krakkar að stríða öðrum krökkum eða koma með einhverjar svona sögur
▶ |
232 |
því að það virðist vera mjög létt fyrir bara litlar sögur eða litla orðróma að spinna upp á sig hrikalega mikið, sérstaklega í samfélögum fyrir, þú veist, mörg hundruð árum.
▶ |
233 |
Einmitt, já.
▶ |
234 |
Sko ég nefnilega, þú ert náttúrulega vísindamaður.
▶ |
235 |
Já,
▶ |
236 |
En hérna.
▶ |
237 |
Það sem ég ætlaði að segja en ekki þegja sko, tengdapabbi minn var að segja mér um daginn
▶ |
238 |
að það var einhver prestur
▶ |
239 |
á sautjándu öld eða eitthvað, nú man ég ekki
▶ |
240 |
já hvort hann hafi ekki, hvort hann hét ekki Ambrose.
▶ |
241 |
Og hann, hann var bara þjóðþekktur
▶ |
242 |
fyrir það að geta sko
▶ |
243 |
lesið í hljóði.
▶ |
244 |
Hvað þýðir það?
▶ |
245 |
Skilur þú? [UNK]
▶ |
246 |
Bara að [HIK: le], þú veist að lesa texta
▶ |
247 |
en ekki upphátt heldur í hljóði.
▶ |
248 |
Skilurðu, það þótti bara stórkostlega merkilegt og við vorum einmitt að tala um þú veist, við vorum að tala um svona, hvernig fólk var og, og hugsaði þú veist fyrir, þú veist bara í, þarna í kringum tímann þar sem að
▶ |
249 |
fjöldaprentun á rituðu máli fer að, að detta í gang.
▶ |
250 |
Fyrir tíma svona nútímavísinda og þar fram eftir götum.
▶ |
251 |
Vegna þess, eins þú og segir sko, þessar skýringar,
▶ |
252 |
þær eru ekkert endilega augljósar en þær virka kannski miklu augljósari ef að, þú veist
▶ |
253 |
ef þú lærir frá mjög ungum aldri rosalega margt um vísindi og, og, og, og um þú veist
▶ |
254 |
heiminn út frá einhverju líffræðilegu eða eðlisfræðilegu eða stjarnfræðilegu sjónarmiði.
▶ |
255 |
[UNK] hvernig útskýrir þú þá helming hlutanna sem er að gerast þarna, skilurðu?
▶ |
256 |
Já, með þá,
▶ |
257 |
þú veist, þá er heimurinn það flókinn og þetta er bara galdrar
▶ |
258 |
hvort eð er.
▶ |
259 |
Basically sko.
▶ |
260 |
En, en mér fannst það líka svolítið áhugavert sko að þú veist, að hérna
▶ |
261 |
meira að segja, meira að segja bara svona
▶ |
262 |
einfaldur hlutur eins og að lesa,
▶ |
263 |
að fyrir kannski ekkert svo löngu að þá hafði fólk til dæmis bara allt öðruvísi hugmynd um, um lestur heldur en til dæmis það hefur í dag. Og já þú veist og
▶ |
264 |
í rauninni sko ástæðan fyrir því að hann, hann minntist á þennan prest var sú sko að, að, að hann
▶ |
265 |
las einhvers staðar að, að, sko
▶ |
266 |
á árum áður þegar að fólk kannski hafði aðeins meira fyrir lífinu og tilverunni,
▶ |
267 |
að þá var sko rými til þess að hugsa
▶ |
268 |
og bara þú veist að hugsa innra með sér
▶ |
269 |
og pæla í hlutunum, pæla í framtíðinni og pæla þú veist í eðli heimsins og annað slíkt
▶ |
270 |
var bara ekki jafn algengt og í dag. Þú veist, auðvitað er ekkert hægt að sanna þetta. Þetta eru svona getgátur, skilurðu.
▶ |
271 |
En eins og, eins og þetta fyrirbæri þú veist, að hann hafi getað lesið án þess að lesa upphátt.
▶ |
272 |
Að það var einhvern veginn óskiljanlegt því þá var spurningin sko þú veist hvernig heyrði hann
▶ |
273 |
textann?
▶ |
274 |
Skilurðu? Hvernig skynjaði hann textann? Og þá voru margir sem sögðu bara: ja,
▶ |
275 |
þú veist, það er bara Guð sem er að þú veist
▶ |
276 |
varpa textanum í hausinn á, í hausinn á honum sko í rauninni.
▶ |
277 |
Huga hans. Og fólk kenndi svona þú veist að
▶ |
278 |
það sem ég hugsa í dag við myndum kalla eitthvað svona óhlutbundna hugsun.
▶ |
279 |
Það, fólk kenndi það bara við sko einhver, einhver, einhverja, einhverja sko, uppljómun Guðs, skilurðu?
▶ |
280 |
Já,
▶ |
281 |
Ég veit það ekki, mér finnst það, mér finnst það, mér finnst það sérstakt.
▶ |
282 |
Ég veit ekki af hverju ég fór að spá í þessu í kringum álfa og tröll, en hvað um það.
▶ |
283 |
Já, já.
▶ |
284 |
Það, svipuðum nótum, mér finnst einmitt líka, sem er kannski á svipuðum nótum en kannski aðeins öðruvísi,
▶ |
285 |
Já.
▶ |
286 |
Einmitt.
▶ |
287 |
ef þú ert með einhvers konar geðveiki og einhverjar svona ofskynjanir eða ranghugmyndir, þá eru margir sem tengja það mjög mikið við guð eða engla að segja að ef hann gerir eitthvað,
▶ |
288 |
Já,
▶ |
289 |
sem ég hef heyrt, að sko,
▶ |
290 |
algjörlega.
▶ |
291 |
Einmitt.
▶ |
292 |
nú til dags er fólk gjarnan með einhverjar hugmyndir um að lögreglan eða erlend leyniþjónusta sé að njósna um þau.
▶ |
293 |
Þetta er eitthvað svona vald sem er að valda þessum tilfinningum eða þessum hugsunum hjá þér og áður en við gátum sett það á erlends ríkisöfl eða eitthvað þannig, þá var það eiginlega bara guð sem var svona yfirnáttúrulegt og gat valdið öllu svona.
▶ |
294 |
Já.
▶ |
295 |
Einmitt, það er áhugavert, en mér finnst líka áhugaverur punktur eins og þú veist maður hefur heyrt um þetta þú veist
▶ |
296 |
þegar einstaklingar verða virkilega manískir
▶ |
297 |
eða þegar þú ert með einhvern einstakling sem hefur [HIK: scschizo] þjáist af schizophreniu eða eitthvað svoleiðis sko.
▶ |
298 |
Að hérna, þá fá þeir einmitt bara einhverja svona, svona messíasarkomplexa.
▶ |
299 |
Eða eins og þú segir að þú veist það eru einhverjir djöflar eða englar að tala við þau. En svo veit maður aldrei sko, hvort að, hvort að þetta sé sko
▶ |
300 |
verði fyrir einhverjum áhrifum þú veist af umhverfinu. Þú veist, þú, við, þú veist.
▶ |
301 |
Fólk hefur einhvers konar hugmynd um fyrirbærið englar og djöflar og svona messías og Jesú Kristur og allt þetta dót sko.
▶ |
302 |
Og maður veit ekki hversu mikið af þeim hugmyndum er bara varpað inn á þessa geðsjúkdóma sko.
▶ |
303 |
Ég las eða ég var að horfa á myndband þar sem geðlæknir var að fjalla um þetta og var að koma með hugmyndir um hvað hvað veldur svona svona hugsunarbrestum. Eða svona
▶ |
304 |
hver mekanísminn er á bak við þetta,
▶ |
305 |
og hann benti á, með þessa kenningu, að
▶ |
306 |
þú veist, þú hefur kannski upplifað það að finnast einhver vera að fylgjast með þér
▶ |
307 |
eða svona, er svona yfirnáttúruleg tilfinning, það er eitthvað er að fylgjast með mér, það er eitthvað
▶ |
308 |
bara yfir mér basically
▶ |
309 |
og þessi tilfinning verður sterkari og sterkari og þú byrjar kannski að leita og sérð, já heyrðu,
▶ |
310 |
myndavélin á tölvunni minni er opin, set lím fyrir hana,
▶ |
311 |
og það slaknar aðeins á tilfinningunni. En svo kemur hún aftur kannski næsta dag, er ennþá einhver að fylgjast með mér?
▶ |
312 |
Og ef tilfinningin er svona sterk,
▶ |
313 |
þá,
▶ |
314 |
ef þú ert þannig settur, þá trúirðu tilfinningunni frekar en að þú hafir rangt fyrir þér og flækir og flækir stigið um að það geti eitthvað verið að fylgjast með þér, byrjar á að loka gluggunum af því að einhver er kannski að kíkja inn um gluggana.
▶ |
315 |
Tilfinningin fer ekki burt, það er ennþá verið að fylgjast með þér.
▶ |
316 |
Þannig að þú býrð til ýktari og ýktari útskýringar
▶ |
317 |
Ókei.
▶ |
318 |
af því að þú ert svo viss um bara þessa tilfinningu.
▶ |
319 |
Þess vegna færðu fólk sem er svona að, það er verið að njósna um þá, fara í gegnum dótið þeirra, finnur öll merki sem staðfesta þessa tilfinningu sem er
▶ |
320 |
í upphafi.
▶ |
321 |
Ég velti því fyrir mér hvort að, og nú er ég náttúrulega bara algjör svona sófasálfræðingur sko.
▶ |
322 |
Já, ég líka.
▶ |
323 |
En, en þú veist, en maður veltir fyrir sér hvort þetta sé,
▶ |
324 |
nú vil ég vil ég ekki nota enska orðið. En, en það er eins og þetta sé svona ákveðinn svona skortur á því að geta samið við raunveruleikann um það hvað sé raunverulega satt og ekki.
▶ |
325 |
Þú veist, þú veist af því.
▶ |
326 |
Ég meina, það sem hlýtur að vera óeðlilegt þarna er ekki bara tilfinningin heldur það að maður þráist við það að upphefja tilfinninguna sem einhvern svona ófrávíkjanlegan sannleik.
▶ |
327 |
Já,
▶ |
328 |
Af því, af því ég fæ fullt af ranghugmyndum
▶ |
329 |
bara þú veist, á hverjum degi. Maður kannski fer í eitthvað matarboð með ókunnugu fólki. Og maður er eitthvað
▶ |
330 |
Guð ég sagði eitthvað rosa dónalegt eða ég kannski var ekki nógu brosandi og maður fer að halda að fólk kannski hafi einhverja hugmynd um mann.
▶ |
331 |
En svo þú veist ef að maður fær einhver sönnunargögn um það actually mín upplifun af þessu matarboði var bara algerlega á skjön við það [HIK: se], sem
▶ |
332 |
fólki fannst eða sem var í raun og veru í gangi.
▶ |
333 |
Að þá verður maður að vera tilbúinn svona að, að sætta sig við það að raunveruleikinn er ekki hvernig maður hélt að hann væri.
▶ |
334 |
Eða þú veist, eins og ef maður fer í atvinnuviðtal þá heldur maður að maður sé kannski sjúklega fær en svo actually kemst maður bara að því
▶ |
335 |
að maður, maður er bara glataður og hefur engan veginn hæfileikann til þess að sinna starfinu
▶ |
336 |
og þá þarf maður einhvern veginn að sætta sig við það.
▶ |
337 |
Já.
▶ |
338 |
Já.
▶ |
339 |
Einmitt.
▶ |
340 |
Einmitt. Já, já en þú veist.
▶ |
341 |
Já, það fer eitthvað úrskeiðis að brjóta niður tilfinninguna þegar raunveruleikinn er að reyna að sýna þér gögn á móti tilfinningunni og þetta þarf ekki bara að vera geðsjúkdómur, þú getur ímyndað þér fólk með átröskun eða, þú veist, fólk sem notar stera og finnst það ekki vera orðið nógu stórt
▶ |
342 |
eða fólk sem á enga vini og upplifir að allir séu að gera grín að þeim og gera lítið úr þeim bak við þá.
▶ |
343 |
Þetta er einhver svona innbyggður mekanismi sem fer úrskeiðis.
▶ |
344 |
Og [UNK] og eflaust eru bara, eru til skýringar á þessu líka sko út frá þróunarfræðilegu sjónarmiði.
▶ |
345 |
Já,
▶ |
346 |
En þú veist þetta hlýtur að vera
▶ |
347 |
einhvers konar svona skammhlaup þú veist því, því það að gera þetta
▶ |
348 |
er, er örugglega einhver aðlögun í einhverjum tilfellum sko.
▶ |
349 |
já, ég trúi því.
▶ |
350 |
Þannig að þú veist, þetta er ekki. Þetta er ekki hegðun. Ja, þetta er ekki hegðun sem er í sjálfu sér slæm. En, en hún svona, hún fer með suma út í gönur sko, sumir
▶ |
351 |
taka hana allt of langt sko.
▶ |
352 |
já,
▶ |
353 |
[UNK] bara borða ógeðslega mikið af mat. Þar [HIK: ti], þar til þú
▶ |
354 |
verður offeitur skilurðu?
▶ |
355 |
Það er klárlega aðlögun að vilja fá meiri kalóríur en það getur farið algjörlega úrskeiðis ef þú ert algerlega hömlulaus í því.
▶ |
356 |
[UNK]
▶ |
357 |
Einmitt.
▶ |
358 |
Líka bara, það er
▶ |
359 |
kerfi í okkur sem sækir í dópamín og hefur örugglega mótast mjög vel þegar við vorum bara einhverjir veiðimenn á steinöld.
▶ |
360 |
Og núna erum við með allt sem við getum viljað við, þú veist, tölvuna okkar.
▶ |
361 |
Þannig að það er mjög auðvelt að koma þessu kerfi úr skorðum, gjörsamlega.
▶ |
362 |
Já.
▶ |
363 |
Hundrað prósent en fyndið sko, sjúkraþjálfarinn minn sagði mér um daginn þú veist
▶ |
364 |
ókei, eðlilega eins og í dag við erum öll að sitja ógeðslega mikið og þess vegna er ótrúlega algengt að menn eru að fá bakverki og verki í mjaðmirnar og annað slíkt sko.
▶ |
365 |
En það er enginn að segja mér, segir hann, að þessir frumbyggjar hafi ekki líka stundum verið að fá í bakið.
▶ |
366 |
Já,
▶ |
367 |
Skilurðu þú veist, það hefur alveg líka verið thing sko.
▶ |
368 |
Því náttúrulega í þessu eins og öllu öðru
▶ |
369 |
við, við manninn og lífið og tilveruna er að þróun er náttúrulega ekki sko, þróun sem ferli
▶ |
370 |
er ekki sko að hámarka, hún er ekki að hámarka aðlögun eða þú veist hún er ekki að fullkomna líkamsgerð okkar. Hún, hún er að, hún er að
▶ |
371 |
hámarka sko,
▶ |
372 |
hérna,
▶ |
373 |
færni manns til þess að afrita genin sín sko.
▶ |
374 |
já,
▶ |
375 |
Sem er [UNK], sem er ekkert það sama og að hámarka lífsgæði eða hámarka líkamslega eiginleika eða gera okkur fullkomin sko. Það er bara allt annað ferli sko.
▶ |
376 |
Engan veginn, það eru ótrúlega mörg dýr sem sko
▶ |
377 |
búa til einhver þúsund egg sem kannski hundrað lifa af. Það er bara kerfi sem virkar fyrir þessi dýr.
▶ |
378 |
Einmitt. Já, og hámarka líkurnar á að koma genunum sínum til næstu kynslóðar.
▶ |
379 |
Já.
▶ |
380 |
Já, þetta er áhugavert. Þú ert ógeðslega mikill vísindamaður.
▶ |
381 |
Já,
▶ |
382 |
Þú ert rosa mikill [HIK: grú] þú grúskar rosalega mikið í þessu. Það er alltaf gaman að spjalla við þig um svona hluti sko.
▶ |
383 |
já, ég er sammála, mér finnst það
▶ |
384 |
gaman líka þegar ég hitti á þig með svona, þú hefur,
▶ |
385 |
þú hefur gaman af þessu líka og það er gaman að varpa þessum hugmyndum við þig.
▶ |
386 |
Algjörlega.
▶ |
387 |
Algjörlega.
▶ |
388 |
Nei, þetta er líka bara, ég veit ekki, ég hef rosa, ég hef rosa gaman af, sérstaklega sko þú veist ég hef gaman af öllum þessum, þessum umræðuefnum þú veist. Þróun, sálfræði, öllu þessu sko.
▶ |
389 |
En eins og við vorum að ræða áðan um geðsjúkdóma sko með sálfræðina áður en við klárum þetta samtal.
▶ |
390 |
Að sko sálfræðin sem vísindagrein,
▶ |
391 |
hún er líka rosa mikill sko ólíkt sko, ólíkt kannski svona eðlisfræði og þeim vísindum. Þetta á kannski aðallega við um eðlisfræði.
▶ |
392 |
En þá í grunninn er sálfræði sko þjónn mannsins.
▶ |
393 |
Markmið sálfræðinnar og skilgreining geðsjúkdóma er
▶ |
394 |
út frá einhvers konar svona hugmyndum um lífsgæði og hvað er sannarlega gott fyrir mann. Þú veist af því
▶ |
395 |
öll þessi viðbrögð eru alveg eðlileg en ef þau leiða þig út í gönur
▶ |
396 |
þá er það, þá er það geðsjúkdómur og gönurnar er bara, þú veist, það miðast út frá velferð manna sko.
▶ |
397 |
Já,
▶ |
398 |
mér finnst það líka bara bundið svo við kerfið sem er við lýði á hverri stund. Ég ætla að segja fyrir hundrað, hundrað og fimmtíu árum,
▶ |
399 |
Algjörlega.
▶ |
400 |
þá var kona sem vildi kjósa bara flokkuð sem geðveik
▶ |
401 |
bara af því að þú ert ekki að gera það sem konur eiga að gera,
▶ |
402 |
eignast börn og vera heima. Þetta er mjög,
▶ |
403 |
Algjörlega, algjörlega.
▶ |
404 |
enska orðið er adaptive, ég veit ekki hvernig maður íslenskar það.
▶ |
405 |
Bara þú veist, aðlagandi eða? En.
▶ |
406 |
Já,
▶ |
407 |
og við getum hugsað okkur bara eins og ef það eru til sálfræðingar í Mið-Austurlöndum, hvernig þeir
▶ |
408 |
Já.
▶ |
409 |
takast á við, ég veit ekki, þunglyndi eða kvíðaröskun eða eitthvað svona,
▶ |
410 |
Eða samkynhneigð eða whatever. Einmitt.
▶ |
411 |
eða samkynhneigð,
▶ |
412 |
Nei, nei og þú veist og líka bókstaflega sko a pé a samtökin hérna
▶ |
413 |
sálfræði, amerísku sálfræðisamtökin.
▶ |
414 |
Þau bókstaflega skilgreina geðsjúkdóma.
▶ |
415 |
já,
▶ |
416 |
Og bara þú veist taka suma þú veist eins og það að vera transmaður eða kona
▶ |
417 |
bara fyrir ekkert svo löngu var skilgreint sem geðsjúkdómur
▶ |
418 |
og er það ekki lengur, bara samkvæmt skilgreiningu sko.
▶ |
419 |
Þannig að þetta er mjög, þetta er mjög svona
▶ |
420 |
skilgreiningin á geðsjúkdómum er kvik upp að einhverju marki sko.
▶ |
421 |
Ég var í góðum áfanga á síðustu önn, síðustu haustönn,
▶ |
422 |
sem hét philosophy of science, heimspeki vísinda,
▶ |
423 |
og þar var verið að fjalla um hvað eru vísindin nákvæmlega
▶ |
424 |
því að það er mjög sterk hugmyndafræði,
▶ |
425 |
hvað skyldi til vísinda og hvað sterk vísindi eru. Þetta hefur fengið mig mjög mikið til að hugsa um, af því að það er gjarnan til þessi kvarði þar sem eðlisfræði er á lengsta endanum og svo efnafræði og líffræði og eitthvað svona
▶ |
426 |
og svo mýkri vísindi sem eru þá kannski sálfræði og svona.
▶ |
427 |
Einmitt. [UNK] líffræði líka að einhverju marki eða sumar undirgreinar líffræðinnar.
▶ |
428 |
Já, akkúrat, og tólin sem er að vinna með þar, þau bara geta ekki verið jafn nákvæm af því að þú ert gjarnan að taka einhver hópúrtök og eitthvað. Já.
▶ |
429 |
Já, líka bara þú veist eins og þú veist
▶ |
430 |
segðu mér hvernig einhver lífvera mun þróast.
▶ |
431 |
[UNK] það er ekki einu sinni hlutverk líffræðinnar skilurðu.
▶ |
432 |
En hvernig stjörnur þróast er mjög mikilvægt að vita og er eiginlega undirstöðuatriði í eðlisfræði eða skilurðu, stjarneðlisfræði.
▶ |
433 |
Og ég hef verið að detta svolítið inn á þetta með hagfræði,
▶ |
434 |
og ég hef verið að hringja í menn og spjalla við þá aðeins um þetta, af því að
▶ |
435 |
Já.
▶ |
436 |
ég er að fá svona tilfinningu, því meira og meira sem ég les hvað hagfræði er mikilvæg, hvað einhvern veginn allt, allur heimurinn byggir á hvernig hagfræðin gengur, eða bara hvernig ríkisafkoma ríkja er,
▶ |
437 |
Já.
▶ |
438 |
og ég er að skoða, svona,
▶ |
439 |
ástæður fyrir því að það virðast vera deilur í hagfræði er, ég veit ekki hvort ég eigi að kalla það, mismunandi vísindaleg nálgun á hagfræði, á hagfræðilegt kerfi?
▶ |
440 |
Algjörlega. Nei algjörlega.
▶ |
441 |
Og að einhverju leyti sko líka bara mismunandi heimspeki sem er til grundvallar sko.
▶ |
442 |
Já,
▶ |
443 |
og bara að kerfið bregst við, hvernig það er verið að vinna á það. Ef ríkið gerir einhverja aðgerð sem á kannski að minnka vexti eða eitthvað, nú er ég að bulla bara eitthvað,
▶ |
444 |
þá verður fólk ótrúlega hrætt um sparnaðinn sinn og gerir eitthvað þannig að það verða öfug áhrif,
▶ |
445 |
bara út af því það veit hvað er að gerast.
▶ |
446 |
Algjörlega.
▶ |
447 |
Já, já og þú veist og þú ert alltaf með þessi sko,
▶ |
448 |
þú veist, þú ert alltaf með þessi víxláhrif eða víxláhrif?
▶ |
449 |
Þú veist, þetta er svipað eins og þú veist ef þú ferð í einhvern dal og fjarlægir alla úlfana. Að þú veist
▶ |
450 |
þá mun, þá mun hérna,
▶ |
451 |
þá mun fjölgun í einhverjum, í einhverjum
▶ |
452 |
nagdýrum aukast og það mun valda mjög miklum gróðurskemmdum og það mun raska vistkerfinu og þú veist og þá, þú veist
▶ |
453 |
rebalance-ast það einhvern veginn. Þú veist, þú ert alltaf með einhver svona
▶ |
454 |
action og reaction sko. Þú veist að.
▶ |
455 |
En fyndna með eins og vexti og svona er að sko vextir og verðbólga eru svona tvö fyrirbæri sem bara þar sem væntingar eru ráðandi þátturinn eiginlega sko
▶ |
456 |
frekar en eitthvað annað.
▶ |
457 |
En hérna
▶ |
458 |
en við getum rætt hagfræðina kannski frekar þegar þú ert kominn heim. Ég hugsa að við séum bókstaflega bara að renna út á tíma.
▶ |
459 |
Já, ég sé það.
▶ |
460 |
Við alveg tókum bara góðan hálftíma þannig bara þú ert að hjálpa mér sjúklega mikið.
▶ |
461 |
já,
▶ |
462 |
Ég, ég heyri í þér hinum megin ég kannski bjalla í þig rétt stutt og leyfi þér svo halda áfram að pakka niður. Thank you sir.
▶ |
463 |
Jess. Já, takk fyrir.
▶ |