text
stringlengths 0
2.14k
|
---|
Hrútur hélt suður til Eyrasunds. Og er hann kom í sundið sér hann fjölda skipa í sundinu. |
Þá mælti Úlfur: "Hvað skal nú til ráða taka Íslendingur?" |
"Halda fram ferðinni," Segir Hrútur, "því að ekki dugir ófreistað. Skal skip okkar Össurar fara fyrst en þú skalt leggja fram sem þér líkar." |
"Sjaldan hefi eg haft aðra að skildi fyrir mér," segir Úlfur. |
Leggur hann fram skeiðina jafnfram skipi Hrúts og halda svo fram í sundið. |
Nú sjá þeir er í sundinu eru að skip fara að þeim og segja Atla til. |
Hann svaraði: "Þá gefur vel til fjár að vinna og reki menn af sér tjöldin og búist við sem hvatlegast á hverju skipi. Skip mitt skal vera í miðjum flotanum." |
Síðan greiddu þeir róðurinn á skipum Hrúts. Og þegar er hvorir heyrðu mál annarra stóð Atli upp og mælti: "Þér farið óvarlega. Sáuð þér eigi að herskip voru í sundinu eða hvert er nafn höfðingja yðvars?" |
"Hrútur heiti eg," segir hann. |
"Hvers maður ert þú?" segir Atli. |
"Hirðmaður Haralds konungs gráfeldar," segir Hrútur. |
Atli mælti: "Lengi höfum við feðgar eigi kærir verið Noregskonungum yðrum." |
"Ykkur ógæfa er það," segir Hrútur. |
"Svo hefir borið saman fund okkarn," segir Atli, "að þú skalt eigi kunna frá tíðindum að segja" og þreif upp spjót og skaut á skip Hrúts og hafði sá bana er fyrir varð. |
Síðan tókst orusta með þeim og sóttist þeim seint skip þeirra Hrúts. Úlfur gekk vel fram og gerði ýmist að hann skaut eða lagði. Ásólfur hét stafnbúi Atla. Hann hljóp upp á skip Hrúts og varð fjögurra manna bani áður Hrútur varð var við. Snýr hann þá í mót honum. En er þeir finnast þá leggur Ásólfur í skjöld Hrúts og í gegnum en Hrútur hjó til Ásólfs og varð það banahögg. |
Þetta sá Úlfur óþveginn og mælti: "Bæði er nú Hrútur að þú höggur stórt enda átt þú mikið að launa Gunnhildi." |
"Þess varir mig," segir Hrútur, "að þú mælir feigum munni." |
Nú sér Atli beran vopnastað á Úlfi og skaut spjóti í gegnum hann. Síðan varð hin strangasta orusta. Atli hleypur upp á skip að Hrúti og ryðst um fast og nú snýr í mót honum Össur og lagði til hans og féll sjálfur á bak aftur því að annar maður lagði til hans. Hrútur sneri nú í mót Atla. Atli hjó þegar í skjöld Hrúts og klauf allan niður. Þá fékk Atli steinshögg á höndina og féll niður sverðið. Hrútur tók sverðið og hjó undan Atla fótinn. Síðan veitti hann honum banasár. Þar tóku þeir fé mikið og höfðu með sér tvö skip, þau er best voru, og dvöldust þar litla hríð síðan. |
Þeir Sóti fórust hjá. Sigldi hann aftur til Noregs. Kom hann við Limgarðssíðu og gekk þar á land. Þar mætti hann Ögmundi sveini Gunnhildar. |
Ögmundur kenndi Sóta þegar og spyr hann: "Hve lengi ætlar þú hér að vera?" |
"Þrjár nætur," segir Sóti. |
"Hvert ætlar þú þá?" sagði Ögmundur. |
"Vestur til Englands," segir Sóti, "og koma aldrei til Noregs meðan ríki Gunnhildar er." |
Ögmundur gekk þá í braut og fer á fund Gunnhildar því að hún var þaðan skammt á veislu og Guðröður sonur hennar. Ögmundur sagði Gunnhildi frá ætlan Sóta. En hún bað þegar Guðröð son sinn fara og taka Sóta af lífi. |
Guðröður fór þegar og kom á óvart Sóta og lét leiða hann á land upp og festa þar upp en tók fé allt og færði móður sinni. Hún fékk til menn að færa allt féið á land upp og austur til Konungahellu og fór sjálf þangað. |
Hrútur hélt aftur um haustið og hafði fengið fjár mikils og fór þegar á fund konungs og hafði af honum góðar viðtökur. Hann bauð þeim að hafa slíkt af fénu sem þeir vildu en konungurinn tók af þriðjunginn. Gunnhildur segir Hrúti að hún hafði tekið erfðina en látið drepa Sóta. Hann þakkaði henni og gaf henni allt hálft við sig. |
**6. kafli** |
Hrútur var með konungi um veturinn í góðu yfirlæti. En er voraðist gerðist Hrútur hljóður mjög. |
Gunnhildur fann það og talaði til hans er þau voru tvö saman: "Ert þú hugsjúkur, Hrútur?" sagði hún. |
"Það er mælt," segir Hrútur, "að illt er þeim er á ólandi er alinn." |
"Vilt þú til Íslands?" segir hún. |
"Það vil eg," sagði hann. |
"Átt þú konu nokkura út þar?" segir hún. |
"Eigi er það," sagði hann. |
"Það hefi eg þó fyrir satt," segir hún. |
Síðan hættu þau talinu. |
Hrútur gekk fyrir konung og kvaddi hann. |
Konungur mælti: "Hvað vilt þú nú Hrútur?" |
"Eg vil beiðast herra að þér gefið mér orlof til Íslands." |
"Mun þar þinn sómi meiri en hér?" segir konungur. |
"Eigi mun það vera," sagði Hrútur, "en það verður hver að vinna er ætlað er." |
Gunnhildur mælti: "Við ramman mun reip að draga og gefið honum gott orlof að hann fari sem honum líkar best." |
Þá var ært illa í landi en þó fékk konungurinn honum mjöl sem hann vildi hafa. |
Nú býst hann út til Íslands og Össur með honum. Og er þeir voru búnir þá gekk Hrútur að finna konunginn og Gunnhildi. |
Gunnhildur leiddi hann á eintal og mælti til hans: "Hér er gullhringur er eg vil gefa þér" og spennti á hönd honum. |
"Marga gjöf góða hef eg af þér þegið," segir Hrútur. |
Hún tók höndum um háls honum og kyssti hann og mælti: "Ef eg á svo mikið vald á þér sem eg ætla þá legg eg það á við þig að þú megir engri munúð fram koma við þá konu er þú ætlar þér á Íslandi að eiga en fremja skalt þú mega við aðrar konur vilja þinn. Og hefir nú hvortgi okkað vel. Þú trúðir mér eigi til málsins." |
Hrútur hló að og gekk í braut. |
Síðan fór hann til fundar við konunginn og þakkaði honum hversu höfðinglega hann hafði alla hluti til hans gert. Konungurinn bað hann vel fara og kvað Hrút vera hinn röskvasta mann og vel kunna að vera með tignum mönnum. |
Hrútur gekk síðan til skips og sigldi í haf. Þeim gaf vel byri og tóku Borgarfjörð. En þegar er skip var landfast reið Hrútur vestur heim en Össur lét ryðja skipið. Hrútur reið á Höskuldsstaði og tók bróðir hans vel við honum og sagði Hrútur honum allt um ferðir sínar. Síðan sendi hann mann austur á Rangárvöllu til Marðar gígju að búast við boði. En þeir bræður riðu síðan til skips og sagði Höskuldur Hrúti fjárhagi hans og hafði mikið á aflast síðan Hrútur fór í braut. |